Dagur - 13.10.2000, Page 20
Nike og Adidas
Jón Bergmann Kjartansson (Anand Ransu) opnar málverkasýn-
ingu í galleri@hlemmur.is á morgun, 14. október klukkan 17:00.
Jón Bergmann vinnur litrík málverk í anda minimalisma og
popplistar. Aö þessu sinni tekur hann formin Nike og Adidas
og spilar þeim saman sem andstæðum og samstæðum sem
hann stillir inn í sýningarrýmið.
Sýningin stendur til
5. nóvember og er
opin vikulega á
fimmtudögum til
sunnudags frá
klukkan 14:00-
18:00.
Heimsbókmenntakvöld
Fimmtudaginn 12. október verður lesið úr völdum heims-
bókmenntum á Súfistanum, bókakaffi í verslun Máls og
menningar. Þar les Bjarni Jónsson úr þýðingu sinni á bók-
inni Biikktromman eftir Gunther Grass og Aðalsteinn Davíðs-
son les úr þýðingu sinni á bókinni Sjö bræður eftir Aleksis
Kivi. Einnig les Þórarinn Eldjárn úr þýðingu sinni á bókinni
Ofurnæfur eftir Erlend Loe og Friðrik Rafnsson les úr þýð-
ingu sinni á bókinni Fáfræðin eftir Milan Kundera.
Dagskráin hefst kl 20 og er aðgangur ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Islensk hönnun
Á íslensku hönnunarsýningunni MÓT sem opnuð verður á Kjan/als-
M^^stöðum á morgun 14. október verður skyggnst inn í hönnun 21. aldar-
innar auk þess sem íslensk hönnun á síðustu öld verður skoðuð.
w' Yfir 120 hlutir verða til sýnis eftir fjölmarga hönnuði og verður þar ýmis-
* legt forvitnilegt að finna. Sýningarformið verður nýstárlegt og þarf sýningar-
gesturinn sjálfur að raða saman og geta í eyðurnar.
Sýningin er skipu-
lögð af FORM ÍS-
LAND samtökum
hönnuða og er liður í
Reykjavík menning-
arborg árið 2000.
Samstarfsaðilar
FORM-ÍSLAND eru
Listasafn Reykjavíkur
- Kjarvalsstaðir og
nýstofnað Hönnunar-
safn. Sýningin stend-
urtil 12. nóvember.
ÞAD ER KOMIN HELGI
Hvað
ætlarþúað
gera?
Elín Málmfríður
Magnúsdóttir.
Kíkir á ball í Breiðiimi
Nú er miðannarfrí í skólanum hér á Akra-
nesi svo við fáum frí bæði í dag og á mánu-
dag. I dag verð ég á tæknisýningunni Agora
í Laugardalshöll allan daginn við kynningu
hjá fyrirtækinu Straumi. Á morgun ætla ég
að vinna á Hróa hetti hér á Akranesi frá
klukkan 12 til 8 um kvöldið. Svo er starfs-
mannapartý hjá Hróa um kvöldið og ég býst
við því að við kíkjum á ball á Breiðinni á
eftir með Landi og sonum. A sunnudaginn
stefni ég að því að sofa út og svo ætla ég að
læra bæði þann dag og á mánudag.
Með snýtiddúta og hóstasaft
Eg þyrfti að komast til útlanda. En það er
ekki útséð um hvort ég kemst. Það er Hol-
land, land blómanna sem er fyrir stafni. Nú
þarf blómakerling eins og ég að fara að
næla sér í jóladót. Ef ég kcmst ekki út býst
ég við að vinna á laugardaginn eins og
venjulega. Svo væri spurning hvort maður
fleygði sér í Ieikhús um kvöldið. Það er þó
ljóst að ég hef ekki bóndann upp á arminn
því hann er auðvitaö að fara í rjúpu. Ung-
lingurinn er lasinn svo ég get líka verið í
hlutverki Florens Nightingale og snúist með
snýtuklúta og hóstasaft.
Barátta við tölvuvírus
Eg fékk vírus í tölvuna mína og býst við að
stór hluti helgarinnar fari í að fara í gegn
um hana alla og bjarga því sem bjargað
verður. Það er þó alveg ljóst að skaðinn er
talsverður. Svo er ég að læra eins og vana-
lega því ég er í fjarnámi í Kennaraháskólan-
um og þarf að standa skil á verkefni í að-
Kristín Gestsdóttir. ferðafræði á mánudaginn. Verkefnaskilin
eru nokkuð stöðug og það er ágætt því það
heldur manni við efnið og verður til þess að
maður les en safnar ekki upp vandamálum.
