Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Qupperneq 4
4
Undirbúningur sveitarsf jómarkosninganna í vor:
Forkosningar í stað
prófkjöra víða um land
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981.
Prófkjör flokka og framboðshópa
vegna sveitarstjórnarkosninganna
næsta vor eru nú að taka á sig mynd
eiginlegra forkosninga víða um land.
Forkosningar, sem sumir kalla enn
sameiginleg prófkjör, eru nú á dagskrá
meðal annars í Kópavogi, á Akureyri,
Akranesi og ísafirði.
í þessum forkosningum verður,
væntanlega á einum degi, kosið ná-
kvæmlega á sama hátt og í hinum
eiginlegu sveitarstjórnarkosningum, á
sömu kjörstöðum og eftir sömu
kjörskrá. En í forkosningunum er hins
vegar raðað persónum á væntanlega
framboðslista.
Þess konar sameiginlegt prófkjör
kemur að sjálfsögðu í veg fyrir umtals-
verð óeðlileg áhrif á röðun á hvern lista
og gerir alls óþarft að binda prófkjör
við flokksmenn, auk þess að það gefur
verulega vísbendingu um fylgi hvers
framboðslista.
Forkosningar vegna sveitarstjórnar-
kosninga hér á landi eiga upptök sín í
Kópavogi, en þar var sameiginlegt
prófkjör fimm flokka 1970. „Það tókst
vel, " sagði upphafsmaður for-
kosninganna þar, Guðmundur Gíslason
bókbindari, þegar DV grennslaðist
fyrir um þetta mál. Guðmundur hefur
verið í forystusveit sjálfstæðismanna í
Kópavogi um langt árabil. Og for-
kosningabylgjan nú átti einnig upptök
sín þar, þegar Axel Jónsson fyrrver-
andi alþingismaður vakti hugmyndina
að nýju í byrjun október.
„Axel flutti tillögu um þetta á fundi
fulltrúaráðs sjálfstæði'sfélaganna hér 8.
október og hún var samþykkt
einróma,” sagði Richard Björgvinsson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi. „Það var samþykkt að
bjóða hinum stjórnmálaflokkunum til
viðræðna um forkosningar og þær
viðræður eru mjög jákvæðar. Síðan
hafa sjálfstæðismenn í nokkrum
öðrum kaupstöðum óskað eftir því að
við sendum þeim reglurnar frá 1970
sem við höfum gert. Á þessu er
greinilega verulegur og ört - vaxandi
áhugi,” sagði Richard, „enda er þetta
fyrirkomulag augljós ávinningur fyrir
kjósendur og frambjóðendur.”-HERB.
Alexander Alexandersson, bæjarfulltrúi Borgaralistans í Kópavogi:
„KÆRUM OKKURINN
EF MED ÞARF’
„Okkur hefur ekki verið boðin
þálttaka í forkosningunum, sem nú
er rætt um hér í Kópavogi, en við
kærum okkur inn ef með þarf,”
sagði Alexander Alexandersson,
bæjarfulltrúi Borgaralistans, í
samtali við DV.
„Framboð Borgaralistans hefur
ekki verið ákveðið og við ákveðum
okkur ekki til né frá fyrr en í janúar.
En það er alveg Ijóst að það er
klaufaskapur Sjálfstæðisflokksins og
hinna flokkanna að bjóða okkur ekki
til viðræðna um forkosningarnar.
Þeir ganga fram hjá tveimur núver-
andi öflum í bæjarstjórn, okkur og
sjálfstæðisfólki.”
Er ekki Ijóst hvort Borgaralistinn
verður aftur í boði? „Nei, við
göngum frá okkar málum í janúar,”
sagði Alexander. —HERB.
Guðni Stefánsson, bæjarfulltrúi sjálfstæðisfólks í Kópavogi:
„Fer í prófkjör hjá
Sjálfstæðisflokkiium”
„Það hefur engin rödd komið upp
um það að við bjóðum fram aftur
sérstakan lista í vor og ég mun verða
með í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins,
væntanlega í forkosningum hér í lok
febrúar,” sagði Guðni Stefánsson,
bæjarfulltrúi sjálfstæðisfólks í Kópa-
vogi, sem varð annar listi Sjálfstæðis-
flokksins í siðustu kosningum þar
vegna óánægju með tilhögun á
skipan framboðslista flokksins.
