Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981.
Sælkerinn Sælkerinn Sælkerinn Sælkerinn
HREINDÝRASTEIK
íJÓLAMA TINN
Þá er farið að styttast í jólin og
flestir komnir á kaf í jólaundirbún-
inginn. Sennilega eru matarvenjur ís-
lendinga um jólin nokkuð hefð-
bundnar. Margir borða rjúpur á jól-
unum, nú ekki má gleyma hangikjöt-
inu margumtalaða.
Áhugi íslendinga á matreiðslu hef-
ur aukizt stórlega hin síðustu ár og
því má búast við að ýmsar fjölskyld-
ur reyni einhverja nýja spennandi
rétti um hátíðisdagana. En það er
óþarfi að eyða mörgum tímum á dag
um jólin i matreiðslu Ekki má gleyma
boðskap jólanna og nauðsynlegt er
að hreyfa sig um jólin svo að auka-
kílóunum fjölgi ekki um of. Það er
um að gera að undirbúa matreiðsl-
una á jólamatnum í tíma — því meiri
og vandaðri sem undirbúningurinn er
því styttri tími fer í sjálfa elda-
rnennskuna.
Hvernig væri að hafa hreindýra-
steik í jólamatinn? Hreindýrakjöt er
bragðgott og er alls ekki erfitt að
malreiða það. Hér koma tvær upp-
skriftir sem ekki eru of margbrotnar.
Byrjið á því að hringia r nokkrar
kjötverzlanir og athuen isort hrein-
dýrakjöt sé á boðstó'um. Sælkera-
síðunni er kunnugt um nokkrar
verzlanir sem yfirleitt eiga hreindýra-
kjöt fyrir jólin.
Fyrsti hreindýrakjötsrétturinn er
pottréttur með marineruðu kjöti. f
hann þarf:
1 kg hreindýrakjöt
í löginn sem kjötið er marinerað i
þarf:
2dl rauðvín
2 1/1 d! vatn
1/2 mat.sk. vínedik
2 tesk. timjan
2 hvítlauksrif
2 lárviðarlauf
10 piparkorn (svört)
15 einiber
Þegar kjötið er sleikl þarf:
2 matsk. smjör
2 lauka
200 gr. sveppi
4 gulrætur
salt eftir smekk
Það er óþarfi að kaupa hrygg í
þennan rétt, ágætt er að nota lær-
vöðvann. Kjötið er skorið i gúllas-
bita. Kjötið er sett í skál. Blandið svo
saman: rauðvininu, vatninu,
vínediki, timjan, pressuðum hvít-
lauknum, muldum lárviðarlaufum,
grófmöluðum piparkornunum og
einiberjunum. Hellið þessari blöndu
yfir kjötið. Látið kjötið liggja í leg
inum i 12 tíma. Þá er kjötið fært upp
úr leginum og það steikt í smjöri á
pönnu. Þegar kjötið er orðið vel
brúnt er það fært yfir í pott. Saxið
því næst laukinn og sveppina og
brúnið á pönnu. Að því loknu eru
sveppimir og laukurinn settur í pott-
inn yfir kjötið. Gulræturnar eru
skafnar og skornar í þunnar sneiðar
og settar í pottinn. Þá er lögurinn
sem kjötið var marinerað í síaður og
honum hellt yfir í pottinn. Kjötið er
svo soðið í 45-60 mín. Saltið kjötið
eftir smekk. Upplagt er að útbúa
þennan rétt daginn áður og hita
hann svo upp áður en hann er borinn
á borð. Með þessum rétti má hafa
hrísgrjón eða kartöfiumús.
Réttur nr. 2 heitir „hreindýrabuff
simjan” og er þessi réttur sænskur. í
réttinn þarf:
4 buff úr hreindýrakjöli (hver sneið
u.þ.b. 150 gr.)
salt
2 tesk. grófmalaðan hvítan pipar
smjör
1 bunkt steinselju
1 lauk
1/2 dl vatn
1/2 dl. hvitvín
Klappið kjötsneiðarnar með flöt-
um lófa og kryddið þær með salti
ogpipar.klappið kryddið inn í kjötið.
