Dagur - 04.12.1999, Blaðsíða 6

Dagur - 04.12.1999, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 LÍPJÐ f LAj'JÐJj'JU j 22 fræðikeimsla I' W '■ r; Rúnar Sigþórsson og Jón Baldvin Hannesson starfa sjálfstætt sem ráðgjafar í skólamálum. Þeir eru miklir áhugamenn um siðfræðikennslu I skólum. mynd: brink Á skólinn að vera hlut- laust fræðasetur eða hefur hann eitthvað meira til málanna að leggja í uppeldismál- um? Rúnar Sigþórsson og Jón Baldvin Hannes- son starfa sjálfstætt sem ráðgjafar í skóla- málum og telja að sið- fræðikennsla í skólum geti bæði leyst aga- vandamál og stuðlað að bættum námsárangri. „Við viljum meina að skólinn geti verið mjög öflugur hakhjarl foreldra í uppeldismálum. Staðreyndin er nefnilega sú að þegar mismunandi gildismat þjóða eða trúarbragða er skoð- að þá er rauður þráður all- sstaðar sem er fyllilega sam- bærilegur. Það er enginn ágreiningur um það milli trúar- bragða, eða mismunandi þjóða, að við eigum að sýna náungan- um ákveðna tillitsemi og um- burðarlyndi, vera dugleg og heiðarleg og þar fram eftir göt- unum. Unnt er að telja upp fullt af dyggðum í viðbót. Þetta er allt mjög sambærilegt. Trú- arbrögðin hafa öll þessa þætti í sér og þvf þarf ekki að vera ágreiningur um mikilvægi þeirra," segir Jón. Þeir segja að siðfræðileg efni hafi löngum verið viðkvæm innan skólakerfisins og segir Rúnar það umdeilt hvort skól- inn sé afl sem hægt er að virkja í þágu samfélagsþróunar. „Gildi siðfræðikennslu í skól- um er undir því komið að skól- inn geti haft áhrif á mótun samfélagsins en ekki bara verið endurspcglun á því . Hlutverk skólans hlýtur að vera meira en bara að mennta vinnuafl sem hefur ákveðna þekkingu og ákveðna færni. Hann verður líka að þroska einstaklinginn þannig að hann geti tekið á ábyrgan hátt þátt í samfélag- inu,“ segir Rúnar. Nýlega fóru Jón og Rúnar ásamt fleiri íslenskum skóla- mönnum vestur til New Jersey í Bandaríkjunum til þess að sitja námsstefnu þar sem fjallaö var um siðfræði og mannrækt í skólastarfi. Námsstefnan var á vegum samtaka sem heita „Council for Global Education“. Og eru staðsett í Washington. Þeir segja þau samtök vinna víða um heim og séu ma. ráðgefandi fyrir ríkisstjórnir. „Þessi samtök vinna að útbreiðslu siðmenntar og mannræktar í skólastarfi. Einn liður í þvf að kynna sér áherslur samtakanna var þessi ferð okkar út til Bandaríkjanna. A námstefnunni voru ma. kynntir skólar sem leggja mikið uppúr siðfræði eða mannrækt í sínu starfi. Einnig var kynnt þarna það sem hefur verið gert í einstaka fylkjum í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Síðan var reynt að móta hugmyndir um hvernig rétt sé að standa að efl- ingu þessarar mannræktar í skólastarfinu almennt. Samtök- in safna saman því sem vel er gert á þessu sviði. Auk þess sem þau hafa staðið fyrir nám- skeiðum lyrir kennara. Sam- tökin leggja mikla áherslu á hnattrænan hugsunarhátt. þau vinna út frá þeirri stefnu að það þurfi bæði að þroska ein- staklinginn sem einstakling og gera hann þannig færan um að taka á ábyrgan hátt þátt í samfélaginu. Bæði hans eigin samfélagi og einnig byggja upp samábyrgð á milli samfélaga." Skólinn er uppeldisstofnun Þeir segja að íslenska skólakerf- ið hafi sinnt siðfræði eða mann- rækt frekar lítið. Samt hafi skól- inn mikið af félagslegum og uppeldislegum markmiðum, bæði í aðalnámsskrám skólastig- anna og einnig sé komin inná námskrá sérstök námsgrein und- ir heitinu lífsleikni, bæði í grunn- og framhaldsskólum sem að hluta til er ætlað að leggja grunn að skólastarfi á þessu sviði. „Síðustu áratugina hefur það viðhorf verið ríkjandi að skólinn eigi að vera hlutlaus þegar kemur að siðferðilegum álitamáium og hver og einn verði að velja sitt gildismat og sína afstöðu. Skólinn eigi að fást við fræðigreinar og sýni hlut- leysi. Hverjar eru þá afleiðing- arnar af þessu siðferðislega hlut- leysi? Af hverju erum við með svona marga einstaklinga sem taka ekki tillit til þeirra siðferðislegu gilda sem eru fyrir