Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1982, Side 34
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 1. MARZ 1982.
Sasm—lmBnm:
Tölvupopp að hætti
Maós formanns
í eyrum margra er nýrómantíska
tónlistin spánnýtt fyrirbæri og býsna
óvenjulegt. Auðvitað má til sanns
vegar færa að þessi tegund tónlistar —
eða öllu heldur þetta afbrigði í dægur-
tónlist — sé ekki ýkja gamalt en spán-
nýtt er það ekki. Langt er um liðið frá
því svuntuþeysar og önnur undarleg
apparöt kennd við rafeindir fóru að
láta á sér kræla með tónlistarmönnum
þó það sé ekki fyrr en á allra síðustu
árum sem notkun þeirra.hefur stórauk-
izt og jafnframt tekið stakkaskiptum.
Gary Numan og John Fox eru tíðast
nefndir sem upphafsmenn þessarar
nýju línu og víst er það ekki vitlausara
en margt annað. Eg vil þó leyfa mér að
bæta við nafni i þann hóp frumherja
nýrómantíkurinnar David Sylvian.
Fimm ár eru liðin frá því Sylvian
stofnaði hljómsveit sina, Japan. Um
nafngiftina kann ég engar sögur þvi
hljómsveitin er albrezk, en austurlenzk
áhrif eru þó geysilega áberandi. Þar
gæti auðvitað verið að finna skýringu á
sérkennilegu nafni hljómsveitarinnar
— ef ekki væri deginum Ijósara að
austurlenzku áhrifin eiu mestanpart
kínversk ekki japönsk. En ef til vill
hefur David Sylvian bara ekki verið
beturaðsér i landafræðinni!
Ég hef fylgzt náið með Japan á síð-
ustu árum. Löngum hefur hljómsveitin
átt litlu fylgi að fagna, hún hefur þótt
of alvörugefin fyrir hinn almenna
poppunnanda, textarnir of pólitiskir og
undarlegir og söngurinn of líkur söng
Bryan Ferrys. Síðasta atriðið er kór-
rétt; Ferry og Sylvian eru nauðalikir
söngvarar en annað eiga þeir tæpast
sameiginlegt.
Fyrsta í stað var hljómsveitin ekki
með áberandi notkun svuntuþeysa,
miklu frekar nokkuð „venjuleg” rokk-
hljómsveit með skrýtna texta. En fljótt
fór að bera á annarri stefnu og frá
árinu 1979 má heita að Japan haft ekki
flutt aðra tónlist en þá sem tiðast er
nefnd nýrómantísk tónlist, tölvupopp,,
eða hvað við viljum kalla það. Þetta
segir auðvitað litla sögu því ólíku er til
að mynda saman að jafna Human
League og Japan, þó báðar teljist vera
handgengnar tölvupoppi. Japan hefur
ótvíræða sérstöðu og geta hennar hefur
að minni hyggju aukizt jafnt og þétt
unz hljómsveitin hreinlega springur út
á þessari nýjustu plötu sinni, Tin
Drum. Ég hef sjaldan orðið ánægðari
með plötu í seinni tíð, tónverkin
nokkuð jafngóð og austurlenzkum
áhrifum blandað saman við Vestur-
landarokk á einkar sérstæðan og list-
rænan hátt. Við getum líka bara
kallað það snilld, en til að forðast allan
misskilning skal tekið fram að nafn
plötunnar, Tin Drum, á ekkert skylt
við skáldsögu Giinter Grass né kvik-
mynd með sama nafni byggða á þeirri
sögu. Beztu lög: Ghosts / Visions Of
China / Still Life In Mobile Homes.
-Gsal
Það er misjafnt hvernig valin eru vin-
sælustu lög ársins. Erlendis er yfirleitt
farið eftir sölu laganna og höfum við
kynnzt þannig vinsældalistum í
blöðunum og einnig i Keflavíkurút-
varpinu. Hérlendis hefur yfirleitt verið
erfitt að halda úti vinsældalistum, þar
sem salan er látin ráða og stafar það
kannski helzt af því hversu litið hefur
verið gefið út af tveggja laga plötum.
