Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Side 28
28
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 1981.
fþróttir íþróttir iþróttir íþróttir
..Setjum nú stefnuna á
meistaratitilinn”
—sagði David Armstrong, sem skoraði sigurmark Southampton gegn Man. Utd.
„Þetta hefur verið frábær vika hjá
okkur leikmönnum Southampton.
Fyrst sigur á Liverpool og i dag á Man.
Utd. Viö setjum nú stefnuna á
meistaralitilinn”, sagöi David Arm-
strong, þybbni, sköllótti leikmaöurinn,
sem Dýrlingarnir keyptu frá Middies-
brough i sumar, við fréttamann BBC á
laugardag eftir að Dýrlingarnir höföu
sigrað Man. Utd. 3—2 í spennandi
leik. Armstrong skoraði sigurmark
Dýrlinganna á lokamínútu leiksins. Við
sigurinn komst Southampton i þriðja
sæti og er aðeins tveimur stigum á
eftir efstu liðunum, Man. Utd. og
Ipswich. Þau hafa 32 stig. Ipswich
sigraði bofnlið Middlesbrough á úti-
velli þó sex af aðalmönnum liðsins
gætu ekki tekið þátt i leiknum vegna
meiðsla. Staða Middlesbrough er mjög
slæm og fréttamenn BBC sögðu að
það mundi litlu breyla þó George Besl
kæmi lil félagsins. Middlesbrough-
liðið, sem Lárus Guömundsson, mið-
herji Vikings, var að spá i að fara til er
mjög slakt.
En snúum okkur aftur að aðalleik
dagsins í ensku knattspyrnunni á
laugardag, leik Southampton og Man.
Utd. Manchester-liðið byrjaði betur og
snemma leiks skoraði Frank Stapleton
fyrir það. 11. mark hans á leiktímabil-
inu. Eftir markið kom nokkur deyfð i
leikinn en síðan náðu Dýrlingarnir sér
vel á strik. Steve Moran jafnaði á 32.
mín. eftir undirbúning Kevin Keegan
og á 41. mín. náðu þeir forustu með
marki Keegans. Moran sá þá um undir-
búninginn en mikil mistök áttu sér þó
stað í vörn United. Gordon McQueen
hélt þar stöðu sinni sem miðvörður þó
fyrirliði United, Martin Buchan, hefði
náð sér eftir meiðsli. Frank McLintock,
fréttamaður BBC, taldi þó að Dýrling-
arnir hefðu verið heppnir að hafa
forustu í hálfleik.
Man. Utd. jafnaði á 51. mín. Wald-
ron greip í Birtles, sem var að komast í
gegn og dæmd var aukaspyrna rétt við
vítateiginn. Ray Wilkins, sem átti frá-
bæran leik í liði United, tók spyrnuna.
Spyrnti knettinum á fjærstöngina á
hinn hávaxna McQueen, sem skallaði
til Bryan Robson. Vörn Dýrlinganna
átti ekkert svar og Robson skoraði.
Unii, d hafði um tíma undirtökin en
síðan ióru Dýrlingarnir, að koma
meira inn í myndina, drifnir áfram af
Alan Ball, sem aldrei gefst upp þó
hann sé orðinn 36 ára. Sóknarþunginn
var miklu meiri hjá Southampton.
Keegan skoraði gull af marki, spyrnti
knettinum aftur fyrir sig í markið. En
linuvörður hafði veifað. Armstrong
rangstæður rétt áður. Leikmenn Uni-
ted voru þó hættulegir í skyndisóknum.
Birtles komst einn frír að marki. Tókst
ekki að skora. Það virtist stefna í jafn-
tefli en á lokamínútunni sýndi Mike
Channon mikið harðfylgi. Náði
knettinum að þvi er virtist í vonlausri
stöðu. Gaf fyrir og Armstrong skoraði.
Gífurlegur fögnuður á áhorfendasvæð-
unum. Mesti fjöldi þar á leiktímabil-
inu, 24.404. Slæmt tap fyrir Man. Utd,
sem heldur þó efsta sætinu á betri
markatölu en Ipswich., Hefur hins
vegar leikið tveimur leikjum meira.
Liðin voru þannig skipuð. South-
ampton. Katalinic, Golac, Nicholl,
Waldron, Holmes, Ball, Armstrong,
Williams, Moran, Keegan og Channon.
Man. Ut. Roche, Gidman, Kevin
Moran, McQueen, Albiston, Wilkins,
Robson, Moses, Mcllroy, Stapleton og
Birtles- Lou Macari var varamaður en
kom ekki inrtá. Roche hefur nú fengið
á sig sex mörk i tveimur útileikjum.
