Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1981, Qupperneq 40
Verkfall mjólkurfræðinga á mánudag:
EKKEKTÞOKASTí
SAMOMULAGSÁTT
—sáttasem jari boðar til f undar á morgun
Tiðindalaust hefur verið í
samningamálum mjólkurfræðinga og
viðsemjenda þeirra. Þykir allt benda
til þess að boðað verkfall hinna fyrr-
nefndu komi til framkvæmda á
mánudag. Sáttafundur hefur verið
boðaður I deilunni á morgun, sunnu-
dag.
,,Það bendir ekkert til neinnar
glæsistöðu eins og er,” sagði Sig-
urður Runólfsson, formaður Félags
mjólkurfræðinga, er DV spurði hann
um horfur á verkfalli. Sagði Sigurður
að nú hefðu verið haldnir þrír sátta-
fundir í deilunni. Væru málin enn í
nákvæmlega sama farvegi og þau
hel'ðu verið í byrjun.
Sem kunnugt er felldu mjólkur-
fræðingar samning á grundvelli ASÍ-
samkomulags. Sagði Sigurður að vilji
þeirra nú væri sá að fá kjarasamning
svipaðan þeim samningum sem
vinnuveitendur hefðu gert síðastliðið
ár við öll aðildarfélög ASÍ önnur en
félag mjólkurfræðinga.
■Sáttasemjari ætlar að leiða deilu-
aðila saman til fundar á morgun, eins
og áður sagði. Hefst fundurinn kl.
13.
í frétt frá Vinnuveitendasamband-
inu og Vinnumálasambandi SÍS segir
meðal annars að mjólkurfræðingar
geri kröfu um að verða settir í hlið-
stæða launaflokka og aðrir iðnaðar-
menn án niðurfellingar á aukagreiðsl-
um og ýmsum álögum í núgildandi
samningum. í þessari kröfu felist
17—23% kauphækkun umfram það
sem aðrir launþegar hafi samið um.
-JSS.
Kjarasamningur BSRB:
Samþykktur
með semingi
Samningar BSRB og ríkisins voru
undirrilaðir unt fjögurleylið i gær.
Áður hal'ði svokölluð stóra samninga-
nel'nd BSRBgengið til alkvæðagreiðslu
utn samkomulagið. fellu alkvæði
þannig að 30 samþykktu, 8 voru á móli
og 1 I sálu hjá.
Auk þeirra atriða santningsins sem
DV sagði l'rá í gær. er kveðið á um
5.214 kr. lágmarkstekjur l'yrir fulla
dagvinnu. Verðbætur greiðisl sám-
kvæml „Ólafslögum”. Varðandi
röðun í launallokka segir í 6. grein
samkomulagsins. að hún skuli að
ineginsiefnu niiða við núverandi
röðun, kjör launþega er vinna sain-
bærileg slörf samkvæml öðrum kjara-
samningum eða kröfur sem gerðar eru
til mcnntunar, ábyrgðar og sérhæfni
slarl'smanna.
Undirbúningur allsherjaralkvæða-
greiðslu samningsins hófsl þegar i gær.
Ei stefnt að þvi að Itún lari l'ram i
siöasta lagi el'lir viku eða föslttdagimi
18. desember.
-JSS.
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra og Haraldur Steinþórsson framkvœmdastjóri BSRB undirrita
samkomulagið. DV-mynd Bjarnleifur.
Ný könnun Umf erðarráðs og lögreglu:
Aðeins 30% sem nota bílbeltin
Íslendingar eru ekki löghlýðnir
menn. Innan við þriðjungur ökumanna
og framsætisfarþega hlítir lögum
Alþingis um skyldunotkun bílbelta
samkvæml könnunum sem lögreglu-
menn hala gert að lilstuðlan Umferðar-
ráðs.
Ljósl er að lögleiðingin I. október sl.
hefur ekki leitl til verulega aukinnar
bilbeltanotkunar. Er þvi greinilegt að
viðurlög þurfa að koma lil eigi að
takasl að fá Islendinga lil að spenna
bellin.
Lögreglumenn i Reykjavik og á Sel-
lössi könnuðu bilbeltanotkun sl.
I'immtudag, 10. desentber. Var aðallcga
kannað á slöðunt þar sent umferð et
hröð. Meirihluti könnunarstaða voru
vegir með slitlagi, utan bæja.
Niðurslaðan varð sú að 29 al' Itundr-
19 DAGAR
1A TILJÓLA
aði ökumanna voru með bellitt spennt.
30 af hundraði framsætisfarþega
reyndust spenntir.
Lögreglan í Kellavík kannaði einnig
bílbeltanotkun þennan saman dag á
Hafnargötu og á Reykjanesbraut. Á
Reykjanesbraut reyndust um 30 af
hundraði vera spenntir en á Hafnargöt-
unni innan við 10 af hundraði.
Lögreglumenn í Reykjavík og á Sel-
fossi hal'a kannað reglulega bilbelta-
nolkun allt þetta ár. f febrúar reyndusl
12 al' hundraði ökumanna nota bilbelli,
16 al'hundraði í mai, í júlí íór notkunin
upp í 23 af hundraði og í seplember var
hún 20 af hundraði. Bílbeltadaginn 1.
október spenntu 52 af hverjum Inmdr-
að.ökumönnum beltin. Viku síðar var
notkunin komin niður i 45 af hundraði,
26. október var hún 26 af hundraði en
reyndist 38 af hundraði 15. nóvember.
