Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1982, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1982, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 1. MARZ 1982. 13 Jón Óttar Ragnarsson Samhliða velmegun eftirstríðs- áranna reið svo steinsteypuöld yfir eins og holskefla. Þar með hófst nýtt tímabil i umhverfismótun og húsa- gerð hér á landi, tímabil sem enn er engan veginn lokið. Steypan var að mörgu leyti erfiðari viðureignar en viðurinn og járnið. Fyrir bragðið urðu húsin klunnalegri, kuldalegri og umfangs- meiri en timbur- og bárujárnshúsin. Á tímabilinu frá 1950 lil 1980 voru byggð mörg ósjáleguslu hús í íslands- sögunni. Forljótar blokkir dreifðust um borg og bí. Vöruskemmum og verksmiðjum var hróflað upp á mörgum fegurstu blettum landsins. Ekki tókst betur til á ýmsum öðrum sviðum. Göngugötur, aðlaðandi miðbæir með notalegum veitingastofum og kaffihúsum voru lengi vel nær óþekkt fyrirbæri í þjóðlifinu. Þess í stað settu hallærisplön og sjoppugöt svip sinn á næturlífið, ekki síst hjá unglingunum. Þau slys verður að skrifa á kostnað þeirrar hug- myndafræði sem hér réð rikjum. Samt er ekkert skrítið að svona skyldi fara. Eftir margra ára slen og doða varð þróunin skyndilega svo ör að nær öll tengsl við fortið og nállúru rofnuðu á einum áratug. Sennilega fór hér saman oftrú á iðnbyltinguna, efnishyggju sósíalism- ans, en þó ekki síst viss skortur á fjöl- breytni, borgaralegum hefðum og vísindalegri hugsun í íslensku þjóð- félagi. Auk þess var í miklu ríkara mæli farið að gæta þeirra velmegunar- einkenna sem áður var minnst á. Hvort það er úrkynjun eða byrjunar- örðugleikar nýríks samfélags skal ósagt látið. A síðustu árum hefur ástandið verið að skána. Sumpart vegna al- þjóðlegra strauma, sumpart vegna innri breytinga í þjóðfélagsgerðinni hefur islenskt samfélag verið að lifna við. Þessi breyting hefur m.a. valdið því að við umhverfismótun er nú lögð vaxandi áhersla á það fjölbreytilega og manneskjulega. Gildir það jafnt um húsagerð sem á öðrum sviðum. Nú eru aftur að koma fram mannvirki sent jafnast á við það besta sem hér hefur verið gert á því sviði. Enn er um tiltölulega fáar byggingar að ræða en mjór er ntikils vísir. Þá hafa veitingahús og kaffistofur sprottið upp eins og gorkúlur á und- anförnum árum. Loks er hægt að fara út að borða án þess að bera stif- an flibba og troðna buddu. Jafnvel hugmyndir um víðtækar göngugötur virðast njóta vaxandi vinsælda meðal þjóðarinnar. Og meira að segja eru einhverjir farnir að hyggja að félagsþörfum ungling- anna fyrir aivöru. Þessari þróun þarf að fylgja eftir. Ef tekst að losna við eitthvað af því kaldranalega í íslensku þjóðfélagi leysast sennilega ýmis félagsleg vandamál í leiðinni. En jafnframt þurfum við að gæta þess að ríkið rétti okkur ekki alla hluti upp í hendurnar. Við þurfum að læra að standa á eigin fótum, læra að stjórna okkursjálf. En umfram allt eigum við að hefja fegurðina til öndvegis í allri umhverfismótun. Aðeins með því nióti verða vcrk okkar samboðin þeirri náttúru og sögu sem íslenskt samfélagbyggirá. Jón Öttar Ragnarsson, dósenl. NOKKUR ORD TIL ÓBREYTTRA ALÞÝÐU- BANDALAGSMANNA... Samkvæmt skoðanakönnunum Dagblaðsins og Visis hefur fylgi Alþýðubandalagsins farið jafnt og þétt minnkandi í u.