Dagur - 04.12.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 04.12.1999, Blaðsíða 9
 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999- 25 Karlabrennurnar karlrembu að þakka - Hverjar eru ykkar skýringar á því af hverju galdramálin ein- angruðust að mestu við Vestfirði og að nánast eingöngu karlar voru hér brenndir (en ekki konur sem voru í meirihluta annars staðar í Evrópu)? HRAFN: Ja, af hverju koma Hljómar úr Keflavík? MATTHÍAS: Það hafa nú ver- ið settar fram ýmsar skýringar á því, t.d. að rúnagaldur hafi verið á verksviði karlmanna. Við hljót- um einnig að skoða hvers konar djöflafræði hafði mest áhrif hér- lendis. Það var til mikill fjöldi djöflafræðirita en einhverra hluta vegna virðast verk Johanns Weier, sem gagnrýndi nornaof- sóknir mjög harkalega, hafi verið lesið umfram önnur hér á landi. Weier fordæmdi nornabrennur á grundvelli þess að nornir væru yfirleitt geðsjúkar, elliærar eða jötunheimskar gamlar konur, en gerði jafnframt ráð fyrir tilveru galdurs seiðkarla og djöfla. Weier hafði umtalsverð áhrif á Pál í Selárdal svo dæmi sé tekið. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að íslenskir valdsmenn ráð- ast ekki gegn konum í svipuðum mæli og víða erlendis. HRAFN: Hafi einhver upp- reisnargirni verið í mönnum þarna fyrir vestan þá hefur valdsmönnum líka þótt það kostur við þessar galdrabrennur að ef þú brennir einn einstakl ing - þar sem enginn mátti und- an líta - þá var sú refsing svo svakaleg að þú heldur eiginlega umhverfinu f herfjötri á meðan þeir lifa sem urðu vitni að brennunni. Lýsingar á Jóni yngri sýna að hann var nú hálfgerður hippi, sr. Jón segir að hann hafi verið á fylleríi með erlendum sjómönnum og kaupmönnum og marghamrar á því í sögunni að það hafi verið mikil lausung og hálfgert saurlífi í gangi þarna og Jón yngri virðist hafa verið glæsilegur maður og dálítill „Iadykiller“. Það voru svo góðar hafnir á Vestfjörðum að þar hef- ur verið einna mest samskipti við erlenda sjómenn. Þá hafa yf- irvöld kannski séð sér hag í því að hræða almenning til hlýðni og ætlað sér að binda niður þjóðfélagið. MATTHÍAS: Já, nútímafólk hefur kannski gert sér skakka mynd af mannlífinu fyrir vestan, talið að þetta hafi verið eintóm einsemd og fábreytni. Þarna söfnuðust tugir skipa að landi á hverju ári og í Skutulsfirði var næst öflugasta höfn landsins. Hysterískur ekki geðveikur - Lengi vel töldu menn að síra Jón væri einfaldlega sálsjúkur maður, m.a. Sigurður Nordal sem sá um iítgáfu á Píslarsög- unni 1967. Hvað finnst ykkur um þá skýringu? HRAFN og MATTHÍAS svara báðir afar dræmir: Njaaaá. HRAFN: Hann var bara eins og hver annar paranoid maður. Eg held að við Matthías Viðar höfum báðir einhvern tímann verið paranoid á ævinni. Bara ef þú fékkst lágt í þýskuprófi þá gastu verið viss um að þýsku- kennaranum var illa við þig. Þetta er svona ping-pong effekt. Hann verður paranoid og um- hverfið finnur að paranojan nær tökum á honum. Það eru mjög nákvæmar lýsingar á því hvernig aðrir á bænum verða fyrir galdri, heimilisfólk lýsir því t.d. hvernig rottur hlaupa eftir því innan fata, og þá er þetta fólk að ein- hverju leyti að geðjast Jóni - svona eins og kona alkóhólista. Ef þú, bjóst á bænum og fannst ekki fyrir galdrinum þá hlaustu annars að vera