Dagur - 06.12.1997, Side 2
18-LAUGARDAGUR 6.DESEMBER 1997
ro^tr
LIFIÐ í LANDINU
Sjónvarpsþulan Jóhanna Vilhjálms-
dóttir er ung að árum, ekki nema 26
ára gömul, en samt orðin stjúpmóðir
þriggja drengja á unglingsárum. Jó-
hanna hefur ruglað saman reitum sín-
um og búið með Birgi Þór Bragasyni,
torfærumanni og þáttagerðarmanni, í
tæpt ár. I púkkið leggur hún rúmlega
íjögurra ára dúllu en Biggi á þijá
stráka, 13, 14 og 16 ára, og eru þeir
allir á heimilinu. Lítill aldursmunur
kemur þó tæpast að sök því að fjöl-
skyldumeðlimir eiga ýmislegt sameiginlegt. Biggi og Jóhanna
hafa sjónvarpsástríðuna og unglingarnir og Jóhanna eru í
skóla en hún klárar stjórnmálafræðina frá Hl í vor. Það er
því í nógu að snúast.
Tilnefningar til íslensku bókmennta-
verðlaunanna verðar kynntar á
mánudaginn. Menn telja þijá höf-
unda örugga með tilnefningu í flokk
fagurbókmennta. Það eru þeir Einar
Már Guðmundsson, Guðbergur
Bergsson og Gyrðir Elíasson en
bækur þeirra þetta árið þykja með því
besta sem þeir hafa skrifað á ferli sín-
um. Reiknað er með einum kvenrit-
höfundi í hópinn og eru þá Kristín
Ómarsdóttir og Friðrika Benónýs
taldar líklegastar. Fimmti maðurinn gæti orðið Sigurður
Pálsson, Sigurjón Magnússon, Jón Kalman Stefánsson eða
jafnvel Sigfús Daðason. Baráttan um verðlaunin er þó talið
standa milli þríeykisins áðurnefnda og aðrir höfundar eru
ekki taldir eiga möguleika gegn þeim.
Sérfræðingarnir eru þegar farnir að spá
í úrslitin. Guðbergur hlaut á sínum
tíma verðlaunin fyrir Svaninn og því er
talin heldur ólíklegt að hann hljóti þau
í annað sinn. Mörgum fínnst sem röðin
sé komin að Gyrði Elíassyni, einu
mesta séní íslenskra samtímabók-
mennta. Hann er þó engan veginn ör-
uggur með að hreppa hnossið því mesti
skandall í sögu verðlaunanna varð þeg-
ar „gleymdist" á sínum tíma að tilnefna
skáldsögu Einars Más Guðmundssonar
Engla alheimsins, en hún hlaut síðan Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs. Það væri því ekki ólíklegt að bætt yrði fyrir
vanræksluna með því að verðlauna Einar og vissulega væri
hann vel að verðlaununum kominn.
Gyrðir Elíasson.
Fáir gagnrýnendur eru jafn vaskir og djarfír og barnabóka-
gagnrýnandi Aðalstöðvarinnar sem dæmir bækur á laugar-
dögum í útvarpsþættinum Kaffi Gurrí. Ragnhildur Rakel
Hanson er fimm ára gömul og bað sérstaklega um að fá að
gefa bókum, sem hún gagnrýndi, stjömur. A dögunum fjall-
aði hún um bók sem ber nafriið Hanna frænka fer upp í
sveit. Nú skyldi enginn ætla að Ragnhildur Rakel bruðli með
stjörnur því hún er kröfuharður lesandi eins og kom berlega
í Ijós þegar hún ritdæmdi bókina Grísinn og prinsessan. Þar
segir frá prinsessu sem kyssir grís og hann breytist umsvifa-
laust i prins. Þegar prinsessan fær Ieið á prinsinum kyssir
hún hann aftur og hann breytist aftur í grís. Prinsessan er
harðánægð í sögulok og segist vera hrifnari af grísum en
prinsum. Þetta voru sögulok sem Ragnhildi Rakel voru ekki
að skapi og hún gaf bókinni eina stjörnu með þeim ummæl-
um að svona mættu höfundar ekki enda bækur sínar
Þótt menn séu vinsælir og dáðir, þá
er það ekki tekið út með sældinni að
sækja grasrótina heim á landsbyggð-
inni með gítar sér við hlið. Þessu hef-
ur Bubbi Morthens kynnst á margra
ára ferli og þessvegna hafði hann
vaðið fyrir neðan sig áður en hann
lagði á tröndina í vetur. Til að
fjármagna ferðina og lágmarka það
hugsanlega Qárhagstjón sem getur
•orðið í slíkum túrum fékk hann 300
þúsund króna styrk úr félagsheimila-
sjóði. Sá sjóður mun vera í vörslu
menntamálaráðuneytisins.
