Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Blaðsíða 7
I
jjDagur-ÍKmtrat
roo v -- .. “n *- .... . l.. __ i o
Laugardagur 15. mars 1997 -19
Ziza ásamt eiginkonunni,
Nataija Kirichec.
Myndir: GS
„Ég er miðjuspilari og gegni því ákveðinni lykilstöðu.
Efég spila vel hefur það jákvœð áhrif á leik
liðsins en ef ég stend mig illa er jajhvíst
að liðið líður fyrir það. “
stór hindrun. Við
komum bæði frá
stórborg og það var
skrýtið að flytja til
svona fámenns
lands. En ég er hrif-
inn af þessari
óvenjulegu þjóð.
Fólk hefur tekið okk-
ur vel og verið boðið
og búið að aðstoða
okkur. Við eigum
marga vini hér
núna,“ segir Ziza og
Natalja kinkar kolli
til samþykkis.
Hágæðahand-
bolti
Ziza segir aðalmun-
inn á handboltanum
í Rússlandi og á ís-
landi vera að rússn-
esku leikmennirnir
eru atvinnumenn
sem fá borgað fyrir
að spila. „Þar erum
við oftast á æfingum tvisvar á
dag og æfingakerfið er öðruvísi.
En ég bjóst ekki við jafngóðum
handbolta og raunin er í landi
þar sem er ekki atvinnu-
mennska. Mér hefur þótt mjög
spennandi að spila í íslensku
deildinni."
Ziza er ekki síst ánægður
með hve metnaðurinn hjá KA
liðinu er mikill og segist hafa
átt mjög gott samstarf við þjálf-
arann sinn, Alfreð Gíslason.
„Alfreð er atvinnumaður fram í
fingurgóma og það skiptir
miklu máli fyrir leikmenn, ekki
síst erlendu leikmennina. Hon-
um hefur líka tekist að skapa
sérstaka
Rússneskir handboltamenn á Akureyri. Mikhail Akbashev þjálfar Þórsliðið en Sergei
Ziza spilar með KA.
stemmningu í bænum í kring-
um liðið. Þannig að ég er mjög
ánægður með að vera í þessu
liði.“
Eins og fyrr segir tók Ziza
við þeirri stöðu sem Patrekur
spilaði áður og viðurkennir að
erfitt hafi verið að koma inn í
liðið á eftir honum. Flestir sem
fylgjast með handbolta eru þó á
því að hann hafi staðið sig vel,
verið vaxandi leikmaður og átti
m.a. stórleik í bikarúrslitaleikn-
um gegn Haukum. „Áður en ég
kom var umboðsmaðurinn
minn búinn að segja mér frá
Patreki. Fólk bjóst við að ég
myndi spila eins og hann og
jafnvel betur. Alfreð og leik-
menn í liðinu stóðu þó þétt við
bakið á mér og hjálpuðu mér
að yfirstíga byrjunarörðugleik-
ana,“ segir Ziza og bendir á
að hann geti ekki spilað eins
og annar leikmaður. Honum
hafi hinsvegar tekist að koma
með sinn eigin stíl.
Framtíðin óráðin
Auk handboltans er
Ziza nú einnig kom-
inn í vinnu hjá
Strýtu og ekki
annað
að heyra en hann sé ánægður
með það. Þar kynnist hann
fleira fólki og starfsfélagar hans
eru mjög áhugasamir um hand-
bolta. Natalja er ekki í vinnu en
segist þó hafa nóg við að vera.
Til að byrja með hafi mikill tími
farið í að koma sér fyrir á nýj-
um stað og nú hafi hún eignast
vinkonur sem hún eyði miklum
tíma með. „Hún passar oft fyrir
okkur,“ segir Mikhail og nefnir
einnig Duranona og konu hans
þegar rætt er um vinahópinn.
Hvað við tekur næsta vetur
er enn óráðið og segir Ziza að
nú einbeiti hann sér að því að
klára tímabilið. „Draumur minn
er að fá samning hjá sterku liði
í landi þar sem spilaður er góð-
ur handbolti. Einhversstaðar
þar sem ég get bætt mig enn
meira og aflað mér frekari
reynslu," segir hann. Hann
þvertekur hins vegar fyrir að
eitthvað sé þegar í bígerð.
„Vinnufélagar mínir sögðu mér
að Dagur-Tíminn hefði haft
spurnir af því að ég væri á leið-
inni til Svíþjóðar. Það hlýtur að
vera einhver brandari. Enginn
frá Svíþjóð hefur talað við mig,“
segir hann brosandi.
