Dagur - 13.10.2000, Page 2

Dagur - 13.10.2000, Page 2
2 - FÖSTUDAGUR 13 . OKTÓBER 2000 TOai^Mir FRÉTTIR Ögmundur Jónasson formaður BSRB. í stað fulltmakosn- inga á BSRB-þingum. Auka áhrif félags- Tiiaiina. Skoða með opnum huga. Árni Guðmundsson formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar hefur lagt tii að breyting verði gerð á lögum BSRB þess efnis að formaður bandalagsins og vara- formenn verði kjörnir í beinni kosningu til þriggja ára af félags- mönnum aðildarfélaga í allsherj- aratkvœðagreiðsiu. Lagt er til að þessi kosning standi yfir í minnst 1 5 daga og verði lokið sólarhring fyrir bandalagsþing. Samkvæmt núgildandi lögum eru það full- trúar á þingum bandalagsins sem kjósa í þessi embætti. Til- laga Árna verður lögð fram á 39. þingi BSRB sem haldið verður í lok mánaðarins en félagsmenn eru um 17 þúsund. Persónur aukaatriði Hann vísar því á bug að þarna sé á ferðinni einhver pólitísk atlaga að Ogmundi Jónassyni formanni BSRB sem jafnframt er þing- maður Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs. I því sambandi bendir hann á að Ögmundur eigi allan hans stuðning og að þeir séu miklir mátar. Árni áréttar að þessi tillaga hans snúist ekki um menn heldur fyrst og fremst um stýrikerfi hreyfingarinnar. I þeim efnum séu persónur algjört aukaatriði. Með opnum huga Ögmundur Jónasson formaður BSRB segir að það sé af og frá að hægt sé að halda því fram að til- laga Árna sé einhver pólitísk að- för að sér, enda segir hann að Árni hafi rætt þessa tillögu við sig. Þess utan sé tillaga Árna álíka og þær hugmyndir sem hann hafði sjálfur um þessa hluti hér áður fyrr. Þá sé hann talsmaður þess að hafa lýðræðið sem mest innan bandalagsins þar sem flestir koma að ákvarð- anatöku. Af þeim sökum sé sjálf- sagt að skoða þessa tillögu með opnum huga, enda sé það hið besta mál þegar fram koma hug- myndir um það hvernig eigi að reka bandalagið og standa að stjórnkerfinu, kosningum og öðru sem lítur að starfseminni. Jafnt yfir alla 1 greinargerð með tillögu Árna er bent á að formenn aðildarfélaga bandalagsins séu kosnir í bein- um kosningum meðal félags- manna. Af þeim sökum sé eðli- legt að hið sama gildi um kosn- ingar í æðstu embætti banda- lagsins. Það sé ótvíræður kostur og styrkur fyrir bandalagið. Þá sé það einnig vel til fallið til að auka áhrif hins almenna félags- manns í þessum efnum. I tillögu Árna er einnig gert ráð fyrir því að fyrsti varaformaður sinni stjórnsýslusviði bandalagsins og annar varaformaður fjármála- sviði þess. Hann vill einnig að bandalagsþing verði áfram þungamiðjan í stað aðalfunda eins og gert sé ráð fyrir í tillögum forustunnar. I því sambandi bendir hann á að í umræðunni hafi komið fram eindreginn vilji fólks til að viðhalda vægi banda- lagsþinga. - GRH / fyrra fjárfestu ístendingar meira í bíl- um en íbúðum. Meira í bíla en íbúðir Árið 1999 gerðist það öðru sinni í Islandssögunni að landsmenn fjárfestu hærri fjárhæðir í nýjum einkabílum (rúma 24 milljarða króna) heldur en íbúðarhúsa- byggingum (tæplega 22 millj- arða), samkvæmt tölum Þjóð- hagsstofnunar. Áður mun þetta einungis hafa gerst árið 1987, sem var eitt þessara geggjuðu ára íslenskrar efnahagssögu, sem var hámarksár í hagsveiflu. En fljótlega eftir það fór líka að halla undan fæti og við tók langt stöðnunartímabil, eins og ilestir minnast. íhugulir hagfræðingar velta nú fs'rir sér þeirri spurn- ingu hvort aftur verði skipti til hins verra eftir slíkt metbílaár í hagsveillutoppi. Raunar vantaði lítið á að árið 1998 væri sam- svarandi, því þá keyptu lands- menn nýja bíla fyrir 20 milljarða en byggðu ný íbúðarhús fyrir tæplega milljarði meira. Áárun- um 1997-99 fjárfestu lands- menn alls 61,7 milljarða í nýjum íbúðarhúsum en 60,5 milljarða í nýjum bílum. En þvf miður munu báðar þessar upphæðir að mestu í skuld. - HEl Árni Finnsson: Norðurái fær engan afslátt núna. Stækkim kostar meiigimartolla Gruiidartangameim verða að greiða fyrir aukna mengun en ekki