Leikur i stað Gary Bailey, sem fingur-
brotnaði á inniæringu fyrir nokkrum
vikum.
En lítum þá á úrslitin um helgina.
I. deild
Birmingham—Notts Co. 2—1
Brighton—Sunderland 2—1
Everton—Swansea 3—1
Man. City—Aston Villa 1—0
Middlesbro—Ipswich 0—1
Nottm. For—Liverpool 0—2
Southampton—Man. Utd. 3—2
Stoke—Leeds 1—2
Tottenham—Coventry 1—2
WBA—Wolves 3—0
West Ham—Arsenal 1—2
2. deild
Barnsley—C. Palace 2—0
Bolton—QPR 1—0
Cambridge—Wrexham 2—3
Chelsea—Sheff. Wed. 2—1
Cardiff—Derby 1—0
Newcastle—Blackburn 0—0
Norwich—Leicester 0—0
Oldham—Grimsby 3—1
Rotherham—Orient 1—0
Shrewsbury—Luton 2—2
Watford—Charlton 2—2
3. deild
Bristol Rov—Fulham 1—2
Burnley—Oxford 2—1
Chester—Southend 1—1
Doncaster—Portsmouth 0—0
Exeter—Chesterfield 0—3
Gillingham—Walsall 1—4
Huddersfield—Plymouth 0—0
MiIIwall—Carlisle 1—2
Preston—Brentford 1—3
Reading—Lincoln 3—2
Swindon—Bristol City 0—0
Wimbledon—Newport 2—3
4. deild
Bradf ord—Peterbro 2—0
Colchester—Blackpool 2—1
Hartlepool—Bournemouth 1—1
Heref ord—Rochdale 0—0
Hull—Crewe 1—0
Northampton—-Darlington 0—1
Scunthorpe—Port Vale 0—0
Sheff. Utd.—Aldershot 2—0
Torquay—Bury 1 — 1
Tranmere—Mansfield 2—2
Wigan—Halifax 2—0
York—Stockport 2—2
Skozka úrvalsdeildin
Airdrie—Rangers 2—2
Celtic—Dundee 3—1
Dundee Utd—Hibernian 1—0
Morton—Aberdeen 2—1
St. Mirren—Partick 2—1
Celtic hefur nú sjö stiga forustu eftir
15 leiki. Hefur 25 stig. Dundee Utd. St.
Mirren og Aberdeen 18, Ranges 16.
Frank McGarvey skoraði tvö af
mörkum Celtic á laugardag, Mike
Conroy það þriðja.
Áttundi sigur
Arsenal
Arsenal vann óvæntan sigur á West
Ham í innbyrðis viðureign Lundúnalið-
anna. Áttundi sigur Arsenal í röð og
hann geta þeir þakkað Ray Stewart,
skozka landsliðsbakverðinum hjá
WH. Leikurinn beinlínis martröð fyrir
þennan snjalla leikmann. Á 14. mín.
skallaði hann knöttinn úr höndum Phil
Parkes, markvarðar, til Chris Whyte,
hins snjalla miðvarðar Arsenal sem
skoraði. Á 44. mín. var dæmd vita-
spyrna á Stewart og úr henni skoraði
John Hollins. West Ham var betra liðið
mest allan leikinn og sótti mjög. Stuart
Pearson minnkaði muninn í 1—2 á 85.
mín. Það var ekki nóg og fyrsta tap
West Ham á heimavelli í deildakeppn-
'inni í 16 mánuði var staðreynd. Mikill
heppnissigur Arscnal og áhorfendur
voru 33.883.
Norðair í Lundúnum tapaði Totten-
ham í fimmta sinn á heimavelli og það
fyrir Coventry, sem fyrir leikinn hafði
aðeins hlotið tvö stig á útivöllum. En
sigur Coventry var verðskuldaður.
Tottenham þó betra liðið framan af.
Mike Hazzard skoraði á 22. mín. en
Steve Hunt tókst að jafna fyrir
Coventry á 43. mín. Umdeilt mark. í
s.h. var Coventry mun betra liðið og
Gary GiIIespie skoraði sigurmarkið á
68-mín.
Þó Ipswich væri án allra hinna
sterku framherja sinna, Mariner,
Gates, Brazil og O'Callaghan á laugar
dag, sigraði liðið í Middlesbrough.
