Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1981, Síða 48
Húsaleiga rýkur upp í Reykjavík:
Meðalhækkun nær
100% á milli ára
Heldur lítið framboð virðist vera á
leiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu
núna og eftirspurnin einnig minni á
þe'sum árstíma, en var til dæmis fyrr
i iiaust.
Víst er um að ekki fer verðið lækk-
andi, þvert á móti, því í stuttri
könnun sem DV gerði á leiguverði
kemur fram, að meðalhækkun frá
sama tíma í fyrra er nálægt 100
prósentum. Vísitala húsaleigu fyrir
íbúðarhúsnæði hefur aftur á móti
hækkað um 53.16% milli ára.
Mest er eftirspurn eftir tveggja til
þriggja herbergja íbúðum og gang-
verðið á þeim er á bilinu 2500 til 3000
krónur á mánuði. Margir fara þó
fram á allmiklu hærra verð.
Einstaklingsherbergi er algengast
að leigja á 1000 til 1500 krónur, ýmist
með aðgangi að eldhúsi eða ekki.
Eitt dæmi fengum við um fullorð-
inn mann sem leitar að þriggja her-
bergja íbúð. Ein slík bauðst til
tveggja og hálfs árs á 3000 krónur á
mánuði og allt tímabilið skyldi
greiðast fyrirfram. Að öðrum kosti
var leigusalinn ekki til viðræðu.
Eitthvað hefur dregið úr kröfum
um fyrirframgreiðslu og á það ef til
vill einhvern þátt í hækkun leig-
unnar. Með því að borga fyrirfram
hafa menn getað keypt sig undan vísi-
töluhækkunum og er leigan yfirleitt
lækkuð í samræmi við upphæð fyrir-
framgreiðslunnar.
Einn viðmælandi taldi að leiga
væri yfirleitt miðuð við 1000 krónur
fyrir hvert herbergi, að minnsta kosti
þegar þau væru orðin þrjú eða þar
fyrir ofan. Minna húsnæði, væri
hlutfallslega miklu dýrara. Og gilti þá
einu hvort íbúðin væri á hæð eða í
kjallara, eða hvert ástand húsnæðis-
ins væri.
En þó menn setji ekki upphæð leig-
unnar fyrir sig og séu með fullar
hendur fjár, virðist framboð vera
það lítið að heppnin ein ráði hvort
þeir fá þak yfir höfuðið.
-JB
Samtals 5777 manns kusu í prests-
kosningum sem fram fóru í Glerár-
prestakalli og Akureyrarprestakalli um
helgina. Á kjörskrá voru samtals 8.795.
Atkvæði verða talin á biskupsstofu á
fimmtudaginn kemur.
í Akureyrarprestakalli voru tveir í
framboði, þeir sr. Þórhallur Höskulds-
son og sr. Jón A. Baldvinsson. Þar
voru á kjörskrá 6403 og af þeim kusu
4024 eða 62,8%.
í Glerárprestakalli var kosið um sr.
Pálma Matthíasson og sr. Gylfa Jóns-
son. Samtals 2.329 voru á kjörskrá í
Lögmannshlíðarsókn. Af þeim kusu
1.695 auk 7 hjá yfirkjörstjórn eða
72,7%. í Grímsey, sem er Miðgarða-
sókn, voru 63 á kjörskrá. Þar af kaus
51, en 12 voru fjarverandi af eynni.
Sem fyrr sagði, verða atkvæðin talin
á biskupsstofu næstkomandi
fimmtudag.
(Mynd: GS Akureayri)
-JSS.
r
Urvalslínuf iskur fluttur úr landi til skreiðarvinnslu með
brezkum skuttogara í skjóli nætur:
„Ekkert í lögum sem bannar
þennan útflutning”
— segir Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri íviðskiptaráðuneytinu
Reykjavíkur-
meistarar
annað
árið í röð
Reykjavíkurmeistaramótið í tví-
menningskeppni i bridge var haldið
um helgina. Lauk því með sigri
Ásmundar Pálssonar og Karls
Sigurhjartarsonar, sem eru þar með
Reykjavíkurmeistarar annað árið 1
röð.
Sigruðu þeir með rniklu öryggi
líkt og í fyrra, eða með 284 stigum
yfir meðallagi, á meðan næsta par,
landsliðsmennirnir Guðlaugur R.
Jóhannsson og örn Arnþórsson,
hafði 153 stig yfir meðalskor.
