Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1982, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982.
Út um hvippinn og hvappinn — Út um hvippinn og hvappinn — Út um hvippinn og
Hvemig líður
tímanum?
Ágætlega,takk
Nýtt á markaðinum; klukka sem'
talar. Þetta erraunar armbandsúr —
tölvustýrt að sjálfsögðu, framleitt af
þýzka fyrirtækinu MEO. Hún vekur:
eiganda sinn með þvf að segja Góðan
daginn, góðan daginn. Svo spilar hún
lítið lag og hafi enn ekkert heyrzt frá
svefnþyrstum eigandanum, byrstir
klukka sig dálitið og segir Flýttu þér,
flýttu þér. Auk þessa segir klukka
upphátt einu sinni á klukkustund
hvað timanum líður.
Auðvitað talar þessi klukka aðeins
þýzku, enn sem komið er a.m.k. Illar
tungur segja hana tala bæerísku, en
bæeriska er mállýzka Bæjara- þótt
skrýtið kunni að virðast en þeir hafa
löngum haft undarlegan smekk á
klukkum og framleitt um árabil
klukkur sem ganga aftur á bak.
SNJÓKORN - SNJÓKORN - SNJÓKORN - SNJÓKORN - SNJÓKORN
Krataraunum lokiö —
fbili allavega
Þá hafa kratar loksins orðið
nokkuð ásáttir um skipan framboðs-
lista við bæjarstjómarkosningarnar á
Akureyri í vor. Að vísu tóku þeir
þann kostinn að móta listann i
áföngum. Skipað var í 6 efstu sætin
um sfðustu helgi, en síðan er meining-
in að fyila i þau 16 sæti sem eftir eru
með áhlaupi í einni lotu og sömu
törn, um næstu helgi.
Prófkjörskandi-
datarnir inni
Lokaniðurstaðan hjá krötum varð
sú, eftir allt jamlið, japlið og fuðrið,
að niðurstaða prófkjörsins er látin
gilda, að þvl undanskildu, að Tryggvi
Gunnarsson, murari og verkamaður,,
færist ur i. sætt t 4. Um leiö færast
Jórunn Sæmundsdóttir og Birgir
Marinósson upp um eitt sæti. Var
þetta sú skipan, sem flestir kratar
gátu sætt sig við, úr því sem komið
var. Fæstir þeirra munu þó vera
fullkomlega sælir meö listann.
Bárði hafnað
Sjö manna uppstillinganefnd
kratanna gerði tvær tillögur til full-
trúaráðsins, auk þeirrar er endanlega
var samþykkt. Var nefndin þvi
þriklofin. Þökkuðu kratar forsjón-
inni fyrir, að nefndin var ekki fjöl-
mennari!
Ein tillagan mun hafa verið komin
frá Hauki Haraldssyni. Hann vildi
setja Gígju MöUer í 2. sætið. Sú til-
laga var dregin til baka. Þá kom fram
tiliaga um Bárð Halldórsson í 2.
sætið og mun sú hugmynd hafa veriöj
komin frá honum sjálfum. Þeirri til-
lögu var vísað frá vegna formgalla.
Hafði fiutningsmönnum láðst að
leita samþykkis annarra fram-
bjóðenda sem þeir gerðu ráð fyrir á
iistanum. Auk þess var tillagan á
skjön viö þá stefnu sem fundarmenn
höfðu orðið ásáttir um, að setja ekki
aðra í 6 efstu sætin en þá sem tekið
höfðu þátt í prófkjörinu, þó svo að
úrslit þess hafi ekki veriö bindandi.
Ekki meira
af krötum
Þá er nóg sagt af krötum í biii. Ég
veit svei mér ekki um hvað ég hefði
átt að skrifa ef þessar framboðs-
raunir þeirra hefðu ekki komið til!
Áfengisvandamá!
Andrés vinur minn Templar, frá
Alkóhóli, hlustaði á umræður um
áfengisvandamálið í vinahópi á
dögunum. Sat Andrés hljóður undir
þeim umræðum sem voru í gáfu-
mannastil. Loks brást þolinmæði
vinar míns. Hann ræskti sig hoff-
mannlega, en hóf síðan upp sína
hljómmiklu rödd og sagði: ,,Ég skil
ekki þetta sífellda jarm um áfengis-
vandamál. Nú er enginn maður með
mönnum nema hann hafi farið á
silungsveiðar fyrir sunnan. Nú er
sagt: — Elsku bezti alkóhólistinn
minn, við menn sem áður voru bara
helvítis fyllibyttur”, sagði Andrés og
lagði áherzlu á orð sín, enda taldi
hann að búið væri aö gera úlfalda úr
áfengisvandamálinu.