Eg er heimavinnandi húsmóðir eins og er
og bíð eftir að verða léttari eftir nokkrar
vikur.
■ HVAD ER Á SEYÐI?
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
TÓNLIST
TÍBRÁ - TVÚLEIKUR
Sunnudagskvöldið 15. október verða
haldnir tvílcikstónleikar í Salnum í
TÍBRÁ, tónleikaröð Kópavogs og
hefjast þeir kl. 20:00. Það er tékk-
neska dúóið Ivan Zenaty, sem er
heimsþekktur fiðluleikari og Jaromír
Klepác, mikilsvirtur píanólcikari sem
flytja verk eftir Brahms, Ccsar
Franck og Beethoven. Zenaty hefur
leikið inn á fjölda geisladiska og kem-
ur oft fram bæði í sjónvarpi og út-
varpi. Hann hefur unnið til fjölda
mikiisvirtra verðlauna. Jaromír sem
er hátt skrifaður kammertónlistar-
maður vakti fyrst verulega athygli,
þegar hann vann til verðlauna í
Chopin píanókeppninni í Marienbad
og skömmu síðar þriðju verðlaun í
hinni alþjóðlegu ARD keppni í
M^nchen og önnur verðlaun í Prix
Martinu keppninni í París.
FÖSTUDAGSBRÆÐINGUR
Á GEYSI KAKÓBAR
Hljómsveitin Moðhaus spilar í kvöld
á Geysi Kakóbar í Hinu Iiúsinu
v/Ingólfstorg. Húsið opnar klukkan
21:00 og lokar um 23:30. Björn
skífuþeytir verður á staðnum og hitar
upp fyrir Moðhaus. Moðhaus spilar
experimental rokk með fönkívafi.
Þeir munu frumflytja fullt af nýju
efni ásamt gömlu efni í nýjum bún-
ing. Þetta eru fyrstu tónleikar Moð-
haus á öldinni en þeir eru búnir að
vera í fríi og semja. Allar upplýsingar
varðandi Moðhaus er að fá í geim-
gengill@hotmaiI.com. Það er frítt
inn.M!!!.
Gaukur á Stöng
Þá er komið að því ,djammtröllinn í
„SPÚTNIK“ ætla að skemmta okkur
og sjálfum sér í kvöld og fram eftir
morgni. Laugardaginn 14. október.
Alla leið frá Selfossi, hver ræður við
sig er strákarnir í „O.F.L“ stíga á svið.
Sunnudaginn 15. október „Furstarnir
ásamt Geir 01afssyni“ þarf eitthvað
að segja meira???
SÝNINGAR
Á mörkunum - Vitleysingarnir
Nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk
V Símonarson verður frumsýnt
[ í Hafnarfjarðarleikhúsinu í
kvöld kl. 20.00. Það segir frá vina-
hópi á aldrinum 30-35 ára sem er í
hröðum dansi í kringum gullkálfinn
með tilheyrandi uppákomum og
vandamálum. Leikstjóri er Hilmar
Jónsson.
Stúlkan í vitanum
Cy ^ Islenska óperan frumsýnir í
^ ~V samstarfi við Tónmennta-
W skóla Reykjavíkur, sunnudag-
inn 15. október kl. 14.00, nýja óp-
eru fvrir börn byggða á ævintýri
Jónasar Hallgrímssonar. Sögusviðið
færir Böðvar Guðmundsson til sam-
tímans en þungamiðja verksins er hin
eilífa barátta góðs og ills. Tónlistin er
eftir Þorkel Sigurbjörnsson scm jafn-
framt stjórnar kór og hljómsveit, sem
skipuð er nemendum og kennurum
'fónmenntaskólans. Leikstjóri er Illín
Agnarsdóttir.
cafe9.net
<V ^ Fjölbreyttir viðburðir og tón-
^ V Ieikahald hafa átt sér stað í
Wcafe9.net í Listasafni Reykja-
víkur - Hafnarhúsi allt frá 1. sept-
ember. Föstudagurinn 13. hefur af
ýmsum verið litinn hornauga, en í
cafe9.net verður þeirri bábilju gefið
langt nef og blásið til tónleika og
kvikmyndasýningar í boði Islands-
síma. Viðburðurinn verður sendur út
á síðunni www.cafe9.net.
Móðirin í Mír
Móðirin, klassísk kvikmynd frá árinu
1926 verður sýnd í bíósal Mír, Vatns-
tíg 10 sunnudaginn 15. október.