5 ára krakkar úr leikskólanum Árborg spjalla við Gerði Róbertsdóttur íÁrbæjarsafni. mynd: eól
Jólinígamladaga
„Nú erum við komin
út í sveit, sjáiði krakk-
ar, það eru engin hús í
nágrenninu, “ segir
Gerður Róbertsdóttir
með mikilli innlifun í
röddinni.
„Og í eld-eldgamladaga, þá var
þetta alvöru sveit og þetta hús
var bóndabær. Hvað er á þakinu,
krakkar?" spyr hún hópinn, sem
eru 5 ára krakkar úr leikskólan-
um Arborg. Þau eru komin í Ar-
bæjarsafn og að gamla Arbæ, til
að ffæðast um jólin í gamla
daga.
Jólakort, messa og kakó
Á aðventunni koma margir hóp-
ar barna úr skólum og leikskól-
um í Árbæjarsafri og fá þar
fræðslu um jólahaldið og gamla
tíma. Tvo sunnudaga í aðvent-
unni nú, 7. og 14. desember,
verður svo haldin árleg jólasýn-
ing safnsins, sem opin er al-
menningi. Þar gefst fólki tæki-
færi til að koma og skoða og
taka þátt í jólahaldinu eins og
það var.
„Við reynum að hafa jóla-
skrautið í hverju húsi fyrir sig
þannig að það samsvari and-
blænum á þeim tfma og því sem
húsið stendur fyrir,“ segir Gerð-
ur. „Það eru á milli 40 og 50
manns sem vinna við þessa sýn-
„í eld-eldgamladaga, þá var þetta alvöru
sveit og þetta hús var bóndabær
ingu beint, fyrir utan allan und-
irbúning. Fólk verður að skera
út laufabrauð og baka, búa til
tólgarkerti og jólaskraut. í
gömlu prentsmiðjunni okkar
verða prentuð jólakort og svo er
opið í Dillonshúsi fyrir þá sem
vilja fá sér kakó og kökur,“ bætir
hún við.
Einnig verðu messað í gömlu
safnkirkjunni, sem er frá Silfra-
stöðum í Skagafirði. Messan
hefst kl. 14 og það er sr. Krist-
inn Ágúst Friðfinnsson sem
messar. Hann er með hærri
prestum og kirkjan ein sú
minnsta á landinu. Að auki verð-
ur jólatrésskemmtun kl. 15.
Ný leikfangasýning
Ekki er allt talið upp enn, því
nýbúið er að setja upp splunku-
nýja leikfangasýningu, sem ber
nafnið „Fyrr var oft í koti kátt“. í
gömlu pakkhúsi neðst á lóðinni
hefur gömlum og nýjum leik-
föngum barna verið raðað upp
eins og líklegt er að herbergin
hafí litið út á hinum ýmsu tím-
um og ekki er að efa að flestir,
ef ekki allir, muni kannast við
eitthvert herbergjanna. Þessi
sýning er mjög skipulega upp
sett og alveg ótrúlega Ijölbreytt.
Leikföng frá landnámi og til
okkar daga, hvorki meira né
minna.
Það verður ekki erfítt að eyða
sunnudeginum í Árbæjarsafni,
svo mikið er víst! vs
Maður
vikunnar
Maður vikunnar er Guðbergur Bergs-
son, rithöfundur, fyrir að láta ekki ein-
hverja kvikmyndamógúla leiða sig út af
braut hins sanna listamanns. Hann
bregður ekki svip þótt Hollywoodgæjar
komi með glæst tilboð en krefstfullra
listrænna yfirráða yfir verki sínu; annars
verði það einfaldlega ekki fest á filmu.
Sjaldgæf viðhorf á þeim tímum þegar
allt virðist falt fyrir peninga. Bravó,
Guðbergur!
Guðbergur Bergsson: lltt uppnæmur fyrir tilboðum frá Hollywood.