Dagur - Tíminn - 02.11.1996, Page 12
24 - Laugardagur 2. nóvember 1996 JDagttr-^ttttttttt JOagur-'íEmrám
ll
Pertir
Berjasósa:
100 g sólber
(eða önnur ber, t.d. bláber)
60gsykur
Nýkreistur sítrónusafi
(smásletta)
Perurnar:
225gsykur
Safi úr tveimur sítrónum
Tvœr vel þroskaðar perur
Skosktkex
(short bread):
115 g smjör (mjúkt)
60 g flórsykur
Salt á hnífsoddi
1 eggjarauða
140 g hveiti
2 tsk rjómi
Sabayon:
2 msk hvítvín
35gsykur
2 eggjarauður
3 msk léttþeyttur rjómi
1 tsk sítrónubörkur
1 tsk sítrónusafi
IBerjasósan: Þvoið berin
og hreinsið og setjið þau
ásamt sykri og sítrónu-
safa í matvinnsluvél. Búið til
mauk úr þessari blöndu. Bætið
vatni út í ef nauðsynlegt er og
ni/berjasósu
Fyrir tvo
sigtið síðan (með fínu sigti).
Kælið.
2Perurnar: Setjið 3 dl af
vatni, sykurinn og sítr-
ónusafann á pönnu og
hitið þar til sykurinn hefur leyst
upp. Flysjið pervu-nar varlega
án þess að eiga við stilkinn sem
stendur út úr. Notið endann á
flushmfnum til að stinga kjarn-
ann með steinunum úr. Hand-
leikið perurnar varlega til að
merja þær ekki. Setjið þær
strax í sírópið á pönnunni svo
þær verði ekki brúnar.
3Fáið upp suðu á perunum
í sírópinu. Setjið því næst
bökunarpappír yfir pönn-
una og hvolfið yfir hana diski.
Minnkið hitann og látið malla í
1-2 mínútur, ekki lengur. Skiljið
eftir í sírópinu, helst yfir nótt.
Kælið síðan vel (enn í sírópinu).
4Skoska kexið: Blandið
saman smjöri, sykri og
salti í skál. Bætið hinum
efnunum útí og hrærið svo úr
verði mjúkt deig. Setjið í plast
og kælið áður en það er notað.
5Hitið ofninn í 200°C.
Fletjið út kexdeigið svo
það verði ca. 5 mm þykkt
og skerið út hringi (um 7-8 cm
að þvermáli). Flytjið kökurnar
yfir á bökunarplötu, pikkið í
þær með gaffli og bakið í 6-7
mínútur. Leyfið kökunum að
bíða í nokkrar mínútur á
plötunni og setjið þær síðan á
bökunargrind og látið kólna.
Frystið þær kökur sem ekki eru
notaðar strax.
6Sabayon: Hitið sykurinn
og hvítvínið á pönnu. Lát-
ið sjóða, en leyfið síðan
að kólna stutta stimd.
7Setjið eggjarauðurnar í
htla skál og bætið sykur-
blöndunni útí. Þeytið yfir
potti með sjóðandi vatni í þar til
blandan er orðin frauðkennd og
þétt. Færið skálina frá pottinum
og haldið áfram að þeyta þar til
blandan er orðin köld og þétt í
sér.
8Þegar hún er orðin köld,
bætið rjómanum, sítrónu-
berkinum og safanum útí.
Setjið eina kexköku á miðju
disks og notið skeið til að setja
berjasósu í kring. Setjið síðan
eina peru á kexkökuna og hell-
ið sabayon sósunni þar ofan á.
Flesta daga leitum við að einhverju fljótlegu og
þœgilegu til að hafa í matinn. Stundum koma
hinsvegar þœr stundir sem við viljum nostra við
matargerð, t.d. um helgar, á hátíðum eða þegar
von er á góðum gestum í mat. Uppskriftirnar
sem hér fglgja eiga við í þeim tilfellum, Þœr eru
hvorki fljótlegar né einfaldar en þeim mun
girnilegri. Og bragðið svíkur engan.
