Dagur - 06.12.1997, Side 4
T ', I r
}' ) i' (
£ T>
20 - LAUGARDAGUR S.DESEMBER 1997
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
Elías Snæland
Jnnsson
ritstjóri
bókaB
HILLAN
„... stórbraskari og stórskáld, fé-
sýslumaður, sem fyrirleit jarð-
neska muni, með yfirlæti og
sundurgerð á ytra borði, en auð-
mýkt og sektarvitund í hjarta,
gjarn á glaum, óhóf og munað, á
flótta frá sjálfum sér, án þess að
finna athvarf svölunar og gleym-
sku.“
Þannig lýsti Sigurður Nordal,
prófessor, þeim umdeilda manni
Einari Benediktssyni í útvarpser-
indi á sjötíu og fimm ára afmæli
kappans sem þá bjó harla göngu-
móður í Herdísarvík.
Þótt ýmsir hafi orðið til að
skrifa um ævi og skáldskap Ein-
Þ J ÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20
Fiðlarinn á þakinu
eftir Boch/Stein/Harnick
í kvöld Id.
uppselt
föd. 2/1
laus sæti
Grandavegur7
eftir Vigdísi Grímsdóttur
leikgerð Kjartan Ragnarsson
og Sigríður M.
Guðmundsdóttir.
Á morgun sud.
nokkur sæti laus
þrd. 30/12 - Id. 3/1
Hamlet
William Shakespeare
Frumsýning á 2. í jólum
26/12
örfá sæti laus
2. sýning Id. 27/12
nokkur sæti laus
3. sýning sd. 28/12
nokkur sæti laus
4. sýning sud. 4/1
Sýnt í Loftkastalanum kl. 20
Listaverkið
eftir Yasmina Reza
Id. 3/1
LISTAKLÚBBUR
LEIKHÚSKJALLARANS
mád. 8/12
Bókalest^rr á aðventu.
Gjafakort
er kærkomin gjöf.
Miðasalan er opin mánud.-
þriðjud. 13-18, miðvikud.-
sunnud. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10
virka daga.
ars (þeirra á meðal skáldið Stein-
grímur J. Þorsteinsson, pólitíski
fagurkerinn Jónas Jónsson frá
Hriflu, listfræðingurinn Björn
Th. Björnsson og sagnaþulurinn
Gils Guðmundsson) hefur eng-
inn kafað ofan í allar tiltækar
frumheimildir með sama hætti
og Guðjón Friðriksson, sem nú
hefur sent frá sér fyrsta bindi
nýrrar ævisögu Einars Benedikts-
sonar. Hér rekur Guðjón á tæp-
lega fjögur hundruð blaðsíðum
líf og starf Einars fram til ársins
1907, en þá flytur hann með fjöl-
skyldu sína til Bretlands.
Áhrif föðurins
Að mörgu Ieyti er þetta fyrsta
bindi ekki aðeins saga Einars
heldur einnig föður hans, Bene-
dikts Sveinssonar. Líf þeirra
feðga var afar sterklega sam-
tvinnað allt frá barnæsku Einars
og þar til Benedikt féll frá árið
1899. Því var haldið fram að
skáldgáfuna hefði Einar fengið
frá móður sinni, Katrínu Einars-
dóttur frá Reynistað í Skagafirði.
Það er hins vegar enn Ijósara en
áður eftir lestur þessarar bókar
að skapofsann, braskaraeðlið,
stjórnmálaskoðanirnar og
drykkjuástríðuna hefur hann frá
föður sínum.
Flestir þeir stjórnmálamenn
sem börðust um völd og áhrif eft-
ir fráfall Jóns Sigurðssonar for-
seta voru ekki vandir að meðul-
um. Benedikt Sveinsson var þar
engin undantekning. Hann var
ekki aðeins mikill málafylgju-
maður í stjórnmálum, heldur
hagaði sér líka eins og ribbaldi í
fjármálum. Honum tókst ekki að
halda fjölskyldunni saman - frek-
ar en Einar síðar - og kom það
niður á uppeldi Einars og heilsu-
fari. Ljóst er að Benedikt og syst-
ir hans, kvenskörungurinn Þor-
björg Sveinsdóttir, höfðu afar
mikil áhrif á Einar alla tíð.