Kynntist því af
eigin raun
En Andrés vinur minn átti eftir að
kynnast áfengisvandamálinu af eigin
raun. Hann vék sér að mér á förnum
vegi á mánudaginn og sagði: „Hvað
heldurðu maður, ég átti við áfengis-
vandamál að stríða um helgina.” Ég
hrökk við; Andrés Templar lfka fali-
inn í sollinn, hugsaði ég með
hrærðum huga. En áður en þessar
fregnir yllu mér frekara hugarangri
bað ég Andrés um nánari skýringu:
Jú, sjáðu til,” sagði hann, „ég
varð nefnilega brennivínslaus, og það
ámiðju fyliirii.”
Útvarp Akureyri
að veruleika
Nú virðist óðum styttast í að Ríkis-
jútvarpið setji formlega upp útibú á
Akureyri. Búið er að auglýsa eftir
tæknimanni til starfa. Líklegt er
talið, að meðal umsækjenda verði
Snorri Hansson og Björn Sigmunds-\
son, útvarpsvirkjar á Akureyri.
Einnig er búizt við að einhverjir
tæknimenn útvarpsins i Reykjavík
hafi hug á að flytja norður.
Þá standa vonir tii að Jónas Jónas-
son fáist til að koma norður. Er það
fengur fyrir okkur norðanmenn að fá
jafn reyndan og hæfan útvarpsmann
til að ýta úr vör. Jónas er rétti maður-
inn, því hann veit hvað klukkari slær
í aðalbækistöðvum útvarpsins við
Skúlagötu, auk þess sem hann er vel
kunnugur mönnum og málefnum hér
nyrðra.
Nýtt útvarpshús
Fyrir nokkrum árum festi Ríkisút-
varpið kaup á „Reykhúsinu” við
Norðurgötu. Þar var komið fyrir
tækjabúnaði til beinna útsendinga og
til að taka upp efni að noröan. En
húsið er gamalt og hljóðbært; mun
upphaflega hafa verið hesthús, síðar
reykhús. Hentar það því ekki fyrir
„stúdíó”, samhliða skrifstofuhaldi,
fréttastofurekstri og auknum um-
gangi. Yrði þá hætt við að ýmis auka-
hljóð færu út á öldur ljósvakans.
Með hliðsjón af þessu er í bígerð
að rikisútvarpið festi kaup á nýju
húsnæði á Akureyri undir útibú sitt
þar. Eru líkur til að það verði gert
strax á þessu ári, en á næsta ári verði
keypt ný tæki fyrir „Útvarp Akur-
eyri”.
Trabant
Magnús heitir mætur maður á
Akureyri og er sá Aðalbjörnsson. Er
Magnús yfirkennari við Gagnfræða-
skólann á Akureyri.
Hér áður fyrri á árunum var
Magnús einn af þeim fáu Akureýr-
ingum, sem hafði hugrekki til að
kaupa Trabant. Ætli það séu ekki að
verða hátt i 20 ár síðan. Fékk Magnús
þá viðurnefnið „Trabant” meðal
kunningja og nemenda í „Gaggan-
um”. Það er grunnt á stráknum I
Magnúsi og átti hann það til sjálfur
aökynnasig „Magnús Trabant”.
Það kom, að Magnús seldi
Trabantinn. Væntanlegur kaupandi
spurði hvað bíllinn væri mikið ekinn.
„Ja,” svaraði Magnús,” mælirinn
sýnir nú hátt i 12 þúsund kílómetra,
en í rauninni hef ég ekki ekið
Trabantinum nema 10.000 km.
Honum hefur nefnilega verið ýtt það
sem uppávantar!”
Ekki vitum við hvort sá sem spurði
keypti biiinn, en Magnús er allavega
búinn að selja hann fyrir iöngu. Hins
vegar ber það enn við, að Magnús er
nefndur „Maggi Trabant”.
Gisli Sigurgeirsson
Þau leiðu mistök urðu í myndaröðinni af Eysteini
Jónssyni í síðasta helgarblaði, að karíkatúrmyndin var
hreint ekki af Eysteini, heldur allt öðrum. Við biðjum
velvirðingar þar á, en birtum nú rétta mynd með text-
anum, sem átti að fylgja henni. „Það hafa verið
notaðir af mér tveir karíkatúrar. Á öðrum þeirra var
ég alltaf hafður eins og barn því að ég fór svo ungur af
stað út í stjórnmálin. Ég hafði alltaf lúmskt gaman af
þessum teikningum, en þó af engri eins og þessari.”
-KÞ.
IJémmyndir tveggja dogbíoða fré útifundi hernámsandstæðinga i AusturveUi é þriðjudaginn. Vogir sannleikans
M svo sannariega ill-rannsakanlegiri ViO iétum lesendum okkar eftír að geta upp 6 úr hveOe dagbiöðum
mfndimar eru fengnar.
KARÍKATTJRffM
AFEYSTEINI