Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Qupperneq 11
|Dagur-'3lTOtmn
agur-Œtmttm
Laugardagur 2. nóvember 1996 - 23
Geymið blaðið!
Aðfá sér skyndibita er mjög vinsœlt. Það er stað-
reynd að þessi tegund matarmenningar er sú sem er
í mestri sókn í heimi veitingamennsku í dag. Það er
hœgt að segja að skyndibitafœði sé bein andstœða
við heimilismatinn sem virðist aftur á móti vera á
undanhaldi - hversu súrt sem okkur þykir það.
Skyndibitamatur hafði lengi
vel á sér óorð. Hann þótti
ruslfæði. í dag er þetta að
taka á sig breytta og betri mynd.
Neytendur eru orðnir meðvitað-
ir um matarval sitt og heimta
gæði. Ef þau eru ekki til staðar,
þá eru við-
komandi
búnir að
Það =====
vandaðar pylsur — og það bara
nokkuð góðar. En kjötfarsið var
látið sitja á hakanum (eða í
hakkavélinni) og er í dag ein-
hver sá versti matur sem til er.
Það ætti eiginlega að banna
það!
vera.
segir
sig
hver
BIGGI
HALL
sjálft;
kaupir
vonda pylsu?
Einu sinni
voru pylsur
versti matur
sem á boð-
stólnum var. ___________________
Það var ===
kannski
bara til ein tegund matar sem
var verri en pylsurnar - og það
var kjötfarsið! Það er hægt að
segja (í öllum einfaldleika máls-
ins), að þar liggi hundurinn
grafinn hvað viðkemur sigri
skyndibitans yfir heimihsmatn-
um. Pylsugerðarmennirnir byrj-
uðu að laga til sína sperðla og
með metnaði ásamt ströngu
gæðaeftirliti náðu þeir að gera
Fyrsta flokks
skyndibitar
Hamborgararnir voru nú ekki
beysnir á sínum upphafsárum,
trúið mér. í dag þýðir ekkert
annað en að bjóða upp á fyrsta
flokks ungneyti, hakkað ferskt,
einungis til hamborgaragerðar,
með ekki meira en 10% fitu.
Brauðið er sérvaUð og jafnvel
hernaðarleyndarmál. Það er
mikið mn ferskt grænmeti og
magrar sósur (ef við sleppum
kokkteilsósunni).
Sama er að segja um sam-
lokubransann. Það er einn vin-
ur minn í honum og hann var
með þeim fyrstu hér á landi
sem tóku upp gæðavottunar-
kerfi í matvælaframleiðslunni.
Hann segir að tilvera þessa
bransa byggist á að vera vökull
yfir gæðum, lofa þeim og
standa við það. Samlokurnar
verða að vera dagferskar og
ekki einn dagur framyfir, þótt
við vitum öll að það sé í fínasta
lagi. Neytandinn fer fram á
það, annars seljast þær ekki.
Pítsmnar eru kapítuU út af
fyrir sig. Þetta einfalda ítalska
brauð tók landið með stormi.
Pítsan var yndisleg nýjung í ís-
lenskri matarflóru. Hinn yndis-
legi og einkennandi pítsuilmur
sveif fyrir vitum manns -
blanda af nýbökuðu brauði,
bræddum osti, kryddjurtum og
tómat - og kveikti löngun sem
varð jafnvel kynorkunni yfir-
sterkari. Það eru tU margar
sögur af því að stelpur hafi ver-
ið plataðar heim til stráka og
síðan bara boðið upp á pítsu!
En að öllu gamni slepptu, þá
sagði mikilsmetinn næringar-
fræðingur við mig um daginn
að pítsan væri bráðholl, enda
ekkert annað en ferskt brauð
með úrvals áleggi og mögrum
osti.
Vinsældir skyndibitamatar
koma engum á óvart. Ástæð-
urnar eru einfaldar: Hraði í nú-
tíma samfélagi kallar á skyndi-
mat. Það er handhægt að grípa
bita í næstu lúgu eða af-
greiðsludisk og stýfa hann úr
hnefa og á hlaupum. Verðið er
líka ekki svo slæmt, þegar við
erum að greiða hann, þótt oft
gæti hann verið dýr í grömmum
mældur.
Vinsœldir skyndibitamatar
koma engum á óvart.
Ástœðurnar eru einfaldar:
Hraði í nútíma samfélagi
kallar á skyndimat.
En það er dýrt að selja
skyndibitamat. Veit-
ingahúsin
verða að
hafa
meira fyrir honum en mörgum
öðrum mat. Við fáum hann
keyrðan heim okkur að kostn-
aðarlausu, krakkarnir fá leik-
föng, allavega tilboð og bónusar
í gangi.
Það er hægt að velta fyrir sér
á margvíslegan hátt vinsældum
skyndibitans. Þegar öllu er á
botninn hvolft, þá held ég að
vinsældirnar stafi fyrst og
fremst af því að þessi matur er
nefnilega skrambi bragðgóður
og oft koma stundir sem maður
hreint og beint verður að fara
út og fá sér „hamborgara-
júmbó-söbb-pylsu-pítsu“ og
það með
öllu!
Kex í eftirrétt
Þó ósætt kex með osti standi ávallt fyrir
sínu er samt hægt að nýta kex í
ýmislegt íleira. Hér kemur
uppskrift að gómsætum eft-
irrétti sem einfalt er að
búa til.
/ pakki Golden
Crisp kex
(eða annað
ósœtt kex)
1 msk sykur
1 tsk kanill
2 dl eplamauk
2 dl rjómi
Myljið kexið og blandið
sykri og kanil saman við.
Steikið á pönnu þar til
mylsnan er orðin stökk. Setjið
kex og eplamauk til skiptis í eft-
irréttarglös eða skálar. Þeytið
rjómann og setjið á toppinn.
Skreytið með kexmylsnu.
Kex m/reyktuin laxi
Og ein kexuppskrift í viðbót. Ef til er
afgangur af reyktum laxi er tilval-
ið að nota hann í laxamauk sem
sprautað er á kex. Þetta er hentugur for-
réttur eða sem meðlæti í kokteilboðum.
8 kökur af Kaptein kexi
(eða öðru ósœtu kexi)
150 g reyktur lax
50 g smjör
2 tsk estragon (kryddjurt)
hvítur pipar (eftir smekk)
Setjið reykta laxinn í matvinnsluvél og
blandið smjöri og estragoni saman við.
Piprið eftir smekk. Sprautið maukinu á
kexið.