Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 72

Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 72
Grundvöllur upplýsingakerfis fyrir stjórnendur y\^ i°°ps Afangar á leiðinni eru sýndir sem hugsanabólur: 1. Structure the decision: Skipuleggja ákvörðunina. 2. Gather information: Safna upplýs- ingum. 3. Choose: Velja. 4. Validate: Staðfesta. Annað á myndinni: Models: Líkön til að meðhöndla upplýsingar t.d. reiknilíkön og hernilíkön. Control loops: Eftirlitsfýrirmæli t.d. staðlar og aðrar viðmiðanir Óformlegar upplýsingar eru þó svo sannarlega mjög mik- ilvægar. Til er fólk, sem er alltaf með á nótunum. Það les fleiri greinar og skýrslur en aðrir, fer á námskeið og ráðstefnur og skrifar fræðilega. Þetta fólk (invisible colleges) er eins konar upplýsingalind og í góðu sambandi við samstarfsmenn og aðra fagmenn og myndar upplýsinganet eða -kerfi (Cronin, 1982). Önnur dæmi um óformlegar upplýsingalindir eru há- degisverðarfundir, bridgekvöld eða jafnvel veiðitúrar. Taka verður þessar óformlegu upplýsingaleiðir með í reikninginn, því þær eru mikilvægar fyrir alla (Olaisen, 1990, s. 205), þótt þær verði að sjálfsögðu seint settar í tölvuvæddan gagna- grunn! Skipta má formlegu upplýsingunum í ytri og innri upp- lýsingar, þ.e. utanaðkomandi upplýsingar annars vegar og upplýsingar, sem verða til innan stofnunar/fyrirtækis hins vegar. Dæmi um ytri upplýsingar, sem stjórnandi í bókasafni þyrfti á að halda, væru t.d. lög, stefna stjórnvalda, samfélags- þróun, kröfur notenda eða móðurstofnunar. Innri upplýsing- ar væru t.d. upplýsingar fengnar úr upplýsingakerfi stofnun- arinnar (e.t.v. tölvuvæddu ), frá samstarfsmönnum, úr frétta- bréfi stofnunarinnar, af fundum eða upplýsingar fengnar með eigin eftirliti stjórnandans með vinnu starfsmanna frá degi til dags. 3.2 Upplýsingaþörf á mismunandi stjórnunarþrepum Nákvæm skilgreining á upplýsingaþörf hinna ýmsu stjórn- enda er mikilvæg, þegar hugað er að upplýsingakerfi fyrir stjórnendur. Það virðist vera fremur erfitt fyrir stjórnendur að gera (sér) grein fyrir upplýsingaþörf sinni og er ástæðan e.t.v. sú, að þeir eru svo vanir fátæklegum upplýsingum. Þeir gera því litlar kröfur. Sú var líka niðurstaðan af vettvangsathugunum. Ýms- ar aðferðir hafa verið þróaðar, til að mæla upplýsingaþörf. Nefna má eina þessara aðferða, Critical Corporate In- formation Analysis, en með henni eru kröfur yfirstjórnenda um upplýsingar sldlgreindar, áður en hönnun upplýsingakerf- is hefst (Sanders, 1992, s.l 1). Ytri upplýsingar eru mjög mikilvægar fyrir yfirstjórnendur vegna vinnu þeirra við áætlanagerð, en innri upplýsingar eru ekki síður mikilvægar fyrir þá. Þeir þurfa að vita stöðu mála innanhúss; hafa svarið við spurningunni: „Hvar erum við nú?“, til að geta svarað þeirri spurningu, sem er auðvitað meira spennandi: „Hvert viljum við fara?“. Lægri stjórnendur nota innri upplýsingar, sem ekki eru í tölvutæku formi mest (t.d. upplýsingar fengnar með eftirliti með störfum undirmanna), millistjórnendur minna og yfir- stjórnendur minnst. Yfir- og millistjórnendur fá mikið af upplýsingum frá öðr- um stjórnendum. Yfirstjórnendur fá um 1/3 af upplýsingum sínum frá millistjórnendum og millistjórnendur fá sömuleið- is um 1/3 af upplýsingum sínum frá lægri stjórnendum. Hafa ber í huga að hluti upplýsinga, sem stjórnendur veita öðrum stjórnendum, eru í raun fengnar úr tölvuvæddu upplýsinga- kerfi stofnunar (Scott, 1986, s. 51). í vettvangskönnuninni í bankanum voru það millistjórnendur, sem unnu mest með upplýsingar úr upplýsingakerfum bankans. Oft voru þessar upplýsingar unnar fyrir æðstu yfirmenn og afhentar „tilbún- ar“ á pappír. Þó að upplýsingaþörf stjórnenda mótist af því á hvaða stjórnunarþrepi þeir starfa, kemur ýmislegt annað til, eins og menntun, reynsla, persónuleiki o.fl. Menn á sama stjórnunar- þrepi geta þurft mismunandi upplýsingar, til að geta tekið sínar ákvarðanir. Loks er hér eitt skemmtilegt sjónarhorn á upplýsingaþörf stjórnenda. Olsgaard kveður yfirmenn í vanda, því í takt við tískustrauma í stjórnunarfræðum hafi þeir tapað bæði yfir- ráðum og valdi. Það sé beinlínis talið ósmekldegt að tala um vald í sambandi við stjórnun. „Vald“ er samkvæmt skilgrein- ingu Olsgaard, það að geta breytt og haft áhrif á fólk. Stjórn- endur bókasafna verða að geta breytt og haft áhrif, en til þess að geta það verða þeir að finna eitthvað nýtt afl. Þetta nýja valdaafl er að hafa víðtækar upplýsingar um stofnunina (Ols- gaard, 1982, s. 107). Hjá samkeppnisfyritækjum, eins og bönkum er þörfin fyrir stjórnunarupplýsingar mikil og öll- um er ljóst, að þar skilur á milli feigs og ófeigs. 4. Upplýsingakerfifyrir stjórnendur Margir efast um ágæti upplýsingakerfa fyrir stjórnendur. Shank segir kenningu Mooers um að upplýsingakerfi verði ekki notað, þegar það er vandræðalegra og erfiðara fyrir not- anda að fá uppplýsingar heldur en að vera án þeirra (Mooer, 1960, s. ii), eiga prýðilega við um upplýsingakerfi fyrir stjórn- endur (Shank, 1982, s. 2). Hann er að vísa til þess, að mörg- um þyki einfaldlega þægilegt að vita ekkert, hafa engar upp- lýsingar og þurfa því ekki að taka ákvarðanir á grundvelli þeirra. Shank hefur líka sínar efasemdir um söfnun ómerki- legs „gagnarusls“ og er ekki viss um, að við getum nýtt okkur upplýsingar unnar úr gögnunum (Shank, 1982, s. 8). Berry efast um upplýsingakerfi almennt. Hann segir það sína reynslu af bókasöfnum og upplýsingakerfum þeirra, að hvort sem um er að ræða efnislista, spjaldskrá eða leit í gegn- um gervihnött, hafi hann aldrei fengið upplýsingar heldur aðeins gagnslaus gögn (Berry, 1987, s. 14). Mikilvægi upplýsinga fyrir stjórnendur hefur vonandi ver- ið staðfest hér á undan. Hvernig eigum við að fara að ráða við allar þessar (nauðsynlegu) upplýsingar? Margir þeirra, sem skrifa um upplýsingakerfi fyrir stjórnendur vísa til kenninga 72 Bókasafhið 19. árg. 1995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.