Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982.
Svartamarkaðs-
brask með
myndbönd á
íslandi:
pMfYHARRY
íl) Ríetronome
' Med Cllut Eastwood
DE Tl BUD
(S) Esielte
_______S-Ied Tttl Brunner
STR0MERE I BAK5PEJLET
(2) Esseltft
Med Burt Beynolds
DE GR0NNE DJÆ.VLE >
(1«> Metrasome
_______Med John Wayne ■
DET VÍLDE RÆS
(í) Essclte
Med Burt Reynold*
ALLE TIÐERS RACE •<
<9) B.T. Vldeoklub
Med Jack Lemmon
FAMILIEN GYLDÍKAi
„ , (D Irlsh
Med AKsel Str0byo f;
KRIGFRNE
(líí> Esselte
Med Mich liack
Tll uss NIMITZ <
(5) B.T. Vldeoklub
Med Klrk Douglas
ÁLT PÁ ETlRÆÐT
(16) AB coUectlon
Med Dlrch Pascer
GUMMI-TARZAN
M
(NV) B.T.
Med Alex
H
Videoklub
fed Alex Svanbjorg
SOMMERSÆS
(13) Se & H0r Videokiub
„ Amer. UEsgdomsjmm
3. VERDENSKRIG
(NY) 8eajid Vldeo
Med Koek Hudson
DE R0SE BA8ETTER
(NY) Dansk Vldeosyndi
ko.t, Mcí1 Marlo SuelHano
DIRTY HARRY GÁRAMOK/I
(NY) Motronomo
Mcd Olint Pastwood
PAHSERNÆVEN
(11) JVfctronome
MedCUnt Eastwood
fi
DE ViLDE GÆS .
(I!)) A3 Collectlon
Med P.lcSmrd Burton
»10« )
(NY) B.T. Vídeoklub
Bo Pcrek/Budloy Moore
SHERIFFEN SKYDER )C
(18) B.T. Vldeoklub
Méö Mel Brooka
NEW YOSK KíLLER ^
(12) B.T. Vldeoklub
Med Jamea Broltn
'iPQ'jn
ReaiSSBlejct al Vltleograsnfore- I
nionen.s advokat. John Evrh.titei- I
Dönsku btööin bérta Msta yfir
vinsækistu spótumar og akki
óaigengt aðum helmingur só
frá Warner Brothers (krossað
við þær ó myndinni).
Fréttaljós — Fréttaljós — Fréttaljós
Þjófnaöur sem nem-
ur milljónum a érí
— segir André Poulsen, umboðsmaður Wamer Brothers og forstjéri Metronome Video í Höfn
Andri Pouisen: frmmteiöHa hvarrar spótu kostar 10 mHljónir Bandarikja-
daia. (DV-mynd EVA)
— Ég get sagt þér alveg hrein-
skilnislega að hingað til hefur stór-
fyrirtækjum eins og Warner Brothers
verið gjörsamlega ókleift að senda
myndbönd sín á islandsmarkað,
sagði André Poulsen, umboðsmaður
Warner Brothers og forstjóri
Metronome Video í Kaupmanna-
höfn, en hann er staddur hér á landi í
samningaviðræðum við islenzk fyrir-
tæki. — Ástæðan er hið gegndar-
Iausa svartamarkaðsbrask sem hér
hefur viðgengizt í sambandi við
myndbandaieigur. Er myndbanda-
byltingin hélt innreið sina hér á iandi
voru um 95% útleigðra mynda teknar
upp á spólur með ólöglegum hætti.
Sem betur fer hefur þó tekizt að
hreinsa til á markaðnum hvað
Warner Brothers snertir, og þá en
ekki fyrr gátum við farið að senda
ykkur spólur, en þær hafa verið
leigðar út í gegnum Hamrasel s/f.
— Gerð einnar kvikmyndar kostar
að meðaltali 10 milljónir Bandarikja-
dala. Allt það fólk er að kvikmynda-
gerð vinnur lifir á prósentum af sðlu
myndarinnar. En það er ekki nóg
með að svartamarkaðsbraskararnir
ræni allt þetta fólk vinnulaunum
sinum.heldur er þetta mál sem snertir
líka skattgreiðendur og ríkiskassann.
Við skulum taka sem dæmi mann
sem hefur til umráða 200 ólöglegar
spólur. Hann ieigir hverja um sig
fyrir 5 dali og hefur að meðaltali upp
úr krafsinu 200.000 daii á ári. Gjöld
og tollar ríkisins á iöglega innfluttum
myndböndum er 129% og þótt við
tökum bara söluskattinn af þessari
upphæö þá hefur þessi maður þar
með haft af ríkinu 46.000 dali. Miðað
viö fólksfjölda er eölileg heildarvelta
á myndbandaleigu alls um 2,4 millj-
ónir Bandaríkjadala á ári. Þetta er
óneitaniega stór kaka og ríkinu
hlýtur því að vera mikið í mun að fá
sinn skerf af henni.
Kaplasjón varpið
Hkavandamál
— önnur ólögleg starfsemi sem
hefur viðgengizt á tslandi í stærri stíl
en í nokkru öðru landi er kapalsjón-
varpið. Það hefur enn ekki verið
ráðið fram úr þvi vandamáli en ég
býst við að það verði á þann hátt að
spólur verða leigðar út á mun hærra
verði til slíkrar notkunar.
