Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 14
26 - Laugardagur 15. mars 1997
glagur-Œrarám
-V
Einföld og sígild eru töfra-
orðin hjá Önnu Karenu
Kristjánsdóttur þegar hún
er spurð um fatastíl sinn. „Ég
er yfirleitt í frekar fínum fötum.
Fer t.d. aldrei í íþróttaföt.
Svartur og hvítur eru al-
gengustu litirnir en lita-
valið sveiflast svolítið til
eftir árstíma. Nú er ijólu-
blátt í uppáhaldi hjá mér.“
Anna Karen rekur
tískuverslunina Kaoz á Ak-
ureyri en um þessar mund-
ir er hún einnig upptekin
við að undirbúa fegurðar-
samkeppni Norðurlands þar
sem hún sér m.a. um að
þjálfa stúlkurnar í fram-
komu. Sjálf tók Anna Karen
þátt í þessari keppni árið
1994 og vann þá titilinn
Ungfrú Norðurland.
Þó sígildu fötin séu í uppá-
haldi hjá Önnu fylgist hún
með tískunni og segist gjarn-
an klæðast tískufötum þegar
hún fari út að skemmta sér.
„Þá fer ég kannski í þrönga
boli eða skyrtur og tískubux-
ur. Stundum í kjóla.“
Samstarfskona Önnu Kar-
enar í tískuversluninni segir
það helst einkenna stílinn hjá
vinkonu sinni hve hún sé snyrti-
leg og leggi áherslu á að vera
vel máluð. Anna tekur undir
þetta. „Ég hugsa að ég fari
aldrei óförðuð úr húsi,“ segir
hún.
“*rm’ .....'''""""'"iZl'.-hiá að vera laltega förð-
Anna Karen leggur mikla a tjma fyrir framan
uí. Hún „y» ég =« <*k' •*»“
Snyrtivörurnar sem hún notar
eru allar frá Kanebo, sem er
japanskt snyrtivörufyrirtæki.
„Eg kynntist þeim fyrst á snyrti-
vörukynningu í Töru [snyrti-
vörubúð á Akureyri] prófaði
þær og hef ekki notað annað
síðan,“ segir hún. Oftast notar
hún grábrúna tóna þegar hún
málar sig en leikur
sér stundum með
þá liti sem eru í
tísku og var t.d.
með fallegan ljós-
ijólubláan
augnskugga þeg-
ar útsendarar
blaðsins heim-
sóttu hana.
Ekki tíma-
frekt
Oft setja konur
fyrir sig tímann
sem fer í að
hafa sig til og
sleppa því farð-
anum nema
eitthvað sér-
stakt standi til.
Anna Karen
segir hinsvegar
að þegar kom-
ið sé upp í
vana að setja
á sig farða
taki það ekki
langan tíma.
„Ætli ég sé
ekki svona 7-8
mínútur.“ Á
kvöldin hreinsar hún síðan
húðina, einnig með vörum frá
Kanebo, og ber á sig krem og
tekur það hana enn styttri tíma,
eða 2-3 mínútur. „Um leið og
maður er orðinn vanur verður
þetta bara hluti af daglegu
...vertu
viðbúinn
21. mars
'S Í/in eíain slu
Skótískan í dag byggir mikið á skóm með þykkum grófum botnum og há-
um hælum. Anna Karen segist hinsvegar halda mest upp á frekar fíngerða
skó úr góðu leðri, botnarnir megi ekki vera of grófir en samt háir hælar.
Einföld og sígild föt
eru í uppáhaldi hjá
Önnu Karen. Svartur
jakki verður oft fyrir
valinu. MyndinJHF
rútínunni, eins og að borða og
bursta tennurnar.“
Neglurnar eru annað sem
Anna Karen leggur áherslu á.
Þær vill hún hafa snyrtilegar og
vel pússaðar. Hún fer þó ekki á
snyrtistofu til þess og reyndar
segist hún gera eiginlega allt
sjálf, plokkar t.d. sjálf auga-
brúnirnar, en hún fer þó á
snyrtistofu í vaxmeðferð og
einnig á hárgreiðslustofu í
klippingu og aðra hármeðferð.
Ilmvatnið hennar heitir Dolce
Gabana en skartgripi segist hún
lítið sem ekkert nota.
Fágun og skýrmæli
Fallegt útlit hefur htið að segja
ef framkoman er ekki í lagi og
þar telur Anna Karen fágun og
skýrmæli skipta einna mestu
máli. Hún segir mjög gaman að
fylgjast með þeim stelpum sem
taki þátt í fegurðarsamkeppn-
um því þær breytist mikið á
undirbúningstíma-
bilinu. „Bæði læra
þær að bera sig
betur og eins fara
þær ósjálfrátt að
mála sig meira. Það
er rosalega gaman
að sjá þær breyt-
ast.“
- Áttu einhver
einföld ráð fyrir
þær sem vilja
breyta og bæta stfl
sinn?
„Mér finnst mjög
mikilvægt að mála
sig rétt og að læra
það hjá einhverjum
sem veit hvað hann
er að gera. Einnig
að finna sinn eigin
stfl, t.d. í fatnaði.
Og svo er það fram-
koman. í raun snýst
þetta um að vera
óhrædd við að sýna
sjálfa sig.“ AI