Dagur - 27.03.1999, Side 11

Dagur - 27.03.1999, Side 11
Xfc^nr LAUGARDAGUR 27. MARS 1999 - 27 MATARGATJÐ Ebba Sigurðardóttir og herra Ólafur Skúlason biskup hafa haft fyrir sið að bjóða í morgunverð eða fara í morgunverð til annarra strax eftir messu klukkan átta á páskadagsmorgun. Það þykir þeim hátíðlegasta máltíð dagsins. Ebba segir hér frá páskasið- um þeirra hjóna og gef- ur nokkrar uppskriftir að páskamatnum. „Þegar Ólafur var prestur mess- aði hann sjálfur á páskadag klukkan átta. Lengi vel vorum við boðin í morgunverð til vina- hjóna okkar og meðan Óiafur var biskup til dómkirkjukórsins eftir morgunmessu en smám saman fór fjölskyldan að taka við þessum sið og halda honum áfram. Meðan tengdafaðir minn lifði kom hann frá Keflavík og var hjá okkur um páskana og þá tók hann þátt í þessu með okk- ur. Þegar Ólafur var biskup héldum við áfram að fara í messu klukkan átta og þá bauð dóttir okkar, Guðrún Ebba, okk- ur í morgunverð. Eftir morgun- verðinn fór ég svo með foreldr- um mínum á hverjum einasta páskadegi upp í kirkjugarð. Síð- an var messa klukkan tvö og ég fór oftast í messu. Síðustu árin höfum við svo verið í kvöldmat hjá dóttur okkar,“ segir Ebba Guðrún Sigurðardóttir, eigin- kona Ólafs Skúlasonar biskups. Aðstæður breytast með tíman- um. Börnin hafa stofnað fjöl- skyldur og flust utan eða út á land. Skúli, sonur þeirra, er prestur fyrir vestan og er þar um páskana. Ebba og Ólafur hafa einu sinni upplifað páska erlend- is og það var hjá dóttur þeirra, Sigríði, í Hollandi en annars hafa þau eytt páskunum með Guðrúnu Ebbu, foreldrum sín- um og tengdaforeldrum hennar Ebba Sigurðardóttir, eiginkona Ólafs Skúlasonar, býður dóttur sinni og fjölskyldu hennar og tengdafjölskyldu i snemmbúinn hádegisverð eða síðbúinn morgunverð, svokallað „brunch“, fyrir hádegi á páskadag. Moraunverðurinn ernátíðlegur síðustu árin. Þau ætla þó að breyta örlítið til um páskana að þessu sinni. Að sjálfsögðu verður farið í messu klukkan átta, eins og alltaf, en rétt fyrir hádegi ætl- ar Ebba að bjóða föður sínum, dóttur sinni og fjölskyldu hennar og tengdafjölskyldu í „brunch“, síðbúinn morgunverð eða snemmbúinn hádegisverð. „Þá ætla ég að hafa ýmsa rétti og breyta aðeins til,“ segir hún. Ómissandi að hittast En hvernig skyldi morgunverð- arborðið á páskadagsmorgun Iíta út hjá þeim? Borðið er að sjálf- sögðu skreytt páskalega með kertum í gulum lit og fallegum borðdúk til að gera hátíðlegt. Ebba segist bjóða upp á kaldan ávaxtasafa, heitt súkkulaði og kaffi. Hún baki ýmist eða kaupi rúnnstykki og góð brauð og bjóði upp á kjötálegg og osta ásamt salötum. Eftir á hefur ver- ið vinsælt að fá sér smjörköku, vínarbrauð eða annað sætmeti úr bakaríinu eða bakaraofni hús- móðurinnar að ógleymdum páskaeggjum handa börnunum. „Þetta er ákaflega hátíðlegt og fólki finnst það eiginlega ómissandi núna að hittast eftir messu. Aðalmáltíð dagsins er kvöldmaturinn en ég myndi segja að morgunverðurinn sé há- tíðlegasta máltíðin. Hátíðlegast af öllu er þó sjálf morgunmess- an,“ segir hún og bendir á að kórarnir hafi gjarnan fyrir sið að snæða saman morgunverð eftir messu. Fólkið hafi gaman af að hittast. Margir hafa haldið þeim sið að borða fisk og léttmeti á föst- unni og snætt síðan kjöt á pásk- unum. Ebba segist