— Danmörk, Svíþjóð og Noregur
hafa gengið mjög hart til verks í sam-
bandi við ólöglega myndbandaleigu
og eiga þeir sem slíkt stunda yfir
höfði sér allt að 1 1/2 árs fangelsis-
dóm. tslendingar ættu að fara að
þeirra dæmi. Og þeir sem verzla lög-
lega með myndbandaspólur munu
ekki liða nein undanbrögð. T.d.
höfum við í Kaupmannahöfn
myndað með okkur samtök og leigt
okkur leynilögreglumenn til að fylgj-
ast með slíkum lögbrotum. Við
hikum heldur ekki við málssókn ef i
það fer og neytendur verða að gera
sér grein fyrir að þeir eru jafnsekir og
kaupmaðurinn.
— Þeir verða líka að gera sér grein
fyrir að löglegur markaður er þeim
sjálfum í hag. Mynd og tóngæöi
ólöglegra upptaka eru svo miklu verri
en þeirra löglegru og foreldrar geta
verið vissir um að virt, löglegt fyrir-
tæki verzlar ekki með soramyndir
sem böm þeirra geta Ieigt sér á laun.
Nákvæmt eftirlit er haft með siikum
spólum og sé myndin ekki við hæfi
barna, stendur það iika kirfilega á
spólunni.
Myndbönd: Arftaki
dagbiaðanna
— Warner Brothers eru eitt stærsta
fyrirtækið í þessum bransa. Það réði
yfir rúmlega 1000 titlum áður en það
keypti United Artists en með þeim
kaupum bættust 500 titlar í búið. Allt
eru þetta stórmyndir eins og t.d.
James Bond-myndirnar, Dirty
Harry-myndirnar með Clint East-
wood og myndir með Peter Sellers.
En við erum ekki aðeins umboðs-
menn fyrir þá, heldur framleiöir
Metronome Video lika eigin myndir.
T.d. er hin margverðlaunaða barna-
mynd, Gúmmí-Tarzan, sem m.a. var
valin bezta barnamynd ársins af
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna frá
okkur. Við höfum líka hafið sam-
vinnu við blaðið BT um videoklúbb,
sem leigir út heilu prógrömmin Það
getur t.d. verið pakki með tveimur
myndum frá Thames, sem við höfum
Ifka umboð fyrir, og svo einn heima-
gerður þáttur. Við gætum t.d. vel
hugsað okkur að fá islenzkan þátt inn
í svona pakka.
— Sem dæmi um þáttagerð okkar
og BT vil ég nefna að nýlega var
haldin 6 daga hjólreiðakeppni í
Danmörku. Við tókum keppnina upp
á myndband og að kvöldið síðasta
dagsins var allt tilbúið nema úrslitin.
Þau lágu ljós fyrir á miðnætti,
klukkan 7 um morguninn voru
spólurnar fullfrágengnar og komnar
á almennan markað þremur timum
síðar. Þannig skutum við jafnvel
blöðunum ref fyrir rass. Og þetta er
greinilega það sem koma skal, mig
skyldi ekki undra þótt blöð yrðu ekki
lengur til eftir nokkur ár nema sem
videospóiur eða videobreiðskifur.
Ríkissjón varpið getur lœrt
mð Hfa með mynd-
böndunum
— Myndböndin munu ekki ganga
af ríkissjónvarpinu dauðu, heldur
verða því heilbrigð samkeppni. Hin
eðlilega þróun verður sú að ríkissjón-
varpið snýr sér meira að fræðslu-
þáttum og fréttamennsku en lætur
myndbandaiðnaðinn frekar um
skemmtiefnið. Kvikmyndahúsin
leggjast heldur ekki niður. Sfaukin
áherzla verður Iögð á kvikmyndahús
með mörgum sölum, sem bjóða upp
áúrval nýrra mynda áður en þær
koma á videomarkaðinn. Við megum
ekki gleyma því að kvikmyndahúsin
fullnægja líka vissri félagslegri þörf.
T.d. er ennþá meiri stíll yfir því að
bjóða elskunni sinni í bíó en upp á
imbakassann heima hjá sér í félags-
skap pabba og mömmu.
Myndbandaiðnaðurinn er áreiðan-
lega sú bylting 20. aldar, sem mest
áhrif hefur á líf almennings. Og það
hiýtur að verða stefna þeirra sem að
henni standa að berjast fyrir þvi að
■jákvæðu áhrifin verði ofan á og
útrýma þeim gúUgrafaraanda sem
segja má að einkennt hafi hana í
byrjun.
Óhófíegir toílar
— Það eina sem ég hef reglulegar
áhyggjur af í sambandi við ísiands-
markaðinn eru hinir óhóflegu skattar
og tollar sem ríkið leggur á innfluttar
spólur. f öðrum iöndum flokkast
spólumar undir menningarmál á
sama 1 hátt og bækur. Sú óhóflega
álagning sem viðgengzt hér gerir það
óneitanlega freistandi að fara í
kringum lögin og stinga dálaglegum
gróða í eigin vasa. T.d. með því að
taka kópiur af löglega innfluttum
spólum og leigja þær undir borðið.
— Eins finnst mér einkennilegt
að leigusalar skuli ekki fá tollinn
endurgreiddan er spólunum er skilaö,
þar sem þeir hafa í raun og veru
aldrei keypt þær. Ég held að þessu
þurfi að breyta ef mönnum er á
annað borð alvara með það að
þurrka út allt svartamarkaðsbrask í
sambandi við myndbandaiðnaðinn.
—JÞ.
TILVALDAR FERMINGARGJAFIR
VARIANT
skíði, bindingar, stopparar
Stærðir 140—150 cm, kr. 850,-
Stærðir 160—175cm, kr. 1.050,-
tda9
Einnig mikii
VERDLÆKKUN
á skíðafatnaði
td.:
Stakir jakkar frá kr. 250,-
skíðabuxur frá kr. 330,-
skíðavesti frá kr. 198,-
Einnig stretchbuxur á börn
verð frá kr. 400,-
Grensásvegi 50 — 108 Reykjavík — Sími 31290