Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.03.1997, Qupperneq 19
iOagnr-ÍEímtmt
Laugardagur 15. mars 1997 - 31
m
m
Ot
Umsjónarmaður
Magnús Geir Guðmundsson
Nick Cave fékk góða dóma fyrir nýju
plötunaThe boatmans call.
„Bátmannskall"
frá Nick Cave
Nick Cave, sá rámi söngvari og sér-
stæði tónlistarmaður, hefur átt
ágætu fylgi að fagna í seinni tíð.
Síðasta platan hans, Murder ballads,
sem eins og nafnið gefur til kynna hefur
yfir sér dökkt yfirbragð texta af manns-
látum, seldist ágætlega er hún kom út
1995 og fékk mjög góða dóma. Þá varð
lagið, Where the wild roses grove, sem
Cave söng með löndu sinni Kylie
Minogue, sérstaklega vinsælt. Ásamt
hljómsveit sinni, The bad seeds, er Cave
nú rétt búinn að senda frá sér nýja plötu
og kallast hún The boatmans call. Þar er
kappinn sem oft fyrr nokkuð hægfara,
en jafnframt svo innilega seiðandi og
þunglyndislegur. Má segja um Cave líkt
og menn á borð við Tom Waits, Lou
Reed, Leonard Cohen og fleiri, að hann
sé fyrst og síðast túlkari, sem fólki líkar
vel eða alls ekki. Eru dómar, sem nú
hafa verið að birtast um plötuna í hinum
ýmsu tónlistartímaritum, flestir jákvæðir
og jafnvel fær hún bestu mögulegu dóma
í ritum á borð við hið virta Melody Ma-
ker. Nick Cave kom fyrst fram fyrir um
14 árum eða svo með The bad seeds, en
einnig hafa bakhjarlar hans kallast
Cavemen (undir Cavemen-nafninu voru
hjálparkokkar kappans t.d. þegar hann
kom fyrst fram í Bretlandi) Var það í
Þýskalandi sem sem upphafið lá, en
Nick Cave er hins vegar ættaður frá
Eyjaálfu.
Lygasögu líkast
Hún var aðeins 30 ára að aldri þeg-
ar hún lést í sviplegu flugslysi ár-
ið 1963. Þrátt fyrir þennan unga
aldur var hún orðin ein vinsælasta söng-
kona sveitatónlistarinnar sem sögur fara
af, ef ekki bara sú allra vinsælasta og
besta. Hún hefur fyrr og síðar verið
dýrkuð í Bandaríkjunum og víðar um
heim fyrir sína háu og björtu rödd og
verið nefnd, „María Callas sveitasöngv-
anna“ Patsy Cline heitir hún og söng
perlur á borð við Walking after mid-
night, Crazy, She’s got you, I fall to piec-
es, Sweet dreams og margar fleiri, sem
hittu margt ungmennið í hjartastað.
En hér verður ekki sagt meira af
Patsy Cline, heldur örlítið af ung-
lingsstúlkunni LeeAnn Rimes, sem
núna, 34 árum eftir lát Cline, getur
náð það langt að verða arftaki
hennar. Þær hafa vissulega margar
komið fram á eftir CUne, góðu
sveitasöngkonurnar, en hin aðeins
liðlega 14 ára Rimes þykir fyrst fyrir
alvöru að margra mati verðskulda
að vera jafnað saman við stjörnuna
heitnu. Það er ekki hvað síst há og
ótrúlega þroskuð röddin, sem minn-
ir á Cline, en Lee Ann, upprunnin
frá Texas, var aðeins um 10 ára
gömul þegar hún var uppgötvuð. Á
fyrstu plötunni, Blue, sem kom út í
fyrrasumar og sló öll sölumet, voru
upptökurnar þó eldri, eða frá því að
stúlkan var 12 ára. Á nýútkominni
plötu, Unchanged melody (eftir hinu
fræga samnefnda lagi sem hún syng-
ur af list. Blue, sem varð svo vinsælt
með henni sl. sumar er ekki heldur nýtt
af nálinni. Það var upphaflega samið
fyrir Patsy Cline, auðvitað) er svo líka
um einhverjar eldri upptökur að ræða,
eða frá því LeeAnn var aðeins 11 ára.
Fór hún beina leið á toppinn í þarsíðustu
viku og var þá Blue enn inn á topp tíu.
Þykir þessi ótrúlega velgengni ungu
stúlkunnar, sem svo í ofanálag er farin
að fá m.a. Grammyverðlaun, lygasögu
líkast og skyldi engan undra. Svo spyr
fólk bara: Hvar endar þetta með stelp-
una?
LeeAnn Rimes hefur öðlast ótrúlega hylli, aðeins
14 ára gömul.
