Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Síða 24
24 DAGBLAÐ1Ð& VÍSIR. LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1981. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 26., 31. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á eigninni Ásbúð 23, Garðakaupstað, þingl. eign Kristjáns E. Hilmarssonar, fer fram eftir kröfu Ara ísberg hdl. og Veðdeildar Landsbanka tslands á eigninni sjálfri mánudaginn 14. desember 1981 kl. 15.30. Bæjarfógetinn I Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 64., 70. og 72. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á eigninni Heiðvangur 10, Hafnarfirði, þingl. eign Eiriks Jónssonar fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl. og Innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. desember 1981 kl. 13.00. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 26., 31. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á eigninni Dvergholt 8, jarðhæð, Mosfellshreppi, þingl. eign Helga Árnasonar, fer fram eftir kröfu Verzlunarbanka íslands hf., Jóhanns Þórðar-' sonar hdl., Skúla J. Pálmasonsr hrl. og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 15. desember 1981 kl. 16.00. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 26., 31. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á eigninni Dvergholt 8, efri hæð, Mosfellshreppi, þingl. eign Árna Árnasonar, fer fram eftir kröfu Brynjólfs Kjartanssonar hrl., Kristins Björnssonar hdl., Tryggingastofnunar rikisins, Tollstjórans í Reykjavík og Innheimtu ríkis- sjóðs á eigninni sjálfri þriðjudaginn 15. desember 1981 kl. 15.30. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Birkihlið, Bessastaðahreppi, þingl. eign Trausta Finnbogasonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 14. desember 1981 kl. 16.00. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og siðasta á hluta i Dalseli 33, þingl. eign Unnsteins G. Jóhanns- sonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands á eigninni sjálfri miðviku- dag 16. desember 1981 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 61., 63. og 66. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á Hraunbergi 11. talinni eign Rúnars 1>. Hermannssonar, fer fram eftir kröfu Árna Guðjónssonar hrl., Jóns Ingólfssonar hdl. og Gísla Baldurs Garðarssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudag 16. desember 1981 kl. 13.45. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Ennum heimsmeistaraeinvíglð í Meranó: Mikhael Tal gagn- rýnir taflmennskuna og varpar nýju Ijósi á 13. einvígisskákina Mikhail Tal sýnir fram á að bæði Kortsnoj og Karpov gerðu mistök i 13. skák- inni. Karpov og Kortsnoj eru hættir aði tefla i Meranó, en heimsmeistaraein-' víginu er samt ekki lokið. Nú fer tími skáksérfræðinga og spekinga í hönd sem keppast við að leita sannleikans í skákunum sem tefldar voru og kanna nýjar leiðir. Þessa dagana eru öll skáktímarit yfirfull af fróðleik um einvígið og fyrsta bókin er þegar komin út, hjá Batsford í London. Hún er eftir enska stórmeistarann Raymond Keene, fyrrum aðstoðar- mann Kortsnojs, og sá dagsins ljós tveimur dögum eftir að einviginu lauk. Fleiri bækur um einvígið koma eflaust innan tíðar, a.m.k. voru þær margar sem út komu eftir einvígið í Baguio 1978, eftir snillinga eins og Larsen, Tal og fleiri. Skýringar Tals við skákirnar komu úr sovéska skák- tímaritinu „64”, sem Karpov rit- stýrir. Skákirnar frá Meranó brýtur Tal einnig til mergjar í ,,64” og varp- ar þar nýju ljósi á ýmsar skákanna sem sumar hverjar eru ekki allar þar sem þær eru séðar. Ein þeirra er 13. skákin, sem Kortsnoj vann að því er virtist svo glæsilega. Margir skákskýrendur bæði innlendir sem erlendir töldu hana bestu skák einvígisins og haft var eftir Polugajevsky frá Meranó að hún væri stórkostleg baráttuskák, sem væri báðum keppendum til sóma. Tal var einnig í Meranó og vafalaust