Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Side 13
IDagur-ÍEmTtnn
Laugardagur 15. mars 1997 - 25
^agur-Βmtmr
AðaHundur
1997
Skeliungurhf.
Shelíeinkaumboð
Aðalfundur Skeljungs hf. verður
haldinn fimmtudaginn 20. mars
1997 í Hvammi Grand Hótel,
Sigtúni 38, Reykjavík og hefst
fundurinn kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.
17. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, tillögur og reikningar
félagsins liggja frammi á aðal-
skrifstofu þess, hluthöfum til
sýnis viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn
eru afhent á aðalskrifstofu
félagsins Suðurlandsbraut 4,
6. hæð, frá og með hádegi
13. mars til hádegis á
fundardag, en eftir það á
fundarstað.
Að loknum aðalfundarstörfum
verður móttaka fyrir hluthafa
með léttum veitingum í Setrinu
á sama stað.
Súkkulaði-
hnetubitar
Atvinnuhúsnæði til leigu
á mjög góðum stað
Malbikað bílastæði, stærð 150 fermetrar.
Tilvalið til ýmis konar verslunarrekstrar, þjónustu eða
iðnaðar.
Látið hugmyndaflugið ráða.
Einnig 150 fermetra iðnaðarhúsnæði leigist á 350 kr.
fermetrinn.
Upplýsingar í síma 898 0499.
Nóg súkkulaði í þessari, bæði brúnt og
hvítt. Samkvæmt blaðinu sem upp-
skriftin er tekin upp úr tekur 45 mínút-
ur að framleiða þessa ljúffengu bita og á ekki
að vera mjög erfitt að búa þá til þó svo virðist
kannski í fyrstu.
Botn:
120 g dökkt súkkulaði (brytjað)
3 bollar kornflögur
Neðra lag:
150 g dökkt súkkulaði (brytjað)
90 g hvítt súkkulaði (brytjað)
1 bolli rjómi
2 msk. smjör
'/2 bolli heslihnetur (ristaðar og saxaðar)
1 tsk. vanilludropar
Efra lag:
’A bolli vatn
2 blöð matarlím
240 g hvítt súkkulaði (brytjað)
13A bollar rjómi
3 msk. kakólíkkjör
Skraut:
Súkkulaðisósa
heslihnetur (ristaðar og saxaðar)
1. Byrjið á því að setja álpappír í ferkantað
form og látið álpappírinn ná ca. 5 sentimetra
út fyrir barmana. Smyrjið botninn og hliðarn-
ar á álpappírsklæddu forminu.
2. Bræðið súkkulaðið sem nota á í botninn og
blandið saman við kornflögurnar. Þrýstið í
botninn og geymið í ísskáp á meðan efra og
neðra lag er útbúið.
3. Bræðið súkkulaðið ásamt rjóma í tvöföld-
um potti, með heitu en þó ekki sjóðandi vatni
í neðra potti. Hrærið vel þar til blandan er
orðin mjúk. Færið pottinn frá hellunni, látið
smjörið bráðna saman við og hrærið saman
heslihnetunum og vanilludropunum. Færið
blönduna yfír í skál og setjið hana í stærri
skál sem er full af ísköldu vatni. Hrærið þar
til blandan er farin að kólna og byrjuð að
þykkna. Dreifið henni síðan á botninn, setjið
plast yfir formið og geymið í ísskáp í klukku-
tíma.
4. Leysið matarlímið upp í vatninu. Setjið
hvíta súkkulaðið í skál. Setjið 3á bolla rjóma í
lítinn pott og fáið upp suðu. Hellið heitum
rjómanum yfír súkkulaðið og látið standa í
eina mínútu til að súkkulaðið fái að bráðna.
Hrærið þar til mjúkt. Hrærið matarlúninu og
líkkjörnum saman við. Setjð skálina í aðra
stærri skál sem er full af ísköldu vatni. Hrær-
ið í 5-10 mínútur eða þar til blandan er köld.
5. Þeytið það sem eftir er af rjómanvun (1
bolla) þar til hann verður stífur (passið þó að
hafa hann ekki of stífan). Setjið rjómann sam-
an við hvítu súkkulaðiblönduna. Takið formið
úr ísskápnum og setjið ljósu blönduna yfir þá
dökku. Setjið aftur í ísskáp og geymið í 4
klukkutíma.
6. Skerið í ferninga áður en borið er fram.
Sprautið súkkulaðiröndum á hvern bita og
skreytið með ristuðum, söxuðum heslihnet-
um.
AÐALFUNDUR
OLÍS1997
Aðalfundur Olíuverzlunar íslands hf.
fyrir rekstrarárið 1996, verður haldinn
í Sunnusal (áður Atthagasal) Hótel Sögu,
fimmtudaginn 20. mars nk. kl. 16:00.
Dagskrá:
Samkvæmt 13. gr. samþykkta félagsins.
Ársreikningur félagsins og gögn vegna fundar
munu liggja frammi til sýnis á skrifstofu
félagsins að Héðinsgötu 10, Reykjavík,
7 dögum fyrir fundinn.
Stjórn Olíuverzlunar íslands hf.