Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Page 87

Bókasafnið - 01.04.1995, Page 87
við aðra menningar- og menntastarfsemi í landinu. Ennfrem- ur skal hann veita almennings- og grunnskólasöfnum faglega ráðgjöf og halda uppi fræðslu fyrir starfsfólk þeirra (Reglu- gerð um almenningsbókasöfn nr. 178/1987). Framtíðarstefha um á Islandi Engin opinber stefna er til um framtíðarþróun bókasafns- og upplýsingamála hér á landi. A árunum 1989 til 1990 unnu tvær nefndir, báðar skipaðar af menntamálaráðherra, að tillögum um stefnumótun í bókasafns- og upplýsingamál- um: Samstarfsnefnd um upplýsingamál (STUPP), sem starf- aði frá 1979 til 1990 og var samkvæmt skipunarbréfi 23. febrúar 1989 falið að skila tillögum um framtíðarskipan upp- lýsingamála í þágu vísinda- og menntastofnana í landinu og benda á brýnustu verkefni á því sviði. (Samstarfsnefnd urn upplýsingamál 1990). Þann 19. desember 1989 skipaði menntamálaráðherra aðra nefnd sem gera skyldi tillögur um heildarstefnu fyrir bókasöfn í landinu fram til aldamóta svo og skipulagningu og rekstur bókasafnakerfis.(Stefnumörkun í bókasafna- og upplýsingamálum ... 1990). Nefndirnar skiluðu báðar tillögum sínum á árinu 1990 eins og tilskilið var í skipunarbréfum. Hvorug tillagan hefur verið nýtt í heild eða að hluta og er engin viðtekinn stefna í gildi um þróun bókasafns- og upplýsingamála landsins. Sam- þykktir og bréf m.a. frá Bókavarðafélagi Islands hafa engin á- hrif haft í þessurn efnum (Bókavarðafélag Islands 1991 og 1992). 5. Aðstæður í íslensku þjóðfélagi á könnunartíma Astandið í þjóðfélaginu í heild hefur að sjálfsögðu áhrif á afkomu og atvinnuframboð meðal einstakra stétta og at- vinnugreina. Því er óraunhæft að skoða hluta vinnumarkað- arins án þess að taka mið af heildinni hverju sinni (Slater 1980). Aðstæður á vinnumarkaði mótast af mörgum þáttum. Meðal þeirra þátta sem hafa áhrif á framboð og eftirspurn eft- irvinnuafli eru: byggðaþróun, efnahagsþróun, þjóðfélags- og tækniþróun (Myers 1986). Undanfarið hefur æ fleira fólk fluttst til höfuðborgarsvæð- isins utan af landi. Fjárveitingar til bókasafns- og upplýsinga- þjónustu eru miðaðar við höfðatölu í almenningsbókasöfn- um (Lög um almenningsbókasöfn nr. 50/1976) og skólasöfn- um (Lög um grunnskóla nr. 87/1989). Miðað er við að 3000-4000 manna byggðarlag þurfi til að standa undir sómasamlegri almenningsbókasafnsþjónustu (Arsskýrsla bókafulltrúa ríkisins 1986). Aðeins 12 sveitarfélög hér á landi telja 3000 eða fleiri íbúa (Hagstofa íslands 1993). Helmingur þeirra er á höfuðborgar- svæðinu, þrjú þeirra Keflavík, Selfoss og Akranes eru innan seilingar frá því, í um klukkustundarferð með bíl eða ferju. Annars staðar á landinu eru aðeins þrjú sveitarfélög Akureyri, ísafjörður og Vestmannaeyjar nógu stór til þess að hægt sé að búast við sómasamlegri bókasafns- og upplýsingaþjónustu þar. A sama tíma verða upplýsingar, miðlun þeirra og nýting æ mikilvægari í okkar þjóðfélagi og er góður aðgangur að nauðsynlegum upplýsingum grundvöllur fyrir uppbyggingu atvinnulífs og þar með byggðar í landinu. Or tækniþróun veldur því að æ auðveldara er að vista, geyma, veita aðgang að og miðla upplýsingum í tölvutæku formi, ekki aðeins hvert á land sem er heldur út um allan heirn. Enda þótt enn sem komið er sé ekki nema lítill hluti þess upplýsingaefnis sem til er á prenti í tölvutæku formi er auðvelt, með nútímafjarskiptatækni, að senda upplýsingar hvort sem er úr prentuðum ritum eða í tölvutæku formi hvert sem er á svipstundu um leið og beiðni