Leikmaðurinn frá Suður-Afríku, Mich
D’Avray, skoraði eina mark Ieiksins á
26. mín. Sá sigur var í minnsta lagi hjá
Ipswich. Mich Mills var klaufi aðskora
ekki. Kevin Steggles sem leikið hefur
tíu leiki í aðalliði Ipswich slasaðist
talsvert í bílslysi á föstudagsmorgun á
leið á æfingu. Hann átti að leika í
Middlesbrough.
Liverpool getur þakkað markverði
sínum frá Zimbabwe, Bruce Grobbel-
aar, sigurinn i Nottingham. Hann varði
snilldarlega allan leikinn m.a. þrisvar á
undraverðan hátt í f.h. Svo skoraði
Liverpool tvívegis á einni mínútu í þeim
síðari. Fyrst Mark Lawrenson með
skalla á 59. mln. Síðan Ray Kennedy á
sama hátt á 60. mín. Heldur slakur
leikur, sem lítið minnti á stórleiki
þessara liða undanfarin ár. Áhorfendur
aðeins 24.500.
Aðrir leikir
Sökum þrengsla i blaðinu verðum
víð nú að fara fljótt yfir sögu. Everton
vann auðveldan sigur á Swansea, sem
Viggó Sigurðsson sfmar f rá Þýzkalandi:
Ásgeir vakti mikla at-
hygli í stöðu Breitner
þegar Bayem Mtinchen sigraði Borussia Dortmund 4 - 0 í bikarkeppninni
Frá Viggó Sigurössyni, Leverkusen.
Þaö er ekkert lát á taugaveiklun
stjóra liðanna í Bundesiigunni. Á laug-
ardag var leikið í þriöju umferð bikar-
keppninnar. Stultgart tapaöi heima
fyrir Gladbach og Júrgen Sundermann
er nú talinn mjög valtur í sessi. Bayern
Múnchen malaði Dortmund og talið að
Branko Zebec hjá Dortmund verði
látinn hætta. Ásgeir Sigurvinsson lék
með frá byrjun í liöi Bayern og það í
sinni uppáhaldsstööu. Sjónvarps-
þulurinn, sem iýsti leiknum, sagði
Ásgeir ekki leika verr en Paul Breitner
í stöðuni og það sýnir, að Ásgeir átti að
fá tækifæri i Bayern-liðinu miklu fyrr.
Mörgum bikarleikjum varð að fresta
vegna mikilla rigninga en úrslit í
leikjunum, sem háðir voru urðu þessi.
Alemannia Achen-Hamborg 0—3
Duisburg-Karlsruher 1—2
Freiburger-Holstein Kiel 2—0
Hessen Kassel-Bochum 1—2
Mannheim-Eppingen 3—1
Darmstadt-Werder Bremen I—3
Stuttgart-Gladbach 0—2
Bayern-Dortmund 4—0
Hertha-SSV Ulm 1—2
Það voru margir, sem töldu að
Dortmund mundi velgja Bayern undir
uggum, einkum vegna þess að Breitner
lék ekki með. Hann hefur verið „heili”
liðsins og það hefur virzt svo að þegar
hann hefur farið út af eða ekki leikið
með hafi leikur Bayern hrunið. En svo
var ekki að þessu sinni. Ásgeir tók
stöðu Breitner og auðvitað skilaði hann
hlutverki sinu með prýði. Lék mjög vel.
Stórgóðar sendingar hans um allan völl
vöktu athygli, serstaklega á Karl-Heinz
Rummenigge. Ásgeir var næstum
búinn að skora. Átti skot í hliðarnet.
Beier Lorzer skoraði fyrsta mark
Bayern á 13. min. Síðan skoraði
Dremmler á 29. mín. og Dortmund átti
enga möguleika. Kalle Rummenigge
fékk gjafavíti á 65. mín. Tók það
sjálfur og spyrnti langt framhjá. Bætti
það upp 6 mín. síðar, þegar hann
skoraði eftir mikinn einleik. Krause
bætti við fjórða markinu á 86. mín.
Knötturinn fór af varnarmanni í
markið. Ekki fékk Ásgeir frekar en
aðrir einkunn fyrir leik sinn í blöðum.'
Það er ekki gert í bikarkeppninni.
Hamburger SV vann auðveldan
sigur í Achen. Mennering skoraði eftir
650 sek. Síðan Hieromynus á 21. mín.,
og Hartwig á þeirri 47. Eftir það tóku
leikmenn Hamborgar lífinu með ró.
Duisburg tapaði eftir framlengingu og
þar var Karlsruher heppið. Um aðra
leiki er ekki svo mikið að segja nema
hvað tap Stuttgart var heldur óvænt.