samsekur galdra- mönnunum. MATTHÍAS: Svo megum við heldur ekki gleyma mætti hug- ans. A þessum tíma voru aðrar hugmyndir um samspil hugar og Iíkama en hafa ríkt til skamms tíma. Menn vissu t.d. að hugur- inn gæti veikt líkamann, minnk- að mótstöðuafl hans og verið uppspretta banvænna sjúkdóma. HRAFN: Andalækningar byggja einmitt mest á því að fá menn til að trúa því að þeir geti barist við sjúkdóminn með hug- arorkunni til að reisa við ónæm- iskerfið. Vúdú byggist ekki á öðru en því að þú brýtur niður það sé alltaf um einhverja hags- muni að ræða. En fólk trúði auðvitað á djöfulinn, annað var guðlast. Djöfullinn var jafnvel raunverulegri en guð. Menn höfðu rekist á djöfulinn, hann hafði t.d. sorðið konur í stórum stíl en guð gerði ekkert slíkt - hann var miklu fjarlægari. MATTHÍAS: Kirkja 17. aldar þurfti að glíma við tvíhyggjutrú- villu og ofsatrú, jafnvel djöfla- dýrkun, og augljóst er að hún hefur um tíma misst tökin á ástandinu. En það voru margir þættir að verki og hæpið að ein- blína á einn þeirra, s.s. hysteríu eða húsbóndavald sr. Jóns. Við hljótum þó að spyrja hvert hafi verið tundrið. Kannski var það djöflafræðin, hin evrópska demónólógía, sem umsneri hefðbundnum hjargráðum fólks í ókristilegan glæp. Það verður líka að líta til þess að Kirkju- bólsfeðgar sátu stærstu og bestu jörð sveitarinnar. Þeir hafa verið sveitarhöfðingjar og einhver ver- aldleg átök spila þarna inn í, togstreita um völd og eignir milli höfuðkirkjunnar á Eyri og Kirkjubóls. HRAFN: Þegar sr. Jón kemur þá er búið að vera prestlaust ansi lengi og í samvinnu við ekkjuna höfðu Kirkjubólsfeðgar nýtt mikil hlunnindi þessarar kirkju. Sr. Jón kemur með mikl- „Þú getur drepið hraustan mann á nokkrum sólarhringum með vúdú, “ segir Matthías. ónæmiskerfi fólks svo það hættir að trúa því að það geti lifað. MATTHÍAS: Þú get- ur drepið hraustan mann á nokkrum sólar- hringum með vúdú. HRAFN: Ég held lfka að stór partur af þessu sé að fólk finnur að sr. Jón er hysterískur og menn notfæra sér þá stöðu, þeir spila aðeins inn á það. MATTHÍAS: Það verður líka að líta á það að á þessum tíma var samlelagið allt „hyster- ískt“ í ákveðnum skiln- ingi. Rétt eins og núna. Veraldlea hags- munaátök - Þið eruð samt ekki fyllilega sammála um þetta atriði, þú Hrafn virðist heldur vera á því að sr. Jón hafi verið gripinn ofsa hræðslu öðru hverju og vinnu- fólk hans hafi einfald- lega orðið meðvirkt, orðið „kóarar" eins og makar alkóhólista, en þú Matthías telur að galdratrúin hafi einfald- lega verið inngreypt í samfélagið almennt... HRAFN: Þegar ákveðin hugmynda- fræði er í gangi eins og nasismi eða kommún- ismi eða maóismi þá gerast menn misjafn- lega heitir fylgjendur hugmyndafræðinnar. Taka mismunandi mik- inn þátt í þessu eftir því sem þeir telja sína hagsmuni. Ég held að £g þekktigaldramann, einn sterkasta „faith-healer" íheimi sem er borgarstjóri IBagio á Fil- ippseyjum. Hann sagði við mig, “sjúklingarnir sem ég fæ eru menn sem nútímavísindin hafa gefið upp á bátinn. Ég gefþeim trúna á að þeir geti læknast. Ég segi: farðu á bar og allt í einu verður hold þitt hart án þess að þú kærirþig um og þú ferð að heyra tónlist og verður allt annar maður afþví að þú sérð einhverja konu.