Um áramótin tók Páll Þorsteinsson
sig til og fór í gegnum þann aragrúa af
innlendum lögum sem flutt voru í út-
varpinu sl. ár og valdi 25 mest spiluðu
lögin 1981 og voru þau leikin einn
laugardagseftirmiðdag. Eins og gefur
að skiljá eru flest lögin útgefin á síðasta
ári en þó eru þarna „standardar” sem
eru komnir til ára sinna en eru þó
spilaðir það oft að það nægir til að
komast á listann. Má þar nefna Litlu
fluguna hans Sigfúsar og Vikivaki eftir
Jón Múla, sem er að minu áliti eitt allra
bezta jasslag sem samið hefur verið hér
Ný lög eru í öllum efstu sætum list-
ans og eru það flest lög sem komu út á
plötum um vorið og urðu vinsæl yfir
sumar. Nýju lögin eru misjöfn að
gæðum og ólík, oft erfitt að skilja
hvernig stóð á því að þau urðu vinsæl,
en svo eru önnur sem eru vel samin og
ágætlega flutt. Má þar nefna Við
freistingum gæt þín, sem Haukur
Morthens og Mezzoforte flytja, lagið
úr kvikmyndinni Óðal feðranna, Sönn
ást, og hið ágæta lag Arnþórs Helga-
sonar, Fréttaauki.
Til að varðveita þessa vinnu Páls
hefur Steinar ráðizt í að gefa lögin 25
út á tveim plötum sem eru seldar sem
ein og er það framtak sem virðingarvert
er. HK
Onceuponatíme ThedngBes
—SiouKsSe amS the hamhees;
Samansarn af
jaröarberjum
Siouxsie and teh banshees hefur
verið starfandi allt frá '77 en með
nokkrum breytingum þó.
Þessi plata er samansafn af „hit”
lögum hljómsveitarinnar og byrjar með
laginu Hong Kong Garden sem hljóm-
sveitin varð fyrst þekkt fyrir og endar á
laginu Arabian Knights sem var á síð-
ustu hijómplötu Siouxsie and the bans-
hees, Juvu.
Hljómsveitin er vinsæl í heimalandi
sínu, Bretlandi, og hefur hvað eftir
annað verið kosin ein af beztu hljóm-
sveitum áranna og söngkonan Siouxsie
Sioux hefur ávallt verið í efstu sætum
þegar valin er bezta söngkona ársins.
Plata þessi heitir Once upon a time/
The singles og er eins og áður sagði
samansafn af lögum hljómsveitarinnar
frá '78-81. Hún er nokkuð hrá í byrjun
enda eru þar fyrstu lögin sem hljóm-
sveitin gaf út, en síðan kemur heil-
steyptari mynd á verkið.
Beztu Iögin á plötunni eru Play-
ground twist, Christine, Israel og Spell-
bound. Söngur Siouxsie er hreint og
beint dásamlegur og ekki er spiliríið af
verri endanum, siður en svo. Textarnir
eru góðir, þeir eru ekki þetta „Ég” sem
er að fara með alla textaframleiðslu
heldur eru þeir lýsandi sögur um hvers-
dagsleikann. Lögin eru alls tíu svo það
borgar sig að kaupa frekar allar hinar
og eiga þá öll meistarastykki Siouxsie
and the banshees. QVJ
á landi. Stjörnuhrap með Mezzoforte
er einnig ágætt lag sem er ekki nýtt en
varð vinsælt á árinu út af margum-
talaðri sjónvarpsauglýsingu. En eldri
lögin eiga það þó sameiginlegt að vera
frekar aftarlega á listanum.
Þórhaliur Sigurðsson (Laddi) á þrjú lög
á vinsældalista útvarpsins.
David Sylvian söngvarí og aðallagasmiður brezku Ujömsveitarínnar Japan borðar
með priónum að austurlenzkum sið meðan formaðurínn biður þögull á veggnum.
Næstádagskrá:
Ekki eingöngu nýleg lög á
vinsældalista útvarpsins
Weather Report—Record:
Óvenju litlaus
Zavinulplata
PLÖTUR
Véist þu
mikkf um
brautir og stangir ?