Hvernig vœri að hafa hreindýrasteik íjólamatinn?
Það er svo steikt í smjöri á pönnu
svona í 2—4 mín. á hvorri hlið.
Á meðan kjötið er á pönnunni er
laukurinn fínsaxaður svo og steinselj-
an. Þegar kjötið er tilbúið er það fært
af pönnunni á fat og breitt yfir það.
Þá er laukurinn og steinseljan sett í
pönnuna. Þegar laukurinn er orðinn
mjúkur er vininu og vatninu hellt á
pönnuna og hrært upp úr botni
pönnunnar. Þetta er látið malla í 2—
3 mín. Þessari sósu er svo hellt yfir
kjötið. Með þessum rétti er höfð
kartöflumús og hrásalat sem lagað er
úr blómkáli og agúrkusneiðum.
Þessir réttir eiga það báðir sameig-
inlegt að í þeim eru ekki margar hita-
einingar.
Eftiriætisrétt-
urinn minn
Hin nýja verzlun Osta- og smjörsölunnar að Bitruhálsi 2.
Ostur er veizlukostur
Eftirlætisrétturinn minn nefnist
bók sem nýlega kom á markaðinn og
bókaforlagið Vaka gefur út. Axel
Ammendrup tók saman. Það er nú
svo að við verðum að nærast, það
ætti þvi að vera þáttur í menningu
hvers manns að kunna að matreiða
ofan í sig. Það mætti kannski segja
að bók þessi sé forvitnileg fyrir þjóð-
félags- og sálfræðinga. Hver veit
netna hægt sé að draga einhverjar
Hver er uppáhaldsréttur
Markúsar Arnar? Svarið er að
finna í hinni nýju bók.
Hinn sænski jóladrykkur
„glögg” er allvinsæll ' hér á
landi. En þessi góði drykkur
getur verið göróttur. Þeir sem
eru á bíl œttu ekki að drekka
glögg, því það er missterkt,
Umsjón:
Sigmar B.
Hauksson.
ályktanir um sálarlif og persónu ein-
staklingsins eftir því hver sé uppá-
haldsrétturinn hans?
Annars er það athyglisvert hve
margir fiskréttir eru í bókinni en þeir
eru 19. Það sýnir að áhugi íslendinga
á fiskréttum hefur aukizt allverulega
á síðustu árum. Einnig er það athygl-
isvert hve margar uppskriftanna eru
einfaldar. Það sannar það að alls
ekki er nauðsynlegt að yfirhlaða disk-
ana með allskonar gumsi, eins og yf-
irleitt er gert á íslenzkum veitingahús-
um. Sumir karlmannanna sem eiga
uppskriftir í bókinni viðurkenna að
þeir hafi fengið þær hjá eiginkonun-
um. Það hefði kannski ekki verið úr
vegi að snúa sér beint til eiginkvenn-
anna.
í bókinni eru nokkrar athyglisverð-
ar uppskriftir. Mætti þar t.d. nefna
uppskrift Auðar Haralds sem er
„lambahjörtu í steinselju”, uppskrift
Gt:-' nundar Kjærnested sem er
,.s!.ii! iasteik” uppáhaldsréttur
Magnúsar H. Magnúsconar lyrrver-
andi ráðherra er ,. n,.utasteik með
svínafeiti”, uppskrilt Magnúsar
Torfa Ólafssonar er ,. nautahala-
ragú”. Svona mætti lengi telja.
Auðvitað eru ýmsar aðrar áhuga-
verðar uppskriftir í bókinni. Einkum
ætti bók þessi að vera áhugaverð
fyrir veitingamenn — þeir geta fengið.
smáinnsýn í matarvenjur íslendinga.
sum veitingahús hafa brennda
drykki svo sem brennivín í
glögginu. Það vœri kannski
ekki úr vegi að bjóða óáfengt
glögg samhliða hinu áfenga.