almenningur. Náttúruverndarsamtök Islands benda á að taka verði mun meira tillit til mengunarvarna en gert hefur verið hingað til ef íslensk stjómvöld fara að vilja Norðuráls um stórfellda stækkun á álveri. Forsvarsmenn Norðuráls hafa ritað íslenskum stjórnvöldum bréf þar sem vilja er lýsl til að stækka álverið þannig að það geti afkastað allt að 300.000 tonnum á ári. Leyfi skipulagsstjóra hljóð- ar upp á 150.000 tonn þannig að ljóst er að nýtt umhverfismat þarf ef vilji Norðuráls á að geta orðið að veruleika. Árni Finnsson hjá Náttúru- verndarsamtökum Islands segir að eitt vandamál komi nú aug- ljóslega upp varðandi mengunar- mál sem því miður hafi verið horft framhjá þegar leyfi fékkst fyrir verksmiðjunni á sínum tíma, þ.e.a.s. 1996. „Þeir fengu gróðurhúsalofttegundirnar sem koma frá verksmiðjunni alveg ókeypis ef svo mætti segja. Þeir þurftu ekki að koma með neinar mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum þessara lofttegunda. Ef við bætum 60.000 tonnum ofan á þetta núgildandi Ieyfi er ljóst að þeirri aukningu á mengun verður að mæta með mótvægis- aðgerðum, hvort heldur sem undanþágubeiðni íslands um Kyoto-bókunina fæst samþykkt," segir Árni. Hann segir að menn hafi talað um að auka skógrækt og land- græðslu til að binda kolefni vegna aukinnar mengunar og eðlileg krafa sé að fyrirtækin sem valdi henni borgi lyrir kostnað- inn en ekki skattgreiðendur. Grundartangamenn hafi sloppið mjög vel til þessa. „Stjórnvöld voru mjög skammsýn þegar þau gáfu Norðuráli opinn tékka alveg óháð því hvað gerast myndi í um- hverfismálum. Það þýðir að álframleiðsla er tiltölulega ódýr hér á meðan önnur ríki sem háð eru Kyotobókuninni þurfa að borga fyrir sína mengun." - I(l>. msm Stúdentar skora á Biöm Stúdentaráð stendur fyrir undirskriltasöfnun meðal stúdenta Háskóla Islands þar sem aðstöðuleysi cr mótmælt og skorað á Björn Bjarnason, mcnntamálaráðherra að beita sér lyrir því á Alþingi að samþykkt verði aukaljárveiting til byggingaframkvæmda við Háskóla Islands. í nýju fjárlagafrumvarpi er einungis gert ráð fyrir 30 milljónum króna til byggingaframkvæmda við HI. Þessu hefur Stúdentaráð mót- mælt harðlega, enda nviðar byggingaÍTamkvæmdum afar hægt meðan aðstöðuleysi verður sífellt alvarlegra vandamál. Undiskriftasöfnunin felst í því að útbúin hafa verið sérstök póstkort mcð áskorun til menntamálaráðherra senv ncmendur skrifa undir og skila í oh'utunnur sem komið hefur verið fyrir í byggingum Hl. - KMH „Fangelsi eru ekki eins og hótel“ Erlendur Baldursson vill taka fram vegna forsíðufréttar Dags í gær að þótt hann sé deildarstjóri hjá Fangelsis- málastofnun, séu skoðanir hans sem birtust í blaðinu í gær hans eigin, en lýsi ekki viðhorfum Fangelsismála- stofnunar sem slíkrar. Undir þetta tek- ur Guðgeir Eyjólfsson, settur fangels- ismálastjóri. Hann segist eklœrt mat leggja á hvort framkvæmdirnar við Litla-Hraun hafi verið aðfinnsluverðar. „Þarna voru ákvarðanir teknar á for- sendum þess tíma. Nú liggur fyrir að núverandi ráðherra leggur mikla áher- slu á að byggja móttöku- og gæsluvarðhaldsfangelsi í Reykjavík sem á að leysa af gæsluvarðhaldspláss í Hegningarhúsinu og Litla-Hrauni. Ég fagna því að það verði gert,“ segir Guðgeir. Frétt Dags frá í gær Ijallaði um að nýtingin á Litla-Hrauninu væri léleg og enn myndi horfa í að hún myndi nvinnka eftir að nýtt fangelsi rís. Erlendur telur pólitík hafa ráðið byggingu nýja fangelsisins á Litla- Hrauni en yfirmaður hans tekur sem fyrr segir ekki undir það. Hvað nýtinguna varðar segir Guðgeir: „Það er ekki stefnan að fullnýta fang- elsi. Fangar eru öllu færri en var fyrir nokkrum árum og stefnan er ein- faldlega sú að hafa þá fanga í fangelsi senv dæmdir eru til slíkrar vist- ar. Fleiri fanga höfum við ekki núna til að vista. Þetta er ekki eins og hótel sem er að reyna að ná 100% nýtingu. Við einfaldlega vistunv þá langa sem lil afplánunar koma og við ráðunv ekki fjölda þeirra. - bþ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.