„Okkar listi var skipaður nærri
eingöngu fólki sem var og er í
fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins hér í
Kópavogi og ég reikna ekki með því
ástandi aftur sem kom upp á sinum
tima. S-listinn er því liðinn undir lok,
eins og málin standa nú, nema að
hann lýkur auðvitað sínu hlutverki
með eðlilegum hætti í bæjarstjórn,”
sagði Guðni Stefánsson. -HERB.
Frá einu atríði sýningar bandaríska leikhópsins sem sýnir i Alþýðuleikhúsinu
(Hafnarbíói) i kvöld. Hér verður aðeins um eina sýningu að ræða.
GÓÐIR GESTIR í
ALÞÝÐULEIKHÚSINU
Alþýðuleikhúsið á von á góðum
gestum núna. Það er brezk-bandaríski
leikhópurinn „Theater of all
possibilities”, sem ætlar að hafa hér
stutta viðkomu á leið sinni til Banda-
ríkjanna. Leikhópur þessi var
stofnaður 1%7 í Santa Fe í Banda-
ríkjunum og hefur leikið óslitið síðan
og ferðazt víða um heim. Þetta er þó í
fyrsta sinn sem hann gistir ísland. Um
allan heim eru starfandi sjálfstæðir
leikhópar á borð við Theater of all
possibilities en fjárhagsstaða flestra
þeirra er þó þannig að lítill kostur er á
ferðalögum um heiminn. Þar af
leiðandi heyrir það til algjörra undan-
tekninga að við hér á Fróni fáum
augum barið slíka hópa erlendis frá.
Leikritið, sem „Theater of all
possibilities” sýnir i Hafnarbíói í kvöld
kl. 20.30 nefnist „The tin can man” og
fjallar á spaugsaman hátt um hina yfir-
vofandi hættu á útrýmingu vitsmuna-
verunnar „homo sapiens”. Leikurinn
er kryddaður með dansi, söng og
hljóðfæraslætti. Fólk ætti því ekki að
láta smávegis tungumálaörðugleika
hindra sig í því að fara og njóta
einstæðrar skemmtunar. Aðeins verður
um þessa einu sýningu að ræða.
ELDURIBILSKUR
Eldur kom upp i bílskúr i Garðabæ
aðfaranótt laugardagsins. Bílskúrinn
skemmdist mikið og sperrur sviðnuðu í
ibúðarhúsi sem er áfast bílskúrnum.
Það var um klukkan fjögur aðfara-
nótt laugardagsins að slökkvilið
Hafnarfjarðar var kallað út vegna elds
sem komið hafði upp í bílskúr við
Faxatún í Garðabæ. Slökkvistarf gekk
ágætlega en bílskúrinn brann mikið að
innan en er þó uppistandandi. Eldur
komst ekki í samliggjandi ibúðarhús en
það sviðnaði nokkuð við brunann, eins
og áður er sagt.
Eldsupptök eru ókunn.
-ATA.
Svarthöfði Svarthöfði Svarthöfði Svarthöfði
Framsókn hallar sér að banameininu
Um þessar mundir mun
Alþýöubandalagiö vera að þreifa
fyrir sér hjá Framsókn um
sameiginlegl framboð í sveitar-
stjórnarkosningum, þar sem Sjálf-
stæöisfiokkurinn er í meirihluta, ef
það mætti verða til þess að efla
siguriikur í komandi kosningum.
Þessi málaieitan segir í raun meira um
ástandiö í Framsóknarflokknum en
langar útskýringar. Framsókn hefur
tengst Alþýðubandalaginu meira á
undanförnum árum en hæfilegt er
fyrir flokk, sem telur sig sjálfráðan
um sína hagi, og Ijóst er að
fjölmargir a í frammámönnum
Framsóknar, einkum i röðum yngri
manna, hafa ruglast eitthvað á
pólitíska sviðinu og halda að langvar-
andi samstarf Framsóknar við
Alþýöuhandalagiö sé eins konar yfir-
lýsing um, að sameining í framboðum
sé af hinu góða fyrir flokkinn.
