Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Qupperneq 2
14 - Laugardagur 2. nóvember 1996
|Dagur-'2Smitm
KaflMkökur
Unglingar uppreisnar-
gjarnir? Þessi lýsing átti
tæpast við 10. bekkinga í
Gagnfræðaskóla Akureyrar á
funmtudaginn. Þeir tóku sig til
á foreldradegi í skólanum og
opnuðu kaffihús þar sem for-
eldrar og kennarar gátu keypt
kaffi og heimabakað bakkelsi.
Og ekki nóg með það, heldur
þjónuðu unglingarnir himun
fullorðnu til borð.
„Við erum ekkert alltaf með
vandræði. Nú erum við t.d.
mjög auðmjúk,“ segir Þóra
Björk Ottesen, nemandi, en
henni og félögum hennar finnst
umræðan um unglingavanda-
málin svokölluðu skyggja einum
of mikið á allt hið jákvæða sem
unglingarnir gera. AI
Foreldrum þjónað til borðs.
Myndir. Jón Hrói
10. bekkingar sem sáu um kaffihús á foreldradeginum.
Bangsabarnið (Auður Jónsdóttir) dregur út númer þeirra sem fá frían
aðgöngumiða í leikhúsið í vetur.
Hunáiið
f vikunni var dregið í happdrætti Leikfélags Akureyrar.
„Nú reynir á hvort menn hafi geymt kynningarbækling-
inn,“ segir Trausti Ólafsson, leikhússtjóri, en í haust var
8500 eintökum af kynningarbæklingi um komandi
starfsár dreift í öll hús á Akureyri og víðar. Á hverjum
bæklingi var númer og þeir sem eiga bækling með
númeri sem passar við eitthvert þeirra hundrað núm-
era sem dregin voru út fá frían miða í leikhúsið. Vinn-
ingsnúmerin verða birt í blaðinu í næstu viku.
AI
Hj álpum hvert öðru
Hvers vegna hjálpar fólk hverl
öðru? Hvaða áhrif hefur
velferðarsamfélagið á gagn-
kvæma hjálpsemi fólks?
Jón Björnsson
Mynd: BG
essum spurn-
ingum og öðr-
um skyldum
mun Jón
Björnsson, fyrrum félags-
málastjóri Akureyrarbæjar
og núverandi framkvæmda-
stjóri menningar, uppeldis- og
félagsmálasviðs hjá Reykjavík-
urborg, velta upp á fyrirlestri í
Deiglunni á Akureyri í dag. Fyr-
irlesturinn ber yfirskriftina
„Einn fyrir alla - allir fyrir
einn“ og (jallar um hjálpar-
hugtakið frá ýmsum hlið-
um.
„Það eru til margar
skýringar á því
hvers vegna fólk
leggur eitt-
hvað á sig
bara til
að
hjálpa einhverjum öðrum, allt
frá miskunnsama Samverjanum
sem hjálpaði af mannkærleika
og yfir í að menn hjálpi af því
þeir hagnist á því sjálfir," segir
Jón. Hver sem skýringin á
hjálpseminni _________________
er, telur Jón
ákveðin at-
riði ein-
kenna hjálp-
arsambönd
sem myndist
milli fólks.
Sá sem
hjálpi þurfi
að gera það
ótilneyddur
og sá sem
hjálpina ..............
þiggur
stendur í þakkarskuld. „Það er
lítillækkandi að fá hjálp frá öðr-
um, lenda í þakkarskuld, og
geta ekki greitt hana með
einhverjum hætti.“
„Það eru tíl margar skýring-
ar á því hvers vegna fólk
leggur eitthvað á sig bara til
að hjálpa einhverjum öðrum,
alltfrá miskunnsama Sam-
verjanum sem hjálpaði af
mannkœrleika og yfir í að
menn hjálpi af því þeir hagn-
ist á því sjálfir, “ segir Jón.
Hlutverk
velferðarkerfisins
f velferðarkerfi hjálpa skatt-
greiðendur meðbræðrum sínum
í gegnum skriffinnskukerfi. Ein-
hver er að hjálpa einhverjum en
ekki með sama hætti og milli
tveggja einstaklinga. Þó flestir
hafi verið hrifnir af hugmynd-
inni af velferðarríkinu í upphafi
segir Jón að smám saman séu
ýmsir annmarkar að koma í
ljós. Oft virðist velferðarkerfið
hjálpa einhverjum að vera
áfram í vanda frekar en að losa
hann úr honum. í fyrirlestrinum
mun Jón
m.a. leiða að
því getum, án
þess þó að
fullyrða, að
ástæða þess
að velferðar-
kerfið virki
ekki eins og
það á að gera
sé vegna þess
að viss sál-
ræn innri rök
______________ vanti sem
séu til staðar
í hjálparsambandi milli tveggja
einstaklinga. Og meira vill hann
ekki gefa upp að sinni. Bara
mæta á staðinn!
Fyrirlesturinn, sem er á veg-
um Félags áhugafólks um heim-
speki á Akureyri, hefst klukkan
14 og er öllum opinn. AI