Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 79

Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 79
lánuð út. Starfsmenn bera kortin á milli húsa í möppum úr sýrufríum pappír, og ef rignir eða snjóar eru þau vafm upp og sett í hólka. Kortasafnið býr við mikil þrengsli. Það hefur yfir að ráða 500 m2 húsrými en þyrfti 2000 m2 samkvæmt nýlegri áætl- un. Því þarf að geyma kort í lestrarsalnum sem um leið er skrifstofa þriggja starfsmanna. I salnum eru sérstakir stálskáp- ar fyrir kortin, hver með 20-30 skúffum, og skáparnir eru lokaðir til að verja gegn ryki. I lestrarsal er engin rakastilling og ekki ryklaust. Kortin eru í sýrufríum möppum í skúffum, tíu saman í hverri, nema hvað fágæt kort eru geymd eitt og eitt í möppu. Stór og verðmæt kort eru geymd í sérstakri hirslu sem kölluð er „kortaborðið" (the map table ; 2. mynd). Það er nógu stórt til þess að hægt sé að geyma öll kort án þess að brjóta þau. Kortaborðið þjón- ar sem skrifborð fyrir notendur þegar það er lok- að, en þykir óþjált í notkun. Gömul kort, sem þarfnast við- gerðar, eru send á bókbandsstofu í öðrum borgar- hluta, sem er mik- ill ókostur. Það er draumur starfs- manna að fá eigin viðgerðarstofu í sama húsi, sem yrði til þess að gert væri við mun fleiri kort en nú er. En það er þarna eins og víðar, það er í hendi stjórn- valda að láta drauminn rætast (Vejlsgaard, 1990). Fleiri söfn búa við þröngan kost hvað varðar húsrými. Eitt þeirra er kortasafn jarðfræðistofnunarinnar í Vínarborg. Kortasafnið var sameinað bókasafni stofnunarinnar 1975. Þá fyrst var tekið á málum kortasafnsins, en fram að því hafði það liðið bæði fyrir þrengsli og skort á hæfu starfsfólki. Kort höfðu legið í stöflum og þurft að fletta hundruðum blaða til að fmna það sem vantaði. Nú var farið að flokka kort í hirsl- ur eftir stærð, reynt að koma skipulagi á skráningu og ráðinn starfsmaður til að annast kortin. Kortin eru geymd í viðar- kistum eða stálskápum. Kort eldri en frá 1960 eru geymd í möppum í opnum hillurn, óvarin gegn ryki og sólarljósi. Kort síðan 1960 eru geymd í skúffum eða hengd upp, en ekltert rými er fyrir ný kort, svo að þeim er staflað upp ofan á skápunum. Mikil þörf er fyrir endurskipulagningu safnsins, og er farið að huga að því, þegar ívitnuð grein er skrifuð (Cernajsek, 1990). A síðari árum hafa söfn í vaxandi mæli tekið upp örfilmu- gerð af kortum í varðveisluskyni og til að auðvelda notkun korta sem af ýmsum ástæðum eru óaðgengileg notendum. Til dæmis um safn, sem hefur hafið örfilmugerð að verulegu marki, má nefna kortadeild franska þjóðbókasafnsins í París (Bibliotheque Nationale, Department des Cartes et Plans). Tilraunir hófust þar með úrval korta árið 1980 og báru góð- an árangur. Var því ákveðið að halda áfram og áhersla lögð á að taka myndir af fágætum kortum og mjög stórum. Jafn- framt var hafin viðgerð gamalla korta, og nýrri kort í bæri- legu ástandi skyldu styrkt með e. k. plasthúðun. Starfinu var skipt á milli nokkurra verkstæða bókasafns- ins. Endurgerð gamalla korta er með hefðbundnum tímafrek- um aðferðum, og að því loknu eru þau ljósmynduð til örfilmugerðar. Hvert kort er ljósmyndað tvisvar, bæði í svart- hvítu og lit. Gerð eru tvö eintök af hverri filmu. Annað ein- takið er ætlað til notkunar fyrir safngesti, hitt til viðskipta- nota og til að taka eftir ný eintök. Hver örfilma er geymd í sýrufríu pappírsumslagi í geymslu, þar sem höfð er stjórn á hita og raka loftsins. Aðeins eintökin, sem ætluð eru notend- um, eru send kortadeildinni í París. Verðmæt eintök og fágæti hafa forgang, og m. a. eru mörg kort úr atlösum mynduð. Meðal gömlu kortanna eru mörg hand- gerð og -lituð. Orfilmukortin eru vandlega skráð og skráningin not- uð við útgáfu á kortaskrám. I skráningunni eru tekin með mörg atriði, s. s. höf- undur, titill, út- gáfustaður, stærð upplags, hvort frumgerð er prent- uð eða handrit o. fl. Einnig kemur fram hvenær filma var gerð, mælikvarði korts og smækkunarhlutfall. í kortadeildinni hefur verið komið fyrir lesvél, þar sem notendur geta skoðað kortin. Bæði er hægt að skoða kort í heild og stækka hluta úr því (Pelletier, 1990). Islensk kortasöfn Farið var í heimsókn í Landmælingar Islands og skoðað kortasafnið þar. í húsakynnum bókasafnsins eru nýlegir stál- skápar nteð mjög grunnum skúffum þar sem kortaseríur stofnunarinnar eru geymdar, gróðurkort og fleira. Kortablöð- um í hverri seríu er raðað eftir númerum í skúffumar og öll- um útgáfum hvers númers saman. Skipulagning safnsins er á algeru byrjunarstigi, og er bókavörður að raða í skúffurnar samhliða öðrum störfum. Stefnt er að því að þaulsafna öll- um kortum sem stofnunin hefur gefið út. Landmælingunum hefur borist að gjöf frá dönsku landmælingastofnuninni, Geodætisk Institut, mikið safn gagna varðandi landmælingar og kortagerð Dana á íslandi. Þar á meðal eru frumkort, handskrifuð og -lituð, ljósmyndir af stöðum og fólki víðs veg- ar um land og minnisbækur mælingamanna. Þetta safn er að mestu ófrágengið, og er þar mikið starf óunnið, að flokka það, skrá og búa um til varðveislu. Gluggi geymslunnar, þar sem þetta er geymt, er byrgður og svalt er þar inni, en að öðru Ieyti hafa þessu merka safni ekki enn verið búin hæfileg skilyrði. Skráning korta Landmælinga íslands er í undirbúningi og Bókasafhið 19. árg. 1995 79 Mynd 2 LIBER Bulletin 37 1990.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.