Fyrsta dagblaðið
I ævisögu Einars hlýtur saga
blaðamannsins, stjórnmála-
mannsins og fjármálamannsins
að taka mikið pláss. Svo er einnig
hér. Guðjón rekur alla þessa
þætti ítarlega og byggir þar ann-
ars vegar á prentuðum heimild-
um, sem auðvitað eru miklar að
vöxtum, en einnig á bréfum og
fjölmörgum öðrum gögnum sem
hann hefur komist yfir á söfnum
og hjá einkaaðilum í leit sinni að
sannleikanum um Einar Bene-
diktsson.
Hér má lesa ítarlega um stjórn-
málaátökin sem Einar átti hlut
að fyrir og eftir síðustu aldamót,
en þar bar auðvitað mest á deil-
um um samskiptin við Dan-
mörku (hann hafði ekki trú á
sjálfstæðu Islandi). Hann gerðist
stórtækur í blaðaútgáfu og kom
út fyrsta fslenska dagblaðinu,
Dagskrá, sem að vísu átti ekki
langa lífdaga sem slfkt. I blaða-
skrifum sínum rakti hann ítar-
lega og af eldmóði hugmyndir
um fjöllireyttara atvinnulíf með
aðstoð erlends fjármagns, en þær
fengu ekki mikinn hljómgrunn -
vafalaust í og með vegna þess að
margir samtíðamenn töldu að
honum væri ekki treystandi í fjár-
málum. Sannfæringarkraftur
Einars var hins vegar mikill þeg-
ar hann náði mönnum á eintal;
hann gat jafnvel snúið þeim sem
vissu innst inni að þeir ættu ekki
að treysta honum.
Skal verða skáld!
„Þú verður aldrei skáld!“ sagði
Árni Þórarinsson við Einar á
skólaárunum. Svar hans er frægt:
„Ég skal verða skáld!“ (bls. 78).
Það var eitt af þeim loforðum
sem hann stóð við. Einar birti
fyrsta Ijóð sitt í Sunnanfara árið
1891. Áður en hann hvarf af
landi brott árið 1907 var hann
orðinn „eitt af höfuðskáldum
þjóðarinnar í hugum Islendinga"
(bls. 331). Guðjón tengir vel
saman sum helstu ljóðin og þann
veruleika og hughrif sem þau
voru sprottin úr. Þar voru hug-
sjónir hans um glæsta möguleika
lands og þjóðar gjarnan í for-
grunni, en einnig leit hans að al-
heimssálinni.
Sá Einar Benediktsson sem
birtist okkur í þessari læsilegu
ævisögu er stór í sniðum. Hann
er stór bæði í kostum sínum og
göllum. Fyrir þjóðina skiptir auð-
vitað mestu máli að Einar var
stór í skáldskapnum. Hann skildi
eftir sig Ijóðafjársjóð sem mun
halda gildi sínu á meðan þjóðin
kann að lesa íslenskar bók-
menntir.
PS:Við vinnslu bókarinnar
hafa orðið nokkur mistök við
tengingu texta og tilvísana. Þetta
er mest áberandi í köflum 16 og
17, en kemur einnig fyrir víðar
og er Iýti á annars vandaðri bók.
Sólin á himni
hlý
Þau Ingibjörg og Þórarinn Hjart-
arbörn frá Tjörn í Svarfaðardal
hafa ráðist í það vandasama verk-
efni að fella saman efni úr ýms-
um áttum í endurminningabók
um föður sinn. Vandasamt hlýtur
verkið að teljast af ýmsum ástæð-
um.
