Bókasafnið - 01.04.1995, Side 46
Helstu deildir og starfsþættir
(sbr. skipurit)
Skrifstofa landsbókavarðar
Landsbókavörður: Einar Sigurðsson
Aðstoðarlandsbókavörður: Þórir Ragnarsson
Fjármálastjóri: Hrafnhildur Asta Þorvaldsdóttir
Tækniráðgjafi: Þorsteinn Hallgrímsson.
Skrifstofa landsbókavarðar annast starfsmanna- og
fjármálastjórn, þróunarmál, m.a. í tæknilegum efnum,
rekstur húss, lóðar og búnaðar. Hún hefur umsjón með
bókbandsstofu, viðgerðarstofu, myndastofu, fjölföldunar-
stofu, veitingarekstri, símaþjónustu og póst- og sendi-
þjónustu. Skrifstofan hefur einnig yfirumsjón með
sýningarhaldi, útgáfu- og menningarstarfsemi, svo og
fjölþjóðlegu samstarfi.
Kerfisþjónusta
Forstöðumaður: Andrea Jóhannsdóttir.
Aðstoðarkerfisbókavörður: Sigrún Hauksdóttir.
Tölvutæknifræðingur: Sigfús Jóhannsson.
Kerfisþjónusta annast viðhald og þróun Gegnis og eftirlit
með tölvubúnaði starfsmanna og notenda.
Aðfangadeild
Forstöðumaður: Þorleifur Jónsson.
Deildarstjóri (skylduskil o.fl.): Nanna Bjarnadóttir.
Deildarstjóri (almennt tímaritahald): Sigríður Lára
Guðmundsdóttir.
Aðfangadeild annast val og kaup á bókum, tímaritum og
öðrum safngögnum. Hún sér einnig um skylduskil
prentaðra gagna og um ritaskipti.
Handritadeild
Forstöðumaður: Ogmundur Helgason.
Deildin annast öflun, skráningu og varðveislu handrita
og sér um þjónustu við þá fræðimenn, sem til deildarinnar
leita. Einnig hefur hún umsjón með öryggisgeymslu
safnsins.
Handritadeild og þjóðdeild hafa nána samvinnu um að
búa til sýninga íslenskt efni, svo og efni úr sérsöfnum.
Skráningardeild
Forstöðumaður: Guðrún Karlsdóttir.
Deildarstjóri (skráning íslenskra rita og ritstjórn
Islenskrar bókaskrár): Hildur G. Eyþórsdóttir.
Deildarstjóri (skráning erlendra rita og þróun
skráningarsniðs (marksniðs)): Sigbergur Friðriksson.
I skráningardeild eru safngögn flokkuð, skráð og
efnisgreind og deildin sér um uppbyggingu gagnasafna í
Gegni.
Upplýsingadeild
Forstöðumaður: Halldóra Þorsteinsdóttir.
Deildarstjóri (tón- og mynddeild og notendaþjónusta á
4. hæð): Anna Jensdóttir.
Deildarstjóri (uppbygging handbókakosts og
notendaþjónusta á 2. hæð): Ingibjörg Árnadóttir.
Meðal viðfangsefna deildarinnar eru tölvuleitir,
notendafræðsla og almenningstengsl, auk almennrar
upplýsingaþjónustu.
Utlánadeild
Forstöðumaður: Áslaug Agnarsdóttir.
Deildarstjóri (millisafnalán): Barbara B. Nelson.
Deildarstjóri (námsbókasafn og notendaþjónusta á 3.
hæð): Ragnhildur Bragadóttir.
Auk lánastarfseminnar sér deildin um bókun á aðstöðu í
les- og hópvinnuherbergjum, hefur umsjón með bóka-
geymslum safnsins og hinum opnu notendarýmum.
Þjóðdeild
Forstöðumaður: Kristín Bragadóttir.
Deildarstjórastöðu við landakort og sérsöfn hefur ekki
verið ráðstafað.
Þjóðdeild hefur m.a. umsjón með aðaleintaki og
varaeintaki íslenskra rita, sér um lestrarsal deildarinnar og
annast þjónustu við fræðimenn, sem þangað leita.
Á vegum deildarinnar er skrifstofa alþjóðabóknúmera
(ISBN, ISSN).
Viðbótareintök velflestra íslenskra rita, svo og filmur af
dagblöðum, eru á sjálfbeinarými safnsins, utan þjóðdeildar.
Það verður að segjast, að
starfsfólk safnsins hefur staðist
hið mikla álag undanfarinna
mánaða með miklum ágæt-
um. Takmarkaður mannafli
og naum fjárráð safnsins
hljóta hins vegar í ýmsu að
bitna á starfsemi þess. Þannig
hefðum við t.d. gjarnan viljað
hafa þjónustutíma safnsins
lengri. Það hefur verið opið kl.
9-19 á virkum dögum, laug-
ardaga kl. 9-17, en Iokað á
sunnudögum. Vegna prófa í
Háskólanum var safninu þó
I sérsafnarými.
haldið opnu til kl. 22 virka
daga frá byrjun apríl og fram
undir miðjan maí.
Fyrstu mánuðirnir
Hvernig hefur svo starfsemin
gengið þessa fyrstu mánuði? Á
einfaldasta hátt má svara því
þannig, að um ævintýralegan
tíma hafi verið að ræða. Sjálf
opnunarathöfnin þótti takast
með ágætum. Dagana á eftir
var mikil umferð í safninu,
formlegar heimsóknir, opið
hús fyrstu helgina og auk þess
46 Bókasafnið 19. árg. 1995