Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Blaðsíða 22
22
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981.
Menning Menning Menning Menning
Ein bók á mann
Ljóðakver Sigurðar Skúlasonar og Ásgeirs Lárussonar
Ásgeir Lárusson. Kver hans
leynir glettilega á sér.
Ekkiskortir
umrœðuefnin
Að visu skortir hann ekki
umræðuefnin: lffið sjálft, dauðinn og
allt þar á milli. Og vissulega er honum
meira niðri fyrir en mörgum þeim sem
reglulega þrykkja á bók spekimál um
þau efni. Sigurður hefur litla trú á góðu
innræti mannsins.veltMyrir sér hvernig
hann eigi að skýra vitfirrtan heim fyrir
börnum sínum, ræðir eðli algleymis
bæði hins kynferðislega og andlega
yrkir um andstæður í karl og kveneðli
lífsþreytunao.s.frv.
Hins vegar er hann engan veginn
stakk búinn til að gera úr þessu efni
sannfærandi skáldskap, fer t.d
einkennilega leið milli talmáls og sett-
legri orðraðar rímaðs skáldskapar, oft i
sömu setningunni: „Þar sitja drengir /
og móðir ein hjá. / ládeyða andans /
ræður þar ríkjum / og kannski er hún
einnig / við glas hérna frammi” (vanga
velt). I talsvert mörgum ljóðanna fer
einnig saman lítil smekkvísi i orðavali
og óhöndugleg setningaskipan: „Mikið
djöfull er ég fullur / og helviti hef ég
það gott / svona ætti að vera / hverja
einustu stund”. Og því miður rista
niðurstöður ljóðanna oft ekki dýpra en
þetta.
Sigurður Skálason leikari er búinn að gjalda föðurlandinu það sem
föðurlandsins er með Ijóðabók sinni, en varla meira en það.
MyndirorOa
Synd væri að segja að kver Ásgeirs
Lárussonar, Blátt áfram rautt, væri
RGREIÐSLU
MEISTARAR
Jólasendingin
af hinum viðurkenndu
hársnyrtivörum frá
Schwarzkopf 0
er loksins komin
mikið um sig eða innihéldi tillögur til
lausnar lífsgátunni. Það leynir þó
glettilega á sér og verður ljóða-
lesandanum á endanum tamara i hendi
en margar aðrar „ljóðabækur”. Ásgeir
er ungur hæfileikamaður í myndlist og
hefur haldið nokkrar sýningar á fín-
gerðum klippimyndum og teikningum,
sem einkennzt hafa af
Ijóðrænu innsæi og tilfinningu fyrir
hinu fjarstæðukennda í tilverunni. Bók
hans nýtur góðs af þeirri reynslu, er
reyndar sprottin upp úr henni. Helzt
má líkja henni við ýmsan „konkret”
skáldskap, þar sem lögun eða
myndræn giidi orða og setninga haldast
i hendur við merkingu þeirra. Á hinn
bóginn er Ásgeir kominn spölkorn út
fyrir það sem gera má í spöltum
venjulegrar prentsmiðju og bók hans er
því ljósprentun á ýmsu því sem hann
hefur fundið í fyrirsögnum dagblað-
anna, tímaritsgreinum, kennslubókum,
leiðarvísum, myndasögum,
islenzkum sem erlendum. Alls konar
leturgerðir rugia reytum saman,
skrýtilegar skýringarmyndir ganga inn I
þessa blöndu, en á sinn hátt gengur
þetta upp þannig að gaman er að.
-Al/Lundi.
, Heildverzlun
Suöurgötu 14. Símar: 21020 og 25101.
Sigurður Skúiason —
Margbrotinn augasteinn
(þankar úrþátíð),
88 bis. Letur 1981.
Ásgeir Lárusson —
Blátt áfram rautt,
40 bis. Iðunn 1981.
Samkvæmt lögum ætti hver
fullburða fslendingur að gefa út a.m.k.
eina bók um ævina, hvers efnis sem
honum sýnist. Eitthvað á þessa leið
hljóðar tillaga gamals læriföður míns,
Jóhanns S. Hannessonar, og er býsna
skemmtileg umhugsunar. Þessar
„skyldubækur” (herskylda okkar
íslendinga . . . ) yrðu vitanlega ekki
allar burðugar og vel má ímynda sér
örvæntingu bókavarða á landinu and-
spænis þessu Nóaflóði bóka. En með
þssum hætti mundu einnig koma fram
hæfileikamenn á ritvelli sem annars
mundu aldrei þora að láta ljós sitt
skína, — og það, samkvæmt tillög-
unni, er nægjanleg réttlæting slíkra
laga.
Ef lög af þessu tagi væru I gildi, væri
Nú höfum uið opnað uerslun
með heimsþekkt hljómtæki
sem ekki hafa áðurfengist á
Islandi. Nú gefst þértækifæri til
að eignast betri tæki sem bera
tóninn alla leiði
Við bjóðum þéraðlíta uið og
kynnast þessum frábæru
hljómtækjum sem núfástfyrst
þérlendis
Við bjóðum þérJBL hátalara
á sérstöku kynningaruerði
Sigurður Skúlason leikari búinn að
gjalda föðurlandinu það sem föður-
landsins er með ljóðabók sinni, Marg-
brotinn augasteinn, — en varla mikið
fram yfir það.
Bókmenntir
Aðalsteinn Ingótfsson