Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Síða 15
Jktgj rr-®mTOm
Laugardagur 15. mars 1997-27
KONUNGLEGA SIÐAN
BÚBBA
Vilhjálmur Artúr Filip Loð-
vík Windsor - eða Willi-
am Arthur Philip Louis
Windsor, eldri sonur þeirra
Karls Bretaprins og Díönu
prinsessu af Wales, verður von
bráðar nýjasta konunglega
fórnarlamb bresku pressunnar
í eilífri leit þeirra að hneykslis-
málum úr þeirri ijölskyldu. Nú
er bara að sjá hvort henni tekst
að skemma þennan myndar-
lega og ágætlega gerða dreng.
Enn sem komið er er sem betur
fer ekkert nema gott um þenn-
an unga mann að segja. - Og
síðastliðinn sunnudag var
drengurinn, sem sumir segja
helstu von breska konungsveld-
isins, fermdur.
Hefðunum skal hald-
ið, góðum og slæmum
Það eina sem blöðin hafa gagn-
rýnt Vilhjálm fyrir er það að
hann fer með föður sínum á
skotveiðar. Finnst pressunni
það hin mesta óhæfa á þeim
tímum þegar allir eiga að vera
svo mannúðlegir a.m.k. þegar
dýr eru annars vegar. Raunar
er þátttaka Vilhjálms og bróður
hans í skotveiðiferðum með föð-
ur sínum eitt helsta misklíðar-
efni foreldra þeirra hvað varðar
uppeldi prinsanna. Díönu er
það afskaplega ógeðfellt að
börn hennar stundi veiðar sér
til skemmtunar, en hún má sín
ekki mikils gagnvart þessari
hefð breska aðalsins frekar en
öðrum hefðum. Er þess
skemmst að minnast að eigin-
maður hennar spurði hana sár-
hneykslaður eitt sinn hvort hún
ætlaðist virkilega til þess að
hann yrði fyrsti prinsinn af
Wales í samanlagðri konungs-
sögu Breta, sem ætti sér ekki
ástkonu!
Vel heppnað eintak
Vilhjálmur prins þykir hafa erft
nánast einvörðungu góða eigin-
leika foreldra sinna og nú er að
koma í ljós að drengurinn hefur
alla möguleika á að verða nýj-
asta hjartagull ungra kvenna.
Ungar stúlkur hafa stofnað að-
dáendaklúbba um Vilhjálm
prins og táningatímarit hafa
valið hann mest aðlaðandi
mann í Bretlandi. Vilhjálmur
hefur erft gott útlit móður sinn-
ar en einnig nokkuð af þrjósku
hennar. Hann hefur erft áhuga
föður síns á útivist og skotveið-
um og þrátt fyrir hjúskapar-
vandamál foreldra sinna og allt
vesenið sem þeim hefur fylgt,
þá er hann laus við tilhneigingu
föður síns til sjálfsvorkunnar.
Hann þykir mjög vel upp alinn
og koma vel fram. Raunar hef-
ur mér alltaf fundist Vilhjálmur
vera hreinlega konunglegur al-
veg frá því að fyrstu myndir
birtust af honum sem smá-
barni. (Ég tek það fram að
þetta hef ég aldrei sagt um föð-
ur hans, sem er uppfullur af
sjálfsvorkunn og „welt
Díana hefur lagt á það áherslu frá fyrstu tíð að sinna sonum sínum sem mest
vesenið sem hefur verið í kringum ósætti Díönu og Karls.
sjálf. Samband mæðginanna er mjög traust og hefur ekki liðið fyrir allt
ferða ásamt litla bróður, Harry
prins. Aðrir gestir komu í lítilli
rútu. (Rútu! Það er víst það nýj-
asta hjá kóngafólkinu að ferð-
ast saman í litlum rútum sem
eru sérlega glæsilegar).