Sl. fimmtudag reyndist notkunin, sem
fyrr sagði, 29 af hundraði, litlu meiri en
íjúliísumar. -KMU.
BÓKIN UM GUNNAR
ER NÚ SÖLUHÆST
— Möskvar morgundagsins og Ólaf ur Thors fylgja fast á eftir
Viðtalsbók Ólafs Ragnarssonar við
Gunnar Thoroddsen er söluhæsta
bókin á íslandi um þessar mundir
samkvæmt bókalista Dagblaðsins og
Vísis. Þetta er þriðja árið í röð sem
Vísir og nú Dagblaðið og Vísir hala
gert lista yfir söluhæstu bækurnar fyrir
jólin.
f öðru sæti er bók Sigurðar A.
Magnússonar, „Möskvar
morgundagsins”, og bók Matthíasar
Johannessen um Ólal'Thors fylgir fast
á eftir.
Eins og áður er listinn gerður
þannig, að tíu bókaverzlanir, fjórar i
Rcykjavík og hinar á Selfossi, Borgar-
nesi, ísafirði, Akureyri, Húsavík og á
Egilsstöðum, gefa okkur lista yfir tíu
söluhæstu bækur verzlunarinnar. Þess-
um bókum gefum við stig, söluhæsta
bókin fær tíu stig, næst söluhæsta
bókin níu stig og siðan koll af kolli.
Stigin eru lögð saman og þannig fáunt
við bókalistann.
Viðtalsbókin við Gunnar
Thoroddsen fékk þannig 70 stig,
Möskvar morgundagsins fékk 68 stig
og Ólafur Thors 63 stig. Í fjórða sæti er
„Háskaför á norðurslóðum” eftir
Alistair McLean nteð 53 stig og
„Skrifað i skýin” eftir Jóhannes
Snorrason fékk 52 stig. Aðrar bækur fá
talsvert færri stig,
Meðal bóka, sem voru nálægt því að
komast á listann, má nefna ,,GPU-
fangelsið” eflir Sven Hazel,
„Stofublóm”, „Ofsögum sagt” eflir
Þórarin Eldjárn, ,,444 gátur”,
„Bókin um Daníel” eftir Guðmund
Danielsson og „Bara Lennon” eflir
llluga Jökulsson. Alls komust tæplega
fjörutíu bækur á blað að þessu sinni.
Bókalisli Dagblaðsins
og Visis 11. 12. 1981
1. Gunnar Thoroddsen
2. Möskvar morgundagsins
3. ÓlafurThors
4. Háskaför á norðurslóðum
5. Skrifað í skýin
6. Lífsjátning Guðmundu Elíasd.
7. -8. Stórabomban
7.-8. Ástarsaga úr fjöllunum
9. Við heygarðshornið
10. Fimmtán gírar áfram.
-ATA.
frfálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR12. DES. 1981.
ferdaginn
að lengja á ný
í kuldanum getum við huggað okkur
við það að nú eru ekki nema níu dagar
þar til daginn fer að lengja á ný.
Myrkur er i um sautján klukkustundir
af sólarhringnum en dagsbirtan var í
sjö klukkustundir í gær, 11. desember.
Skemmstur sólargangur er 21.
desember. Þá hefst hin visindaiega skil-
greinda nótt kl. 16:50.en lýkur kl.
10:04.
-KMU.
Stóriðjuhöfn
íHelguvík?
Frumkönnun er hafin varðandi
hafnaraðstöðu fyrir stóriðju á Reykja-
nesi, sem vonazt er til að leiði af
sjóefnavinnslu þeirri sem nú er hafin
þar. Einna æskilegast er talið að slík
höfn verði byggð sunnan Hafna, sent
næst iðjusvæðinu, en ýmsir staðir aðrir
koma til greina norðar, þar á meðal sú
fræga Helguvík, sem er næsta vík ulan
Keflavikur.
Sjóefnavinnslan hf. verður stofnuð i
dag i Njarðvík og hefst stofnfundur í
Stapa klukkan 16. Þar gefst almenningi
kostur á að gerast hluthafar og er
minnsti hlulur eill þúsund krónur, sem
greiða má með afborgunum. Fimm
milljóna króna hlutabréf samtals eru
boðin á almennum markaði, en til
viðbótar kemur hlutur Undirbúnings-
félags saltverksmiðju á Reykjanesi hf.
Heildarhlutafé Sjóefnavinnslunnar, nú
í fyrstu, verður 42.5 milljónir króna.
í samtali við Aðalstein Júlíusson
hafnarmálastjóra sagði hann DV að
fyrstu athuganir á hafnarstæði vegna
stóriðjuhafnar, ef til kæmi að byggja
slíka höfn, beindust að mörgum
stöðum, allt frá svæðinu sunnan Hal'na
og inn með Faxaflóa. Kænti jafnvel til
álita að nota Straumsvíkurhöfn.
Flutningar vegna þeirrar verksmiðju,
sem næst væri á dagskrá, gætu liins
vegar farið hvort Iteldur sem menn
vildu um Njarðvíkurhöfn eða Kefla-
víkurhöfn.
-HERB.
Lokl
Það verða ófáir sem fá
Gunnar í jólagjöf, en hvernig
ætli nýórsgjöfin hans verði?
c ískalt
beven up.
pe
hressir betur.