Dagur - 29.09.2000, Side 2

Dagur - 29.09.2000, Side 2
2 - FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 FRETTIR Kafbátahemaður sagður vera í ASl I opna skjöldu. Akvörð- un um endurkjör á næstu dögum. Sam- fylkingin sögð standa að baki Ara. Umdeild- ur. Grétar Þorsteinnsson forseti ASI segir að umræðan um sig og for- setaembættið að undanfömu hafi komið sér dálítið í opna skjöldu. Þá segist hann ekki hafa skynjað þá undiröldu sem menn gætu ímyndað sér að væri miðað við íjöl- miðaumljöHunina. Grétar segist ekki hafa tekið ákvörðun um að gefa ekki kost á sér til endurkjörs. Hann segist ætla að gera þetta upp við sig mjög fljótlega. Það sé bæði og vegna umræðunnar. Finnbjörn Hermannsson formaður Samiðnar furðar sig á gagnrýninni á Grétar og líkir henni við kafbátahernað. Aðrir átelja fulltrúa Samfylldngar í verkalýðshreyfingunni fyrir að ota Ara Skúlasyni framkvæmdastjóra ASÍ gegn sitjandi forseta, enda séu afar skiptar skoðanir um Ara innan Grétar Þorsteinsson: Umræðan kemur mér í opna skjöldu. hreyfingarinnar. Oft verið mjög ófriðlegt Forseti ASI segir að það komi sér hins vegar ekki á óvart að í jafn fjölmennu sambandi með sína 70 þúsund félagsmenn velti nienn því fyrir sér hvernig forustan sé skipuð á hverjum tíma. Hann seg- ist ekki vilja svara fram kominni gagnrýni í sinn garð um meinta deyfð í starfi og að ASÍ hafi ekki verið nógu sýnilegt í þjóðmálaum- ræðunni á meðan það kemur fram Finnbjörn Hermannsson: Kafbáta- hernaður í gangi. hjá einhverjum óþekktum persón- um. Aftur á móti sé hann tilbúinn að rökræða við menn augliti til auglitis. Ef þetta séu skoðanir manna, þá bendir forseti ASI á að allt starf á vettvangi sambandsins síðustu fjögur árin hefur fyrst og síðast beinst að skipulagsmálum og starfsháttum þess. I þeim efn- um hefur gengið á ýmsu og oft ver- ið mjög ófriðlegt. Ef framkomnar tillögur til breytinga á þessum þáttum verða samþykktar á kom- andi þingi sambandsins verður ákveðinn viðhorfsbreyting innan hreyfingarinnar. í framhaldinu sé nánast hægt að treysta því að aðal- púðrið fari ekki að öðru jöfnu í innbyrðisdeilur innan verkalýðs- hreyflngarinnar heldur verði kapp- kostað að vinna að hagsmunum fé- Iagsmanna aðifdarfélaganna. Fingraför SamfylMngar Innan verkalýðshreyfingarinnar eru afar skiptar skoðanir um að Ari Skúlason framkvæmdastjóri ASI komi til greina sem næsti forseti sambandsins, en málið hefur verið rætt í þröngum hópi áhrifamanna í hreyfingunni. Samkvæmt heimild- um Dags eru sumir lítt hrifnir af því að fulltrúar Samfylkingar í hreyfingunni séu „að reyna að launa Ara vel unnin störf fyrir fylk- inguna með því að koma honum í forsetastólinn". Þá finnst öðrum Ari vera of mikill Evrópusinni og hafa farið of geyst í gagnrýni sinni á kjaramál ýmissa opinberra hópa svo nokkuð sé nefnt. Aðrir eru hins vegar á að þessar aðfinnslur í hans garð séu til marks um það að hann sé rétti maðurinn sem næsti for- seti ASÍ. - GRH Frá undirritun samninga í Listasafninu í gær. LandsbanM fjármagni Islandssíma Stjórnendur Landsbanka íslands og Islandssíma undirrituðu í gær