Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Síða 15
DAGBLAÐID & VÍSIR. LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981. 15 Fyrir þá sem horfðu á sjónvarp á miðvikudags- kvöldið mátti ekki á milli sjá. hvor þátturinn var hasar- fengnari, Dallas eða Þingmál. Fyrst birtist JR, skúrkurinn í bandaríska myndaflokknum, með allan sinn óþverraskap, enda mun sá karakter vera ill- ræmdastur allra vondra í Vesturheimi og kalla þeir þó ekki allt ömmu sína. Miklar sögur höfðu farið af Dallasþáttunum áður en þeir voru teknir á dagskrá ís- lenska sjónvarpsins. Nú verð ég að játa, þótt ekki sé það gott til afspurnar fyrir út- varþsráðsmann, að ég hef lít- ið sem ekki fylgst með þessum þáttum. Hins vegar er ekki að heyra að þeir njóti nándar nærri þeirra vinsælda. sem reiknað var með og kemur mér það sosum ekki á óvart, ef þeir eru allir keimlíkir þættinum á miðvikudaginn. Dallasþættirnir munu halda áfram eitthvað fram eftir næsta ári en útvarpsráð hefur ekki mælt með áfram- haldandi sýningum þegar þar lýkur. Farið hefur fé betra. Skammir og skattyrði Ástæðulaust er fyrir okkur íslendinga að kaupa dýrt er- lent efni til sýningar í sjón- varpi meðan þingmennirnir okkar efna endurgjaldslaust til skemmtiþátta, eins og þess sem áður er á minnst. Þeir komast að vísu ekki í hálfkvisti við JR, þann and- styggilega óþokka, en eitt- hvað kunna þeir þó fyrir sér í refskap og slóttugheitum, og svo bæta þeir það sem upp á vantar með hressilegum. skömmum og skattyrðum. Þingmálaþátlurinn á miðvikudaginn var hinn fjörugasti enda virtust þátt- takendur gera sér grein fyrir því að þeir voru til skemmt- Sérernú hvert afrekiö Ellert B. Schram ritstjóri skrifar Laugardags- pistill Alþjóðlegur samanburður Gaman var að heyra hvað Ólafur Ragnar var orðinn al- þjóðlegur í hugsun. Helst var að skilja að íslendingar ættu að Ieggja niður allar deilur um kaupmátt, kaupgjald og kjarabætur. Þeir mega þakka fyrir að halda atvinnunni. á sama tíma og hálfur heimur líður skort og hungur austur í Asíu. 'eða niðri I Afríku. Sjálfsagt er eitthvað til í því að íslensk þjóð missir stund- um sjónar á þeirri gæfu að hafa nóg að bíta og brenna. Við erum lánsöm að búa í þessu landi. Þetta mættu þeir alþýðubandalagsmenn muna oftar þegar þeir skera upp herör og æsa til ófriðar, hvort heldur er vegna verkalýðs- ellegar utanríkismála. Það er ekki alltaf að heyra að þeir kunni að meta farsæld á Fróni, jafnvel þótt for- ingjarnir hafi haft tæki- færi til að ferðast heims- horna á milli. Ekki hefur eftirspurn eftir vinnuafli, allt frá stríðslokum, ef frá er talið erfiðleikatímabilið í lok sjöunda áratugarins. Atvinnuleysið þá var ekki viðreisnarstjórninni að kenna, heldur hruni síldar- stofnsins og verðfalli á Bandaríkjamarkaði. Atvinnu- leysisvofan hefur þvi aldrei hrjáð íslenskan vinnumarkað' að neinu marki, sama hvaða rlkisstjórn hefur setið að völdum. Launþegar þurfa þar af leiðandi ekki að lofsyngja ráðherrana fyrir þá náð að út- vega þeim vinnu og varla ;getur það verið ýkja þungt lóð á vogarskálarnar þegar kemur til kjarasamninga. Afstaðan til námsmanna Námsmenn hafa haft hátt vegna meintra svika stjórn- valda varðandi breytingar á námslánalöggjöfinni. Ein- hvern pata munu þeir hafa haft af því að menhtamála- ráðherra hygðist breyta valdinu og stjórnvöldum, vegna þess mikla kostnaðar sem það hefur í för með sér fyrir ríkissjóð. Alþýðubandalagið og þá einkum Ragnar Arnalds hafði á árum áður stór orð um fjand- skap ríkisvaldsins og hinna istjórnmálaflokkanna gagnvart námsmönnum, einmitt vegna þess að 100% umframfjár- þörfinni var ekki mætt. Skyldi Ragnar hafa breytt um skoðun þegar hann er nú sest- ur í ráðherrastól í fjármála- ráðuneytinu og sér það svart á hvítu hvaða útgjaldahækkun hlýst af því að fallast á náms- mannakröfurnar? Eða eru' þeir að malda í móinn, ráð- iherrarnir sem áður, þegar þeir voru óbreyttir þingmenn, 'fussuðu og sveiuðu náms- mönnum? Enginn getur haft á móti rausnarlegum námslánum ef- ríkissjóður getur undir þeim staðið en óneitanlega hlýtur það að vera lærdómsrikt fyrir launþegahreyfinguna að fylgjast með því að náms- upplýst að á báðum stöðum vanti hundruð milljóna króna til að ná endum saman