Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Page 2
2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7, DESEMBER 1981.
Nú förum við í jólaleik með lesendum okkar:
Þú ferö ílangferð meö
jólasveininum og
hittir merka menn
— og vitir þú hverjir það eru bíða þín glæsileg verðlaun
— Tvö sjónvarpsleiktæki af fullkomnustu gerð auk tíu hljómplatna
Lesendur Dagblaðsins & Vísis eiga
kost á glæsilegum jólagjöfum í ár svo
framarlega sem þeir taka þátt í jóla-
getraun blaðsins sem mun hefja
göngu sina á morgun. Allir sem þátt
taka i leiknum með okkur eiga jafnan
kost á vinningi og það ekki af lakara
taginu.
Getraunin verður skemmtilegur
leikur fyrir alla fjölskyldumeðlimi og
þess vegna höfum við einmitt valið í
fyrstu og önnur verðlaun tæki sem
öll fjölskyldan mun hafa gaman af.
Verðlaunin eru sjónvarpsleikur frá
Philips — einn fullkomnasti sjón-
varpsleikurinn sem framleiddur hefur
verið í veröldinni.
Tækið, sem við getum nefnt
tölvu, þvi það er nokkurs konar
tölva, er hægt að tengja við hvaða
litasjónvarp sem er. Tækinu er aðeins
stungið i samband i loftnetsinnstungu
sjónvarpsins og leikurinn getur
hafizt. Með tölvunni er hægt að fá 36
kassettur sem hver inniheldur 4—6
leiki.
Til að nefna einhverja leiki sem
tölvan býður upp á er golf, skák,
tuttugu og einn, keiluspil, fótbolta-
leikir, skíðaleikir, hornabolti og
margvíslegar tegundir af
orrustuleikjum auk fjölda annarra
leikja. Auk þessa alls býður tölvan
upp á þann möguleika að vera
heimilistölva. Hún getur kennt
yngstu börnum heimilisins að skrifa
og reikna. Þá geta eldri börnin einnig
æft sig, því tölvan svarar reiknings-
spurningum, hvort dæmin séu rétt
eða röng. Tölvan sú arna býður þvi
upp á ótrúlega möguleika og alltaf er
verið að framleiða fleira og fleira.
Sjónvarpsleiktækið er nefnilega ekki
eitthvað sem er sniðugt í dag og búið
á morgun.
Þeir sem þegar hafa kynnzt þessu
undratæki geta staðhæft að
fullorðna fólkið, ekki síður en
börnin, gleymir sér yfir spennunni og
ánægjunni sem fylgir leiknum. Þámá
geta þess að allt frá einum upp í fjóra
geta leikið í einu. Þetta undratæki
kostar í dag 3.536 krónur og kassettan
kostar að auki 617 krónur. Vinnings-
hafar þeir sem verða svo heppnir að
eignast tækin fá eina kassettu með og
eru því rúmlega fjögur þúsund
krónum ríkari eftir getraunina.
En hjá okkur verða ekki einungis
tveir vinningshafar því auk þessara
glæsilegu aðalvinninga bjóðum við
tíu íslenzkar hljómplötur að eigin vali
frá Sklfunni. Leikurinn okkar hefst
síðan á morgun og nú er um að gera
að vera með.
Með okkur í leiknum er góður og
þægUr jólasveinn — eins og jóla-
sveinar eiga að vera. Nú, jóla-
sveinninn fer með okkur í langferð og
heimsækir ýmsa merka menn, hvort
sem þeir eru lifandi eða hafa yfirgefið
þennan heim. En allir eiga þessir
menn það sameiginlegt að vera
lifandi í hugum okkar þannig að get-
raunin er létt fyrir okkur öll. Á
morgun lendum við hjá — Já, það
eigið þið að vita — og góða
skemmtun. -ELA
Já, það er ekki að undra að blessaður jólasveinninn stilli sér upþ. Hann á
eftir að afhenda fjölda frægra manna gjafir og á fyrir höndum langt og
strangt ferðalag og auðvitað fáum við að fylgja honum eftir. Og það er
eins gott að heltast ekki úr lestinni því þó færð þú enga gjöf.
Þetta glæsilega og vinsæla tæki,
sem býður upp á ótrúlegan fjölda
möguleika, verður verðlaun okkar
númer eitt og tvö. Slíkt tæki með
einni kassettu kostar rúmlega
fjögur þúsund krónur og allir í fjöl-
skyldunni hafa gaman af.