þ.b. heilt ár. Auðvitað ber ekki að taka niður- stöður skoðanakannana bókstaflega. Eins og formaður þingflokks Alþýðubandalagsins hefur bent á sýnir þó reynslan, að skoðana- kannanirnar gefa vísbendingu um meginstrauma i pólitíkinni. Ýmsar aðrar vísbendingar um stöðu stjórn- málaflokkanna benda aukin heldur í sömu átt og skoðanakönnun DV. Óánægja og áhugaleysi flokksbund- ins alþýðubandalagsfólks leynir sér t.d. ekki í forvali flokksins til undir- búnings sveitarstjórnarframboðum. Á sama tíma og þátttakendur i próf- kjörum annarra stjórnmálaflokka skipta hundruðum í Reykjavík þúsundum; koma aðeins örfáir tugir til þátttöku í prófkosningum Alþýðu- bandalagsins og það enda þótt kven- fólkið í flokknum sæki stíft á i þessum prófkosningum, sem ætti að öllu eðlilegu aðauka þátttöku. Smáflokkur? Áhugaleysið fyrir prófkosningum Alþýðubandalagsins samanborið við árangur annarra flokka er svo í augu stingandi, að Þjóðviljinn er hættur alvarlegrar umræðu í flokknum um stöðu hans og stefnu þá er Ijóst, að flokksforystan mun leggjast gegn því, að slik umræða fái að fara fram innan flokksins. Þetta er þveröfugt við afstöðu okkar Alþýðuflokks- manna, þegar við töldum margar vís- bendingar, m.a. skoðanakannir Dagblaðsins og Vísis, gefa til kynna veika stöðu flokks okkar. Þá efndum við til funda stofnana flokksins, s.s. eins og þingflokks, framkvæmda- stjórnar, flokksstjórnar, stjórnar verkalýðsmálanefndar og í flokks- félögunum til þess að ræða stöðu okkar og störf og lögðum þar grund- völl að bæði aukinni starfsemi og nýjum málatilbúnaði, sem hefur nú skilað árangri. Slíkt á auðsjáanlega ekki að gera i Alþýðubandalaginu. Það var svo sem rétt eftir forystunni á þeim bæ. Hennar viðbrögð eru þvert á móti þau að forherðast enn frekar í þrjósku sinni um að allt hafi verið rétt og satt, sem hún hafi gert. Gremju sinni beinir flokksforystan að kjósendum og flokksfólki eins og skrif ritstjóra Þjóðviljans eru dæmi um og beinlínis ávítar þetta fólk fyrir að vilja ekki skilja og samþykkja, að Alþýðubaúdalagsráðherrarnir í ríkisstjórninni séu brjóstvörn launa- fólksins, að þeir séu að verja það fyrir heimskreppunni, að þeir séu að Kjallarinn Sighvatur Björgvinsson gjarnir flokkaflakkarar, aðallega úr Framsóknarflokknum, sem líta á stjórnmálin sem burtreiðar eða íþróttakappleik; gáfumannafélög og hvítflibbaklikur af Þjóðviljanum; áhugamenn um opinber skýrslu- gerðir; atvinnumenn i starfshópagerð og aðrir slíkir en frá var þokað áhrifum óbreylts alþýðufólks og verkalýðssinna, sem gefið höfðu Alþýðubandalaginu sitt „jarðsam- Niðurstöður skoðanakönnunar DV: Sjálfstæðisflokkurinn hefur um 50 af hundraði —afþeimsemtakaafstUðu—þríðjungurkiósendaóákveðínn —Alþýðubandalagtapar —Mþýðuflokkurhjamr við—S)á nánará Ws. 4—5 ogbaksftu SjálfstæOuflokkurinn nýtut nú fylgii um 50 af hundraOi þeirra kjós- cnda. scm taka afstOOu. En þriðji hver kjósandi lekur ckki afstðOu — er óákveOinn. Þetta eru niOurstóOur skoðanakónnunar DV um fylgi flokkann -. Af þcim sem taka afstóOu scgjast 50,2% mundu kjósa SjálfstæOis- flokkinn cf þingkosningar færu fram nú. Þetta er 3,4% minna en flokkur- inn haföi i kðnnun I október en 12.9% meira en listar sjálfstæöis- manna fengu samtals I siOustu kosn- ingum. Samkvæmt þcssu gæti Sjálf- stæötsflokkurinn fengiö 30 þingmenn ogbættviO sig 8. Framsóknarflokkurinn nýtur sam- kvæmt kðnnuninni fylgis 22,7% af þcim sem taka afstðöu. Þctucr0,4% minna en flokkurinn ftkk I kðnnun i októbcr og 2,2% minna en hann haföi f siöustu kosningum. Oera má ráö fyrir að Framsókn græöi cinn þtngmann á kjðrdæma- skipaninni. Samkvæml kðnnuninni fær Framsókn 14 þingmenn, sem væri 3ja þingmanna tap. Tap Atþýóubandalagsins, sem sésl hefur i skoöanakðnnunum siöustu mánuöi, heidur áfram. Alþýðu- bandalagiö hefur samkvæmt kðnn- uninni fylgi 13,4%. Þafl er 1,2% minna en var i oklóber og 6,3% minna en i kosningunum. Alþýðu- bandalagifl tapaöi samkvæmt þ\l 2 