og standa við skuldbindingar. Ýmist hefur þessum sjóðum verið haldið í svelti, ellegar samþykktar á þá kvaðir, án þess að nokkurt tillit sé tekið til tekju- möguleika. Örþrifaráð þeirra, sem og flestra opinberra stofnana sem ekki hafa fengið leyfi til hækkana á gjaldskrám sínum, hefur verið að taka lán, bæði hér- lendis og erlendis. Ríkis- stjórninni er augsýnilega orðið Ijóst að stjórnlaus skuldasöfnun erlendis er slæm til afspurnar og skamm- vinn til lifgjafar. Nýrra ráða er því leitað og nú er litið löngunaraugum til lífeyris- sjóðanna. í Morgunblaðsgrein á dögunum lýsti Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Lífeyris- sjóðs verslunarmanna, ráða- gerðum fjármálaráðherra til að seilast lengra í fjárhirslur þessara sjóða. Lífeyrissjóðirnir hafa að sjálfsögðu mótmælt fyrir- ætlunum ráðherrans, enda blasir það við að miðstýring og bindiskylda af þessu tagi er grímulaus eignaupptaka á sjóðum frjálsra félaga- samtaka. Einhvern tíma hlýtur að koma að þvi að ein- staklingum og samtökum þeirra sé nóg boðið í yfirgangi ríkisvaldsins og nú virðist mælirinn fullur. Verndgegn viUimennsku Hér I blaðinu hefur vérið tekið harkalega á þeim ógæfunranni sem réðst grimmilega að unglingsstúlk- unni í Þverholtinu. Nafn hans hefur verið birt, svo og mynd, auk upplýsinga um ýmis fyrri afbrot. Alltaf má deila um það hversu langt skuli ganga I slíkum málum með hliðsjón af viðkvæmni og tilfinningum aðstandenda hins seka. Likamsárásin á ungu stúlkuna var hrottaleg og unar en ekki skoðanaskipta. Ólafur Ragnar gaf tóninn og það var nóg fyrir Matthías Bjarnason. Vanþóknun hans á viðmælandanum leyndi sér hvorki í orðum né ásjónu. Karl Steinar Guðnason fór með „gróusögur” um fyrir- ætlanir efnahagsmálanefnd- arinnar sem Ólafur Ragnar lýsti sem „bulli og vitleysu”. Báðir báru skrök upp á hvor annan. Halldór Ásgrímsson virtist vera sá eini sem tók sig alvarlega í þessari kostulegu umræðu og alvara hans kom fram í því að segja ekki neitt. alþjóðlega mælistikan hans Ólafs verið notuð áður þrátt fyrir tíðar ferðir flokks- bræðra hans austur yfir járn- tjald. Það þarf nefnilega ekki að leita til Austurlanda til að uppgötva ófrelsi og fátækt annarra þjóða. Full atvinna Full atvinna er sífellt tiunduð sem eitt helsta afrek núverandi stjórnar. Fyrir það á þjóðin að leggjast á fjóra fætur og lofa ríkisstjórnina. En sér er nú hvert afrekið. Hér á landi hefur verið stöðug frumvarpi sem orðið hafði samkomulag um milli ráðuneytisins og námsmanna. Nú hefur ráðherrann hins vegar lýst því yfir að hann legði fram frumvarpið óbreytt. Vandséð er hvers vegna námsmenn tóku að byrsta sig úr því mennta- málaráðherra kokgleypir kröfur þeirra. Frumvarpið' mun gera ráð“fyrir að lánin mæti 100% umframfjárþörf námsmanna, en það hefur lengi verið helsta baráttumál þeirra. Sú hækkun hefur aftur á móti staðið í fjármála- menn fá verulega ef ekki full- komna viðurkenningu á kröf- um sínum til bættra kjara- á meðan niöurtalningin blómstrar gagnvart öðrum þjóðfélagshópum, bæði í kaupmætti og lífskjörum. Stjómlaus skukiasöfnun Talandi um sjóði á vegum hins opinbera þá virðist vandamál fjármálaráðherra vera frekar í því fólgið að afla þeim tekna heldur en hitt. Stjórnendur Byggingasjóðs og Framkvæmdasjóðs hafa Ógeðfelldar aðfarir Ráðherrann bauð for- svarsmönnum lífeyrissjóð- anna til þríréttaðrar veislu í Þingholti með kokkteil í for- rétt og tilkynnti síðan undir matarborði, að ætlunin væri að skylda sjóðina til að ráðstafa 45% ráðstöfunarfjár Iþeirra til kaupa á skulda- bréfum opinberra sjóða. Ekki fara sögur af því hvort maturinn hafi bragðast vel undir þessum afarkostum, heldur eru það ógeðfelldar aðfarir að kaupa sér frið og fylgi með mat og víni. hvort sem ógæfumaðurinn var geðveikur eða undir á- hrifum lyfja þá er engin á- stæða til að sýna honum miskunn. Það er meira virði að hlífa borgurunum fyrir slíkri villimennsku heldur en að vernda afbrotamennina og æru þeirra. Upplýst er að maðurinn hafði margsinnis áður orðið uppvís að líkams- meiðingum og sú spurning vaknar hvort fleiri slikir menn ganga lausir sem hættulegir eru umhverfi sínu og samborgurum. Ellert B. Schram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.