— í þriðja sæti urðu Jón Hjalta-
son og Hörður Amþórsson, í
fjórða sæti Sigurður Sverrisson og
.Þorgeir Eyjólfsson og i fimmta sæti
Sævar Þorbjörnsson og Þorlákur
Jónsson.
-GP.
, „Okkur þykir það vera undarleg
stefnubreyting að leyfa erlendum veiði-
skipum að leggjast hér við bryggju og
lesta ferskfisk, sem flytja á út til
vinnslu,” sagði Kristján Ragnarsson,
formaður Landssambands íslenzkra út-
vegsmanna er DV ræddi við hann í
morgun. „Erlend skip hafa áður sótt
um hliðstæð leyfi, en verið neitað. Við
höfum áður flutt út ferskfisk, en þá
beint á markað. Hér er um allt annað
að ræða og ég endurtek að þessi stefnu-
breyting vekur undrun,” sagði
Kristján.
Undarlegar athafnir fóru fram á
Patreksfirði um helgina. í skjóli nætur
á laugardagskvöld hófust menn handa
við að lesta um 100 tonn af úrvals linu-
fiski í brezkan skuttogara frá Fleet-
wood. Var unnið baki brotnu alla
helgina við lestunina og hélt togarinn í
nótt áleiðis til Suðureyja þar sem
ætlunin mun vera að vinna fiskinn í
skreið. Á sama tíma var algert fiskileysi
á Patreksfirði og þar um slóðir
blöskrar mönnum þau vinnubrögð að
flytja út úrvalsfisk til þess eins að nota
hann í skreið.
„Það er ekkert í lögum, sem bannar
þennan útflutning. ” sagði Þórhallur
Ásgeirsson ráöuneytisstjóri í
viðskiptaráðuneytinu er DV bar þetta
undir hann í morgun. „Þetta er mjög
óvanalegt, en i þessu tilfelli var leyfi
veitt. „Kvað Þórhallur ekki stætt á því
að neita útflutningsaðilanum, Odda á
Patreksfiröi, um leyfi úr því leyft hefði
verið að flvtja ferskfisk með flugvélum
til útlanda.
í samtali við Harald Ólafsson, verk-
stjóra í Odda á Patreksfirði, taldi hann
að ekkert óeðlilegt væri við þennan út-
flutning né heldur við það að hefja lest-
un á laugardagskvöldi. „Við vinnum
hér öll kvöld og allar helgar,” sagði
hann og lét sér fátt um finnast en vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
-SSv.
frjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR7. DES. 1981.
Tíðindalaust hjá
mjólkurfræðingum
Sáttafund-
ur á morgun
Fundir hafa ekki verið haldnir í deilu
mjólkurfræðinga og viðsemjenda
þeirra um helgina, en ríkissáttasemjari
hefur boðað deiluaðila til viðræðna kl.
tvö á morgun. Mjólkurfræðingar hafa
boðað verkfall frá og með næsta mánu-
degi.
Mjólkurfræðingar hafa, sem
kunnugt er, hafnað samningi á grund-
velli svokallaðs ASÍ-samkomulags.
Hefur einn fundur v ð haldinn með
þeim og viðsemjenduv þeirra, en þar
þokaði ekkert í samkomulagsátt.
-JSS.
Innbrota-
faraldur um
helgina
Mikið annríki var hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins um helgina og óvenju
mikið af tilkynningum um innbrot.
Brotizt var inn í HP-húsgögn, Japis
Brautarholti, KR-húsið við Kapla-
skjólsveg, Hafnarbúðina Grandagarði
og Sjómannaskólann auk fjölda ann-
arra staða. Þá var stolið peningaveski
úr hanzkahólfi bifreiðar í Kópavogi en
bifreiðin mun hafa verið ólæst. Á
öllum þeim stöðum sem brotizt var inn
í var einhverju stolið en ekki var vitað í
morgun hversu miklu á hverjum stað
fyrir sig.
-ELA.
Vinnuslys í
Blikkr og stáli
Tilkynnt var um vinnuslys í Blikki og
stáli um áttaleytið í morgun en þar
hafði ungur maður lent með fót undir
plötum. Maðurinn var þegar fluttur á
slysadeild en meiðsl hans reyndust
minni en búizt hafði verið við.
-ELA.
Loki
Það er orðið auðveft fyrir
brezku togarana að afía við
bryggjurnar fyrir vestan.
hressir betur.