1 Hér kemur þá uppskrift:
1 flaska óáfengt rauðvín
börkur af einni sítrónu
1 kanelstöng
10 negulnaglar
Já, það segja þeir hjá Osta- og
smjörsölunni. Vissulega eru ostar
frábær matur. Osta- og smjörsalan er
mjög vel rekið fyrirtæki og mættu
ýmis fyrirtæki í matvælaiðnaöi taka
1/2 bolli möndlur
1 bolli rúsínur
Rauðvíninu er hellt í pott og
allt það sem nefnt er í upp-
skriftinni sett í pottinn. Þegar
þið flysjið sítrónuna notið þið
bara yzta börkinn, þann gula,
en ekki þann hvíta. Þessi
blanda er svo hituð — hún
má ekki sjóða því þá verður
bragðið of beizkt.
Osta- og smjörsöluna sér til fyrir-
myndar. Þjónustan við neytendur er
ljómandi. Nú er fyrirtækið komið í
nýtt húsnæði að Bitruhálsi 2
í Reykjavík. Þar er starfrækt sérverzl-
un með osta og ýmislegt viðkomandi
ostum, svo sem kex og ídýfur svo eitt-
hvað sé nefnt. Blessuð jólin nálgast
nú óðum. Það er ekki úr vegi að þið
sælkerar góðir brygðuð fyrir ykkur
betri fætinum og heimsæktuð Osta-
búðina að Bitruhálsi 2 og keyptuð
osta til jólanna. Á boðstólum eru 42
tegundir af ostum, svo nógu er af að
taka. Auk þess eru að koma á mark-
aðinn 3 tegundir af rjómaosti, dill-
piparrótar- og kryddostur. Einn-
ig er hægt að fá í Osta-
búðinni uppskriftir og góð ráð. Ef
þið ætlið að halda samkvæmi, þá er
hægt að fá í Ostabúðinni uppskriftir
og góð ráð. Ef þið ætlið að halda
samkvæmi, þá er hægt að kaupa
ostapinna, partíbollu, ostaköku og
ýmislegt góðgæti úr osti. Ef ykkur
finnst langt að fara upp í Árbæjar-
hverfi eða Bitruháls til að kaupa osta,
þá er rétt að geta þess að það er osta-
verzlun að Snorrabraut 54, Reykja-
vík. Starfsmenn Osta- og smjörsöl-
unnar eru svo með sýnikennslu alla
fimmtudaga og föstudaga í hinum
ýmsu verzlunum. Ef þið þurfið á
góðum ráðum að halda í sambandi
við osta, þá er upplagt að hringja í
Osta- og smjörsöluna, sími 82511 og
biðja um góð ráð. íslenzku ostarnir
eru að verða ljómandi góðir og sumir
þeirra eru ekki síðri en þeir erlendu.
íslendingar eru farnir að neyta tölu-
vert mikils af ostum eða um 7,2 kg
per mann á ári. Það er um 10—11%
aukning á árinu. Framleiðslan í
mjólkurbúunum úti á landi hefur
batnað stórlega að undanförnu, þetta
er svo sannarlega ánægjuleg þróun.
En Sælkerasíðan vill þó koma á
framfæri smábón sem að visu hefur
áöur verið nefnd hér á Sælkerasið-
unni en hún er þessi: Gæti Osta- og
smjörsalan ekki fengið leyfi til að
flytja inn parmesan-ost, sem er nauð-
synlegur þegar ítalskur matur er bú-
inn til. Þetta ætti varla að vera neitt
stórmál. Hvað um það. Sælkerasíðan
skorar á alla sælkera að heimsækja
Ostabúðina að Bitruhálsi 2 — þið sjá-
ið ekki eftir því
OAFENGT GLÖGG