Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Síða 21
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981.
21
Allt um
íþróttir
helgarinnar J
Heimsmeistarakeppnin í Portúgal:
Islenzku strákamir kom-
ust f átta-liða úrslitin
—en steinlágu fyrir sovézku heimsmeisturunum, 23-12, í gærkvöld
„Við áttum ekkert svar við stórieik
sovézku heimsmeistaranna. Þeir
kaffærðu okkur strax i byrjun. Staðan
í hálfleik 10—3 og unnu með 23—12.
Ég tel að lið þeirra sé í sérflokki hér i
heimsmeistarakeppninni og mun betra
en þegar það varð heimsmeistari i Dan-
mörku fyrir þremur árum. Leikmenn
liðsins mjög hávaxnir og með þrumu-
góðan markvörð. Það hafði yfirburði
gegn okkur allan leikinn,” sagði Ólafur
Aðalsteinn Jónsson fararstjóri i samtali
í gærkvöld. En ísland er komið i úrslit i
keppninni eftir sigra á Portúgal og Hol-
landi. í úrslitakeppninni leikur Island
við Sviþjóð og Frakkland i B-riðlinum
og þar eru Sovétríkin einnig. Leikurinn
í gærkvöld við Sovétrikin telur i úrslita-
keppninni. Frakkar komust i úrslita-
keppnina á betri markamun en Vestur-
Þjóðverjar. Þar munaði einu marki. f
A-riðlinum leika Júgóslavía, Austur-
Þýzkaland, Danmörk og Tékkó-
slóvakia. Danir tryggðu sér rétt í
úrslitakeppnina i gær með 18—15 sigri
á Tékkum eftir að hafa tapað 20—19
fyrir Spáni
Sovézku risarnir fóru rólega af stað í
keppninni. Geymdu nokkra af sinum
sterkustu leikmönnum í fyrsta leiknum
við Holland. Sigruðu aðeins með eins
marks mun, 22—21. Þeir settu siðan
allt á fullt gegn Portúgölum og unnu
40—11. Sama var uppi á teningnum í
gær gegn fslandi. Sverrir Kristinsson
var í marki og stóð sig með ágætum.
Varði 14 skot i leiknum, þar af 2 víta-
köst. Vörn ísl. liðsins var nokkuð góð
en sóknarleikurinn alveg i molum.
SÉRÞÆTTIR UM
ÍSL. LEIKMENNINA
Knattspyrnublaðið fræga „Kickers”
tilkynnti i siðustu viku að það mundi á
næstunni verða með sérþætti um
islenzku knattspyrnumennina sem leika
í Bundesligunni. Þesss var sérstaklega
getið i fyrirsögn i blaðinu og fyrsta
greinin verður f blaðinu, sem kemur út í
dag. Það hefur þótt tíðindum sæta hér í
Þýzkalandi hve margir fslendingar
leika í Bundesligunni — frá svo
fámennri þjóð.
-Viggó
Eðvarð og Guðrún
Fema með 14 met!
—á Noröurlandamóti unglinga fsundi íDanmörku
Sundkappinn ungi úr Njarðvík,
Eðvarð Þ. Eðvarðsson náði frá-
bærum árangri á Norðurlandamóti
unglinga i sundi sem haldið var í
Danmörku um heigina. Hann setti
þar samtals 10 íslandsmet þar af tvö
i karlaflokki.
Annað var í 100 metra baksundi en
þar synti hann á 1:02,4 mín., sem er 6
sekúndubrotum betra en íslandsmet
Inga Þórs Jónssonar, sem hann jafn-
aði á bikarsundinu í Vestmanna-
eyjum helgina þar áður. Millitími
Eðvarðs í 50 metrunum var 29,6 sek,
en það er bæði nýtt pilta og drengja-
met og 100 metrarnir voru að sjálf-
sögðu líka nýtt pilta- og drengjamet.
Eðvarð varð í 5. sæti í þessu sundi
en sundið vannst á 1:01,19 mín.
Hann varð svo í 4. sæti 200 metra
baksundi á 2:14,06 sem er íslands-
met karla og pilta og drengjamet. Þá
varð hann í 7. sæti í 200 metra fjór-
sundi á 2:19,79 mín, sem er bæði
nýtt piltamet og drengjamet.
Eðvarð var ekki sá eini sem setti
íslandsmet á þessu móti. Guðrún
Fema Ágústsdóttir, Ægi, setti
íslandsmet kvenna og þá um leið
telpna og stúlknamet í 100 metra,
bringusundi í gær — synti á 1:17,16
mín og varði 6. sæti af 9 keppendum.
í 200 metra bringusundi varð hún f 8.
sæti á 2:47,08 mín sem er telpnamet
og einnig í 8. sæti í 200 metra fjór-
sundi, þar sem hún fékk tímann
2:39,0 mín.
Árni Sigurðsson frá Vestmanna-
eyjum keppti í þrem greinum og stóð
sig vel. Hann synti 100 metra bringu-
sund á 1:11,44 mín, 200 metra
bringusund á 2:39,06 mín og 200
metra fjórsund á2:24,88 mín.
Árni var elztur af íslenzku kepp-
endunum, en þau Guðrún og Eðvarð
eru aðeins 14 ára og eiga því tvö ár
eftir enn í unglingaflokki. Árangur
þeirra á þessu móti er enn athyglis-
verðari þegar þess er gætt að keppi-
nautar þeirra á mótinu eru nær
undantekningalaust tveim árum eldri
en þau.
-klp-
Aðeins 30% sóknarnýting. Páll Olafs-
son skoraði 3 mörk, Kristján Arason
einnig, öll úr vítum. Brynjar Harðar-
son, Guðmundur Guðmundsson,
Gunnar Gíslason, Dagur Jónasson,
Erlendur Davíðsson og Heimir Karls-
son skoruðu eitt mark hver. 10—3 i
hálfleik eins og áður segir og um tíma
ellefu marka munur, 19—8. En Ólafur
hafði annað að segja um fyrri leiki
íslands.
