Dagur - 04.12.1999, Qupperneq 2
___________■''».!*>teWíj|'
18 - LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
HELGARPOTTURINN
Spennandi fréttir berast úr kvikmyndaheiminum en leikmyndahönnuð-
urinn Karl Júlíusson. sem meðal annars hefur unnið með Lars von
Trier í myndinni „Dancing in the Dark" er kominn til Hollywood að vinna
með stórleikaranum Sean Penn að nýrri og athyglisverðri mynd en
ekkert hefur heyrst um söguþráðinn. Sagan segir hins vegar að Penn
hafi séð myndina Hrafninn flýgur, í hvurri Karl samviskusamlega skilaði
af hendi sínu framtaki, og heillast gjörsamlega. f framhaldi af því ku þeir
hafa náð saman...
Snæbjörn
Arngrímsson.
Snæbjörn Amgrímsson, útgáfustjóri
Bjarts, skaut stærstu bókaforlögunum Máli og
menningu og Vöku Helgafelli aldeilis ref fyrir
rass þegar hann tryggði sér rétt á bókunum
um Harry Potter sem börn heims elska.
Bókin stefnir hraðbyri í metsölu hér á landi og
reiknað er með að hún seljist í 10-12 þúsund
eintökum. Potter þykir mikill happafengur fýrir
þetta litla en metnaðarfulla bókaforlag...
Önnur bók sem stefnir í svipaða sölu og Harry
Potter er Slóð fiðrildanna eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson Þrátt fyrir mjög misjafna dóma á
liðnum árum hafa bækur Ólafs Jóhanns ætíð
selst vel en nú þegar dómarnir eru einróma
lof er búist við að salan á þessari nýju bók
slagi upp í Fyrirgefningu syndanna sem árið
1991 seldist í 13 þúsund eintökum og er með
söluhæstu bókum sem gefnar hafa verið út
hér á landi...
Ólafur Jóhann Ólafsson.
Þórunn Valdimars-
dóttir.
Það vakti athygli þegar við sögðum frá því nýlega að Ólafur Jóhann sæti
bæði í útgáfustjórn Vöku-Helgafells og Máls og menningar. Til að
hnykkja á því má bæta við að hann situr líka í útgáfustjórn fyrirtækisins
Scholastik í New York sem gefur út Harry Potter þar í landi. Sagan seg-
ir að metsölurithöfundinum hafi hafa þótt Vaka-Helgafell heldur svifasein
að hafa ekki verið fyrir löngu búin að tryggja sér útgáfuréttinn að Pott-
er...
Næstkomandi mánudag verður tilkynnt um til-
nefningar til íslensku bókmenntaverðlaun-
anna. Ólafur Gunnarsson er talinn líklegur
til að hljóta tilnefningu fyrir Vetrarferðina og
nær útilokað er annað en Ólafur Jóhann
Ólafsson verði í hópi hinna útvöldu með sína
langbestu bók, Slóð fiðrildanna, sem Pottverj-
ar eru sammála um að sé ein af skáldsögum
ársins. Þórunn Valdimarsdóttir er talin
eiga mikla möguleika með sögulega skáld-
sögu sfna Stúlka með fingur. Margar ágætar
Ijóðabækur hafa komíð út þetta árið og Pott-
verjar veðja á að Þorsteinn frá Hamri hljóti tilnefningu fyrir Ijóðabók-
ina Meðan þú vakir. Pottverjar treysta sér ekki til að veðja á hvaða fræði-
bækur hljóti náð fýrir augum dómnefndar en eru sammála um að það
verði skandall ef hin frábæra bók Páls Valssonar um Jónas Hall-
grímsson verði ekki þar á meðal...
Stór dagur er í dag hjá þeim tveimur stúlkum sem stóðu efstar í Fegurð-
arsamkeppni íslands á síðasta vori. Ungfrú ísland 1999, Katrín Rós
Baldursdóttir keppir í Grand Hall Olympia í London um titilinn Miss
World 1999 og Ásbjörg Kristinsdóttir sem hreppti annað sætið hér
á Fróni leggur upp á til Tókýó að taka þátt í Miss International 1999.
Katrín Rós er umkringd fjölskyldu, vinum og samlöndum úti í London
en með Ásbjörgu austur til Asíu fer ein góð móðir...
Mikaei Torfason stendur í stórræðum
þessa dagnna. Hann tók sér frí frá blaða-
mennsku á Fókus til þess að gera kvikmynd
eftir handriti sem hann hefur sjálfur skrifað
og ku sagan fjalla um krakka í Breiðholtinu,
ást, vonir og væntingar. Það er kvikmynda-
fyrirtækið Zig Zag sem framleiðír myndina
en eigendur þess eru þeir Þórir Snær
Sigurjónsson sem er sonur Sigurjóns
Sighvatssonar kvikmyndamógúls og
Skúla Malmquist Mikael hefur áður
fengist við að gera tónlistarmyndbönd og
auglýsingar hjá kvikmyndafyrirtækinu Plúton, en það fyrirtæki er með-
framleiðandi að myndinni. Tókur á henni hefjast eftir tvær vikur...