Þetta er eitt af frægustu verkum kvik-
mvndasögunnar og leikstjóri er
Vsevolod Púdovkin. Myndin er byggð
á samnefndri skáldsögu eftir Maxím
Gorkí en þó farið frjálslega með.
Enskur texti er með myndinni. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Kaffileikhúsið
*Háaloft - einleikur um konu með
geðhvarfasýki eftir Völu Þórsdóttur.
Fimmta sýning í kvöld kl. 21.00.
Áhorfendur eyða kvöldstund með
Karítas þar sem hún fjallar á hisp-
urslausan hátt um sjúkdóm sinn,
lyfjatöku, stöðu sína innan samfé-
lagsins, drauma og plön. Hún ferð-
ast í tíma og rúmi á þeirri klukku-
stund sem verkið tekur, upp á há-
loft, upp í háaloft og alla leið niður í
kjallara. Þetta er svo sannarlega
svört kómedía.
*Tófta sýning á hinum stórskemmti-
lega barnaeinleik Stormi og Ormi
sem hefur hlotið einróma lof gagn-
rýnenda verður laugardaginn 14.
október kl. 15.00.
*Laugardagsvöldið kl. 22.00 verður
Rússíbanaball - dansleikur þar sem
hljómsveitin Rússíbanarnir Ieikur
fyrir dansi.
*Skemmtikvöld fyrir sælkera verður
sunnudagskvöldið 15. október kl.
19.30 í tilefni af útkomu mat-
reiðslubókarinnar Hratt og bítandi
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur. Fram-
reidd verður fimm rétta máltíð þar
sem allir réttir eru gcrðir eftir upp-
skriftum úr bókinni sem kemur út í
dag föstudaginn 13.október. Auk
þess verður fluttur einþáttungurinn
Quasi una fantasia - fyrir karl,
konu, píanóleikara og Færeying (má
vera uppstoppaður). Flytjcndur eru
Þröstur Leó Gunnarssono og Arndís
Egilsdóttir Þá syngur Álfheiður
Hanna Friðriksdóttir tvö Ijóð eftir
Jóhönnu við Iög Eriks Mogensen,
Oddný Sturludóttir leikur á píanó
og Vilhjálmur Goði Friðriksson
verður með kokka uppistand. Listi-
Ieg og afar lystaukandi dagskrá.
Leikstjóri dagskrárinnar er Sigrún
Valbergsdóttir.
OG SVQ HITT...
Hugsanir eru mínar gleðikonur
í kvöld kl. 20.00 flytur Friðrik Rafns-
son fyrirlestur í Alliance Francaise,
Austurstræti 3, um eitt þekktasta
verk 18. aldar í Frakklandi, „Frænda
Rameaus“ eftir Denis Diderot (1713-
1784) sem kom út í flokki Lærdóms-
rita hjá Flinu íslenska bókmenntafé-
lagi s.l. vor í þýðingu hans. Fyrirlest-
urinn ber yfirskriftina „Hugsanir eru
mínar gleðikonur“ og þar mun verða
leitast \ið að skýra hvers vegna þessi
höfundur og hugsuður virðist njóta
sífellt meiri hylli, jafnvel svo að ný-
verið spáði franskt bókmenntatímarit
því að mjög yrði sótt í verk hans á 21.
öldinni. Auk þess verður reynt að
tengja Diderot og „Frænda Rameaus“
við íslenska sagnahefð og áhugasvið,
einkum þó hinn sígilda áhuga Islend-
inga á sögum af sérvitringum og ein-
kennilegum mönnum.
Dagskrá um Osborne
Dagskrá um breska leikskáldið John
Osborne og leikrit hans, Horfðu reið-
ur um öxl verður í Listaklúbbi Leik-
hússkjallarans mánudagskvöldið 16.
nóvember. Fjallað verður um leikritið
og sýningu Þjóðlcikhússins og leikin
verða brot úr sýningunni. Dagskráin
hefst kl. 20.30 og húsið opnar kl.
19.30.
HEILSA OG
HEILBRIGÐI 2000.
Ráðstefna, vöru og þjónustukynning
HEILSA OG HEILBRIGÐI 2000
verður haldin í Fjölbrautaskólanum
við Ármúla dagana 14. og 15. október.
Ráðstefnan er haldin í tengslum við
fyrsta aðalfund nýstofnaðra Norrænna
samtaka sem fékk nafnið Nordisk
Samarbejds Komite for ikkc-Kon-
ventionell terapy (NSK). Samtökin
nefnast á íslensku, Norrænt samstarf
um óhefðbundnar meðferðir. Þessa