Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981.
3
ívor
Það eru borgarstjórnarkosningar að vori.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins vegna þeirra
kosninga fer fram um þessa helgi. Niður-
staðan í prófkjörinu getur ráðið úrslitum
um það hvort Sjálfstæðisflokkurinn nær
aftur meirihluta í Reykjavík.
Þessi orð sem hér eru sett á blað eru til
stuðnings þeim manni sem líklegastur er til
þess að leiða Sjálfstæðisflokkinn til önd-
vegis í Reykjavík á ný.
Hér þarf ekki hefðbundna ljósmynd af
manni í framboðsstellingu, né langa lof-
rollu um liðna tíð - minningargreinin bíður
síns tíma - hér þarf heldur ekki langan
loforðalista.
Þúsundir Reykvíkinga - sjálfstæðisfólk,
sem og stuðningsmenn annarra flokka, úr
öllum stéttum, þekkja störf hans. Hvað
hann hefur gert. Hvað hann getur gert.
Þessi maður er Albert Guðmundsson - óum-
deilanlega hæfastur þátttakenda í próf-
kjörinu til þess að leiða baráttuna sem
framundan er. Fjölþætt reynsla hans við
uppbyggingu atvinnulífs í Reykjavík og
áralöng þátttaka í stjórnsýslu borgarinnar
skipar hann sjálfkrafa leiðtoga baráttunn-
ar, - og borgarstjóra að sigri unnum.
Styrkur Sjálfstæðisflokksins liggur að
stórum hluta í dyggum stuðningi óflokks-
bundins sjálfstæðisfólks - og opin prófkjör
hafa endurspeglað vilja kjósenda flokksins.
Nú hefur prófkjörsreglum verið breytt og
er flokksfélögum einum heimiluð þátttaka.
Hvort sé betra opið eða lokað prófkjör, er
álitamál og verður látið liggja milli hluta
hér. Hitt er ljóst að það hlakkar í andstæð-
ingum flokksins, þeir gera sér vonir um að
niðurstaða prófkjörsins verði á annan veg
en verið hefði í opnu prófkjöri.
Þeir vona að Albert Guðmundsson komi
verr út úr lokuðu prófkjöri en opnu, vegna
þess að þeir óttast að í komandi kosning-
um sæki Sjálfstæðisflokkurinn undir for-
ystu Alberts fleiri atkvæði til þeirra en
góðu hófi gegnir.
Það er skylda sjálfstæðisfólks að gera
þessar vonir andstæðinganna að engu - og
sjá til þess um leið að breyttar prófkjörs-
reglur veiki ekki stærstu von flokksins um
að endurheimta borgina aftur.
MIKIÐ MANNVAL í PRÓFKJÖRINU AUÐVELDAR UPP-
STILLINGU Á STERKRI SVEIT UNDIR STYRKRI
FORYSTU ALBERTS GUÐMUNDSSONAR. SLÍK SVEIT
HEFUR ÞANN SLAGKRAFT SEM ÞARF TIL SIGURS.
Stuðningsmenn
Alberts Guðmundssonar
Við hvetjum allt óflokksbundið stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins til þess að ganga
í flokkinn og taka þátt í prófkjörinu.
Síminn á skrifstofu stuðningsmanna Alberts Guðmundssonar er 12944.