Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
' :
■ \j b y i
Herinn saknar
Franco-ein-
ræðisins
Yfirstjórn spánska hersins hefur
fordæmt yfir.ýsingu undirritaða af um
100 lágtsettum foringjum, þar sem
þeir gagnrýna ríkisstjórniria og fjöl-
miðla fyrir meðferðina á hernum.
Herstjórnin segir yfirlýsinguna
brjóta i bága við bæði stjórnarskrána
og reglur hersins, en í yfirlýsingunni
hafði verið látin í ljós samúð með for-
ingjum valdaránstilraunarinnar (í
febrúar).
f yfirlýsingu sinni veitast
foringjarnir (sem raunar eru ekki allir
starfandi) að pólitískum afskiptum af
málefnum hersins.
Birtingu yfirlýsingarinnar er valinn
tími einmitt, þegar standa yfir hátíðar-
höld vegna hinna lýðræðislegu
stjórnarskrár, sem Spánn fékk 1978
eftir einveldi Francos.
Ætla að halda vörð um mót-
mælagöngur sínar 17.desember
Eining, hin óháðu verkalýðssamtök
Póllands, láta árásir yfirvalda sem vind
um eyrun þjóta og skora á verkamenn
að fjölmenna i mótmælagöngur 17.
desember. Lofa samtökin að
skipuleggja varöhöld til þess að vemda
göngumenn.
Foringjar Varsjárdeildarinnar
boðuðu til mótmælaaðgerða til þess aö
anHmflpln hvl. flö nfheldi sé heitt til bess
að leysa úr deilum. Hvetja þeir Eining-
armenn um allt land að efna sömuleiðis
til mótmæla á sama tíma á sama degi.
Samtimis birti sjónvarpið f Póllandi
n«ia fnrdæmnineu á samtökin bar sem
talsmaður stjórnarinnar sakaði
leiötoga verkalýðshreyfingarinnar um
að stefna ódulið í fullkominn fjand-
skap við kommúnistaflokkinn.
Siðasta föstudag lýstu helstu'
leiðtogar Einingar þvi yfir, að efnt yröi
til allsherjarverkfalls, ef stjórnvöld
reyndu að banna skæruverkföll ein-
stakra félagsdeilda.
• 4 hjóla drif
# Fjórsídrif
# 4. cyl. 86 ha.
• Hátt og lágt drif
# 16" felgur
• Afturrúðuþurrka
# Þriggja dyra
# Lituð framrúða
# Hituðafturrúða
# Hliðarlistar
# Vindskeið
# Sílslistar
Verð aðeins kr.
111,600,-
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf
Suðurlandsbraut 14 — Reykjavík — Simi 38600
Yoko Ono og John Lennon.
Eitt ár er liðið á morgun frá því, að
bitillinn John Lennon féll frá, en í til-
efni af því hefur Yoko Ono, ekkja
hans, gert opinbert, hvernig líknar-
sjóði hans, „The Spirit Foundation”.
hefur verið ráðstafað.
Sjóðnum bárust gjafir samtals um
285 þúsund dollarar á siðasta ári. Gaf
hann hverjum hinna átta barnavina-
félaga New York 20 þúsund dollara,
fíkniefnahjálp og spítölum. Fjögur
samtök hlutu 40 þúsund dollara og
afvopnunarsamtök hlutu 50 þúsund
dollara. Meðal þeirra sem þágu fram-
iög úr sjóðnum voru Amnesty Inter-
national og Hjálpræðisherinn.
Lennon var skotinn til bana fyrir
utan heimili sitt í New York 8.
desember. Morðinginn, Mark Chap-
man, hefur verið dæmdur í 20 ára fang-
eisi fyrirmorðið.
Til minningar
um Lennon
1/2 metra
djúpur
snjór
Blindbylur gekk yfir Nýja Eng-
land á austurströnd Bandaríkjanna
i gær. Veðurs og snjóþyngsla
vegna, varð að loka alþjóðafiug-
vellinum i Boston og aflýsa jóla-
skemmtunum, sem fyrirhugaðar
voru fyrir hátiðar.
Veðurhamurinn var slíkur, að
rafmagnsstaurar brotnuðu, en
veðurstofan hafði einungis spáð
minniháttar snjókomu og roki. — í
Maine var 15 cm djúpur snjór, en í
úthverfum Böston allt upp í 60 cm
djúpur.
■<T
Smurbrauðstofan
BJDRNINN
Njúlsgötu 49 — Simi 15105