Sigurjón Sighvatsson.
Hvað segja Sögur af landi um framtíð byggðanna, er yfirskrift fundar
sem haldinn verður í Framhaldsskóla Vestfjarða á mánudaginn kemur,
en þar mun ungt fólk við skólann ræða byggðamál. Til fundarins mun
mæta Stefán Jón Hafstein en nýlokíð erá'Stöð 2 sýningum á þátt-
um hans Sögum af landi sem einmitt fjölluðu um þetta stóra mál sem
snertir unga fólkið og framtíð þess svo mjög. Einnig mun mæta til skrafs-
ins Einar Kr. Guðfinnsson. sem er fyrsti þingmaður Vestfirðinga. Það
má því búast við fjörlegum umræðum og jafnvel heitum...
Ekkert Wesen verður á Múlanum í kvöld á Sólon íslandus. Þar mun
Björn Thoroddsen ásamt félögum flytja tónlist eftir Wes
Montgomery Björn er meirháttar jassari og öllum landsmönnum
kunnugur fyrir gítarleik sinn. Núna hyggst hann gera Wes Montgomery
skil, en hann var þekktur Pandarískur gítarleikari sem braut blað í jass-
gítarsögunni kringum miðja öldina. Ásamt Birni leika Gunnar Hrafns-
son á bassa og Pétur Grétarsson á trommur...
X^íiir
„Við ætlum að halda svona samkomur um efni blaðsins i hvert skipti sem það kemur út og þetta er semsagt sá fyrsti, “ segir Soffía
Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur. mynd: e ól
Rómantíkin
og aldamótin
Útópían ísland? Óskamyndir lands og þjóðar í fortíð og framtíð er umfjöllunarefni á
svokallaðri Kaffi-Akademíu í Hlaðvarpanum í dag. Soffía Auður Birgisdóttir mun
leiða umræður og hér fræðir hún okkur nánar um efnið:
„Kaffi-Akademía er haldin f tilefni
af því að út er að koma blað sem
Reykjavíkur-Akademían stendur
að í samvinnu við Lesbók Morg-
unblaðsins og stefnt er að útgáfu
annan hvern mánuð. Við ætlum
að halda svona samkomur um efni
blaðsins í hvert skipti sem það
kemur út og þetta er semsagt sá
fyrsti.
Málshefjendur á þessari fyrstu
Kaffi-Akademíu verða þeir Sveinn
Yngvi Egilsson og Jón Karl Helga-
son. Sveinn Yngvi hefur nýlega
sent frá sér fræðiritið: Arfur og
umbylting, rannsókn á íslenskri
rómantík og mun í spjalli sínu
fjalla um tengsl rómantíkurinnar
við 21. öldina. Jón Karl er nýbú-
inn að gefa út bók erlendis sem
heitir The Rewriting of Njáls saga:
Translation, Politics and Iceland-
inc Sagas og í erindi sínu mun
hann ræða um gullöldina og öldu-
dalinn, tvær aðferðir til áhrifa.
Óska-ísland
Blaðið verður hugsað sem milli-
stig milli strang-fræðilegrar um-
ræðu og dægurumræðu. Það verð-
ur þematengt og í þessu fyrsta
verða tvö þema, Rómatíkin og
aldamótin. Rómatíkska stefnan er
áberandi í allri útgáfu núna. Auk
bókar Sveins er nýkomin ævisaga
Jónasar Hallgrímssonar og bókin
Nú heilsar þér á ITafnarslóð eftir
Aðalgeir Kristjánsson, sagnfræð-
ing. Hún fjallar um fyrri hluta
nítjándu aldar, sérstaklega Islend-
inga sem voru við nám í Kaup-
mannahöfn og meðal annars
MAÐUR VIKUNNAR ER HIRÐSKALD!
1
Maður vikunnar er auðvitað enginn annar en Hákon
Aðalseinsson sem fór til Noregsgrunda að heim-
sækja konung og flytja honum drápu að sið íslenskra
hirðskálda fyrri tíma. Það er svo dæmi um hnignandi
konungsvald að Haraldur konungur lét ekki sjá sig,
þótt hann hafi víst lesið drápuna síðar. En Hákon
hefur sýnt og sannað að íslensk skáld kunna enn að
yrkja til konunga.
Fjölnismenn. Svo er greinasafnið
hennar Svövu Jakobsdóttur, þar
sem eru þrjár stórar ritgerðir um
skáldskap Jónasar og í greinasafni
Dagnýjar Kristjánsdóttur eru líka
þrjár greinar um Jónas.
Stór hluti af rómantíkinni var
hugsunin um að skapa „Óska-ís-
land" og Fjölnismenn og aðrir
rómantíkerar voru auðvitað að
berjast fyrir sjálfstæði þjóðarinnar
og vísa til fortíðarinnar, í hina
glæstu söguöld. Við áttum að taka
þá öld til fyrirmyndar og mynd af
íslandi útópíunnar er falin í róm-
antísku stefnunni. Þetta er líka
eitthvað sem kemur alltaf upp um
aldamót. Að gera upp hið liðna og
spá í framtíðina."
GUN.
Hákon Aðalsteinsson.