David Armstrong.
var með fjóra fyrrum Evereton-
leikmenn i liði sínu. Sharp og O’Keefe,
skoruðu tvivegis, fyrir Everton áður en
Bob Latchford skoraði eina mark
Swansea rétt undir lokin. Stjóri
Everton, Howard Kendall, lék með liði
sínu og átti snjallan leik. Áhorfendur
23.860. man. City sigraði Englands-
meistara Aston Villa með marki Dennis
Tueart á 71. min. Skalli.
City betra liðið og Trevor Francis
snjall. Skoraði en markið dæmt af.
McCullogh náði forustu fyrir Notts
County í Birmingham. Það nægði
skammt. Evans skoraði tvivegis fyrir
heimaliðið. Annað markið úr víta-
spyrnu. Sunderland komst óvænt yfir
með marki Tom Ritchie í Brighton.
Það dugði heldur ekki. Gordon Smith
jafnaði og Andy Ritchie skoraði sigur-
mark Brighton. Cyrille Regis, sem
margir spá að verði næsti miðherji
Englands, skoraði tvívegis gegn
Úlfunum. Kominn með 16 mörk. Clive
Whitehead þriðja markið. Fyrsta mark
hans fyrir WBA. Leed& kom í 0—2 í
Stoke með mörkum Arthur Graham
og Gary Hanson. Stoke tókst ekki að
brúa það bil en Adrian Heath skoraði
eina mark liðsins.
t 2. deild er Luton Town að stinga
önnur lið af. Tapaði þó stigi í Shrews-
bury vegna slaks leiks Alan Judge í
markinu. Hann er þriðji markvörður
Luton. Hinir tveir meiddir. Watford
tapaði Iika stigi og það vegna sjálfs-
marks Pat Rice, áður Arsenal, rétt j
lokin. í 3. deild er Chesterfield efst með
34 stig. Walsall og Carlisle hafa 32 stig
og mörg lið rétt á eftir. í 4. deild hafa
Colchester og Sheff. Utd. 40 stig, Brad-
ford 38 stig, Bury, Bournemouth og
Peterbro 36.
Staðan er nú þannig.
Manch. Utd. 18 9 5 4 28- -15 32
Ipswich 16 10 2 4 28- -19 32
Southamtpon 17 9 3 5 32- -25 30
Swansea 17 9 3 5 27- -25 30
Tottenham 16 9 1 6 26- -19 28
Arsenal 16 8 3 5 15- -12 27
West Ham 16 6 8 2 33- -22 26
Nottm. For. 17 7 5 5 21- -22 26
Man. City 16 7 4 5 21- -17 25
Liverpool 16 6 6 4 23- -16 24
Brighton 17 5 9 3 22- -18 24
Coventry 17 6 4 7 27- -26 22
Everton 17 6 4 7 22- -23 22
WBA 17 5 6 6 21- -19 21
Stoke 18 6 2 10 23- -28 20
Aston Villa 16 4 7 5 21- -19 19
Wolves 17 5 4 8 11- -23 19
Leeds 17 5 4 8 18- -32 19
Birmingham 16 4 6 6 23- -23 18
Notts. C. 17 4 5 8 24—31 17
Middlesbr., 18 2 6 10 16- -30 12
Sunderl., 18 2 5 11 13- -31 11
2. deild
Luton 18 13 2 3 41- -19 41
Oldham 18 9 6 3 28- -17 33
Watford 17 10 3 4 27- -19 3.3
Barnsley 18 9 3 6 30- -20 30
QPR 18 9 3 6 26- -17 30
Sheff. Wed. 18 9 3 6 22- -22 30
Chelsea 18 8 4 6 25- -26 28
Blackburn 18 7 5 6 19- -17 26
Leicester 17 6 6 5 23- -18 24
Newcastle 18 7 3 8 23- -19 24
Norwich 18 7 3 8 21- -27 24
Cr. Palace 17 7 2 8 14—14 23
Shrewsbury 18 6 5 7 19- -24 23
Charlton 18 6 4 8 27- -31 22
Derby 17 6 4 7 23- -29 22
Rotherham. 17 6 3 8 25- -25 21
Cambridge 17 7 0 10 23- -26 21
Cardiff 17 6 3 8 21- -28 21
Orient 18 5 3 10 12- -20 18
Grimsby 16 4 5 7 17- -27 17
Bolton 18 5 1 12 13- -27 16
Wrexham 17 4 3 10 17- -24 15
-hsim.