Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Blaðsíða 4
16- Laugardagur 2. nóvember 1996
iDagur-CÍÍmmm
MENNING O G LISTIR
Meira um Pavarotti
og Kristján
Placido Domingo til að hlaupa í skarðið en
hann ekki verið á lausu. Hugsanlega er hér
komin ástæðan fyrir því að tónninn er létt
pirraður í bifvélavirkjanum frá Akureyri -
honum hafi fundist mennirnir í Met verið
að leita langt yfir skammt!
En hver er ástæða þess að Pavarotti hef-
ur ekki Örlögin á valdi sínu? Hann átti við
öndunarörðugleika á etja á síðustu söngtíð
og tók sér sönghlé um nokkurra mánaða
skeið. Því komst hann aldrei til að læra
hlutverkið í Örlögunum, og getur það ekki á
þessu hausti vegna anna við upptökur. Það
er mjög sjaldgæft að Metropolitan breyti
dagskrá sinni, síðast gerðist það 1979
vegna veikinda Leontyne Price.
Pavarotti mun syngja á fimm fyrstu sýn-
ingunum á Grímudansleiknum eftir áramót,
og síðan tekur Kristján við eins og fyrirhug-
að var á næstu fimm. Reikna má með að
hann verði orðinn óþreyjufullur þegar kem-
ur að innáskiptunum!
Metropolitan óperan í New York hef-
ur nú gefið út opinbera skýringu á
því hvers vegna Pavarotti og Krist-
ján (okkar) Jóhannsson syngja ekki „Á valdi
örlaganna" heldur „Grímudansleikinn".
Kristján gerði því skóna í blaðaviðtali að
hugsanlega væri rödd heimstenórsins (Pa-
varottis) að gefa sig og hann treysti sér ekki
í hlutverkið. Nú segir
Metropolitan óperan að
Pavarotti hafi ekki gef-
ist tóm til að læra hlut-
verkið til hlítar. Óperan
vildi ekki sleppa Pava-
rotti við að syngja, svo í
stað Örlaganna settu
þeir Grímudansleikinn
á dagskrá, „enda er að-
dráttarafl söngvarans
meira en óperunnar
sjálfrar,“ segja þeir.
Með öðrrnn orðum: Það
skiptir ekki máli hvað
Pavarotti syngur.
Það fylgir með í
fréttinni að Metropolit-
an hafi reynt að fá
Ómiss-
andi
fólk
s
Omissandi fólk kemur á
markaðinn um miðjan
mánuðinn eða svo,“ segir
KK og á þá við væntanlega
plötu hans og Magnúsar Eiríks-
sonar.
Flest
lögin
hafa
þeir fé-
lagar
samið í
samein-
ingu en
þó má
finna
nokkur
frá hvorum um sig. „Samvinna
okkar fúnkeraði ofsalega vel
enda erum við Maggi búnir að
þekkjast í mörg ár og höfum oft
spilað saman,“ segir KK. Magn-
ús segir
tónlist-
ina
vera
ljúfa og
létta
með
blúsuðu
ívafi en
eina
mark-
miðið
hafi verið að gera skemmtilega
plötu. Til að spila undir á
plötunni fengu þeir til liðs við
sig Jón bassa Sigurðsson og
Stefán Magnússon. Fjórmenn-
ingarnir munu halda tónleika
og flytja lög af plötunni næst-
komandi þriðjudagskvöld í
Gyllta salnum á Hótel Borg.
T ónar tveggj a tíma
Gömlu góðu tónamir þeirra Mozarts og Hándels
munu hljóma í bland við nýrri verk amerísku
tónskáldanna Ives og Copland á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, sem haldnir
verða í Akureyrarkirkju á morgun.
Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands fyrir ári síðan.
Við vinnum þetta í snarpri
skorpu og aðal undir-
búningurinn hefur farið
fram í síðustu viku. Síðan verð-
ur æft stíft um helgina,“ segir
stjórnandinn, Guðmundur Óli
Gunnarsson. Guðmundur Óli er
aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands.
Hann hefur starfað sem hljóm-
sveitarstjóri með Sinfóníu-
hljómsveit íslands, komið fram
sem stjórnandi Kammersveitar
Reykjavíkur, íslensku hljóm-
sveitarinnar o. fl. og er fastur
stjórnandi CAPUT.
Með tónleikunum á morgun
hefst fjórða starfsár hljómsveit-
arinnar en hana skipa kennar-
ar við Tónlistarskólann á Akur-
eyri, lengst komnir nemendur
skólans og einnig telst hópur
hljóðfæraleikara sem starfa á
Norðurlandi til kjarna hljóm-
sveitarinnar. Að jafnaði eru
hljóðfæraleikarar 25-40 en á
þessum tónleikum verða þeir
30.
Næturljóð og
vatnasvítur
Hljómsveitin mun spila eitt verk
eftir hvern höfund: Lítið nætur-
ljóð (Eini kleine Nachtmusik)
eftir Mozart, Vatnasvítur eftir
Hándel, Spurning án svars (The
Unanswered Question) eftir Ives
og Leikhústónlist (Muzic for the
Theatre) eftir Copland.
Þá Mozart og Hándel þarf
vart að kynna fyrir þeim sem á
annað borð fylgjast með klass-
ískri tónlist. Mozart kallaði tón-
list sem hann samdi sérstaklega
fyrir garðveislur, brúðkaup og
önnur slík tilefni serenöður eða
divertimento og er Lítið nætur-
ljóð frægasta verk hans þessar-
ar tegundar. Um Vatnasvítur
Hándels segir sagan að hann
hafi samið verkið til að ná hylli
Englandskonungs sem hann var
í ónáð hjá. Tónlistin dregur
nafn sitt af því að tónskáldið lét
flytja hana konungi að óvörum í
bátsferð á ánni Thames, og
varð konungur svo hrifinn að
hann tók Hándel í sátt.
Bandarísku tónskáldin Ives
og Copland eiga ekki jafn fastan
sess í tónlistarsögunni og tvö
fyrrnefndu skáldin, en eru engu
að síður meðal frægustu tón-
skálda frá heimalandi sínu.
„Copland er þeirra Bethoven"
Mynd: BG
segir Guðmundur Óli en lýsir
Ives frekar sem frumkvöðli.
„Hann er meira framsækinn.“
Tónleikarnir á morgun (íefj-
ast klukkan fimm. Aðgönguverð
er 1200 kr. en ókeypis er fyrir
nema yngri en 21 árs. AI