þingmðnnum og fengi 8. AlþýöuflokLurinn hjarnar nokkuð viö samkvæml þessari kðnnun cftir að hafa veriö lengi i miklu tapi. Al- þýöuflokkurinn fær 13.7% fylgis þeirra, sem laka afsiðöu. Þaö er 4,9% meira en var i októbcr en santt 3,7% minna cn i kosningunum. Ftokkurinn fcngi samkva þingmenn og tapaöi 2. I þvi 8 að skýra frá fjólda þátttakenda en til- greinir þess í stað þátttakendafjöld- ann sem hlutfall félagsbundins fólks. Sé félagsbundið fólk i Alþýðubanda- laginu ekki fleira en þessi hlutfalla- reikningur Þjóðviljans gefur til kynna, þá er Alþýðubandalagið sem félagsmálahreyfing miklu veikara en nokkurn óraði fyrir — raunar lang- veikasti flokkur landsins. Sé það rétt gerbreytir það þeirri ímynd af Alþýðubandalaginu, sem allur al- menningur hefur haft. Mér kernur hins vegar ekki til hugar að saman- lagður fjöldi flokksbundins Alþýðu- bandalagsfólk i Reykjavik sé ekki rnikið yfir 700, flokksbundið Alþýðubandalagsfólk i Hafnarfirði ekki öllu fleira en á áttunda tug o.s.frv. Hlutfallareikningur Þjóðvilj- ans, þegar hann skýrir þátttökuleysið í forvali Alþýðubandalagsins, ætti að tákna, að flokksbundið Alþýðu- bandalagsfólk á íslandi séekki mikið yfir 2000—2500 manns. Slíkur smáflokkur er Alþýðubandalagið ekki — þaðer fráleitt — en þeini mun alvarlegri visbending er þá líka þátt- tökuleysið í forkosningunt flokksins. Þegar afstaða hins traustasta kjarna i fylgi stjórnmálaflokks, sem flokksbundna fólkið er, er slik að það mætir ekki til leiks, þegar ákvarða á framboð flokksins, þá er stjórnmálaflokkur i alvarlegum vanda staddur. Viðbrögðin. Ef marka má viðbrögð formanns Alþýðubandalagsins við því áliti for- manns þingflokksins, að niðurstöður. skoðanakannana DV gæfu tilefni til vernda þjóðfrelsi þess, að þeir séu að verja kaupmátt þess o.s.frv. — Það er ekki við okkur að sakast, segir flokksforystan um stöðugt fylgistap flokksins. Allt, sem við gerum og segjum, hefur verið og er rétt. Um það þarf ekkert að ræða og það verðurekki rælt! — Sökin er öll hjá ykkur, segir þessi sama forysta við fólkið. Þið skiljið ekki hvað við erum fyrir ykkur að gera. Þið vitið ekki hvað við leggjum á okkur. Þið vitið ekki hvaða voði ykkur er búinn ef við breytum stefnu okkar eða störfum. Þetta eru viðbrögð forystu Alþýðpbandalagsins eins og þau birt- ast á síðunt Þjóðviljans — svör hennar við ábendingunt þingflokks- formannsins og stöðu. Ekki þarf ég að harma það. Treysta má því, að þrjóska og óbilgirni flokksforystu Alþýðubandalagsins verði a.m.k. ekki steinn í götu Alþýðuflokksins og ekki er hún hcldur líkleg til þess að styrkja aftur stöðu Alþýðubanda- lagsins, sem verið hefur nú unt skeið andstæðingur Alþýðuflokksins á svo til öllum sviðum þjóðmála. Til umhugsunar. Þó verður því ekki neitað, að þegar horft er yfir svið islenskra stjórnmála með nokkuð víðari sjóndeildarhring en aðeins til þessa árs og e.t.v. þess næsta er nokkur ástæða, einnig fyrir okkur Alþýuðuflokksmenn, til þess að íhuga þessi mál. Með kynslóða- skiptunum, sem urðu i forystu Alþýðubandalagsins þegar Lúðvík Jósepsson lét af störfum, komust valdahópar til áhrifa, sem vissulega hafði áður gætt í Alþýðubandalaginu en höfðu þó ekki verið alls ráðandi. Meðal þeirra voru ýmsir metnaðar- band.” Sama er mér þótt fjari undan flokkaflökkurunum, gáfumanna- félögunum og starfshópasmiðunum, sem nú ráða Alþýðubandalaginu, en þeirra tap er einnig óhjákvæmilega tap þess fólks úr alþýðustéttum og úr röðum verkalýðshreyfingar, sem Að brjóta allar brýr. í minum huga er þessi ákvörðun Alþýðubandalagsins frumskýringin á því stöðuga fylgistapi, sem flokkurinn helur