samning um frekari eiginfjárþátt- töku Landsbankans í Islandssíma. Samkomulagið felur ennfremur í sér frekari fjármögnun á rekstri ís- landssíma og stefnumarkandi samstarf fyrirtækjanna. Fjármögn- unin er uppá einn milljarð króna. Fyrir eiga dótturfélög bankans og tengdir aðilar um 38 milljónir að nafnverði í Íslandssíma eða um 10% af heildarhlutafé. Samning- urinn sem undirritaður var og kynntur er gerður með fyTÍrvara um samþykki hluthafafundar Is- landssíma hf. sem boðað hefur verið til 10. október nk. Veiti hlut- hafafundur heimild til ofan- greindrar aukningar og núverandi hluthafar falla frá forgangsrétti sfnum eignast Landsbankinn allt að um 23% hlut í Islandssíma hf. - SBS Prósentið kostar 2 milljarda á ári „Við erum fyrst og fremst að reyna að einbeita okkur að því að lækka fjármögnunarkostnaðinn. Tækist okkur að lækka vaxtakostnaðinn, þó ekki væri nema um 0,1% þá erum við að spara þar 200 milljón- ir á ári,“ sagði Þórður Jónasson ný- lega ráðinn forstjóri Lánasýslu rík- isins, sem kyTinti blaðamönnum breyttar áherslur í starfsemi stofh- unarinnar. Lánasýslan ætlar héð- an í frá að leggja aukna áherslu á að lágmarka fjármögnunarkostnað ríkisins. Og grunnurinn að því sé virkur skuldabréfamarkaður, raf- ræn skráning, og bætt upplýsinga- gjöf. Góður árangur geti stuðlað að lægri álögum á ísfenska skattborg- ara. Skuldir ríkissjóðs segir Þórður yfir 200 milljarða um þessar mundir. Það þýðir að um hvert I prósent seni vextir á þeim Iækka, eða hækka, kostar eða sparar rík- issjóði yfir 2 milljarða króna á ári (nær 30.000 kr. á hverja 4ra manna fjölskyldu á Islandi). Áhættustýring mikilvæg Leiðir Lánasýslunnar að þessu markmiði segir Þórður: Lækkun lántökukostnaðar. Upptöku virkr- ar áhættu- og lánsfjárstýringar. Lágmörkun á áhættu ríkissjóðs vegna lána og ábyrgða. Styrkingu innlends markaðar fyrir ríkis- skuldabréf. Og starf að bættu láns- hæfísmati Islands. Þessar nýju áherslur segir Þórður í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa meðal hliðstæðra stofnana á Norðurlöndum og í Evrópu, þar sem áhættu- og lánsfjárstýring hafi fengið stöðugt meira Vfegi. Lána- sýslan hefur nú ráðið til starfa sér- fræðinga á þessu sviði. * * Líka viðsMptavaka fyrir ríMsvíxla Virka markaðsmyndun á ríkisverð- bréfamarkaðnum segir Þórður hafa verið tryggða fyrr á þessu ári með samningum Lánasýslunnar við fjóra markaðsaðila um við- skiptavakt á þessum markaði. Þetta hafi verið mjög mikilvægt skerf því virkur skuldabréfamark- aður sé nauðsynleg forsenda þess að ná fram lækkun á fjármögnun- arkostnaði rikj^sjóðs, Lánasýslan vinnur nú að sambærilegum við- sklptavakasamningi á ríkisvíxfa- markaði í samstarfí við markaðsað- ilana. ' - HEI Reglur iim fer ð aafþr eyingu Samgönguráðherra hefur skipað nefnd sem ætlað er það hlutverk að kanna hvort ástæða er til að gera tillögur að reglum um rekstr- arleyfí til handa fyrirtækjum sem bjóða upp á hvers konar afþrey- ingu í ferðaþjónustu en falla ekki undir skilgreiningu laga um ferðaskipuleggjendur eða ferða- skrifstofur. Hér er einkum átt við starfsemi eins og