Dagur - 06.12.1997, Page 15
LAUGARDAGUR 6.DESEMBER 1997- 31
JOagUT-
LIFIÐ I LANDINU
Allaf í j akkalotiini
Mégane Coupé
AxelAxelsson stýrír
morgunútvarpi Matt-
hildarogfrá sex til tíu
koma til hans um 120
viðmælendurá
máðuði. Hannlítur
samt aldrei út eins og
tuska.
Axel Axelsson lendir alltaf í því
að stjórna morgunútvarpi á þeim
stöðvum sem hann hefur verið
hjá. „Eg sef svona fimm til sjö
tíma og af því að við erum að fara
að tala um föt þá er ekkert betra
á morgnana, þegar maður er ný-
vaknaður, en að fara í sturtu og
klæða sig síðan snyrtilega, setja
bindið upp í háls og þá er maður
tilbúinn, ferskur og fínn.“
Axel er alltaf í jakkafötum.
„Þetta er líka svo auðvelt, ég er í
jakkafötunum 2-3svar og læt
síðan hreinsa þau en gallabuxur
þarf maður alltaf að vera að þvo,
ég get ekki verið í gallabuxum
nema einn dag. Maður er Iíka
nokkuð öruggur með að koma
þokkalega vel fyrir þegar maður
er í jakkafötum."
Finnst þér þú aldrei offínn?
„Nei, öðrum finnst það.
Menn spyrja mig hvort ég sé
virkilega alltaf í jakkafötum og
með bindi. Ef ég mæti í vinnuna
að kvöldlagi í gallabuxum og bol
taka allir eftir því og hafa orð á.“
En Axel er af og frá í Iakkskóm
við fötin dags daglega. „Nei, ég
er í vetrarskóm. Mér finnst
alltaf hallærislegt þegar menn
eru í jakkafötum á Islandi á vet-
urna og í lakkskóm við. Ég er Is-
lendingur og þori alveg að vera í
réttu skónum.“
Ekki í bíló í jakkafotum
Þegar Axel kemur heim úr vinn-
unni fer hann yfirleitt í galla-
buxur. „Já, ég er þá að leika við
stráldnn minn og maður er ekki
í bfló í jakkafötum. Síðan hef ég
lent í því að sofa yfir mig og þá
þarf maður að fara í bol og
gallabuxur og út í bfl. Þetta er
hrikalegt, sleppa sturtunni og
allt maður.“
Er ekki leiðinlega litill munur
ú hversdags fötunum þínum og
þeim fínu?
„Jú, að vísu. Það er helsti gall-
inn en þá á ég gömlu fötin hans
afa til hátíðabrigða. Þetta eru
svona föt sem minna á föt
gömlu blaðamannanna í gömlu
ifgreiðslustjóri á Akureyri
Eimskip óskar eftir að ráða í starf afgreiðslustjóra (yfiroerkstjóra)
við skipa- og vöruafgreiðslu fyrirtækisins á Akureyri.
Leitað er að duglegum og áhugasömum einstaklingi íframtíðarstarf.
Helstu verkefni:
• Þjónusta við viðskiptavini og samskipti við
starfsstöðvar Eimskips innanlands og
erlendis.
• Dagleg yfirumsjón með starfsemi skipa-,
vöruhúsa- og löndunarþjónustu á Akureyri.
• Stýring mannafla og skipulagning
vinnutilhögunar. Að jafnaði starfa um 16
starfsmenn undir stjórn afgreiðslustjóra.
• Eftirlit með ástandi og skipulagningu
viðhaldsmála vegna tækjakosts og almenns
búnaðar.
• Þátttaka í gæðastarfi.
EIMSKIP
Slmi 525 7373 • Fax 525 7379
Netfang: mottaka@eimskip.is
Heimasíöa: http://www.eimskip.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf og/eða önnur framhaldsskólamenntun,
s.s. skipsstjórnar-, vélfræði- eða iðnmenntun.
• Starfsreynsla.
• Sjálfstæð vinnubrögð og fæmi í mannlegum
samskiptum.
• Góð enskukunnátta.
• Reynsla í tölvunotkun (Word/Excel/AS-400).
Fyrir réttan starfsmann er í boði fjölbreytt, áhugavert
og krefjandi starf með margvíslegum tækifæmm
til faglegs og persónulegs þroska.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist til starfsþróunardeildar Eimskips,
Pósthússtræti 2,101 Reykjavík fyrir 16. desember nk.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Garðar Jóhanns-
son forstöðumaður EIMSKIPS á Akureyri (ekld í síma).
Eimskip leggur áherslu á að auka hlut kvenna í
ábyrgðarstöðum hjá fólaginu og stuðla þar með að
því að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði.
/ sérsaumudum jakkafötum sem afmn átti. „Mérþykir mjög vænt um þau, afi var aðeins feitlagnari en ég en þaö kemur ekki að sök.
Þessi föt nota ég þegar eitthvað sérstakt stendur til.“ myndir: hilmar.
myndunum, það vantar bara
hattinn."
Ertu mikill skartmaður?
„Já, ég er dálítið fyrir glingur.
Ég er alltaf með gull, úrið mitt
og hring-
urinn
hafa geng-
ið í ættir.
Síðan er
ég með
giftingar-
hringinn
og hring-
inn sem
konan
„Ég tengist hlutum mikið og
þeir verða hluti afmér.
Hringurinn og úrið eru ættar-
gripir sem mér þykir mjög
vænt um.“
mín gaf
mér þegar
við giftum
okkur, og
alltaf með
kross. Það
skiptir
mig miklu
máli að
hafa þetta
dót á
mér.“
Ertu
trúaður? ____________
,Já. Ég
fer samt ekki í kirkju á hverjum
sunnudegi, er ekki með krossinn
vegna þess. Mér finnst hann
flottur en held líka að fólk beri
ómeðvitaöa virðingu fyrir kross-
inum. Hið sama gildir um jakka-
fötin, fólk ber virðingu fyrir
þeim sem kemur vel fyrir og
þegar ég ætla að lesa yfir ein-
hveijum fer ég í fínustu jakka-
fötin mín. Þetta er allt spurning
um framkomu."
Flvað finnst þér um klæðaburð
fjölmiðlafólks?
„Sumir þykjast kannski kunna
of vel að klæða sig. Það er mikil
jakkafatamenning upp á Is-
lenska útvarpsfélagi, sem er fín,
síðan er lopapeysuliðið á Rás 2.
Á Matthildi er þetta blandað."
-MAR