Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1982, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 1. MARZ 1982.
Fundarmenn vlð skrifstofubyggingu Flugleiða. Frá vinstri: Gylfi Siguriinnason, Karl Sigurhjartarson, Slmon Pálsson,
Vilhjálmur Guðmundsson, Marinó Einarsson, Björn Theódórsson, Sigurður Helgason, forstjóri, Hans Indriðason, Jóhann
Sigurðsson, Skarphéðinn Árnason, Knut Berg og Sveinn Sæmundsson.
Sumaráætlun Flugleiða:
Flug milli Glasgow
og Kaupmannahafnar
Arlegur vorfundur yfirmanna noiður-
svæðis Flugleiða var haldinn í Reykja-
vík fyrir heigi. YGrmenn sölusvæða frá
Norðurlöndum, Bretlandi og íslandi
ræddu starfsemina. Endanleg
sumaráætlun Flugleiða liggur nú fyrir
og samkvæmt henni verður aftur tekið
upp flug milli Keflavíkur, Glasgow og
Kaupmannahafnar, en á sínum tíma
þrengdu Bretar svo að þessu Gugi að
því var hætt. f sumar verður einnig
tekið upp aftur flug milli KeGavíkur og
Gautaborgar. Sætaframboð á
áætlunarleiðum eykst i heild í sumar og
ferðum fjölgað miðað við tvö siðustu
ár.
Áður óþekktar örverur
i íslenzku hveravatni
f febrúarhefti tímaritsins Scala sem
gefið er út á vegum v-þýzkra stjórn-
valda er grein um rannsóknir á
örverum í hveravatni. Var sýnum
safnað hér á landi af tveimur
þýzkum prófessorum er að rannsókn-
inni standa, þeim Wolfram Zillig frá
Max-Planck lífefnafræöistofnuninni
í Miinchen og Karli Otto Stetter frá
háskólanum i Regensburg.
Telja þeir félagar sig hafa upp-
götvað hér áður óþekktar örverur
sem tilheyra hópi baktería er nefnast
archaebakteríur (fornbakteríur):
Einkenni þessara örvera eru m.a.
afar mikið hita- og sýruþol.
Rannsóknir sem þessar renna
stoðum undir nýjar hugmyndir í sam-
bandi við upphaf lífs á jörðinni og
þróunarferil fyrstu örveranna.
Segjast þeir Zillig og Stetter vænta
mjög mikils árangurs af áframhald-
andi rannóknum á þessu sviði.
- JÞ
SMÁAUGLÝSINGl
ERENGIN SMÁ-AUGLÝSING
Ný íslenzk
óperaog
danskur
sirkushópur
—meðal dagskráratriða
Listahátíðar’82
Óperur, popp, jas? og leikrit verða
meðal dagskráratriða á Listahátíð í
Reykjavík, sem haldin verður í júní
næstkomandi. Meðal annars verður
frumsýnd ný íslensk ópera og ýmsir
þekktir erlendir listamenn koma
fram.
Silkitromman heitir hún, islenzka
kammeróperan, og er eftir Atla
Heimi og örnólf Árnason. Verður
hún fr.umsýnd í Þjóðleikhúsinu.
Leikstjóri er Sveinn Einarsson og
söngvarar eru sex, meðal annarra
Sigurður Björnsson og Sieglinde
Kahmann. Þá verður og að öllum
líkindum frumsýnt hjá Leikfélagi
Reykjavíkur nýtt verk eftir Kjartan
Ragnarsson, Skilnaður heitir það.
Af tónlistarviðburðum má nefna
þau Vidon og Elenu Kremer, fiðlu-
og pianóleikara, sem halda munu
tónleika, svo og ungverski
píanóleikarinn Zoltán Katzwich,
söngvarinn Boris Kristoff og sin-
fóníuhljómsvfeit frá Lundúnum.
Hverjir verða fulltrúar poppsins eða
jassins er hins vegar ekki afráðið enn.
Þá má nefna, að hingað kemur
danskur sirkushópur, sem hafa mun
aðsetur í Norræna húsinu, og bregða
á leik með yngri kynslóðinni.
- KÞ
Kaupfölag Hajhfirðinga afhenti rúmar 62 þíisund krónur til eflingar fölagsstarfsemi
aldraðra i Garðabte og Hafnarfirði á dögunum l tilefhi af aldarafmteli samvinnu-
hreyfingarinnar á Islandi. Það var Hörður Zóphaníasson, stjómarformaður
Kaupfölags Hafhfirðinga, sem afhenti peningana, en við þeim tóku þau Sverrir
Magnússon, formaður Styrktarfélags aldraðra t Hafnarfirði og Guðfinna Snœbjörns-
dóttir, félagsmálafulltrúi Garðabtejar.
(DV-mynd Einar Ólason)
I dag kostar Volvo 343 DL aðeins 136.000 kr
Hjúkrunarfræðingar:
Samþykktu
nær
einróma
Krafan um fyrirframgreiðslu
launa, eitt helzta keppikefli
hjúkrunarfræðinga i samningun-
um við Reykjavikurborg, fékkst
viðurkennd i samkomulaginu,
sem áðurnefndir aðilar gerðu með
sér um helgina.
Ákvæðið um fyrirframgreiðsl-
una stóð styrrinn lengi vel um, en
hjúkrunarfræðingarnir létu sig
ekki og fengu slnu framgengt. Þá
er i samkomulaginu, að
desemberuppbót verði miðuð við
12. launaflokk, en ekki 11. elns
og áður, en það atriði var I sátta-
tillögunni. Einnig er að hluta til
tekin inn i samkomulagið krafa
hjúkrunarfræðinga um ýmis rétt-
indi, tii dæmis varöandi barns-
burðarleyfi og hlutastarf. Að
öðru leyti er miöaö viö samning
þann, sem BSRB og ríkiö gerðu
með séri haust.
- KÞ