Djöflaterta
3. Setjið deigið í formin og bak-
ið í 20-25 mínútur eða þar til
kökurnar eru mátulega bakað-
ar. Látið kólna áður en tekið úr
formunum.
85 g dökkt súkkulaði
(skorið í bita)
110 g ósalt smjör
85 g púðursykur (dökkur)
1 msk sýróp
170 g hveiti
30 gkakó
7z tsk natron
2 egg
6 msk mjólk
Krem:
40 g ósaltað smjör
40gkakó
280 g flórsykur
6 msk mjólk
2 tsk sterkt svart kaffi
1. Hitið ofninn í 170 C. Smyrjið
tvö form (18 cm að þvermáli).
Blandið saman súkkulaði,
smjöri, sykri og sírópi í pott eða
pönnu og bræðið yfir lágum
hita. Hrærið í á meðan. Látið
kólna.
2. Setjið hveiti, kakó og natron í
skál. Búið til holu í miðjunni og
hellið súkkulaðiblöndunni í hol-
una. Hrærið hveitinu saman við
þar til allt hefur blandast vel
saman. Hrærið eggin og bætið í
skálina ásamt mjólkinni. Bland-
ið varlega saman.
4. Notið sleif eða handþeytara
til að búa til kremið. Þeytið
smjörið þar til það er orðið
mjúkt. Sigtið kakóið og flórsyk-
urinn í skál og bætið mjólk og
kaffi út í. Blandið saman við
smjörið. Þeytið varlega þar til
kremið er orðið mjúkt.
5. Setjið einn þriðja af kreminu
á aðra kökuna og setjið hina
kökuna ofan á. Látið restina af
kreminu ofan á kökuna og á
hliðarnar. Geymið á köldxnn
stað yfir nótt (þó ekki í ísskáp).
Best er að borða þessa köku
innan þriggja daga.
Hægra megin er djöflatertan en vinstra megin hnetusúkkulaðikaka.
Súkkulað i h n e t ukaka
340 g dökkt súkkulaði
170 g ósalt smjör
60gkakó
5 egg
255gsykur
100 g valhnetur
(gróft saxaðar)
Flórsykur
(til að sáldra ofan á köku)
IHitið ofninn í 180 C.
Smyrjið kökuform (22 cm
að þvermáli). Setjið
súkkulaðið og smjörið í
djúpa pönnu eða í skál
sem má hitna og setjið yf-
ir pott með heitu, en ekki
sjóðandi vatni. Hrærið í
meðan súkkulaðið er að
bráðna. Færið af pottin-
um og bætið kakóinu útí.
Látið kólna á meðan egg-
in eru þeytt.
Þeytið eggin í skál. Setjið
sykur saman við og setjið
skálina yfir pott með
heitu vatni. Botn skálar-
innar á ekki að snerta
yfirborð vatnsins. Notið
handþeytara og þeytið
blönduna þar til hún er
orðin létt og umfangið ca.
þrisvar sinnum meira en í
byrjun. Þegar þeytaran-
um er lyft úr blöndunni á
hún að vera svo þykk að
eftir standi ójafna á yfir-
borðinu þar sem þeytar-
ÓTn værráTígimT appr.
Færið skálina frá hitan-
um og blandið súkkulaði-
blöndunni varlega saman
við og því næst valhnet-
unum. Setjið deigið í
formið og jafnið yfirborð-
ið.
Bakið í 35 mínútur. Yfir-
borðið á að vera þétt en
miðjan svolítið klístruð.
Ef kakan er bökuð lengur
verður hún þurr. Kælið
hana í forminu en takið
síðan úr og sáldrið flór-
sykri yfir. Best að geyma
ekki lengur en 4 daga.
Hærið eggin og sykurinn saman
þar til blandan er orðin nógu þykk
og yfirborðið sléttist ekki þegar
þeytarinn er dreginn upp.
Færið skálina úr hitanum og bland-
ið súkkulaðinu varlega saman við
með skeið.
Að síðustu eru hneturnar settar útí
og síðan er kakan bökuð.
1