Hirti entist því miður ekki aid-
ur né heilsa til að ganga sjálfur
frá endurminningum sínum
nema að Iitlu Ieyti. Söguritarar
eru börn Hjartar í mikilli nálægð
við veikindi hans og fráfall. Síð-
ast en ekki síst var Hjörtur á
Tjörn stórbrotinn og margslung-
inn maður sem kom víða við á
langri og starfsamri ævi.
Hvernig til hefur tekist verður
auðvitað hver og einn að dæma
endanlega fyrir sig, en undirrit-
aður Iauk lestrinum ánægður og
þakklátur fyrir myndarlega bók
sem er öllum aðstandendum til
sóma. Mest um vert er að bókin
gefur þegar upp er staðið frá
lestrinum nokkuð heillega mynd
af Hirti og lífshlaupi hans. Á
köflum er auðvitað farið hratt
yfir sögu, efniviðurinn kemur úr
ólíkum áttum, er misítarlegur og
uppbygging bókarinnar krefst þó
nokkurs af lesandanum. I Ijósi
aðstæðna gat þetta ekki öðruvísi
orðið og bókin um bókina,
sjálfsævisöguna sem Hjörtur á
Tjörn ætlaði að skrifa, er vandað,
hlýlegt og fallegt verk.
Við lestur bókarinnar kemur
fljótlega í Ijós að allar áhyggjur af
nálægð söguritara við viðfangs-
efnið eru óþarfar. Verkið er laust
við alla væmni og oflof, sem
stundum fellir tilraunir náinna
aðstandenda til að fjalla um ætt-
ingja sína. Kunnugir geta að vísu
sagt sér það fyrirfram að Tjarnar-
fólki er Iítt hætt við slíku. Hisp-
ursleysi og hreinskilni einkenna
frásögnina þó engum dyljist að
Hjörtur hefur verið þeim börn-
um sínum bæði félagi og vinur
ekki síður en faðir.
Bókin, Spor eftir göngumann
er auðvitað fyrst og síðast ævi-
saga Hjartar á Tjörn. Lífshlaup
hans og þroskasaga er rauði
þráðurinn, en um leið verður til
ættarsaga, saga bújarðar, bónd-
inn, göngugarpurinn og hagyrð-
ingurinn Hjörtur Eldjárn Þórar-
insson stígur fram. Að lokum er
það svo að eftir lesturinn, heilar
330 blaðsíður situr aðallega eftir
sú tilfinning að gaman hefði ver-
ið að fræðast meira. Þar má t.d.
nefna aðdragandann að framboði
Kristjáns Eldjárn til embættis
forseta og kjör hans frá sjónar-
hóli fjölskyldunnar eða meira um
mannlífið og félagsmálin í Svarf-
aðardal.
Undirritaður var svo Iánsamur
að vera fyrir nokkrum árum boð-
inn á uppskeruhátíð Svarfdæl-
inga, svonefndar slægjur, sem
minnst er á í bókinni (bls. 274-
275). Menningarbragurinn á
þeirri samkomu Iíður mér seint
úr minni og ekki var verra að
njóta gestrisni þeirra hjóna
Hjartar og Sigríðar í leiðinni.
Kveðskapur, söngur og sagna-
gleði menningarheimilisins á
Tjörn setti sterkan svip á sam-
komuna og þar heyrði ég Þórarin
Hjartarson flytja hið gullfallega
kvæði föður síns Skíðadals-
stemmning.
„Sólin á himni hlýhellir geisl-
um um víðan fjallasal.Góðveðurs
gullin skýglitra yfir Skíðadal".
o.s.frv. (sjá bls. 17).
Birtan sem leggur af þessum
texta á vel við þegar fjallað er um
lífshlaup Hjartar á Tjörn og bók-
in Spor eftir göngumann kemur
henni ágætlega til skila.
Hjörtur Þórarinsson á Tjörn.