Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1982, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1982, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 1. MARZ 1982. 11 VIÐTALIÐ: SPARIÐ „HÉRLENDIS ER MIKLU MQRA LAGT UPP ÚR MÚSÍK- LÍFINU EN ANNARS STAÐAR” Einar G. Sveinbjörnsson fiðluleikari er íslenzkum tónlistar- áhugamönnum að góðu kunnur fyrir tónlistarflutning sinn. Hann hefur um árabil verið búsettur í Svíþjóð á- samt konu sinni og fjórum börnum þeirra og starfað sem fyrsti konsert- meistari við Sinfóníuhljómsveit Málmeyjar. Einar var staddur hér- lendis á dögunum og spiiaði þá m.a. með Sinfóniuhljómsveit íslands og af því tilefni átti blaðamaður stutt spjall við hann. ,,Auk þess að starfa sem konsert- meistari þá hef ég töluvert stundað kennslu við tónlistarháskólann í Málmey,” segir hann. ,,Fyrir utan þetta tvennt þá telst ég til þessara svo- nefndu einleikara sem alltaf eru á ferð og flugi milli landa, sem getur að sjálfsögðu stundum orðið þreytandi. En þetta er mín vinna og mér þykir hún skemmtileg. Ég hef ofboðslega gaman af allri músik.” Þú ert ekkert að semja sjálfur? Lætaðra um að semja ,,Nei, það eru svo margir aðrir á- gætir menn sem leysa það af hendi — ,og ég læt þeirra verk duga. En hins vegar legg ég mig töluvert fram við að spila tónlist núlifandi höfunda, þessa nútimatónlist eins og hún er jafnan nefnd.” Og hvort finnst þér áhugaverðara að spila tónlist gömlu meistaranna eða nútímaverkin? „Ja, ég vil nú helzt ekki gera upp á milli þeirra. Þau eru í eðli sínu svo ólík. Hvor tveggja eru náttúrlega krefjandi og þarfnast nákvæmni en það er litið annað sem er þeim sam- eiginlegt. Eins og flestir telja þá fellur gamla tónlistin betur að eyranu, sem er náttúrlega aðeins vegna þess hversu oft hún hefur hljómað. Fólk er farið að kannast við þessa tónlist og hennar eðli. Tekur áratugi að kynna nútknatónfístina ið viðurkenningu fjöldans, einfaid- lega vegna þess hversu sjaldan hún hefur heyrzt. Fólk þekkir hana ekki og veit ekki hvernig það á að bregðast við tónum hennar. í rauninni má segja að það taki áratugi og rúmlega það að kynna þessa nútimatónlist. Gamla tónlistin þurfti þess með og við vitum það að sagan endurtekur sig alltaf. „Eroica” Beethovens þótti t.d. ekki merkileg þegar hún var sþil- uð fyrst og tilheyrendur hennar stundu mikið og spurðu sjálfa sig hvort þetta væri nú það sem koma skyldi.” —segirEinarG. Sveinbjömsson fiðluleikari semstarfað hefursem konsertmeistari í Svíþjód í 18 ár Er einhver munur á tónlist Svía og íslendinga að þínu mati? ,,Það ber nú öllum saman um það, þegar þeir koma hingað til íslands, hvað það er áberandi mikið að gerast í tónlistarlífi þjóðarinnar. Ekki bara að þvi leyti hvað mikið er spilað heldur líka hvað það er gífur- leg aðsókn að öllum tónlistarvið- burðum hérna. Yehuthi Menuhin reiknaði það einhvern tíma út að það þyrftu að vera 300 þúsund manns á einum tóleikum í New York til þess að samsvara aðsókninni hér á landi. Duglegt og dr'rfandi einleikarafólk Burtséð frá þessum útreikningum þá er einnig athyglisvert hvað gífur- lega mikið er um það að ungt fólk leiki sígilda tónlist hér á landi. Þetta er ■ undantekningarlítið duglegt og drífandi fólk, sem vekur óskipta athygli þegar það leikur í útlöndum.” Hver heldur þú að ástæðan sé fyrir þessum tónlistaráhuga íslendinga? „Ég held að ástæðan sé einkum sú að hérlendis er lagt miklu meira upp úr músíklífi en annars staðar í heiminum. Einnig er líka mikið lagt upp úr krökkunum strax í byrjun og það hefur skilað frábærum árangri. Það er t.a.m. ekki gert nógu mikið að einmitt þessu í Svíþjóð og þar held ég að munurinn á tónlist þessara þjóða komi sterkast fram,” segir Einar G. Sveinbjörnsson fiðluleikari. -SER. Nýja músikin hefur ekki enn hlot- Einar G. Sveinbjörnsson Rðluleikari, sem staddur var hér á landi á dögunum, og spilaði þá m.a. einleik með Sinföníuhljómsveit Íslands i Fiðlukonsert Mendelsohns. DV-mynd Bjarnleifur. tugþúsundir Endurryðvörn á 2ja ára f resti RYÐVÖRN SF. Smiðshöfða 1 Sími30945 Sparið þúndir króna ' meðmótor-og hjólastiilingu einu sinni á ári BÍLASKOÐUN &STILLING c \BlLfl /*-&S 13-t 0 D Hátúni 2 A. interRent Bílaleiga Akureyrar Akureyri: Tryggvabr 14 - S. 21715, 23515 Reykjavík: Skeifan 9 - S. 31515, 86915 Mesta úrvalið, bestr þjónustan Við útvegum yður afslátt á bílaleigubílum erlendis ... m ■ l.augavegi 17H — 105 Heykjavlk — Slmi K0700 ( A linur) í köldum löndum eru veður mislynd, hitabreytingar eru bæði skyndilegar og Andlitið er berskjaldað. Hvað gerist? Húðin herpist saman. Þér finnst hún varla ná að þekja andlitið. En það þýðir ekkert að veina og kveina. Þú veist að þessi tilfinning hverfur ekki af sjálfu sér. Þú verður að velja þér krem sem verndar þig. Reynir þú ekki alltaf að klæða þig vel ef kalt er? Hugsaðu líka um andlitið. LAIT THERMAL Lð mantér? Jouu yyer ei détnaqudk* oin: vtfajff MILK ciumm :ntk w&y r<- siratm \ftmot.fr makr uf BDTHERM SPÉCIAL RIDES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.