Þeir Ziza og Mikhail eiga
margt sameiginlegt. Báðir frá
sama landi, báðir í handbolta
og búa báðir á Akureyri. En
þeir spila með sitt hvoru liðinu
og því skýtur blaðamaður þeirri
spurningu inn hvort sé ekki
einhver rígur þeirra á milli
vegna þess. „Nei, nei,“ svara
þeir fyrst en þegar gengið er
á þá fórnar Mikhail höndum
og segir: „Alltaf allt fyrir
KA.“ Og svo skellihlæja
þeir. „Ég óska Þórs alls hins
besta og vona að liðið kom-
ist upp í 1. deild," segir
Ziza. AI
„...ég bjóst ekki við
jafngóðum handbolta
og raunin er í landi þar
sem ekki er atvinnu-
mennska. “
Hinn rússneski Sergei Ziza
er maðurinn sem talar
en hann hefur í vetur
spilað með handboltaliði KA.
Hann kom til landsins í haust
og fékk það erfiða hlutverk að
fylla í það skarð sem Patrekur
Jóhannesson skildi eftir þegar
hann yfirgaf liðið.
Samtalið fer fram á heimili
Ziza og konu hans Natalju. Þau
hafa hreiðrað um sig í Hafnar-
strætinu á Akureyri og segjast
kurma vel við sig. Þriðji maður-
inn við borðið er annar Rússi
sem einnig er handboltamaður
og heitir sá Mikhail Akbashev.
Hann hefur
dvalið á íslandi í
rúmlega sex ár,
fyrst hjá Val í
fimm ár en hef-
ur þjálfað Þórs-
ara í vetur. Þar
sem íslensku-
kunnátta þeirra
Ziza og Natalja
er lítið betri en
þekking blaðamanns á rúss-
nesku, lendir Mikhail óhjá-
kvæmilega í hlutverki túlks í
viðtalinu en hann er ágætlega
mæltur bæði á íslensku og
ensku.
Aldrei ánægður með
árangur
Mikhail segist fyrst hafa komið
til íslands árið 1990, þá að
heimsækja foreldra sína sem
eru búsettir hérlendis. Faðir
hans, Boris Akbashev, er einnig
tengdur handboltanum, hefur
m.a. þjálfað unglingaflokka hjá
Val í nokkur ár og er aðstoðar-
þjálfari landsliðsins. í heim-
sókninni ræddi Mikhail við for-
ráðamenn Vals, fór síðan aftur
til Rússlands til að ganga frá
sínum málum við sitt gamla fé-
lag og byrjaði að þjálfa hjá Val
haustið eftir. Með í för til fs-
lands var kona hans, Ekaterina
Akbasheva, og eldri dóttirin en
sú yngri fæddist eftir að ijöl-
skyldan fluttist til íslands. „Svo
fluttum við til Akureyrar í
haust,“ bætir Mikhail við.
Gengi Þórsliðsins hefur
verið nokkuð gott í vetur
miðað við undanfarin
leiktímabil en Mik-
hail er varfærinn í
yfirlýsingum. „Ég
veit ekki hvernig
þetta var áður
en ég kom
en ég
er aldrei ánægður með árangur.
Enn eru mikilvægir leikir eftir
og því erfitt að segja til hver
verður lokaniðurstaðan," segir
hann en úrslitaleikurinn milli
Þórs og Breiðablik var í gær-
kvöld, nokkru eftir að viðtalið
var tekið.
Viðbrigðin töluverð
Ziza og Natalja eiga enga ætt-
ingja á íslandi eins og Mikhail
og kona hans en hafa þó styrk
af löndum sínum sem hér
dvelja. En hvernig bar það til
að þau enduðu á Akureyri?
»Ég var búin að spila í 1.
deildinni í Rúss-
landi í 8 ár og
fannst kominn
tími á að breyta
til og reyna eitt-
hvað nýtt. Mér
bauðst þetta
tækifæri og
ákvað að slá
til,“ svarar Ziza
en það var um-
boðsmaður hans í Þýskalandi
sem hafði milligöngu í að semja
fyrir hann. Sú staðreynd að KA
liðið hafi komist áfram í Evr-
ópukeppninni í fyrra, þrátt fyrir
að hérlendis væri ekki atvinnu-
mennska, skipti Ziza miklu máh
þegar hann tók ákvörðun um
hvort hann ætti að semja við
KA. Hann hefur verið ánægður
með dvöl sína en viðurkennir
að viðbrigðin hafi verið tölu-
verð. „í byrjun var tungumálið