Dagur - 04.12.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 04.12.1999, Blaðsíða 10
26 - LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 < L ÍjFJÐ I LAj'JÐJj'JU J- D^ur Helgi segir þetta vera skemmtilegustu myndina afþeim feðgum. Hún er tekin árið /984 og ég var að þýða bíómynd, þetta er dáiítið tákn- rænt, við sitjum þarna fyrir framan ritvélina. Feðgar á siglingu, Hafþór, Helgi, Hörður. Herði var mútað til þess að hefja íþróttaæfingar, síðan hefur hann ekki stoppað. í sumarhita borðar maður is, Hörður ásamt Höllu Maríu systur slnni. Mútað með snúð Feðgarnir Hörður Helgason og Helgi Jónsson hafa brallað ým- islegt saman sem feðga er sið- ur og nú hafa þeir gefið út hrollvekju eftir sig. „Hann varð svolítið hissa á því þegar ég stakk uppá að hann skrifaði bók með mér. Hann hefur að vísu Iesið yfir íyrir mig áður og farið yfir prófarkir en þetta er fyrsta höfundareynslan hans,“ segir Helgi Jónsson um samvinnu þeirra feðga, en þeir skrifuðu söguna Rauðu augun. Þeir segja bókina ekki vera strákabók, bæði kynin hafi gaman af spennu og smá hrollvekju. „Eg er að halda upp á 10 ára rithöfund- arafmæli, það eru tíu ár síðan ég gaf út mína fyrstu bók. Mig langaði til þess að gera eitthvað öðruvísi og beisla hann með mér. Þegar barnið er orðið unglingur þá fjarlægst það mann og þetta var svona leið til þess að nálgast hann aftur. Við hugsuðum dálítið um það hvernig saga gæti pasSað fyrir unglinga. Ég kom með ákveðna grunnhugmynd og byrjaði að skrifa. Síðan tók hann við. Þetta átti að verða spennusaga en síðan enduðum við í hrollvekju." ■ Næra heilann á bókum Helgi segir það vera mikilvægt að krakkar hætti ekki að lesa bækur þegar þau kom- ist á gelgjuskeiðið. „Ég held að unglinga- bækur séu ákveðin deild, sumir fyrirh'ta þær. Það er hinsvegar nauðsynlegt að til séu sérstakar bækur fyrir krakka á aldrin- um 14 og 15 ára til þess að þau hætti ekki að lesa bækur. Svo þegar þau stækka þá breytist smekkurinn. Ég held samt að unglingar vilji ekki setjast njður til þess að lesa um sjálfa sig í daglegu amstri. Þau vilji aðeins vera lyrir utan það sem þau eru að lesa. Þessi saga er svolítið yfirnáttúrleg, ekki alveg um hversdaginn." Hörður sagðist vera sammála þessu. „Ég hef aldrei áður komið nálægt því að skrifa bók enda horfi ég meira á bíó- myndir heldur en að lesa bækur. Það sem ég les eru aðalega unglingabækur eða spennusögur. Hinsvegar horfi ég dálítið mikið á bíó. Það eru helst hryllingsmynd- ir, spennumyndir, gamanmyndir, ég hef gaman af þessu öllu.“ Of mikið bíó og tölvuleikjaumhverfi er ekki gott fyrir fólk að mati Helga heldur verður að næra heilann á bókum. „Þeir sem ætla í skóla hafa gott af því að lesa líka. Ég er kennari á Ólafsfirði og hugsa að unglingarnir þar séu venjulegir ung- lingar. Ég veit hvernig unglingarnir eru og hef dállitla hugmynd um hvernig þeir hugsa og hvernig bækur þeir vilja,“ segir Helgi. Snarklikkaður á hliðarlínunni Helgi hefur verið kennari á Ólafsfirði síð- an árið 1988. Konan hans er hjúkrunar- fræðingur A staðnum en börnin í fjöl- skyldunni eru þrjú, og er Hörður elstur en Hafþór er tíu ára og Halla María tveggja ára. Hörður var fjögur ára þegar fjölskyldan flutti til Ólafsfjarðar. Hörður stundar skíðaíþróttina og knattspyrnuna jöfnum höndum með ágætum árangri. Hann var valinn í unglingalandsliðið á skíðum síðastliðinn vetur og fór í skíða- ferð til Noregs í kjölfarið. Hörður varð meðal annars Islandsmeistari með Iiði sínu í flokki 7 manna Iiða árið 1998. Verkaskiptingin á heimilinu er þannig að Halla Huld, móðir Harðar, fer yfirleitt með honum í skíðaferðir en Helgi fer með syni sínum í knattspyrnuferðir. Hann segir að þeir eigi margar minningar úr þessum ferðum. Helgi mútaði syni sín- um til þess að fara á fótboltaæfingu með þvf að gefa honum snúð. Hann vildi ekki fara á æfingu. Svo fór hann á sína fyrstu æfingu og hefur ekki hætt síðan. „Ég man eftir því einu þegar hann var sex eða sjö ára þá vorum við foreldrarnir í regn- göllum í brjáluðu roki og rigningu og stóðum varla í lappirnar. Svo var það eftir eitthvert yngriflokkamót á Húsavík að við fengum senda myndbandsspólu, sem ein móðirin hafði tekið upp. Þá komumst við að því að við foreldararnir vorum alveg snarklikkuð á lfnunni. Maður hálf- skammaðist sín fyrir þetta þegar maður sá spóluna. Maður verður að passa sig,“ segir Helgi. Hörður segist muna eftir þessum leik. „Það var úrslitaleikur og við vorum að keppa við Völsung en við vorum búinir að tapa lyrir þeim í hádeginu með fjögurra marka mun og unnum svo úrslitaleikinn 1 - 0.“ Hörður starfrækir bókaútgáfuna Tindur á Ólafsfirði, þar sem bók þeirra feðga er gefin út, en hún er öll unnin norðan heiða. Það er svo fyrirtæki fyrir sunnan sem sér um dreifinguna lyrir hann. Þeir feðgar segjast alveg geta hugsað sér að skrifa aðra bók ef þessi gengur vel. -PJESTA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.