„Ég hef aldrei verið viðstaddur eins
spennandi leik, vissi hvorki hvort ég
átti að sitja eða standa. Lengstum leit
út fyrir sigur Hollands en með miklu
harðfylgi tókst islenzku strákunum að
snúa leiknum sér í hag og sigra.
Naumara gat það þó varla verið.
Kristján Arason skoraði sigurmarkið
úr vitakasti á siðustu sekúndu leiksins,
18—17. Með þessum sigri tryggði
Ísland sér rétt í 8-liða úrslit í þessari
heimsmeistarakeppni pilta, leikmenn
21 árs og yngri,” sagði Ólafur Aðal-
steinn, eftir leik islands og Hollar 5 í
C-riðlinum á laugardag.
Þrátt fyrir spennuna var leikurinn
ekki góður af íslands hálfu. Mikil
taugaspenna og hún var einnig til
staðar hjá Hollendingum. Þeir virtust
þó lengi vel stefna í öruggan sigur.
Staðan f hálfleik 8—6 fyrir Holland og
hollenzka liðið hafði fjögurra marka
forustu, þegar tíu mín. voru til leiks-
loka. 16—12. Þegar aðeins þrjár mín.
voru eftir var Holland enn yfir, 17—
15,. en íslenzku strákunum tókst að
skora þrjú siðustu mörk leiksins og
tryggja sér sigur. Naumara gat það þó
ekki verið.
Kristján Arason — skoraði 10 mörk
gegn Hollandi.
Mörk íslands í leiknum skoruðu
Kristján Arason 10 þar af sjö úr vita-
köstum. Brynjar Harðarson og Gunnar
Gislason skoruðu 3 mörk hvor og Guð-
mundur Guðmundsson 2.
Á föstudagskvöld léku Portúgal og
Ísland fyrsta leikinn i C-riðlinum.
ísland sigraði með sex marka mun,
31—25 og átti í miklu meiri vandræð-
um með lið Portúgal en reiknað hafði
verið með. Portúgal yfir i hálfleik 13—
12. í s.h. tókst íslenzka liðinu að snúa
leiknum sé í hag og sigra.
Mörk íslands í leiknum skoruðu
Þorgils Óttar Mathiesen 7, Kristján
Arason 6/4, Brynjar, Guðmundur,
Gunnar og Páll Ólafsson 4 hver. Val-
garðurValgarðssontvö. -hsím.
Sævar hjá
FC Brugge
Sævar Jónsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu úr Val, er kominn til
Belgiu, en þar mun hann æfa með 1.
deildarliðinu FC Brugge næstu daga.
Sævar hefur mikinn hug á að komast í
atvinnumennskuna og ef vel tekst til
hjá honum í þetta sinn á hann góða
möguleika á að ná samningi við
Brugge, sem er á höttunum eftir sterk-
um varnarmönnum.
Ellert áf ram,
formaður KSI
— Einróma kjörinn á ársþinginu ígær
Ellert B. Schram var í gær einróma
endurkjörinn formaður Knattspyrnu-
Stjórn KSÍ. Efri röð frá vinstri. Gunnar Steinn Pálsson, GylB Þórðarson, Jóhann
Ólafsson, Rafn Hjaltalin, Þór Simon Ragnarsson, Sveinn Sveinsson, Kristján Jónas-
son, Guðmundur Bjarnason og Helgi Þorvaldsson. Fremri röð. Helgi Danielsson,
Gunnar Sigurðsson, Ellert Schram,
Friðjónsson.
formaður, Árni Þorgrimsson og Friðjón
DV-mynd Bjarnleifur.
sambands íslands á ársþingi KSÍ, sem
háð var um helgina og lauk i gærkvöld.
Ellert hcfur verið formaður KSÍ frá
1973. Friðjón Friðjónsson gjaldkeri
skýrði reikninga á þinginu. Rekstrar-
hagnaður var 206.507.63 krónur á
árinu.
, í stjórnarkjöri tíl næstu tvcggja ára
voru kjörnir i aðalstjórn Gylfi Þórðar-
son (151 atkv.), Helgi Þorvaldsson
(142) og Gunnar Sigurðsson (130).
Þeir Helgi og Gunnar cru nýir menn i
aðalstjórn KSÍ. Jens Sumarliðason,
varaformaður KSÍ um langt árabil, gaf
ekki kost á sér til endurkjörs. Voru
honum þökkuð frábær störf og
hann sæmdur heiðursmerki KSÍ.
Þrír menn voru kjörnir i varastjórn.
Kosningu hlutu Þór Símon Ragnarsson
(126 atk.), Gunnar Steinn Pálsson og
Sveinn Sveinsson. Þeir hlulu 121
atkvæði hvor. Stefán Gunnlaugsson,
Akureyri, var einnig í kjöri og hlaut 97
atkvæði. Fyrir i aðalstjórn KSÍ eru
Árni Þorgrímsson, Friðjón Friðjóns-
son og Helgi Daníelsson. Fulltrúar
landsfjórðunganna voru endurkjörnir.
Fjölmargar tillögur voru samþykktar
á þinginu. Hvað merkilegast er, að
næsta sumar verður keppt i 4. deild.
Skipað þar í riðla eftir landsvæðum.
Þriðja deild næsta surnar skipuð 16
liðum í tveimur riðlum, suð-vestur-
landsriðli, og norð-austurlandsriðsli.
Tvö lið falla niður í 4. deild. Vegna
þrengsla í blaðinu í dag verður nánari
frásögn af þinginu að bíða. -hsím