Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Page 9
Laugardagur 15. mars 1997 - 21
|Dagur-®tmtmt
fer hefur strákurinn verið
hraustur og lítið veikur. Hann
veitir manni alltaf ánægju-
stundir. Ég segi nú ekki að
stundum hefur mig langað að
vera útivinnandi sérstaklega
þegar fór að síga á seinni hlut-
ann, þó aðallega peninganna
vegna. Fæðingarorlof og niður-
skorin námslán eru naumt
skömmtuð. Ég einangraðist
ekki félagslega þann tíma sem
ég hef verið heima. Þessi tími
heima með stráknum hefur
aftur á móti gefið mér mjög
mikið, sem ég hefði án efa
annars farið á mis við, t.d.
þegar hann lærir eitthvað
nýtt. Því hefði ég ekki viljað
missa af. Mjög náin tengsl
hafa mvndast á milli okkar
feðga. Eg vil helst alltaf vera
hjá honum og finnst erfitt að
þurfa að fara frá honum í
lengri túna. Ég veit að mæð-
ur kannast við þessa tilfinn-
ingu, en það sama á við um
Steinunni, henni finnst mjög
erfitt að þurfa að fara í
skólann eða eitthvað í
burtu að læra. Ef maður fer
eitthvað t.d. í bíó, langar
mann strax heim til að
geta verið hjá honum,“
segir Óðinn sem hvetur
alla feður til að reyna að
vera einhvern tíma heima
hjá nýfæddum bömum.
Slíkt sé ómetanleg lífs-
reynsla sem gefi nýja sýn
á lífið.
Steinunn og Óðinn með gullmolann sinn.
stöku sinnum smá
skot frá bræðrum
mínum, að passa
mig að verða ekki
of flinkur við heim-
ilisstörfin því þá
gæti ég endað þar,
en það er allt á
léttu nótunum. Það
var náttúrulega
svolítill grátur og
gnístran tanna í
íjölskyldunni að
fara með nýfætt
barnið eitthvað
norður í land Qarri
heimabyggð. En
vídeótökuvélinni
var bara þeim mun
meira beitt og ljós-
myndir sendar til
að leyfa fjölskyld-
unni að sjá hvernig
drengurinn dafn-
aði. Ég get ekki
sagt annað en að
ég hafi náð að
standa mig prýði-
lega í þessum
harða mömmu-
heimi uppeldisins,"
sagði Óðinn að lok-
um.
ÞoGuÆyjum
Góð frammistaða í
mömmuheimi
uppeldisins
Sá galh er á gjöf Njarðar að
feðriun er mjög þröngur stakk-
ur skorinn hvað varðar fæðing-
arorlof. Ef þeir kjósa að taka
sér fæðingarorlof er það alltaf
með leyfí móðurinnar. Og feður
sem eiga konu sem hefur verið
heimavinnandi eiga engan rétt
á fæðingarorlofi hjá vinnuveit-
endum sínum. Óðinn segir það
ekki fyrirhafnarlaust að sækja
um fæðingarorlof.
„Lögin eru alveg út í hött og
réttur feðra fyrir borð borinn.
Faðirinn er algjörlega háður
móðurinni hvað varðar fæðing-
arorlofið. Hún verður að afsala
sér réttinum og gefa út skriflegt
leyfi fyrir hann. Feður eiga að-
eins rétt á fæðingardagpening-
um en ekki fæðingarstyrk þó
svo að móðirin vilji gefa leyfi
sitt fyrir öllu orlofinu. Það eru
sjálfsögð mannréttindi að þeir
geti fengið allan pakkann. Lög-
in virka þannig á mann að
formlega sé móðirin að gefa
manni sínum leyfi til að annast
uppeldi barnsins," segir Óðinn.
Eins og áður segir rann fæð-
ingarorlof Óðins út um síðustu
mánaðamót. Hann segist byrja
að vinna frá og með 1. apríl nk.
Óðinn segir það undanlega til-
finningu að fara frá syninum og
heimilinu og út á vinnumarkað-
inn. En þar sem Steinunn getur
stýrt vinnunni í lokaverkefninu
eftir eigin þörfum verður hún
heima með strákinn.
