Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 64

Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 64
Stefanía Júlíusdóttir lektor, Háskóla íslands Notkun LIBIS-netsins við uppbyggingu safnkosts Inngangur Tölvuvæðing bókasafna hófst á sjöunda áratugnum með tölvuvæðingu tveggja verkþátta, annars vegar útlánum stórra bókasafna og hins vegar skráningu, þar voru Library of Con- gress og British National Bibliography í fararbroddi með þró- un fyrstu Marksniðanna. A seinni hluta þess áratugar voru fyrstu stóru bókfræðiþjónustufyrirtækin, OCLC, Utlas og WLN, stofnuð með það að meginmarkmiði að samnýta skráningarvinnu. Eftir því sem bókfræðigagnasöfnin stækkuðu og fleiri bókasöfn tóku þátt í uppbyggingu þeirra og settu safntákn sitt við færslur sinna rita, urðu þau einnig tæki til þess að auðvelda samnýtingu safnefnis aðallega með millisafnalán- um. (Hildreth, C.R. 1987, s. 222). A áttunda áratugnum fengu bókasöfn víða um heim bein- línuaðgang að tölvuvæddum samskrám bókasafna og tölvu- væddum bókfræðigagnabönkum (commercial databases). Hin nýja tækni var augljóslega öflugt tæki sem nota mátti við mun víðtækari samvinnu en skráningu og millisafnalán. í lok þess áratugar var Ijóst að: Nettengd bókasafnsþjónusta hlyti að hafa áhrif á rekstur bókasafna. Auk breytinga í skráningu, millisafnalánum, upplýsingaþjónustu og árvekni- þjónustu hlytu einnig að verða breytingar á uppbyggingu safnkosts, þeg- ar aðfangabókaverðir gætu með skjótum og auðveldum hætti séð hvaða rit höfðu verið valin á bókasöfnum annarra stofnana. Það væri einnig viðbúið að safngestir yrðu viljugri til að samnýta safnkost þegar mun auðveldara yrði að komast að því hvað væri til á öðrum bókasöfnum og að panta það í millisafnaláni með beinlínutengingu í gegnum net. (Dougherty, R.M. 1978, s. 15-16). Ný samvinnuverkefni um uppbyggingu safnkosts voru hafin og nýtt tæki Conspectus, sem er eins konar heildar yfir- lit yfir safnkost hvers bókasafns sem þátt tekur og stefnu þess um uppbyggingu safnkosts í nútíð og framtíð (Ferguson, A.W. 1988) var þróað til þess að gera samvinnu um upp- byggingu safnkosts markvissari og árangursríkari. Heildar- yfirlitið má gefa út á prenti og/eða hafa það aðgengilegt í gagnagrunni sem þátttökusöfn hafa aðgang að. Árangur samvinnunnar er háður nettengingum og beinlínuaðgangi að bókasafnaskrám annarra bókasafna, þar sem sjá má hvaða rit eru raunverulega til á hverju bókasafni. Á níunda ára- tugnum kom enn annað tæki til sögunnar sem auðveldar margvíslega samvinnu bókasafna m.a. samnýtingu safnkosts, nefnilega geisladiskurinn. Jafnframt nýjum möguleikum til samvinnu hefur þörfin á henni einnig aukist að mun vegna niðurskurðar í bókasöfn- um. Það er því ekki að undra að verkefnum um samnýtingu skráningarvinnu, millisafnalán og samvinnu um uppbygg- ingu safnkosts og varðveislu hafi fjölgað. í sumum tilvikum byggist samvinnan á nákvæmu skipulagi og reglum, í öðrum tilvikum á formlegu samkomulagi og í enn öðrum tilvikum aðeins á óformlegu samkomulagi. Mikill fjöldi rita og greina sem lýsa stofnun, rekstri og árangri slíkra verkefna hefur ver- ið birtur í bókasafnsritum. Hins vegar virðist þróun samvinnu um uppbyggingu safn- kosts meðal bókasafna sem hafa kjöraðstöðu fyrir slíka sam- vinnu, svo sem sameiginlegt bókasafnsnet, notkun sama tölvukerfis í bókasöfnunum og beinlínutengda samskrá, án þess að samkomulag hafi verið gert um samvinnuna eldd hafa verið könnuð. Rannsókn á bókasafnsnetinu LIBIS-net í þessari grein er sagt frá hluta rannsóknar sem höfundur gerði sl. vor á bókasafnsnetinu LIBIS-net, sem starfrækt er í Belgíu, en nær til fleiri landa. Markmið Markmið þess hluta rannsóknarinnar sem hér er greint frá er að kanna hvaða áhrif kjöraðstaða fyrir samvinnu bókasafna hefur á sameiginlega uppbyggingu safnkosts, þar sem sam- starfssamningur milli bókasafna um slíkt er eldci til og reglur til að fara eftir við samstarfið vantar. Tilgáta Tilgátan er sú að aðgangur að samskrá í gegnum sameigin- legt bókasafnsnet valdi því, þegar til Iengri tíma er litið, að sameiginlegur safnkostur verði fjölbreyttari en ef hann hefði verið byggður upp án skjótfenginnar vitneskju um það sem þegar er til eða hefur verið pantað á hinum söfnunum, jafnvel þegar heildarsamstarfssamning vantar og engar sameiginlegar reglur eru til að fara eftir við val aðfanga. Val bókasafnsnets Belgíska bólcasafnsnetið LIBIS-net sem stofnað var árið 1977 var valið fyrir þessa könnun. Ástæður þess eru m.a. þær að: • það er eitt stærsta bókasafnsnet í Evrópu og það stærsta í Belgíu (Borm, J. Van, 1991, s. 26). Sameiginlegur safn- kostur LIBIS-bókasafnanna er talin nema um 12-15 milj- ónum eintaka (Regent, A., viðtal 1994). Enda þótt því fari fjarri að allur sá safnkostur sé skráður í LIBIS-samskrána (LIBIS-net Secretariat 1994, óbirtar upplýsingar) er mik- ill akkur í samnýdngu á skráningarvinnu og safnefni fyrir bókasöfnin og notendur þeirra. • LIBIS-bókasöfnin hafa ekki heildarsamning um sameig- inlega uppbyggingu safnkosts (Regent, A. viðtal 1994). • LIBIS-bókasöfnin nota öll sama bókasafnskerfið, DOB- IS/LIBIS bókasafnskerfið, sem auðveldar alla samvinnu bæði fyrir starfsfólk safnanna og notendur þeirra sem geta notað sömu leitartækni við efnisleitir í öllum LIBIS-bóka- söfnunum. • Hefð hefur skapast í Belgíu um óformlega samnýtingu á safnefni bókasafna (Regent, A., Braeckman, J., og DeSmedt, M., viðtöl 1994) og samkomulag hefur náðst 64 Bókasafnið 19. árg. 1995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.