Löngum hefur verið vitaö, að
stórir hópar í Framsókn hafa alltaf
verið reiðubúnir að yfirgefa flokkinn
í kosningum og kjósa Alþýðubanda-
lagið, hafi skrefið ekki verið sligið til
fulls og myndaður flokkur með
þreifiliði frá Alþýðubandalaginu. Af
þeim sökum var Þjóðvarnar-
flokkurinn stofnaður, en ýmsir af-
komendur þeirra, sem sneru aftur til
Framsóknar úr Þjóðvarnar-
flokknum, halda nú að per-
sónulegum metnaði þeirra verði best
borgið í samstarfi við Alþýöuhanda-
lagið. Seinna voru Samtök frjáls-
lyndra og vinslri manna stofnuð og
gekk einhver hluti Framsóknar-
manna yfir í Alþýöuhandalagiö í
gegnum Samtökin. Þetta sýnir
raunar, að forustulið Framsóknar
hefur um skeið verið ófært um að
halda úti flokki, eða veila honum þá
forustu, sem það er skyldugt til.
Kjörorðið: Allt er betra en íhaldið
hefur gert Framsókn að
agentastassjón fyrir kommúnista,
enda mun væntanlega koma i Ijós, að
þeim finnst ekki tiltökumál að bjóða
fram sameiginlega lista með
Alþýðubandalaginu í sveilarstjórnar-
kosningunum.
Fyrir utan fyrrgreint kjörorð, sem
varð til á dögum, þegar lítil sem engin
kommúnistahreyfing var starfandi í
landinu, hefur Timinn, málgagn
Framsóknar, hagað pólitiskum
skrifum sínum í fjörutiu ár þannig,
að mcðlimir Framsóknarflokksins
litu á það sem Ijúfa skyldu að ganga
Þjóövörn á hönd á sínum tíma og
síðan Samtökunum með þeim af-
leiðingum, að stór hluti fyrri
Framsóknarmanna endaði í Alþýöu-
bandalaginu. Forustu fyrir þessum
skrifum hefur Þórarinn Þórarinsson
haft, og er stundum engu líkara en
hann vilji sjá á eftir öllum
Framsóknarflokknum inn i
Alþýöubandalagiö. Engan annan
stjórnmálarilstjóra virðist Framsókn
geta notað og er það næg yfirlýsing
um hvert forustulið flokksins stefnir.
Þrálát heimboð til Búlgaríu og
Austur-Þýskalands sýna
vináttutengsl, sem varla eru sæmandi
borgaralegum flokki, einkum á
timum, þegar njósnir kommúnista á
Norðurlöndum eru öllum Ijósar. í
. Búlgaríu ríkir ástand, sem sýnir
Framsóknarmönnum framtíð
flokksins í hnotskurn, en þar fær
lítill bændaflokkur og áhrifalaus að
sitja i stjóm með kommúnistum af
tækniástæðum. Af þessu fyrir-
komulagi eru Framsóknarmenn mjög
hrifnir.
Enginn flokkur mun eins
samþykkur banameini sínu og
Framsókn, fyrst svo er komið að hún
leilar samvinnu við Alþýöubanda-
lagið á einstöku stöðum i sveitar-
stjórnarkosningum. Þessu bana-
meini fylgir auðvitað, að Framsókn
afhendir völd og álirif i sam-
vinnuhreyfingunni á silfurfati, enda
til lítils að berjast því allaballar hafa
þegar hótað að hirða
samvinnuhreyfinguna i gegnum
deildir kaupfélaganna. Með þessari
samvinnu vill Framsókn kaupa sér
valdaaðstöðu frá degi til dags, en hún
hugsar minna um skyldur sínar við
borgaraleg öfl i landinu.
Svarthöfði.