á árum áður gjarnan hafa soðið hangikjöt til að hafa í hádegisverð og narta í yfir páskana og svínakjöt í kvöld- verðinn á páskadag. Hugsanlegt er að hún sjóði hangikjöt að þessu sinni og beri fram kalt. Að öðru leyti mun hún hafa sam- blöndu af smáréttum; grænmet- ishlaup og sósu, heimabakaðar bollur, parmaskinku úr Gallerý- Kjöt, kalt hangikjöt. I fjöldamörg ár hefur hún bæði um jól og páska búið til böku sem hún segir gott að bera fram með reyktu kjöti eða smáréttum. Bakan sú arna verður á hádegis- verðarborði Ebbu á páskadag. _________Bakan 100 g hveiti 100 g smjör raspaður ostur 1 stór dós aspas 6-8 egg Á 1 rjómi hvítlauksduft, pínulítið salt og/eða Season All Hveiti og smjör er hnoðað sam- an og þrýst í botninn á sæmilega stóru formi. Töluvert mikið af osti er raspað í botninn ofan á deigið og má þekja dálítið vel. Safanum af aspasinum er hellt í mál og aspasinum raðað ofan á ostinn. 6-8 egg eru þeytt, rjóm- anum þeytt saman \ið og mest- öllum eða öllum safanum af aspasinum bætt út í. Kryddað með hvítlauksdufti, salti og/eða Season All og þeytt. Gæta verð- ur þess að þeyta ekki of mikið. Vökvanum er hellt yfir botninn og formið sett í kaldan ofn. Ofn- inn er stilltur á meðalhita og bakan Iátin vera inni í um 45 mínútur eða þar til hún er orðin stíf og brún. -GHS Appelsínugljáðar sætar kartöflur Á jólum og páskum hefur Ebba gjarnan borið fram óvenjulegt, sætt meðlæti úr sætum kartöflum sem ávallt hefur vakið ánægju við matar- borðið. Hún segir að hann sé afar góður í staðinn fyrir sultu eða rauðkál ef maður vill breyta til. Ebba fékk upp- skriftina í Ameríku þegar hún bjó þar. 2 bollar niðurskornar soðnar sætar kartöflur 'á bolli púðursykur 'á bolli strásykur 'á bolli appelsínusafi 1 msk. kartöflumjöl 2-4 msk. smjör Kartöflurnar eru afhýddar hráar, skornar í sneiðar og soðnar skamma stund f potti þannig að þær mýkist aðeins. Vatninu er hellt af og kartöfl- unum raðað í smurt eldfast form. Púðursykurinn er settur í pott, sykurinn sömuleiðis og appelsínusafa hellt út í. Kart- öflumjöli er bætt út í, hrært vel í og soðið upp þar til blandan er orðin þykk. Þá er potturinn tekinn af plötunni, smjörinu bætt út í og blönd- unni loks hellt yfir kartöflurn- ar. Álpappír eða lok er sett á formið áður en kartöflurnar fara inn f ofninn. Bakað á kökuhita í 30 mínútur. Sætu kartöflurnar eru góðar með kalkúni, kjúklingum, reyktu kjöti og jafnvel lamba- kjöti. Rískaka með súkkulaði og líkjör Eftir matinn á páskadags- morgun ætlar Ebba Guðrún að bjóða upp á ljúffengan og sætan eftirrétt, súkkulaði- moussé og tryfflé eða tertu og kaffi. Hún segist í auknum mæli vera farin að kaupa rís- botna og útbúa eftirréttinn á einfaldan og fljótlegan hátt. Hún þeytir þá rjóma daginn áður og blandar saman við rjómann púðursykri, röspuðu súkkulaði og örlitlum líkjör og smyr blöndunni á botninn. Ef von er á mörgum gestum Ieggur hún tvo botna saman og hefur ijómann á milli og ofan á. „Þetta hefur gert mikla lukku," segir hún. „Fólk trúir þ\i ekki að ég hafi keypt botn- ana. Þetta er ekkert miklu dýrara en að baka sjálfur og mjög gott. Maður verður bara að passa að setja ekki of mik- inn púðursykur því að þá verður þetta of sætt. Botnarn- ir eru svo sætir.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.