Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Side 1
Hg
■
271. TBL. — 71. OG 7. ÁRG. — MÁNUDÁGUR 7. DESEMBER 1981.
ftjálst, óháð dagblað
Rafmagnslaust
vegna skulda
á Fáskníðsfirði:
Sveitarstjórinn
vannviö
kertaljós
-sjábls.2
Jólaleikur DV:
Langferömeð
jólasveininum
-sjábls.2
íslenzkustrák-
amirkomnir
íáttaliðaúrsHt
— sjá blaðauka
um iþróttir
•
Forkosningar
fstaðprófkjöra
viðaumland
— sjábls.4
Tókuppplötuna
ísófanum
heimahjásér
— sjá Fólk bls. 18
Sandkorn
— sjábls.2
17
DAGAR
TILJÓLA
Hrottaleg árás á 15 ára stúlku:
KEFLUÐ OG SÍÐAN
BARIN OG STUNGIN
stúlkum með eggvopni
■Hrottaleg líkamsárás var gerð á
unga stúlku á föstudagskvöldið. Var
henni um tíma vart hugað iíf, en hún
er ekki lengur talin í lífshættu. Árás-
armaðurinn er fundinn og hefur hann
játað sekt sína. Hann hefur verið úr-
skurðaður í tveggja mánaða gæzlu-
varðhald og gert að sæta geðrann-
sókn á þeim tíma.
Að sögn Þóris Oddssonar, vara-
rannsóknarlögreglustjóra ríkisins var
árásin gerð á milli kl. 19 og 22 á
föstudagskvöldið í Þverholtinu.
Árásarmaðurinn keflaði stúlkuna og
veitti henni síðan ótal áverka með
eggjárni og steini. Auk þess var hún
illa brennd þegar að var komið. Eftir
árásina mun stúlkan hafa legið í
blóði sínu í allt að fjóra tíma, áður en
maður nokkur fann hana af tilviljun
og gerði viðvart. Þórir Oddsson
sagði, að þetta væri með hrottalegri
árásarmálum, sem lögreglan hefði
haftafskipti af.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
hefur aflað sér, mun stúikan, sem er
fimmtán ára gömul, hafa verið að
bíða eftir strætisvagni, þegar árásar-
manninn bar að. Árásarmaðurinn,
sem er tuttugu og átta ára gamall,
mun hafa fengið stúikuna til að koma
með sér að skúr sem er við Þverholtið
nálægt strætisvagnastöðinni. Likur
benda til að hann hafi reynt að fá
stúlkuna til samræðis við sig, en þún
neitað að þýðast manninn. Þá tryllt-
ist árásarmaðurinn og rotaði stúlk-
una og keflaði. Árásarmaðurinn
veitti stúlkunni síðan ótal áverka með
skrúfjárni og steini. Þá sveið hann
stúlkuna með kveikjara. Við aðkom-
una var ljóst, að þarna hafði verið á
ferðinni maður haidinn kvalalosta á
háu stigi.
Svo virðist sem bráð hafi af mann-
inum um síðir, því um tíuleytið var
hringt á sjúkrabíl og tilkynnt, að
slösuð stúlka væri á staðnum.
Sjúkrabíll kom en fann ekki stúlk-
una. Það var ekki fyrr en um tvö
leytið um nóttina, að maður sem
hafði verið á miðnætursýningu í
Austurbæjarbíói, gekk framhjá
skúrnum í Þverholtinu og sá stúlk-
una. Hann gerði lögreglunni þegar
viðvart.
Árásarmaðurinn hefur oft áður
komið við sögu hjá lögreglunni, aðal-
lega þó fyrir auðgunarbrot. Hann
gisti fangageymsiur lögreglunnar í
ognaungum
sólarhring fyrir tæpum hálfum mán-
uði vegna líkamsárásar, og hann
hefur verið kærður fyrir að ógna
ungum stúlkum með eggvopni. Hann
er áfengissjúklingur og eiturlyfja-
sjúklingur, og hefur ekki stundað
vinnu um skeið.
Grunur féll fljótle^a á árásarmann-
inn, því hann býr náiægt staðnum,
þar sem stúlkan fannst. Þegar lög-
reglan hafði tal af manninum, var
hann undir áhrifum vímugjafa, en
játaði strax árásina á ungu stúlkuna.
Nafn árásarmannsins er Hall-
grímur Ingi Hallgrímsson. Hann er
fæddur árið 1953, með lögheimili að
Þverholti 18e. Hann hefur þó ekki
verið heimilisfastur þar heldur nán-
ast verið heimilislaus.
-ATA.
Skipverjar á togaranum Bjarna Ólafssynifrá Akranesi lyftu sér upp
um helgina ásamt mökum sínum og gistu Hótel Loftleiðir. Þar biðu
óvæntar móttöíiur því Emil hótelstjóri tíndi gestina inn einn í einu
og hratt þeim í fang víkings sem gerði sig Uklegan til að jafna um
komumenn. Höfðu gestirnir hina beztu skemmtun af tiltœkinu.
(D V mynd: G VA).
H|
Vaxandi deilur um ef nahagsaðgerðir
Brestur í ríkisstjómarsamstarfínu
MÉ
Deilur milli stjórnarflokkanna um
efnahagsaðgerðir hafa farið
harðnandi. Sumir heimildarmenn DV
í stjórnarliðinu eru svartsýnir á langa
framtíð stjórnarsamstarfsins.
Framsóknarmenn vilja efnahags-
aðgerðir um áramótin, eins og síðast.
En viðmælendur DV eru helzt á því,
að ekki náist samkomulag um ára-
mótin. Þá verði „prófraun” á
stjórnarsamstarfið í janúar eða
febrúar.
Eins og DV hefur skýrt frá spáir
Þjóðhagsstofnun 55% verðbólgu á
næsta ári. Þar er ekki gert ráð fyrir
grunnkaupshækkunum. Verðbólgan
gæti því allt eins orðið um 60%,
verði ekki gripið til róttækra aðgerða.
í tillögum framsóknarmanna er
meðal annars gert ráð fyrir skerðingu
verðbóta á laun, en alþýðubandalags-
menn standa þar fast á móti. Alþýðu-
bandalagsmenn vilja nýta það, sem
þeir telja hagnað Seðlabanka til
stuðnings atvinnuvegum og til að
draga úr þörf á gengisfellingu upp úr
áramótum.
Ýmsar tillögur eru ræddar í efna-
hagsnefnd ríkisstjórnarinnar, en ekki
samkomulag um nein aðalatriði. í
nefndinni eru: Jón Ormur Halldórs-
son, formaður, Ólafur Ragnar
Grímsson og Guðmundur G.
Þórarinsson, eins og áður hefur
komið fram í DV. -HH.