Dagur - 06.12.1997, Blaðsíða 9

Dagur - 06.12.1997, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 - 2S Steindór ásamt Þuríði Pálsdóttur i Miðiinum eftir Menotti, en það var fyrsta óperan sem flutt var á íslensku [LR. 1952J. Hutverk Steindórs, var mállaus [!) sígauni. að leggja maska í þessa karla til þess að vera tilbúinn klukkan átta. Candý gamli var Iíka einhentur. í „Mýs og menn“ átti Candý gamli hund sem var orðinn svo gamall að það átti að skjóta hann. Við fengum mjög gamlan hund sem lék svo vel að það var tekið til þess í krítíkinni. En svo einn sýningardag- inn var keyrt á hann og hann dó. Þá voru góð ráð dýr, - við fengum ungan og sprækan hund sem leyfði mér að „maska“ sig, með sminki og púðri og svei mér ef hann varð ekki „hundgamair við það. Og hann Iék þetta dramat- íska hlutverk sitt um kvöldið eins og hann hefði aldrei gert ann- að!“ Og fjölskyldan er öll í leikhúsinu? „Já, en hún er ekki stór. Margrét Ólafsdóttir konan mín var í Leiklist- arskóla Lárusar og síðan í Þjóðleik- hússkólanum. Allir tiltækir leik- arar voru upp í Þjóðleikhúsi að undirbúa opnun- arsýningarnar þijár og þar var Gréta. Eg var í öllum þremur sýningunum og Gréta var í Islandsklukkunni. Eg vann svo í báðum leikhús- unum í tvö ár og við giftum okkur 1951. Ragnheiður lék svo í móðurkviði þegar mamma hennar lék í „Sem yður þóknast", Lárus okkar Pálsson sem lék á móti henni sagðist oft afa fengið dugleg spörk frá þeirri litlu. Okkur finnst það skemmtilegt að hún skuli vera leikona í Þjóðleikhúsinu og víðar. Og börnin þeirra eru tvö, Steindór Grétar og Margrét Dórothea. Með barnabörnunum bætir guð manni upp ellina." Nauðsynlegt að taka áhættu Nú hefur harðnað á dalnum hjá Borgarleikhúsinu. Finnst þér ekki slæmt að vera hættur? . há$ ú.eWd.erfidrykkja.^ slóð af ungu og dugmiklu fólki þar á bæ. En það er al- varlegt mál hvað leikarar af eldri kynslóðinni eru orðnir fáir og á ég þar við bæði leikhúsin. A íyrsta ári Borgarleikhússins kusu ráðamenn að leika eingöngu nýja ís- lenska dramatík. Að- sókn varð ekki eins góð og menn höfðu vonað í nýju leik- húsi. Samt efaðist enginn þá að þetta var rétt stefna. Nú á afmælisárinu var efnt til verðlauna fyrir ný íslensk leik- verk og það voru Ieikin eingöngu ný- skrifuð verk, að Dó- mínó Jökuls Iðn- óskálds undan- skildu. Þetta var djörf ákvörðun og aðsóknin hefði sann- arlega mátt vera meiri. En það verð- ur að gefa nýjum höfundum tækifæri til að sjá verk sín á sviðinu. I hundrað ára sögu Leikfélags Reykjavi'kur ber ís- lensku leikritin hæst og þau verk sem hafa fengið mesta aðsókn eru þau ís- lensku. Það befur einmitt verið hlut- verk L.R. á þessari öld sem liðin er að hlú að íslenskri leik- ritun og verður að vera það áfram. Auðvitað er það áhætta og mistekst stundum, Ibsen sá norski hafði skrifað leikrit í 12 ár áður en hann „sló í gegn“. Hver þorir að hugsa þá hugsun til enda að hann hefði gefist upp. Það kom enginn til að sjá verkin hans. Eg vona að okkar íslenski Ibsen fái ekki síðra tækifæri til að „slá rækilega í gegn“. Og það á við um fleiri unga höf- unda. Leikfélagið hefur oft staðið höllum fæti, bæði list- rænt og Ijárhagslega en alltaf þorað að taka áhættu. Eg vona að unga fólkinu takist að halda í heiðri þeirri vinsælu blöndu kfmni og harms sem hefur einkennt verkefnaval L.R. frá öndverðu og ég þykist vita að Reyk- víkingar og landsmenn allir sjái til þess að þó öldungur- inn sé orðinn 100 ára þá gefi hann ekki upp andann núna þó að honum sé sótt. Þetta ár hefur verið afmælis- . , , -MAR, , lýí/19 íírí íni J' 1 iZnúi Fedginin Steindór og Ragnheidur í Dómínó eftir Jökul Jakobsson [LR. 1973J.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.