T.d. að til eru gardínustangir úr gjörvulegu smiðajárni?
Stangir sérstaklega hannaðar fyrir litla glugga sem leysa af
hólmi þrýstistangir og kappastangir?
Að til eru ömmustangir í fjórum litum
Stangir sem hœgt er að lengja úr 50 cm í 95 og úr
80 cm í ljO cm
Það er til úrval af brautum og stöngum hjá okkur sem þú
hafðir ekki hugmynd um að væru til
Svo pöntum við gardínustangir með gullhúð, sé þess
sérstaklega óskað
Líttu inn
Þá veist þú meir um brautir
og stangir
meo guurtuo
tís
brautir og stangir
Ármúla 32
Sími86602
Undurlítið hefur farið fyrir
afkvæmi hinnar annars ágætustu jass-
rokk-hljómsveitar Weather Report en
umrædd skífa, er ber hið lítilmótlega
nafn Record, læddist upp í hillur
hljómplötuverzlana borgarinnar fyrir
nokkru. Þessi staðreynd hlýtur að
vekja nokkra furðu því eftir því sem ég
kemst næst ber Weather Report óvenju
hátt meðal þeirra er á nútima-rokk-jass
hlýða. Umhugsunarvert.
Weather Report fæddist í Banda-
ríkjunum árið 1970 og burðinn
mynduðu vínarbúinn Joseph Zavinul,
er lagði stund á hljómborðsleik, og
saxófónblásarinn Wayne Shorter.
Báðir höfðu þeir þá um árabil aðstoðað
hinn eina sanna Miles Davies en sögðu.
skilið við gamla manninn og hófu leit
að einhverju nýju.” Sú leit bar svo
sannarlega árangur því þeir reyndust
meðal frumkvöðla þeirrar tónlistar-
stefnu er fyrr var nefnd jassrokk. Segir
nú lítið af ferðum Weather Report fyrr
en árið 1977 en þá kom út áttunda
skífan, Heavy Weather sem margir
telja marka hápunkt ferils þeirra
Zavinul, Shorter og félaga. Þeirra á
meðal er undirritaður.
En víkjum sögunni að Record.
Liðsskipan Weather Report er nú hin
sama og var á síðustu breiðskífu hljóm-
sveitarinnar, Night Passage (1980):
Zavinul á hljómborð, Shorter á
saxófón, Jaco Pastorious á bassa,
Peter Erskine á trommur og Robert
Thomas Jr. á önnur ásláttarhljóðfæri.
Sem áður er það Zavinul sem að mestu
sér um tónsmíðarnar en fimm af sjö
lögum skífunnar eru á hans nafni
alfarið.
Record hefst á dæmigerðu Weather
Report-lagi er nefnist Volcano for
Hire; hraður taktur ef takt skal kalla og
Zavinul leikur sér í kringum skemmti-
legan lagstúf sem Shorter sér um að
koma til skila.
Annað lagið er rólegur jass Current
Affairs með Shorter og Pastorous i
aðalhlutverkum en fyrri lhliðinni lýkur
með litlu verki í þremur hlutum sem
Zavinul nefnir N.Y.C. (New York
City): Hlið B hefst á skífunnar
skemmtilegasta lagi og jafnframt þvi
„léttasta” og þar fer Erskine á kostum
á húðunum. Nefnist verkið Dara
Factor One og er eftir Zavinul en
síðasta lag plötunnar er Dara Factor
Two sem allir meðlimir eru skrifaðir
fyrir. En í millum bregður fyrir tveimur
lögum. Annað, When It Was Now, er
eftir Shorter en hið síðara nefnir
Zavinul einfaldlega Speechless. Eru
þessi lög án séreinkenna að heita má.
Heildareinkun mín um Record er sú
að hér sé á ferðinni óvenju litlaus plata
frá Zavinul og co. Vantar eitthvað...
hvað sem það er. Samt standa nú
Weather Report alltaf fyrir sínu, annað
verðurekkisagt. _ -TT