Eldri bræður Óðins og faðir
þeirra eru af annarri kynslóð
en Óðinn. Þeir eru mjög ánægð-
ir með hann. „Það koma svona
ökukennsU
Kenni á Mercedes Benz,
Tfmar eftir samkomulagi.
Útvega námsgögn.
Hjálpa til við
endurnýjunarpróf.
Ingvar Björnsson
ökukennari frá KHÍ
Akurgerði 11 b, Akureyri
Sími 895 0599
Heimasími 462 5692
hótelj jLk{flar
Þjónn óskast til
starfa í sumar
Einnig fólk í almenn hótelstörf.
Lágmarksaldur 18 ár.
Skriflegar umsóknir berist fyrir 29. mars nk.
Uppl. í síma 464 3340.
Hjördís Stefánsdóttir, hótelstjóri
650 Laugar.
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
Úthlutun úr
forvarnasjóði
Sjóðurinn starfar á grundvelli 8. gr. laga um gjald af
áfengi, nr. 96 frá árinu 1995, en þar segir m.a.:
„Af irmheimtu gjalds skv. 3. gr. skai 1% renna í For-
varnasjóð. Tilgangur sjóðsins skal vera að stuðla að
forvörnum gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu. Styrki
skal veita úr sjóðnum til forvarnastarfa á verkefna-
grundvelli."
í samræmi við niðurlagsákvæði ofangreindrar 8. gr.
hefur heilbrigðisráðherra sett reglugerð um Forvarna-
sjóð.
Bent skal á að verkefni sem stuðla að framgangi
stefnu ríkisstjórnarinnar í áfengis- og fíkniefnamálum,
sem samþykkt var hinn 3. desember sl., njóta forgangs
og einnig að samkvæmt reglugerð um forvarnasjóð
skal sjóðurinn sérstaklega leggja áherslu á að styrkja
verkefni sem snúa að ungmennum og áfengis- og
vímuefnavörnum.
Sjóðsstjórn hefur ákveðið stuðning við áfangaheimili
sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið mun út-
deila.
Þá hefur stjórn Forvarnasjóðs ákveðið að forgangs-
verkefni til næstu tveggja ára verði:
■ Að koma í veg fyrir neyslu barna og unglinga á
áfengi og öðrum vímuefnum og vinna gegn þeim
vandamálum sem af neyslunni hljótast.
■ Að vinna gegn ofurölvun og vandamálum sem
henni tengjast.
Tekið skal fram að verkefni geta hlotið styrk þó þau falli
ekki undir forgang þann sem að ofan greinir, t.d. verk-
efni vegna rannsókna, fræðslu og samkomuhalds.
í umsókn um styrki til verkefna skal greina svo skýrt
sem kostur er a.m.k. eftirfarandi atriði:
■ Almenna lýsingu.
■ Markmið.
■ Framkvæmdaáætlun.
■ Hverjir vinni að verkefninu.
■ Lýsing á hlutaðeigandi félagsskaþ.
■ Hvernig samstarfi er háttað við aðra aðila.
■ ítarleg lýsing á markhópi og vandamálum þeim
sem bregðast skal við.
■ Með hvaða hætti árangur verður mældur.
■ Hvort og þá hvernig verkefnið falli að forgangi
þeim sem að ofan greinir.
Að jafnaði skal eigin fjármögnun framkvæmdaaðila
og/eða fjármögnun annars staðar frá nema a.m.k. 60%
heildarkostnaðar við framkvæmd verkefnis.
Styrkir skulu almennt veittir félögum og samtökum en
einstaklingar koma einungis til greina varðandi styrki til
rannsóknarverkefna.
Nánari upplýsingar, reglugerð um sjóðinn og vinnuregl-
ur sjóðsstjórnar, liggja frammi í heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, Laugavegi 166, Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 5. apríl 1997.
Umsóknum skal skilað skriflega, merktum:
Forvarnasjóður,
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
Laugavegi 116,
Reykjavík.