hestaleigur, véfsleðaferðir, bátsferðir o.fl. Einnig skal nefndin gera tillögur að reglum er varða öryggi afþrey- ingarfyrirtækja almennt. í upphafi skal nefndin semja verk- og kostnaðaráætlun fyrir það verkefni sem framundan er og kynna þá áætlun fýrir ráð- herra. Reiknað er með að nefndin skili tillögum til samgönguráð- herra eigi síðar en í mars 2001. Formaður nefndarinnar er Pét- ur Rafnsson, formaður Ferða- málasamtaka Islands, en með honum í nefndinni eru Arngrímur Hermannsson, framkvæmda- stjóri, Guðjón Petersen, fram- kvæmdastjóri, og Helga Haralds- dóttir, deildarstjóri. Albríght kemur Madeleine Albright utanríkisráðherra Bandaríkjanna kemur í opinbera heimsókn til íslands á morgun, Iaugardag næstkomandi í boði Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðherrarnir ræði samskipti lslands og Bandaríkjanna, þar á meðal framkvæmd varnar- samnings Islands og Bandaríkjanna og hverníg minnst verði fimmtíu ára afmælis samningsins árið 2001. Ráðherrarnir munu jafnframt ræða Evr- ópusamstarf í öryggis- og varnarmálum, alþjóðlega friðargæslu auk við- skipta landanna, þar á meðaf möguleika á auknum samskiptum við Alaska. Nýtt tímarít á Akureyri Nýtt tímarit hóf göngu sína á Akur- eyri í gær. Það ber nafnið aktímarit og er gefið út af fyrirtækinu Fjöl- mynd ehf. Blaðið mun koma út 10 sinnum á ári. Efni blaðsins á upp- sprettu á Eyjaíjarðarsvæðinu og verð- ur að sögn Höllu Báru Gestsdóttur almenns eðlis og stílað á fólk á öllum aldri og bæði kynin. Auk HöIIu Báru starfa Gunnar Sverrisson ljósmynd- ari og Guðný Jóhannesdóttir við blaðið. Eintakafjöldi er ekld gefínn upp en blaðið er prentað í Odda. Það er í örlítið stærra broti en gengur um tímarit og er 50 blaðsíður. — BÞ Æerangln a pðftruvaUum E)ónk»»(. Gyinifinuon OJV. Solxelf léra Gu#mundsd6; Náttöruíegt, . Utríkt og jhlsjpalsgt Innlit i hclmíU Mjrgféiar|dnsiJ6ttur Wifet^ksnj Nýir bílar 1.200 færri en í fyrra Nýskráðir bílar voru ríflega 1.200 færri á fyrstu átta mánuðum þessa árs heldur en á sama tímabili f fyrra - eins og raunar hefur illilega sýnt sig í ríkiskassanum, þar sem tekjur af vörugjöldum af bifreiðum hafa snar- lækkað milli ára. AIls voru nýskráningar bifreiða tæplega 12.900 á tíma- bilinu janúar-ágúst í ár borið saman við 14.100 í jyrra, samkvæmt Hag- vísum Þjóðhagsstofnunar. — hei Rannsóknarhola á Miðnesheiði Hitaveita Suðumesja hefur látið bora um 700 metra djúpa rannsóknar- holu á Miðnesheiði. Tilgangur borunnar á þessari holu er að kanna hvort á þessu svæði væri heitt vatn og í hversu mildu mæli. Yfirborðsmælingar höfðu gefið til kynna að þarna væri heitt vatn. 1 Ijós kemur eftir borun hvort þama er heitt vatn, en ekki í hversu mikluni mæli. Við borun á þess- um stað hefur fundist vatn sem er um 76 gráðu heitt. Niðurstöðu er að vænta innan fárra daga frá Jarðborunum og þá verður tekin ákvörðun um framhaldið. Hitaveita Suðurnesja vill kanna þetta svæði vel, bæði til að geta gert sér betur grein fyrir stöðu vatnsmála á Reykjanesskaga og ein- nig af öryggisástæðum. _ (x;

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.