DV-mynd Einar Ólason
Lokað fyrír rafmagn til Fáskrúðsfjarðarhrepps vegna skulda:
SVEITARSTJÓRINN SÁST VINNA VIÐ KERTAUÓS
Starfsmenn Rafmagnsveitna rikisins
á Fáskrúðsfirði lokuðu sl. föstudag
kl. 15.30 fyrir rafmagn til bygginga
sveitarfélagsins vegna skulda. Var
lokað fyrir rafmagn til ráðhússins,
leikskólans, leiguibúða, sem eru í
byggingu, auk þess sem slökkt var á
götuljósum og lýsingu við höfnina.
Starfsmenn Rarik á Egilsstöðum
komu áðurnefndan dag i
innheimtuleiðangur á Fáskrúðsfjörð.
Ekki náðis samkomulag við sveitar-
stjórann um greiðslu skuldarinnar, sem
er samtals kr. 118.000, þar af 63.000
frá því í október og 55.000, sem féllu í
eindaga 3. desember sl.
Innheimtumenn Rarik vildu fá
ávísun fyrir allri skuldinni sem
framvísa mætti i þessari viku. En sveit-
arstjórinn bauðst til að greiða 24.000
kr. 8. desember nk. og eftirstöðvarnar
með jöfnum greiðslum 15., 22. og 29.
desember. Það tilboð gátu Rarik-menn
ekki sætt sig við og þvi var lokað fyrir
rafmagnið.
Hafa götur bæjarins verið
myrkvaðar frá því á föstudag og hálf-
skuggalegt um að litast. Sjá mátti til
sveitarstjórans vinna við kertaljós á
skrifstofu hreppsins sl. föstudags-
kvöld.
„Þetta eru alveg sérstök óliðlegheit
hjá ríkisstofnun gagnvart öðrum
opinberum aðila sem sveitarfélagið
er,” sagði Jón G. Sigurðsson sveitar-
stjóri í samtali við DV í gær. Hann
kvað hreppinn eiga í greiðsluerfiðleik-
um um þessar mundir, aðallega vegna
þess að fyrirtæki og íbúar hefðu ekki
staðið nægilega vel í skilum með út-
svar. Gerði hann ráð fyrir því að bjarga
málinu fyrir horn með því að fá lán i
banka. -KMU/Ægir, Fáskrúðsfirði.
Tveirárekstrarí
Vestmannaeyjum
Tveir árekstrar urðu í Vestmanna-
eyjum i gærdag og meiddist kona i
öðrum þeirra.
Fyrri áreksturinn varð klukkan eitt
í gærdag. Töluverðar skemmdir urðu á
Ibílum en enginn meiddist. Hálftíma
síðar varð annar árekstur á gatna-
mótum Heiðarvegar og Kirkjuvegar
Vörubíll ók í veg fyrir lítinn fólksbíl.
Fólksbíllinn skemmdist mikið og er
jafnvel talinn ónýtur. Kona sem var
farþegi í fólksbílnum, meiddist á höfði
og var flutt á sjúkrahús. Meiðslin voru
þó ekki talin alvarleg.
Sól var lágt á lofti er óhöppin urðu
og launhált á götum í Vestmanna-
eyjum.
-ATA
Eldur íHátúni 10A
Slökkviliðinu var tilkynnt um eld í
húsi Öryrkjabandalagsins að Hátúni
lOa um átta leytið í gærmorgun. Mikill
reykur kom út úr íbúð á þriðju hæð er
slökkviliðið kom á vettvang, en í
íbúðinni býr kona á níræðisaldri.
Kviknað hafði í rúmi konunnar og
skáp sem var í svefnherberginu. Konan
vaknaði við reyk í íbúðinni en áttaði sig
ekki strax á þvi hvað væri að gerast. Er
slökkviliðið kom á vettvang opnaði
konan fyrir slökkviliðsmönnunum sem
siökktu eldinn á skömmum tínia.
Gamla konan var flutt á slysadeild
til rannsóknar, en henni mun ekki hafa
orðið meint af. íbúðin er töluvert
skemmd.ekki sízt af reyk og vatni.
-ATA
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Pétur Maact^tomit I feítt.
Pétur og
vínarbrauóió
F.kki hefur gengíð and-
skotalaust hjá Pétri Maack að
verða sér úli um vígslu. Hann
sótti á sínum tíma um Laugar-
nessókn en varð þá að lúta i
lægra haldi fyrir Jóni Dalbú
Hróbjartssyni i afar jafnri
kosningu.