Af hálfu konungsijölskyld-
unnar var lögð áhersla á það að
um fjölskylduviðburð væri að
ræða og voru einvörðungu við-
staddir um 40 manns þ.e. nán-
asta fjölskylda, guðforeldrar og
Qölskylduvinir. Athöfnin tók 45
mfnútur og annaðist Lundúna-
biskup hana. Það eitt var tilefni
til blaðaumíjöllunar, því venjan
er sú að erkibiskupinn af Kant-
araborg annast guðlega þjón-
ustu fyrir konungsíjölskylduna,
sem yfírmaður ensku biskupa-
kirkjunnar. Þótti mönnum
framhjá honum gengið en öll-
um tilgátum í þeim efnum var
hafnað af hálfu Buckingham-
hallar.
Annað atriði við þessa lát-
lausu og fallegu Ijölskylduat-
höfn varð einnig tilefni blaða-
umijöllunar í bresku pressunni
en það var hverjir hefðu ekki
mætt til athafnarinnar. Nánar
tiltekið var Philip prins afi Vil-
hjálms í föðurætt fjarverandi
þar sem hann var á ferðalagi
fyrir World Wildlife Fund er-
lendis, móðuramma hans frú
Francis Shand-Kydd mætti ekki
(hún afþakkaði boðið!) og ekk-
ert af föðursystkinum hans
mættu til athafnarinnar! Hugsa
sér! Það var verið að ferma
verðandi konung, bróðurson og
barnabarn og þessir nánustu
fjölskyldumeðlimir bara mæta
ekki! Nú og hverjir mættu þá?
Jú, Elísabet Bretadrottning föð-
uramma Vilhjálms mætti og
Vilhjálmur prins verður miklu
myndariegri en pabbi hans nokk-
urn tíma! - Svo kann hann að
brosa.
langamma hans Elísabet
drottningarmóðir. Guðforeldr-
arnir mættu líka þ.e. Konstant-
ín fyrrum Grikkjakonungur, Al-
exandra prinsessa, lafði Susan
Hussey, furstynjan af West-
minster og Romsey lávarður.
Þess utan mættu nokkrir af nú-
verandi og fyrrverandi starfs-
mönnum foreldra Vilhjálms, en
aðstoðarmaður Karls Breta-
prins í uppeldismálum á heimil-
inu eftir skilnað hans við Díönu,
hin unga aðalsmær Tiggy
Legge-Bourke, mætti ekki sam-
kvæmt fyrirmælum Karls að því
að sagt er. Hugsanlega var það
gert af tillitsemi við Díönu, en
henni er mikil raun að því
hversu nákomin Tiggy er orðin
sonum hennar og finnst henni
Tiggy reyna að ganga þeim í
móður stað.
Drottningin kát
Þrátt fyrir þetta lá vel á þeim
sem mættu til athafnarinnar og
var sérstaklega tekið til þess
hversu vel lá á Eh'sabetu
drottningu sem lék við hvern
sinn fingur meðan á myndatöku
stóð eftir athöfnina. Á myndinni
situr Vilhjálmur milli foreldra
sinna sem töluðu við alla aðra
viðstadda en hvort annað, þau
brostu og voru afslöppuð. Vil-
hjálmur sem á það til að vera
feiminn og roðna auðveldlega,
bar sig líka bara vel.
Og hvað fékk hann svo í
fermingargjöf? Sögusagnir
gengu um það að faðir hans
hefði keypt tvo 65.000 sterl-
ingspunda rifíla fra Asprey’s í
London í fermingargjöf handa
syni sínum, en talsmenn hirðar-
innar aftóku það alveg. Svo við
erum engu nær og mamma
hans getur líklega andað léttar.
óstyrkur sl. sunnudag þegar
hann kom til kirkju heilags Ge-
orgs í London. Fjórtán ára
gamall var hann mættur á
kirkjutröppunum í fínu spari-
fötunum sínum, vel greiddur
eins og venjulega í blárri
skyrtu. Það vakti eftirtekt
manna að hann kom til kirkj-
unnar í bifreið af Vauxhall
Astra gerð, sem faðir hans ók,
en móðir hans var einnig sam-
Schmertz”).
Vilhjálmur prins stundar nú
nám í Eton skóla þar sem hann
dvelur á heimavist í eigin her-
bergi og hefur eignast þar
marga vini sem standa um
hann vörð fyrir áreitni blaða-
ljósmyndara.
Hverjir mættu ekki?
Það var ekki laust við að Vil-
hjálmur prins væri eilítið tauga-
Vilhjálmur fermdur