hendi í heilbrigðu sam- félagi? Hvað með eiturlyf og afbrot og óheið- arleika? Við verðum að spyrja hverskon- ar fólk við vilj- um ala upp. Skólinn er óhjá- kvæmilega bæði uppeldis- og fræðslustofnun, hann getur ekki skilið þar á milli. I leiðinni má spyrja, ef við viljum að ein- staklingarnir þrffist í heilbrigðu samfélagi, þurfa þeir þá ekki að hafa siðferðislegan grunn til að þetta virki. Spurningin er held ég hvort skólinn geti tekið þátt í að mynda gott gildismat?" segir Jón Rúnar og segir að það vera einkum tvennt sem vinni gegn því að skólinn taki að sér að inn- prenta börnum ákveðið gildis- mat. „Það er annars vegar þessi hlutleysiskrafa, að skólinn sé hlutlaus og sinni fýrst og fremst fræðigreinum en taki ekki á sið- ferðilegum álitamálum. Hann sé ekki uppalandi sem megi inn- prenta börnum ákveðna hluti. Hitt er krafan sem við sjáum reglulega þegar að birtast niður- stöður samræmdra prófa. Þar er skólinn metinn mjög þröngt á grundvelli mælanlegs árangurs úr prófum í ákveðnum fræði- greinum. Þú sérð ekki í umfjöll- uninni þegar að blöðin fara af stað og leggja útaf niðurstöðum samræmdra prófa að þar sé lagt mat á annað starf skólans. Það er þessi harða krafa um mælan- legan árangur. Það er mjög erfitt að mæla árangur af mannrækt- inni nema bara á Iangtíma mæli- kvarða. Þrátt fyrir að skólakerfið hafi margvísleg uppeldisleg markmið og markmið lífsleikn- innar séu að stórum hluta mark- mið um mannrækt held ég að fram að þessu hafi Ieiðirnar að þessum markmiðum skort.“ seg- ir Rúnar. Þroskandi togstreita Þeir segja mannræktina kannski ekki leysa agavandamál í skólum en hún sé liður í því. Jón Bald- vin var fyrir ári síðan í heimsókn í Indverskum skóla sem vakið hefur mikla athygli fyrir góðan árangur og segir að þar hafi menn komist að því að með því að leggja áherslu á siðfræði væri hægt að bæta annan námsár- angur um leið. Þeir segja að hægt sé að kenna siðfræði eða mannrækt í tengslum við íjölmargar náms- greinar. „Það kann að vera að einhver segi að hann vilji ekki að sínum börnum sé innrætt eitt- hvað af misgóð- um kennurum, en við teljum að skólinn eigi að koma sér upp ákveðinni stefnu þar sem koma fram ákveðin markmið og síðan eigi að ræða Ieiðir að þeim. Skólinn eigi að taka þetta á dag- skrá og koma á umræðum um einhverja dyggð, til dæmis sam- viskusemi. Það er hægt að spyrja börnin hvort þau þekki sögur þar sem þetta birtist eða hvort þau sjá þetta birtast í skólastof- unni. Hvernig hegðun okkar geti endurspeglað þetta gildi. Með því að börnin átti sig á því í hverju þetta felst þá erum við að hjálpa þeim að átta sig á í hverju siðferðileg afstaða felst og á hverju breitni rnanna byggist. Bara það að stilla upp þessum togstreitum sem þau sem ein- staklingar eiga ef’tir að lenda í, eða jafnvel eru að lenda í seni börn. Það er þroskandi að þau geri sér grein fyrir þeim. Hvenær eiga þeirra eigin hags- munir að hafa forgang fram yfir aðra. Hvað þarf svona safmfélag eins og bekkur á að halda til þess að það gangi sæmilega fyrri sig. Einstakling- arnir í hópnum hafa auðvitað sín réttindi og menn hafa tal- að mjög fjálg- lega um þau undanfarin ár en menn tala síður um skyld- urnar. Hvernig getur þú vænst þess að fá rétt- láta meðferð, réttlát sam- skipti eða rétt- láta dóma nema þú sýnir ábyrgð sjálfur. Það þarf að draga inn þessa samfélagslegu þætti til þess að börnin geri sér grein fyr- ir því að maður er ckki til nema með öðrum,“ segir Jón Baldvin. -PJliSTA „Hlutverk skólans er meira en bara að mennta vinnuafl sem hefur ákveðna þekkingu og ákveðna færni. Hann verður líka að þroska einstaklinginn þannig að hann geti tekið á ábyrgan hátt þátt í sam- félaginu." „Skólinn er óhjákvæmi- lega bæði uppeldis- og fræðslustofnun, hann getur ekki skilið þar á milli. í leiðinni má spyrja, ef við viljum að einstaklingarnir þrífist í heilbrigðu samfélagi, þurfa þeir þá ekki að byggja á siðferðislegu gildismati “

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.