Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 2
14- Laugardagur 15. mars 1997 JUtgur-'ðltxnírat Fyrir smáfólldð Enn er runnin upp helgi. Nýtum hana vel með börnunum og gerum eitthvað skemmtilegt Bréfdúfusýning Ef fólk er búið að þræða bíóin og leik- húsin en langar samt að sleppa út úr draslinu heima gæti það vakið nokkra lukku að keyra niður í Fjölskyldugarð- inn í Laugardal í dag milli kl. 15 og 18 eða á morgun milli 10 og 18 þar sem Bréfdúfufélag Reykjavíkur verður með bréfdúfusýningu í hlöðunni. Keppt verður í ýmsum greinum og helstu kappflugsdúfur dæmdar. Ókeypis er fyrir 5 ára og yngri, 100 kr. fyrir 6-16 ára og 200 kr. fyrir fullorðna. Skautakeppnir Dreymir litlu dömuna um að verða skautadrottning. Hvað með strákinn, vill hann líka verða listhlaupari eða kannski hokkíspilari? Hvort sem er þá verður nóg um að vera á skautasvell- inu á Akureyri í dag. Frá 11-16 keppa fímar stúlkur í listhlaupi en klukkan 19:00 eigast við SA og Björninn í fyrsta leiknum í úrslitakeppni íslandmótsins í íshokkí. Mætið með börnin til að fylgjast með skautafólkinu keppa. Otto næsehorn Kvikmyndin Otto er et næsehorn verð- ur sýnd á morgun kl.14 í Norræna hús- inu fyrir börn (og fullorðna) sem skilja dönsku. Myndin er byggð á sögu Ole Lund Kirkegaard um vinina Topper og Viggo sem búa í dönskum hafnarbæ og fá gulan nashyrning skyndilega í heim- sókn. Aðgangm- er ókeypis. Snotriskógur í Möguleikhúsinu Barnaleikritið Snillingar í Snotraskógi er enn á fjölunum í Möguleikhúsinu við Hlemm. Um helgina verða tvær sýning- ar, ein í dag og önnur á morgun, og heíjast þær klukkan 14. Enn sýnir Loft- kastalinn Áfram Latibær, Litli-Kláus og Stóri- Kláus eru í Þjóðleikhúsinu og ör- fáar sýningar eru eftir af Trúðaskólan- um í Borgarleikhúsinu. Kakódrykkja Þeir sem eyða deginum í útiveru, t.d. að horfa á skautakeppnir eða stunda sjálfir skauta- eða skíðaíþróttir, verða sjálfsagt orðnir kaldir þegar þeir koma inn. Þá er fátt betra en að hita sér heitt kakó og sitja síðan saman við eldhús- borðið og sötra kakó á meðan ilurinn færist í kroppinn. Punkturinn yfir i-ið er síðan af fá sér kakó eða kleinur með. Að vinna til styrktar indverskum börnum undir merkjum ís- lensks dagsverks er gott málefni,“ segir Sævar Lárus Ás- kelsson, nemi við Verkmenntaskólann á Akureyri. Hann var verkstjóri yfir stórum hópi nemenda sem í fyrrdag tók að sér að bóna bíla, en Dekkjahöllin á Akureyri léði þeim húsnæði til þess. Nemendur voru í tveimur hópum við þetta verkefni. Annar hópurinn fyrir hádegi og hinn hópurinn í eftirmiðdaginn. „Mér finnast krakkarnir hafa staðið sig með mikilli prýði í þessu verk- efni,“ segir Sævar. Alls komu um 20 ökumenn á verkstæði Dekkja- hallarinnar, þar sem vaskir Verkmennaskólanemar tóku til óspillra málanna og bónuðu bfla fyrir þá. Skemmtileg tilbreyting „Dagsverkið var skemmtileg tilbreyting frá þessum vanalega skólalærdómi. í félgasfræðitímum þessa vikuna hjá Laufeyju Petr- eu Magnúsdóttur höfum við verið að ijalla um málefni tengd Ind- landi og það hefur verið mjög áhugavert," segir Ólafía Kristín Guðmundsdóttir, nemandi í 1. bekk c við Menntaskólann á Akur- eyri. Ólafía Kristín var á fimmtudaginn við málningarvinnu hjá Ás- prenti og stallsysir hennar önnur greip í sambærileg verkefni hjá Akureyrarapóteki. Fleiri verkefni sem bekkjarsystkinin tuttugu í 1. c voru í mætti nefna. Hvert og eitt þeirra fékk greiddar 2.000 kr. fyrir unna dagstund og rennur allur sá ágóði til uppbyggingar- starfs á Indlandi. -sbs MA-ingurinn Ólafia Kristín Guðmunds- dóttir með pensilinn á lofti en hún vann sitt dagsverk við málningavinnu hjá Ás- prenti. Sævar Lárus Áskels- son, nemi í VMA, bón- aði bíla af gríð og erg til styrktar indverskum börnum. Mynd: JHF Eifa Kristjánsdóttir (t.v.), Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Hanna K. Másdóttir, starfsmenn Sam- vinnuferða-Landsýnar á Akureyri, afhenda Sigurbjörgu Einarsdóttur vinninginn. Myn&.Gs Spánarsólin í sjónmáli Hún Sigurbjörg Einarsdóttir frá Akureyri ætlaði vart að trúa sínum eigin augum þegar hún fletti síðasta helgarblaði Dags-Tímans. Við blasti nafn vinningshaf- ans í ferðagetraun og gat hún ekki betur séð en þar væri hennar eigið nafn. „Ég hef aldrei unnið neitt svona áður,“ sagði Sigurbjörg glöð þegar haft var sambandi við hana í vikunni. Vinningurinn er ferð til Spánar í boði Samvinnuferða-Landsýnar. Ferðin gildir fyrir tvo, til Albir á Spáni, 26. mars til 9. aprfl, gist í einu herbergi á Albir Gardens. Dagur- Tíminn óskar Sigurbjörgu til hamingju og vonar að hún njóti spánarsólarinnar. AI Samvinnuhreyfingin og Sauðárkrókur « unu^uo KcUipieicig umga ug . nefnd Sauðárkróks gangast fyrir ráðstefnu um Samvinnuhreyfing- una og Krókinn í dag klukkan 16:00 á Kaffi Krók. Frummælendur verða: Þór- ólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri, Anna Kristín Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi, Björn Björnsson, bæjarfulltrúi, Jón Bjarnason, skólameistari á Hólum og Rögnvaldur Guðmundsson, forstöðu- maður RKS. Á ráðstefnunni verður megináhersla lögð á að fjalla um það hvernig sam- vinnuhrefingin muni þróast í framtíðinni og hvaða þýðingu sú þróun geti haft fyr- ir atvinnu- og mannlíf á Sauðárkróki. Líf og list Fleira verður um að vera á Sauðárkróki um helgina því Aðalsteinn Ingólfssson, listfræðingur, flytur erindi um Sauðár- króksmálarana annað kvöld klukkan 20:30 í Safnahúsinu. í erindu sínu mun Aðalsteinn fjalla um ýmsa þekkta list- málara frá Króknum. Eiga þeir eitthvað sameiginlegt, er eitthvað sem einkennir þá og eru þeir tengdir Króknum og Skagafirði á einhvern hátt í sköpun sinni eru spurningar sem Aðalsteinn mun velta upp og leitast við að svara. AI

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.