oiðið fyrir undir hinni nýju forystu. Fyrsta verk hennar var að brjóta öll grundvallar- boðorð flokksins. Lagt var út í póli- tíska ævintýramennsku, sem grund- vallaðist á þvi að ganga til stuðnings við nokkra þingmenn íhaldsins um stofnun ríkisstjórnar, sem átti að tryggja Alþýðubandalaginu tiltekin völd. Til þess að fylgja þeirri ráða- breytni eftir var sú ákvörðun tekin að rjúfa alla samvinnu við Alþýðuflokk- inn á sviði verkalýðsmála en taka þar höndum saman við ihaldið og lyfta þvi til þeirra áhrifa i íslenskri verka- lýðshreyfingu, sem það hefur ekki áður fengið. Svo langt hefur verið gengið i íhaldssamstarfinu, að alþýðubandalagsmenn í verkalýðs- hreyfingunni hafa verið látnir hund- elta framámenn Alþýðuflokksins þar og bjóða fylgi sitt við hvaða mót- frambjóðenda, sem framsóknarmenn eða sjálfstæðismenn kynnu að hafa ef það mætti verða Alþýðuflokks- mönnum til tjóns. Þjóðviljinn hefur verið látinn lof- syngja íhaldsliðið, sem Alþýðu- bandalagið hefur átt i santvinnu við svo mjög, að halda mætti. að Þjóð- viljinn hafi tekiðGunnar i'horoddsen í guðatölu. Afleiðingarnar hafa orðið þær, að Sjálfstæðisflokkurinn er sífellt með um eða yfir 50% í fylgis- könnunum blaða, Framsóknar- flokkurinn — hinn afguðaflokkur Þjóðviljans — heldur sínu, Alþýðu- fiokknum hefur tekist að slanda af sér árásir Alþýðubandalagsins og er í sókn, en Alþýðubandalagið sjálft uppsker stöðugt tap. Hvernig rná annað vera, þegar flokksforystan hefur með svo eftirminnilegum hætti brotið öll grundvallarboðorð Alþýðubandalagsins i stjórnmálum og virðist mestu láta sig varða að gera veg ihaldsins sem allra mestan, bæði i verkalýðshreyfingunni og i lands- málunum? Hvað ætla fiokkaflakkararnir og skýrslugerðarmennirnir i ráðherra- stólum Alþýðubandalagsins svo að segja flokksmönnum sinum, þegar ihaldshelmingarnir hafa nú skriðið saman aftur fyrir kosningar og stefna að þvi að vinna af vinstri rnönnum ýmnis þau sveitarfélög, sem vinstri A „Treysta má því að þrjóska og óbilgirni flokksforystu Alþýðubandalagsins verði a.m.k. ekki steinn í götu Alþýðuflokksins og ekki er hún heldur líkleg til þess að styrkja aftur stöðu Alþýðubandalagsins sem verið hefur um skeið andstæðingur Alþýðuflokksins á svo til öllum sviðum þjóðmála,” segir Sighvatur Björgvinsson í grein sinni þar sem hann fjallar um niðurstöður í skoðanakönnun DV. við Alþýðuflokksmenn höfum oft átt gott samstarf við í gegnum árin, hvernig svo sem sambúðin hefur verið á stjórnmálasviðinu. Þrátt fyrir allt er mér því ekki alveg sama um, að dvínandi fylgi Alþýðubandalagsins hljóti óhjákvæmilega að hafa í för með sér dvinandi áhrif þessa fólks, sem ég tel þó að litla ábyrgð beri á þeim atburðum, sem orðið hafa aðra en þá að hlýða af flokksþægð en gegn betri vitund fyrirmælum hinnar nýju forystustéttar flokksins um að höggva á öll tengsl og allt samstarf við Alþýðuflokkinn i verkalýðshreyf- ingunni til þess eins að taka þar í staðinn upp samstarf við höfuðand- stæðinginn, sjálft ihaldið. menn hafa stjórnað? Hver verður af- sökun Þjóðviljaliðsins gagnvart Sigurjóni Péturssyni el' Reykjavik fellur fyrir sameinuðu liði Geirs, Alberts og Gunnars? Það er þessi spurning, sem er i hugum óbreyttra Alþýðubandalags- manna, þegar þeir mótmæla með því að mæta ekki til leiks i prófkosning- um fiokksins. Það er lika þessi spurning, sem er i huga Svavars Gestssonar, þegar hann lætur Einar Karl Haraldsson og Kjartan Ólafsson segja: ..Stefna og störf flokksforyst- unnar verða ekki rædd í Alþýðu- bandalaginu.” Sighvatur Björgvinsson alþingismaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.