Nú stendur tii að Pétur
verði vigður, sem prestur hjá
SÁÁ. Til þessa hafa menn
ekki verið vtgðir fyrr en þeir
! hafa orðið sér úti um presla-
kall. Sagan segir að Pétur hafi
verið inntur eftir því hvort
ekki væri slæmt að hafa
ekkert brauð loks þegar hann
væri orðinn þjónandi guðs
maður. Fannst Pétri það < kki
vera neitt tiltökumál þv< nóg
væri af vínarbrauði í þessum
söfnuði.
•
Glösin úr
Manhattan yfir
í Broadway
Fínu glösin þeirra í Broad-
way hafa orðið að umræðu-
efni hér í Sandkorni og þá
með tilliti til tilhneigingar
þeirra til að brotna við það
eitt að vera skellt léttilega
niður á barborðið.
Við höfum aflur á móti
heyrt því fleygt að glösin
glæsilegu hafi upphaflega átt
aö vera í Manhattan. Af ein-
hverjum ástæðum hafi það
dregizt að koma þeim i hús en
síöan, þegar eigendur
staðarins fóru við opnum
Broadway, hafi þeim brugðið
illilega í brún. Sömu hönnuöir
eru að báðum veitingastööun-
um.
Gullöld
gluggagægjanna
Gullöld gluggagægjanna á
Akranesi er runnin upp.
Féiagar i einum samtökum
þar í öæ gengust fyrir
skömmu fyrir sölu á limmiö-
um, sem ætlunin var að fólk
límdi á rúðurnar í öllum
svefnherbergisgluggum híbýla
sinna. Eiga þessir limmiðar að
hjálpa slökkviliöinu þar í bæ
viö að finna sofandi ibúa ef
bruna ber að höndum. I.ím-
miöurnir gera meira en bcnda
slökkviliðsmönnum í skyldu-
störfum á hvar sofandi fólk er
að finna. Þeir vísa nefnilega
gluggagægjum bæjarins á þá
staði sem vænlegastir þykja
til árangurs.
Enginn kannast
við minnkandi
aðsókn
Og áfram með skemmti-
staðina. Við sögðum frá því
hér í Sandkorni fyrir helgina
að likast til yrði einhver
skemmtistaðanna að láta i
minni pokann með tilkomu
Broadway, sem hýsir um 1500
manns þegar bezt lætur. Voru
þar einkum nefndir staðir eins
og Þórscafé, Hótel Saga ojf
Manhattan. Eigendur síðast-
nefnda staðarins vilja ekki
kannast við að aðsókn hjá
þeim hafi minnkað þannig að
e.t.v. veröur Broadway aðeins
viðbót við skemmtanalif
borgarbúa cins og-við gátum
okkur til í sömu umfjöllun.
•
Dallas á ekki
að heita Dallas
Nýja kvikmyndahúsið í
Mjóddinni, sem Árni
Samúelsson i Keflavík er að
reisa, tekur væntanlega til
starfa í marzbyrjun á næsta
ári. Til þessa hefur nafnið
Dallas festst við sfaöinn og
mörgum þótl það miður
gæfulegt nafn.
í samtali við Árna staðfesti
hann að kvikmyndahúsiö ætti
alls ekki að heita Dallas. Þaö
nafn hefði fæðzt ásaml
mörgum öðrum og einhverra
hluta vegna hefði það skotiö
rótum. Ekki vildi Árni gefa
það upp að svo stöddu hvaða
nafn bíóinu væri ætlaö, en
það gæti allt eins orðið eitt-
hvað rammíslenzkt.
Svlpmynd frá Hafrwflrðí? N«i, «n
g»ti þó aRt ain» étt viö þar.
Staðið fast
í báða fætur
Hafnarfjarðarbrandararnír
hafa einhverra hluta vegna
ekki farið hátt undanfariö.
Tæpast er skýringin sú að
gáfnafariö i þeim bæ hafi
breytzt eitthvað til betri vegar
en liklegra að brandarasmið-
irnir hafi farið i velrarorlof.
Við rákumst þó á einn nýjan.
Veiztu af hverju Hafnfirð-
ingar standa alltaf fast i báða
fætur þegar þeír tala í sim-
ann? Skrefatalningin maður,
skrefatalningin.