Alþýðublaðið - 03.02.1967, Side 10
UTSALA -UTS&LA -UTSA
Stórkostleg verðlækkun á:
Karlmannafötum - Stökum jökkum-
Drengjabuxum - Dralon-
peysum og vinnufatnaði _
Gefjun-löyiin
KIRKJUSTRÆTI
OPNAN
Framhald lir opnu.
vakið nokkra furðu. Ekki þykir
líklegt, að sú tízka muni þó eiga
miklum vinsældum að fagna hjá
kvenþjóðinni.
Eins og sést á meðfylgjandi
myndum eru sýningarstúlkur Ra-
banne flestar dökkar á hörund og
er það nýtt fyrirbrigði, að negra-
stúlkur sýni tízkufötin.
Kvikmyndir
Framhald af 7. síðu.
toarnið Claire (Dominique Sau-
vage-Dandieux). Celestine lætur
vel að henni og er henni að öllu
leyti sem móðir. Þveröfugt er far-
ið með Jósep, því hann lætur sér
ekki nægja annað en myrða toana
eins og áður er getið. Aftur á
móti se'gir Jósep á einum stað við
Celestinu: „Við erum eins.“ Þann-
ig mætti sjálfsagt halda áfram að
„diskútera" manngerðimar fram
og aftur.
Hvað sem því og öðru líður eru
manngerðirnar í myndinni ekki
nægjanlega skýrt dregnar. Mynd-
in er svo sem engin sálkönnun.
Slamt eru þettta eftirminnilegar
,,týpur“ og all einkennilegar. Per-
sónugerving frú Monteil er einna
óljósust. Maður hennar er hálf-
gerður heigull; veit að hann á
ekki lengur ,,séns“ hjá henni og
er hálfpartinn hræddur við hana.
Tengdafaðir hans, Rambour, er
„skrýtinn fugl“, sem virðist hafa
einhverjar æskuminningar, sem
m.a. kemur fram í því að hann
lætur Celestine máta gamla skó —
sem fyrrverandi kærasta hefur lík
lega átt. Jósep er sadisti eins og
áður er komið fram, en óljós er
tilhneiging hans til að drepa telp-
una, jafnvel þó það sé ef til vill
gefið í skyn áður, þegar hann fqr
•höndum um háls hennar eins og
hann ætli að kyrkja hana. Ýms-
ar hliðar má svo finna á Celestinu.
Myndin virðist hafa giftusamleg-
an endi, þar sem Celestine liefur
igifzt nágrannanum — og þó. Nú
getur hún að vísu látið hann þjóna
sér, þar sem hún var áður vönust
því að þjóna öðrum, en er nú fylli-
lega ánægð með hlutskipti sitt?
Við skiljum við hana í lok mynd-
arinnar, þar sem hún situr á rúm-
stokknum, morguninn eftir brúð-
kaupsnóttina, og er tougsi á svip.
Endapunktur myndarinnar kem-
ur nokkuð snögglega og minnir að
því leyti á Godard.
Myndin er vel unnin, en það sem
einna helzt heldur henni uppi eru
þessir einkennilegu og marg-
brotnu ,,karakterar“. Leikurinn er
góður og Jeanne Moreau er alltaf
Jeanne Moreau.
Líklega gerir Bunuel ekki fleiri
afreksverk á sviði kvikmyndalist-
arinnar, enda heilsu hans farið að
hraka og er ihann nú heyrnarlaus
að heita. Óhætt er samt sem áð-
ur að segja, að þessi 66 ára gamli
maður hafi skilað af sér all sæmi-
legu dag’sverki. Þó er alltaf vara-
samt að spá slíku fyrirfram og
hver veit nema þessi snillingur
eigi eftir að senda frá sér mark-
vert verk, sem eigi eftir að vekja
menn til umhugsunar og valda
deilum.
Sigurður Jón Ólafsson
Koparpípur og
Rennilokar.
Fittings.
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
Burstafell
byggingavöruverzlun
Réttarholtsvegi 3.
Sími 3 88 40.
TOYOTA LANDCRUISER
TRAUSTUR OG KRAFTMIKILL.
Tryggið yður TOYOTA.
Japanska bifreiðasalan hf.
Ármúla 7 — Sími 34470.
SENDISVEINN ÓSKÁST
þarf helzt Rð hafa reiðhjól.
Alþýðublaðið.
SNYRTING m | FYRIR HELGINA |PJ||g
SNYRTISTOFAN Grundar-
stíg 10. Sími 16119.
Opið laugardagseftirmiðdaga
fyrst um sinn fyrir kvöld-
snyrtingu.
Hverfisgötu 42
ANDLITSBÖÐ
KVÖLD-
SNYRTING
ÐIATEÍIMI
HAND-
SNYRTING
BÓLU-
AÐGERÐIR
STELLA ÞORKELSSON
snyrtisérfræðingur
Hlégerði 14, Kópavogi.
GUFUBAÐSTOFAN
HÓTEL L0FTLEI3UM
Sími 40613.
Kvenna- og karladeildir:
Mánudaga til föstudaga 8-8
Laugardaga 8-5
Sunnudag*a 9-12 f.h,
Býður yður: Gufubaö,
sundlaug, sturtubað, nudd
kolbogaljós, hvíld.
Pantið þá þjónustu
er þér óskið í síma 22322.
HÁRGREIÐSLUSTOFA
ÓLAFAR BIÖRNSDÓTTUR
Ilátúni 6. Sitni 15493.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
HOLT
Stangarholti 28 -
Sími 23273.
ONDULA
Skólavörðustíg 21 A,
Sími 17762.
GUFUBAÐSTOFAN
Hótel Loftleiðum
HÁRGREIÐ S LU STOF A
Aðalstræti 9. - Sími 13852
SNYRTIN
10 3. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