“ Er það galdur? Allt þitt ónæmiskerfi breytist, öll þín orka breytist, allt þitt hugarástand breytist. Það var enginn sem sprautaði þig. Þetta varbara einhver hugmynd sem konan kveikti ar hugmyndir um endurbætur á kirkjunni sem þýðir að hann þarf að fara að nota tekjur kirkj- unnar. Það eru sennilega undir- liggjandi miklu stærri og flókn- ari hagsmunaátök en sr. Jón kærir sig um að hirta í bókinni. En Jón er mikill trúmaður og ef- ast aldrei um að hafa gert rétt, honum finnst bara að einhverjir hálfvitar út í bæ hafi ekki skilið hvað hann var að gera stórkost- lega hluti. Sagan er m.a. ákæra á embættismenn þessa lands sem honum finnst vera ónytj- ungar sem hafa ekki staðið sig í stykkinu og láti alþýðuna kom- ast upp með alls konar subbu- skap. MATTHÍAS: Þessir valds- menn, einkum Þorleifur Korts- son, eru með margníddustu mönnum allra tíma, enda hefur fólk ekki áttað sig á því að var- kárni þeirra og staðfesta kom í veg fyrir að fleiri yrðu brenndir. Ég er sannfærður um að Þorleif- ur, t.d., hefur verið vandaður og gætinn embættismaður. Heim- ildir sýna að hann bjargaði mönnum, einkum kvenfólki, undan báli og lét aldrei til skarar skríða fyrr en skýlausar játningar lágu fyrir. Þessir valdsmenn virðast ekki hafa fylgt konungs- hoði um að embættismenn hefðu frumkvæði í galdrarann- sóknum heldur fóru þeir eftir gamalli lagahefð, réttarreglum Jónsbókar, sem kom í veg fyrir fjöldadráp eða brennukeðjur sem algengar voru víða erlendis. Sr. Jón vildi hins vegar koma á nýjum rétti í evrópskum anda. Öll full af mótsögnum - Þú segir Hrafn að Jón hafi verið mikill og einlægur trúmaður en nú fær maður stundum á tilfinn- ingunni í myndinni að hann sé að talsverðu leyti að nýta sér stöðu stna og galdratrúna, t.d. í þvt' hvernig hann reynir að serða Þurt'ði undir þvt' yfirskini að hann þurfi að kanna hvort djöf- ullinn hafi komist nálægt henni... HRAFN: ...það blundar alltaf í mannskepnunni að gera sitthvað í krafti aðstöðu sinnar, að fara í lax eða til útlanda hvort sem menn eru klerkar eða banka- stjórar eða annað. Jón er búinn að lesa þessi fræði um hætturn- ar af galdranornunum sem nota þennan líkamlega losta til að af- vegaleiða menn og þá fer hann að finna fyrir þessum líkamlega losta. Þetta er bara sama vanda- mál og Jesús Kristur átti við að stríða. Hvenær er ég mannlegur eins og dýr merkurinnar, hvenær er einhver djöfull að spila í mér, hvenær er ég að svara kalli guðs um að fjölga mannkyninu? Hann heldur svona fyrir annað augað þegar hann er að rann- saka Þuríði undir því yfirskini að þetta séu vísindi en hann sér ákveðinn hag í að beita þessum vísindum til að komast yfir hana. MATTHÍAS: Ég kann einsmitt vel við það að Hrafn dregur ekki fjöður yfir mótsagnir Jóns heldur skapar áhorfendum rými til að ráða í það sem gerist. Myndin býður upp á ólíka túlk- unarkosti, ekki félagslega eða sálfræðilega einföldun. HRAFN: Það hefði verið svo auðvelt að gera þennan mann bara geðveikan og kynóðan [“því hann var hvort tveggja - og trú- aður að auki," skýtur Matthías inn í] en það er svo margt annað sem spilar inn í. Það vakna oft upp hjá okkur kenndir sem stríða gegn reglunum sem við erum húin að samþykkja. Af hverju er hægt að spila á galdra í eðli mannsins? Af því að við erum svo fulfaf mótsögnum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.