hefur hann haft sömu skoðun á skákinni og Polu, a.m.k. fyrst um sinn. Eftir skákina skyggnd- ist Tal dýpra niður í stöðuna og komst að því að taflmennskan var hreint ekki gallalaus. Oftar en einu sinni missti Kortsnoj af vænlegasta' framhaldinu og Karpov af bestu vörninni. Athugasemdir Tals í „64” eru afar sannfærandi og varpa al- gjörlega nýju ljósi á skákina. Við förum hratt yfir sögu en staðnæm- umst við áhugaverðustu augnablikin. Handbragð töframannsins frá Ríga er augljóst í mörgum afbrigðum, því leikfléttuhæfileikar hans njóta sín ekki síður í skákskýringum en við skákborðiðsjálft. HVÍTT: Viktor Kortsnoj SVART: Analoly Karpov 13. EINVlGISSKÁKIN. DROTTNINGARBRAGÐ 19. Bc7) og hvitur nær hagstæðum uppskiptum. Tal telur engu að stður að 16. — Db6 sé bezti leikurinn. Eftir 17. Db3 töfrar hann fram möguieikann 17. — Rxd4 18. exd4 Hc41? með óljósum Tal-flækjum. Betra er 18. Rxd4, þá hefur hvítur þægilegra tafl, en þaö er allt og sumt. 17. Hxc8 Dxc8 18. exd4 Dd7 19. Rc7 Hc8 20. Rxe6 fxe6 21. Hel a6? Ekki getur þetta talizt í anda stöðunnar. Betra er 21. — Df7, en svartur stendur lakar að vígi. 22. r5 Rc4 23. Dg4 Bb4 24. He2 Hf8 25. f3 Df7 26. Be5 Rd2 8 7 6 5 4 3 2 1 abcdefgh 27. a3 7 6 5 4 abcdefgh 29. — Be7? Hér gat Karpov bjargað taflinu með 29. — Rh4 + ! eins og Tal sýnir fram á i „64”. Eftir 30. Kh2 (30 Dxh4 Df3+ og 31. — Dxd3, eða 30. Bxh4 Dfl + 31. Kh2 Bd6+ 32. Bg3 Hf2 + ) Rf3 + 31. Khl leit Karpov aöeins á framhaldið 31. — Rxd4 32. Hf2 Rf5 33. Bxf5 gxf5 34. Dxb4 og hvitur vinnur. í stað 31. — Rxd4 bendir Tal á 31. — Rh4!! og svartur heldur sínu. Ef 32. Hf2, þá 32. — Rf5! og eftir 32. Dxh4 Df3 + 33. Hg2 Dxd3 34. axb4 Hfl + 35. Kh2 Ddl á hvitur ekkert betra en þráskák á d8 og h4. 1. c4 eó 2. Rc3 d5 3. d4 Be7 4. cxd5 exd5 5. Bf4 c6 6. e3 Bf5 7. g4 Be6 8. h3 Rf6 9. Bd3 c5 10. Rf3 Rc6 11. Kfl 0-0 12. Kg2 Hc8 13. Hcl He8 14. dxc5 Bxc5 15. Rb5 Bf8 16. Rfd4 abcdefgh 16. —Rxd4(?) 1 framhaldi skákarinnar fer að halla á Karpov og því er freistandi að skella skuldinni á þennan leik. Að •sögn Karpovs ráðgerði hann upphaf- lega að leika 16. — Db6 og svara 17. Db3 með 17. Ra5 18. Da4 Bd7, því nú gengur ekki 19. Bc7? vegna 19. — Hxc7 o.s.frv. Hins vegar líkaði honum ekki leikurinn 19. Bf5! (í stað Þessi og næstu leikir áskorandans voru hrópmerktir i bak og fyrir í skákdálkum hér á landi og reyndar annars staðar einnig. En ekki er allt sem sýnist. Tal rökstyður á afar sann- færandi hátt að Kortsnoj hafi oftar en einu sinni misst af vænlegasta framhaldinu — og Karpov af beztu vörninni. Hér átti Kortsnoj að sögn Tal að leika 27. f4 (!), með hótuninni 28. a3 Ba5 29. b4 og vinnur riddar- ann. Karpov á aðeins tvo möguleika til þess að bjarga manninum, 27. — Rc4 og 27. — Re4, en hvorugur virðist koma að haldi. Eftir 27. — Rc4 kemur einfaldlega 28. g6 og hvítur hefur vinningsstöðu. Ef hins vegar 27. — Re4, stingur Tal upp á 28. Hxe4! dxe4 29. Bc4 Kh8 (29. — He8 30. f5) 30. Bxe6 De7 og nú 31. f5, eða 31. d5 — hvitur hefur meira en fullnægjandi færi fyrir skipta- muninn. Enn sannast því hið forn- kveðna: „Hótunin er sterkari en leik- urinn.” 27. — Rxf3! 28. g6(?) Leikið án umhugsunar og gefur svörtum óvænt tækifæri til að rétta úr kútnum. 29. Bg3 strax vinnur, eins og siðar kemur í Ijós. 28. — hxgó 29. Bg3 Skák Jón L. Árnason Og nú kemur í ljós hvers vegna Tal gagnrýnir 28. leik áskorandans. Ef hann hefði leikið strax 28. Bg3, gat hann svarað 28. — Rh4 með 29. Bxh7 + ! Kxh7 30. Dxh4+ Kg8 31. Hf2 og síðan axb4 og vinnur. 30. Hf2 Rel + 31. Khl Dxf2 32. Bxf2 Rxd3 33. Dxe6+ Hf7 34. Bg3 Rxb2 35. Dxd5 Bf6 36. Bd6! Lok skákarinnar teflir Kortsnoj óaðfinnanlega. Meira að segja Tal stenzt ekki mátið í „64” og lætur hrósyrði falla í garð áskorandans. — Sjaldgæft í sovézkum fjölmiðlum! 36. — g5 37. Db3! Bxd4 38. De6 g6 39. De9+ Kg7 40,Bxe5+ BxeS 41. Dxe5+ Kh7.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.