Dagur - 04.12.1999, Síða 15
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 - 31
iSI7) : j
alheims
„íslenski búningurinn er það fallegasta, “ seglr Ásbjörg.
Með þessum bláa kyrtli ber hún gyllt belti og gylltan
kross.
skálmar, utanástungnir vasar og
stunginn kragi.
Svört buxnadragt úr mynstruöu
glansandi efni.
Svart stutt pils og annað hné-
sítt með glimmermynstri.
Svartur kjóll með glimmer-
mynstri.
Svartur satínkjóll, drag-
síður.
Svart satínpíls, skósítt
með klaufar upp í hliðam-
ar og blússa við úr sama
efni.
Hvítt peysusett: erma-
laus bolur og mittissíð ein-
hneppt peysa.
Milligrátt peysusett,
innanundirpeysan með
kvartermum, jaltkapeysa
með belti.
Grár bolur úr
angóraull.
Blúndutoppur,
Ijósblár, aðeins gegnsær.
Bolir, skyrtur og topp-
ar af ýmsum litum.
Undirföt, sokkbuxur
og baðföt.
Megnið af þessum
fatnaði hefur Asbjörg
fengið lánaðan hjá
versluninni Blues.
Sokkabuxurnar eru
gjöf frá Oroblu og
undir- og sundföt eru
frá Knickerbox.
Auk þessa sagði Ás-
björg nokkra síðkjóla
sem ekki væru komn-
ir í þennan biðsal,
fljóta með til Tókýó og
fallega skartgripi fékk hún Ieigða
sem hæfa hveiju dressi fyrir sig,
eyrnalokka, hringi, hálsmen.
„Sumar stúlkur eru svo mikið
styrktar fyrir svona keppni að þær
koma með heilu ferðatöskurnar
bara undir skartgripi. Eg hef ekki
svo mikið við.“ Sjálf sér hún um
sína förðun og hárgreiðslu og er
búin að fá leiðbeiningar sérfróðra
í Face og Kompaníinu um þau
efni.
Að mörgu er að hyggja þegar lagt er í langferð, ekki síst þegar keppt skal i fegurðar-
samkeppni. myndir: pjetur
Betra er að gleyma ekki sundfötunum, þau verða meðal þess
sem Ásbjörg kemur fram í á lokakvöldinu. Rauða peysan og
svörtu buxurnar sem hún er í á myndinni verða Hka með í för.
í dag leggur Ásbjörg
Kristinsdóttir af stað
áleiðis til Tókýó í keppni
um titilinn Miss
International 1999. En
hvað skyldi fegurðar-
drottning á leið í al-
heimskeppni taka með
sér og hvaða aðstoð fær
hún? Þarf hún að kaupa
alla hluti eða fær hún
lánuð föt og skart?
Til að fá svör við því lögðu blaða-
maður og ljósmyndari leið sína
upp í holtið breiða nú í vikunni,
þangað sem Elliðaárdalurinn
blasir við, Arbærinn og bak við
hann Esjan. Þar var Asbjörg að
byija að pakka niður fyrir ferðina
og notaði til þess fullveldisdaginn
enda frí þá í Háskólanum en þar
stundar hún nám í verkfræði.
Borðstofuborðið er þakið falleg-
um fötum, buxnadrögtum og
blússum, toppum, pilsum og
peysum. Hún ætlar að dvelja 10
daga í Tókýó en á leiðinni stoppar
hún í París, þar sem öll evrópska
fegurðin safriast saman og íylgist
að eftir það.
Móðir Asbjargar fer með henni
og verður ein í klappliðinu íyrir
Islands hönd. Blaðamaður spyr
hikandi hvort þær mæðgur viti
hvernig veðráttan sé þar eystra og
léttir þegar fegurðardrottning-
unni fínnst það ekkert sveitó og
upplýsir að þær hafí verið að
skoða það á Netinu. Gráðurnar
séu +13 og upp í 20 yfir daginn
en fari niður í 3 á kvöldin. „Þess-
vegna tek ég með mér peysur og
einn hlýjan jakka,“ segir hún og
er að spá í að vera í jakkanum á
leiðinni til Parísar. Hún ætlar líka
að vera í þægilegum skóm á
ferðalaginu og vemda fæturna
svo þeir komist nú í finu háhæl-
uðu skóna þegar mest á ríður.
Tuttugu alklæðnaðir
Ásbjörg kveðst taka með sér 10
hversdagsklæðnaði og 10 kvöld-
klæðnaði. „íslenski búningurinn
er það lang fallegasta,“ segir hún
og sýnir bláan kyrtil með slæðu.
Honum íylgir gyllt belti og gylltur
kross til að hafa um hálsinn. Allt
leigt af Jórunni Karlsdóttur. „Hjá
henni fæ ég líka tvo kjóla, hvítan
og rauðan. Þeim hvíta verð ég í
kvöldið sem keppnin fer fram og
ber við hann faílegt hálsmen með
semalíusteinum. Við rauða kjól-
inn hef ég gyllt men með rauðum
steinum.“ Það sem blasir við á
borðstofuborðinu er:
Steingrá buxnadragt, jakkinn
síður.
Svört buxnadragt; jakldnn stutt-
ur með klaufar upp í ermar og
Vön pinnahælunum
Nokkur pör af skóm eru nauðsyn-
leg, til dæmis lokaðir svartir skór
við þjóðbúninginn, opnir svartir
við rauða kjólinn og lokaðir hvítir
við hvíta kjólinn, allir með 10 cm
pinnahælum. Aðspurð segist Ás-
björg hafa æfst vel f að ganga á
slíkum pinnum lyrir keppnina í
vor auk þess sem hún hafí verið í
samkvæmisdönsum í 10 ár og þá
vanist slíku skótaui.
Bæklingar uin Tókýó eru
komnir í hús. „Það er nauðsynleg
að vita eitthvað um borgina sem
maður er að heimsækja og siði og
venjur japönsku þjóðarinnar,“
segir þessi fallega stúlka sem án
efa verður íslenskri þjóð til sóma
hvar sem hún fer. GUN.
Ásbjörg i hvíta kjólnum sem hún íklæðist keppniskvöldið. fíá f
verður hún í hvítum lokuðum skóm og með fallegt hálsmen.
A leið í