16 týrur
Eins og lands-
mönnum er
kunnugt fór
afhending íslensku
tónlistarverð-
launanna fram í
ijórða sinn fyrir
rúmum þremur
vikum. f beinu
framhaldi af þeim
hefur svo geisla-
plata verið gefin út
á vegum Spors þar
sem finna má 16
„lagatýrur" frá ár-
inu 1996 með jafn-
mörgum flytjend-
um. Eiga þessir
flytjendur það að
sjálfsögðu sameig-
inlegt að hafa
komið meira og
minna við sögu á
verðlaunahátíð-
inni, hlotið þær
ýmsu viðurkenn-
ingar sem í boði
voru. Þar á meðal
eru söngkona ársins og söngvari ársins, Emilíana Torrini og Páll
Rósinkranz. Eiður Arnarsson bassaleikari ársins með Todmobile og
Stefán Hilmarsson, sem var valinn lagahöfundur ársins ásamt fé-
lögum sínum Friðriki Sturlusyni og Mána Svavarssyni, eru þarna
líka með lög og félagarnir í Mezzoforte, Gunnlaugur Briem tromm-
ari, Friðrik Karlsson gítarleikari, Eyþór Gunnarsson hljómborðs-
leikari og Óskar Guðjónsson saxafónleikari, sem allir fengu verð-
launin í sínum flokkum, sömuleiðis. Botnleðja, flytjendur/Hljóm-
sveit ársins, eru að sjálfsögðu þarna líka og það með lag ársins,
Hausverkun og Bjartasta vonin, Anna Ilalldórsdóttir, einnig.
Stefán Hilmarsson, lagahöfundur ársins 1996,
lagið „Eins og er“ á íslensku tónlistarverð-
launaplötunni.
•Eins og sagt er frá hér ann-
ars staðar á síðunni, er vel-
gengni hinnar 14 ára sveita-
poppsöngkonu, LeeAnn Rim-
es með hreinum ólíkindum.
Dugði ekkert minna en nýju
plötuna frá rokksveitinni frá-
bæru, Live, til að velta Lee-
Ann úr toppsætinu í Banda-
ríkjunum í síðustu viku. Nefn-
ist platan sú Secret samadhi
og virðist eftir þessari byrjun
að dæma ætla að fylgja eftir
vinsældum Throwing copper,
a.m.k. hvað það varðar að ná
toppsætinu. Hins vegar gæti
það orðið erfiðara að selja
plötuna jafnmikið, því TC
seldist í meir en 10 millj. ein-
taka.
•Það er annars merkilegt við
bandaríska plötusölulistann í
síðustu viku, sem og reyndar
að undanförnu, að hann end-
urspeglar vel þann uppgang
sem konur njóta nú í popp-
heiminum. Eftir því sem næst
verður komist eru nefnilega
sjö af tíu bestseldu plötunum
með konum meira og minna í
aðalhlutverki. Þetta eru Lee-
Ann með Unchanged melody í
öðru sætinu, hin dularfulla
nýstjarna Eryka með Baduzin
í þriðja, No doubt með söng-
konuna Gwen Stefani í farar-
broddi með Tragic kingdom í
ijórða, Spice Girls með Sice í
því fimmta, kvikmyndaplatan
Evita þar sem Madonna sjálf
er allt í öllu í áttunda, Toni
Braxton með Secrets í níunda
og Celine Dion með Falling
into you í tíunda. Stórmerki-
legt.
•Lagalistinn yfir 10 vinsæl-
ustu lögin vestra er svo líka
vel settur með konur. Spice
girls eru á toppnum með
Wannabe og Madonna, Toni
Braxton og Eh vogue eiga þar
svo lög líka.
•í Bretlandi er nokkuð það
sama á ferðinni, þó ekki alveg
eins áberandi sé. Þar eru þær
Dion, Braxton, Spice girls og
Eh vogue t.a.m líka allar hátt
á listum með plötur og No
doubt á vinsælasta lagið,
Don’t cry. Vegna vandræða
með myndband sem kunn eru
af fréttum, hefur Björk okkar
blessaðri hins vegar ekki
gengið alveg jafn vel með sitt
nýjasta smáskífulag, I miss
you. Það byrjaði að vísu vel,
fór beint í 26. sæti smáskífu-
listans fyrir hálfum mánuði,
en féll svo strax út af topp 50
í síðustu viku.
•Fugees, rapptríóið vinsæla,
með vel að merkja söngkon-
una ungu Lauryn Hill áber-
andi í flokki, var að senda frá
sér nýtt smáskífulag. Nefnist
það Rumle in the jungle og er
það fyrsta sem gefið er út af
plötu í tengslum við kvik-
myndina, We could be kings.
Fjallar þessi mynd um einvígi
hnefaleikakappanna
Muhmmed Ali og George
Foreman árið 1974, sem Ali
vann. Eitthvað fyrir Bubba
karlinn Morthens og aðra
boxhunda.
Live fer vel af stað með nýju
plötuna sína.