Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 50

Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 50
Regína Eiríksdóttir Bækur og butar Er einhver skyldleiki með bókasöfnum og bútasaumstepp- um? Það er a.m.k. ótrúlega algengt bæði hérlendis og erlend- is að þeir sem vinna á bókasöfnum, hafi gaman af bútasaum. Bókasöfn eru hlý, opin og ókeypis. Bútasaumsteppi fæst að vísu ekki ókeypis en er að sama skapi hlýtt og býður þig alltaf velkominn. Að vinna bútasaumsteppi er svipað þolinmæðis- verk og að skrifa góða bók. Höfundar bókanna leika sér að því að raða saman orðum og skapa þannig fyrir okkur sem elskum að lesa ómetanlegan fjársjóð í formi texta. Það sama gildir um þann sem raðar saman teppi úr mörgum bútum sem loks verður að einni heild sem gott er að skríða undir með góða bók. í ritstjórn Bókasafhsins eru fimm ritstjórnarmeðlimir sem eitthvað hafa snert á bútasaum og þetta skýrir valið á forsíðu blaðsins þetta ár. Forsíðan er mynd af bútasaumsteppi sem unnið var af bútasaumshópi sem stofnaður var í Gerðubergi, útibúi Borgarbókasafns Reykjavíkur, árið 1989. Hópurinn hittist yfir veturinn á laugardögum í fimm klukkustundir á fimm til sex vikna fresti í viðgerðarstofu í kjallara Menningarmiðstöðvarinnar í Gerðubergi. I hópnum er ekki aðeins starfsfólk bókasafnsins heldur einnig starfs- menn Menningarmiðstöðvarinnar, þannig stuðlar þetta tóm- stundagaman að betri kunningsskap þeirra sem starfa í sömu stofnun við ólík verkefni. Þegar ritstjóri Bókasafhsins heim- sótti hópinn í vitlausu veðri einn laugardag í janúar ríkti inni mikil hlýja og starfsgleði. Þær klipptu, röðuðu, saumuðu, drukku kaffi og ræddu um bækur og bútasaum. Jafnt bækur með sniðum og bútasaumsteppum sem krassandi sakamála- sögur og aðrar bókmenntir. Þema þar sem bækur koma fyrir höfðaði mjög til þeirra því flestum fannst jafn gaman að hengja upp veggteppi með bókum eða af einhverjum við lest- ur eins og að horfa á bækur í hillu eða lesa þær. Þessi áhugi hópsins hefur komið að góðum notum í sögustund þar sem börn fengu að teikna jólamyndir með taulitum á búta sem síðan voru saumaðir saman í teppi sem nú skreytir safnið um hver jól. Þá fór ég að hugsa um það hvort eitthvað væri líkt með bókasöfnun, bókasafnsfræði og bútasaum og komst að þeirri niðurstöðu að svo væri. Það ríkir sama söfnunarhvötin við að safna fallegum efnum og fallegum bókum. Jafnvel spjaldskrá- Sigurbjörg Júlíusdóttir, aÖalsöguhetja bútasaumshópsins. in er einskonar bútasaumur og fyrr á tímum var hún eflaust bæði handskrifuð og handldippt. í bútasaum er litum og bút- um raðað saman í ákveðið munsturkerfi og er það elcki einmitt það sem Dewey karlinn var að gera þegar hann samdi flokkunarkerfið fyrir bækur? Árið 1885 stofnaði hann New York Library Club sem var fagfélag og hafði það hlutverk að bjóða öllum sem áhuga höfðu á bókum og bókasöfnum upp á fyrirlestra og sérstakar skoðunarferðir á bókasöfn og aðra staði sem tengdust bókum á einhvern hátt. Ólíklegt er að Melvil Dewey hafi grunað að 100 árum síðar yrði þessa at- burðar minnst með því að sauma bútasaumsteppi sem sýndi m.a. hann sjálfan standandi við bókahillu. Teppið var síðan að afmæli loknu sent í sýningarferð á almenningsbókasöfn í Bandaríkjunum. Þetta leiðir hugann að því hvort ýmisskonar tómstunda- iðja almennings geti ekki leitt til meiri notkunar á bókasöfn- um. Bókasöfnin gætu lagt áherslu á að kaupa bækur um tóm- stundastarf auk þess sem þau gætu boðið húsakynni sín fyrir ýmsa tómstundaiðju. Þannig kæmi fólk í bókasafnið í þeim tilgangi að iðka tómstundir sínar og myndi smám saman kynnast safninu betur og þeim möguleikum sem það bíður upp á. Ég spurði þær stöllur í Gerðubergi hvort þessi áhugi þeirra hefði leitt til meiri aðfanga í bútasaum. Þær svöruðu að þær raddir hefðu heyrst í öðrum útibúum safnsins en stað- reyndin væri sú að Gerðuberg ætti ekki nægjanlegt efni í þess- um flokki því aldrei væri nein bók inni og þær sjálfar væru ekki með þessar bækur í láni. I Bandaríkjunum er ekki óalgengt að bútasaumsklúbbar starfi í einhverjum tengslum við vinafélög bókasafna. Búta- saumsteppi hafa reynst vel til fjáröflunar, hvort sem er að teppið er selt í heilu lagi eða styrktarfélagar fá nafn sitt saum- að gegn ákveðnu gjaldi. Teppið er síðan látið hanga uppi í viðkomandi bókasafni til skrauts. Bútasaumshópur sem kall- ar sig The No-Name Quilters saumaði fyrir almenningsbóka- safnið í Woodland í Kaliforníu teppi sem notað var til þess að safna framlögum vegna afmælis safnsins. Teppið var sam- sett úr opnum bókum og bókarkjölum og kostuðu áletranir á kjöl 25$ en heil bók 50$. 50 Bókasafnið 19. árg. 1995
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.