um það berst. Jafn- framt verður meira og meira af upplýsingum, nýjum og gömlum, aðgengilegt í tölvutæku formi á æ lægra verði. Aðstæður á vinnumarkaði og efnahagslegar forsendur skipta einnig miklu máli í þessu samhengi. Þegar könnun á mannafla bókasafna á Islandi var gerð voru erfiðir tímar í ís- lensku efnahags- og atvinnulífi. Atvinnuleysi hafði verið meira frá haustinu 1988 en allan níunda áratuginn, sé reikn- að með árstíðarleiðréttingu (Þjóðhagsstofnun. Frétt nr. 7/1989). Lítil bjartsýni ríkti um breytingar til batnaðar á at- vinnuástandinu. Þvert á móti var í apríl 1989 reiknað með færra starfsfólki til sumarafleysinga þá um sumarið en áður og frekari samdrætti með haustinu þar sem ætla mátti að fisk- veiðiheimildir yrðu fullnýttar fyrr á árinu 1989 en oft áður (Þjóðhagsstofnun. Frétt nr. 7/1989). Atvinnuástandið breyttist til batnaðar í apríl 1990 (Þjóð- hagsstofnun. Frétt 4/1990) en síðan hefur atvinnuleysið stöðugt aukist (Vinnumarkaður 1991-1993, 1994, s. 14) og mældist í apríl 1994 5.9% sem þýðir að 8.800 hafi þá verið at- vinnulausir (Vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar í apríl 1994, s. 1). Heldur hafði dregið úr atvinnuleysinu í nóvember 1994, en sú fækkun atvinnulausra er ekki talin marktæk (Vinnumarkaðskönnun Hagstofúnnar í nóvember 1994, s. 1). Ahrifa atvinnuleysisins gætir að sjálfsögðu á bókasöfnum jafnt sem annars staðar í þjóðfélaginu. Atvinnuástandið hefur auk þess bæði bein og óbein áhrif á niðurstöður mannafla- könnunar þar sem spurt er um væntanlega eftirspurn eftir starfsfólki. Ætla má að bein áhrif slæms atvinnuástands séu eftirfarandi: - að mun færri skipti um vinnu en ella, þar sem litla sem enga aðra vinnu er að fá, - að tiltölulega auðvelt sé að fá ófaglært fólk í vinnu og einnig faglært í mörgum tilvikum, - að minna sé um fjárveitingar til nýrra starfa. Óbein áhrif eru þau að þeir sem svara könnuninni gera síður ráð fyrir heimildum til að ráða fleira fólk til starfa á næstu árum. Þetta þarf ekki að þýða að svörin verði óáreiðan- legri heldur getur það þvert á móti þýtt að þau séu betri grunnur til að byggja á áætlun um framtíðina þar sem ekki er um óhóflega bjartsýni að ræða. Hér hefur ástandið heldur versnað en batnað. 6. Skipulag bókasafns- og upplýsingaþjónustu Þegar litið er til samsetningar mannafla, dreifingar hans urn landið og jafnframt til dreifingar ritakosts og þjóðfélags- legra aðstæðna er augljóst að ekki er raunhæft að skipuleggja bókasafns- og upplýsingaþjónustu fyrir Iandið í heild án þess að gera ráð fyrir verulegri þjónustu frá höfuðborgarsvæðinu til staða utan þess. Þaðan þarf bæði að veita lán á ritum, upp- lýsingar úr þeim og einnig margs konar sérfræðiþjónustu. Menntaðir starfsmenn eru of fáir og strjálir utan höfuðborg- arsvæðisins til þess að þeir geti sinnt nema litlum hluta þeirra sem á þjónustu þurfa að halda. Meðan sveitarfélög eru enn mörg og smá er ekki grundvöllur fyrir því að fjölga mennt- uðu starfsfólki utan höfuðborgarsvæðisins, nema í stærstu sveitarfélögunum. Þetta mun, að vissu marki, breytast í fram- tíðinni þegar sveitarfélög verða sameinuð í samræmi við Sveitarstjórnarlög nr. 8/1986. Þó verða alltaf stór svæði sem ekki munu geta veitt góða bókasafns- og upplýsingaþjónustu upp á eigin spýtur vegna fámennis. Þau verða að reiða sig á aðgang að upplýsingaþjónustu annars staðar frá. Með auknum aðgangi að upplýsingum í tölvu og aukinni bókasafns- og upplýsingamál Bókasafrið 19. árg. 1995 87

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.